Morgunblaðið - 26.05.1994, Blaðsíða 60
60 FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
FOLK
■ GUÐMUNDUR Hreiðarsson,
markvörður í knattspyrnu, sem
leikið hefur með Víkingi, síðustu
árin og gekk til liðs við Stjömuna
í vetur, er farinn frá félaginu.
Hann tilkynnti í gær félagaskipti
í Breiðablik og verður löglegur
með liðinu gegn IBV 1. júní.
JH ÞORKELL Snorri Sigurðs-
son, sextán ára kylfingur úr GR,
náði draumahringnum í Grafar-
holtií fyrradag. Þorkell Snorri
tók þátt í getraunamóti GR og lék
átján holurnar af gulum teigum á
65 höggum, eða sex undir pari.
■ ÞORKELL Snorri náði níu
„fuglum“ á hfingnum og notaði
29 pútt. Skorið gerir það að verk-
um að forgjöf hans lækkaði um
0,9 og er hann nú með tvo í forg-
jöf. Hannes Eyvindsson á vallar-
metið í GrafarhoJti, af gulum teig-
um — 63 högg.
KAPPAKSTUR
Lát Arytons Senna
Brak úr bfln-
um gegnum
hjálminn
Krafning leiddi í Ijós að brak
úr bíl kappakstursmanns-
ins Arytons Senna frá Brasilíu
fór í gegnum hjálm Brasilíu-
mannsins og olli höfuðáverkan-
um, sem síðar leiddi til dauða
kappaksturshetjunnar, þegar
Senna keppti á Imola-brautinni
í San Marinó. Alþjóðasamband
kappakstursökumanna, FIA,
greindi frá þessari niðurstöðu.
Max Mosley, forseti FIA, sagði
að Senna hefði látist eftir að
dekk og fjöður hefðu skollið á
höfuð hans. Talið er að hann
hefði komist lífs af, ef dekkið
hefði skollið á honum 10 sm
hærra eða 10 sm til hliðar.
FRJALSIÞROTTIR
Jón Amar á sterk
mót í Austuríki
Jón Arnar Magnússon, tugþraut-
arkappi, tekur þátt í mjög
sterku tugþrautarmóti í Austurríki
um helgina. Hér er um að ræða
sterkasta tugþrautarmót heimsins
ár hvert og fer það fram í Götzis.
Austurríkismenn bjóða ávallt
bestu tugþrautarmönnum heims á
mótið. Af 32 keppendum sextán
náð yfir 8.000 stigum. Jón Amar
fékk óvænt boð um að keppa á
mótinu, en hann náði góðum
árangri á móti í Linsburg í Virgi-
niu í Bandaríkjunum á dögunum,
er hann náði 7.805 stigum, sem
var yfir íslandsmeti Þráins Haf-
steinssonar — 7.592 stig. Árangur
Jóns Arnars fékkst ekki staðfestur,
þar sem meðvindur var of mikill í
tveimur fyrstu greinunum, 100 m
hlaupi og langstökki.
„Það er mikill heiður fyrir Jón
Amar að fá þetta boð frá Austur-
ríki, en þar fær hann tækifæri til
að etja kappi við marga bestu tug-
þrautarmennina," sagði Gísli Sig-
urðsson, þjálfari Jóns Arnars. Tug-
þrautarkappar eins og Eduard
Hamaláinen, Hvíta-Rússlandi
(8.724), Mike Smith, Kanada
(8.362), Mikhail Medved, Úkraníu
(8.146) og Tomas Dvorak, Tékk-
landi (8.054) taka þátt í mótinu.
Jón Arnar stefnir á að ná lág-
markinu fyrir Evrópumeistaramót-
ið í Helsinki, sem fer fram í ágúst.
„Að sjálfsögðu er stefnan einnig
sett á Íslandsmetið," sagði Gísli.
Jón Arnar Magnússon.
KNATTSPYRNA / HM í BANDARÍKJUNUM || KNATTSPYRNA
Irar tefla fram
reyndum köppum
Jackie Charlton, landsliðsþjálfari
írlands, hefur valið þá 22 leik-
menn sem leika fyrir hönd írlands
í heimsmeistarakeppninni í Banda-
ríkjunum. Tveir af „stríðsmönnum"
íra undanfarin ár, Liam O’Brien,
Tranmere og David O’Leary, Leeds,
eru ekki í leikmannahópnum, sem
er skipaður mörgum reyndum
leikmömnnum, en alls hafa leik-
menn írlands leikið 651 landsleik.
Tólf leikmenn sem léku með ír-
landi í HM á Ítalíu 1990, eru í hópn-
um. Elsti leikmaðurinn er Kevin
Moran, varnarleikmaður hjá Black-
burn — 38 ára, en Alan kelly, bak-
vörður hjá Leeds, er yngstur —
verður 20 ára 9. júlí.
írar leika vináttulandsleik gegn
Þjóðverjum í Hannover á sunnudag-
inn og síðan gegn Tékklandi í Du-
blin 5, júní. Daginn eftir halda írar
til Orlando í Bandaríkjunum.
Landsliðshópur írlands er þannig
skipaður:
Markverðir: Pat Bonner (Celtic), Alan
Kelly (Sheff. Utd.)
Varnarmenn: Gary Kelly (Leeds),
Denis Irwin (Man. Utd.), Paul McGrath
(Aston Villa), Phil Babb (Coventry),
Álan Kernaghan (Man. City), Kevin
Moran (Blackburn), Terry Phelan
(Man. City).
Miðvallarspilarar: Ray Houghton (As-
ton Villa), Jason McAteer (Bolton), Roy
Keane (Man. Utd.), John Sheridan
(Sheff. Wed.), Andy Townsend (Aston
Villa), Ronnie Whelan (Liverpool),
Steve Staunton (Aston Villa), Eddie
McGoIdrick (Arsenal), Alan McLoug-
hlin (Portsmouth).
Sóknarleikmenn: John Aldridge
(Tranmere), Tony Cascarino (Chelsea),
Tommy Coyne (Motherwell), David
Kelly (Wolves).
Pat Bonner, markvörður íra.
Mizuno styrkir
1. deild kvenna
Mizuno, sem er fyrirtæki með
íþróttafatnað, verður helsti
stuðningsaðili 1. deildar kvenna í
knattspyrnu í sumar. Skrifað var
undir samstarfssamning þess efnis
á skrifstofu KSÍ í gær. Þetta er í
fyrsta sinn sem fyrirtæki styrkir
kvennaknattspyrnuna hér á landi.
Hagsmunasamtök 1. deildar
kvenna beittu sér fyrir að samning-
ar náðust.
Samstarfssamningurinn milli
Mizuno og Hagsmunasamtaka 1.
deildar kvenna gengur út á almenna
kynningu og auglýsingu á leikjum
1. deildar kvenna í sumar. Fyrir-
tækið mun í lok tímabilsins verð-
launa leikmann ársins úr röðum
leikmanna 1. deildar kvenna sem
þjálfar liðanna velja. Eins verður
valið Mizuno-lið ársins.
Eggert Magnússon, formaður
KSÍ, sagði að þessi samningur væri
tákn um framfarirnar í kvenna-
knattspyrnunni og væri af hinu
góða. „Kvennaknattspyrnan er
helsti vaxtarbroddurinn í íslenskri
knattspyrnu," sagði formaðurinn.
Hann sagði að kostnaður KSÍ við
kvennalandsliðin þrjú, A-liðið, U-20
ára liðið og U-16 ára liðið væri um
10 milljónir króna á þessu ári.
Á einkaflugvél til Dublin
Berti Vogts, landsliðsþjálfari heimsmeistaranna frá Þýskalandi, kom á
einkaflugvél til Dublin á þriðjudaginn til að horfa á leik íra og Boliv-
íumanna. Hann mætti á staðinn til að fylgjast með Bolivíumönnum, sem
Þjóðverjar mæta í opnunarleik HM 17. júní — og þá leika Þjóðveijar
æfingaleik gegn írum í Hannover á sunnudaginn. Vogts var ekki yfir sig
hrifínn af því sem hann sá — og yfírgaf leikvöllinn í Dublin tíu mín. fyr-
ir leikslok, þannig að hann missti af sigurmarki íra, 1:0.
OPNA
SPARISJÓÐSMÓTE)
Sunnudaginn 29. maí verður haldið opið
golfmót hjá Golfiklúbbi Kópavogs og
Garðabæjar á golfvellinum við Vífilsstaði.
Keppnisfyrirkomulag er 18 holu höggleikur.
Veitt verða verðlaun fyrir 1. 2. og 3. sæti
með og án forgjafar.
Aukaverðlaun:
Fyrir að fara holu í höggi á 7. braut verður
ferðavinningur í verðlaun frá SAS
Ræst verður út frá kl. 9-00
Keppnisgjald er kr. 1.800
Skráning í golfskála í síma 657373 eftir kl. 13.00
n
SPARISJÓÐIMNN
GARÐATORGI 1 SÍMI 657500
er bakhjarl mótsins
RALLY CROSS
ÚRSLIT
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Bandarískur sýslumaður á ferö? Ford Einars Hjartarsonar var málaður
eins og bandarískur lögreglubíll, og vakti athygli fyrir þær sakir.
Meistararnir lagðir að velli
Íshokkí
Úrslit í Austurdeild NHL
Vancouver - Toronto..............4:3
■Eftir tvær framlengingar. Vancouver
vann samanlagt 4-1. Geysilegur fögnuður
braust út í Vancouver, eftir sigurinn, en lið
borgarinnar leikir í fyrsta skipti til úrslita
um Stanley bikarinn í 12 ár.
Blak
Smáþjóðamót kvenna í San Marínó.
Island - Færeyjar................3:1
(15:2, 16:14, 11:15, 15:8).
■Þórey Haraldsdóttir og Elva Rut Helga-
dóttir áttu góðan leik.
Knattspyrna
4. deild
A-riðill:
Ökkli-Ægir.....................1:2
C-riðill:
Kormákur - Magni...............3:2
Vináttulandsleikur
Tékkland - Litháen.............5:3
Portúgal
Benfica tryggði sér meistaratitilinn í Port-
úgal í 27. sinn þegar liðið lagði Gil Vicente
að velli, 3:0, í gærkvöldi.
Fyrsta íslandsmótið á rally cross
brautinni við Hafnarfjörð fór
fram á laugardaginn. Fjöldi kepp-
enda tók þátt, en ekið var í þremur
flokkum til meist-
ara. Báðir íslands-
Gunnlaugur
Rögnvaldsson
skrifar
meistaranna, sem
tóku þátt og kepptu
hvor í sínum flokki,
urðu að lúta i lægra haldi fyrir
öðrum keppendum.
Úrhellisrigning setti svip á
keppnina. í flokki krónubíla vann
Rúnar Olafsson á BMW, en meistar-
inn Sigmundur Guðnason á Toyota
varð að láta sér lynda annað sætið
á undan Kristjáni Bárðarsyni. í
flokki rally cross bíla vann Guð-
mundur Fr. Pálsson á Ford Escort,
sem er búinn yfir 300 hestafla vél
úr Ford RS 200 rallbíl. Teppaflokk-
inn vann Hjálmar Hlöðversson á
Camaro, Brynjar Kristinsson varð
annar. Einar Hjartarson varð þriðji
á Ford Futura.
Handknattleikur
Vináttulandsleikur
Danmörk - Svíþjóð.........25:27
Tícvöid g
Knattspyrna
Fjórir leikir verða í 1. deildar- I
keppni karla í kvöid kl. 20:
Stjaman - KR
FH - Þór, Akureyri
Vestmannaeyjar - Valur
Keflavík - Breiðablik