Morgunblaðið - 26.05.1994, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 26.05.1994, Blaðsíða 54
54 FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Upplýsingalína Sjálfstæðismanna I DAG Hringdu núna áfram Reykjavík <D Vilt |)ú slást í hópinn? Okkur vantar sjálfboðaliða til margvíslegra starfa fram að kjördegi og á kjördag 28. maí. Komdu á næstu hverfaskrifstofu og fáðu allar nánari upplýsingar. Vesturgata 2 Símar: 18400* 18401 • 18402 Valhöll Sími: 880903 Grensásvegur Símar: 880905 • 880906 • 880907 Laugarnesvegur 52 Sími: 880908 Hraunbær102b Sími: 879991 Álfabakka 14a Símar: 871992*871993*871994 Torgið Sími: 879995 Wk aSjálfstæðismenn Munum utankjörfundar- kosninguna Þeir sem verða að heiman á kjördag geta kosið utan kjörfundar. í Reykjavík fer utankjörfundar- kosning fram í Ármúlaskóla við Ármúla alla daga frá kl. 10-12,14-18 og 20-22. ! Allar upplýsingar um utankjörfundar- kosningu eru veittar á skrifstofu Sjálfstæðis- flokksins í símum 880900, 880901 og 880915. Þeir sem búast við að verða að heiman á kjördag 28. maí eru minntir á að kjósa utan kjörfundar. Borgarstjórnarkosningar 28. maí 1994. áfram Reylcjavík «0 BRIPS U m s j ó n G u ó m . P á 11 Arnarson Bridsfélag Akureyrar er 50 ára eins og lýðveldið. Félagsmenn héldu upp á afmælið með opnu tví- menningsmóti um næstsíð- ustu helgi. Mótið fór í kjöl- far íslandsmótsins í para- keppni, sem haldið var á Akureyri í þetta sinn. Sannkölluð fjögurra daga bridshátíð. Parakeppnina unnu hjónin Ljósbrá Bald- ursdóttir og. Matthías Þor- valdsson, en Haukur Inga- son og Jón Þorvarðarson unnu opna tvímennings- mótið. Skoðum hér einn af mörgum toppum Jóns og Hauks, en þeir eru í AV í vörn gegn fjórum hjörtum: Vestur gefur; allir á hættu. Norður ♦ ÁDGI04 V D96 ♦ D86 ♦ ÁG Vestur ♦ 98753 V 8 ♦ Á10 ♦ D10983 Austur ♦ K V G104 ♦ K9752 ♦ K762 Suður ♦ 62 V ÁK7532 ♦ G43 ♦ 54 Vestur Jón Norður Austur Haukur Suður 2 spaðar* Pass 3 lauf** 3 hjörtu Pass 3 spaðar Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass * Tartan, þ.e. veikt með spaða og láglit ** leitandi. Jón hitti á besta útspilið, tígulás. Hann spilaði meiri tígli og Haukur tók á kóng- inn og gaf Jóni stunguna með tvistinum, sem var kall í laufí. Jón spilaði laufí, eins og um var beðið, og sagn- hafi drap á ás. Tók svo hjartadrottningu og hjarta- ás. Eini samgangurinn er á trompi, svo suður neyddist til að svína fyrir spaðakóng áður en hann tók síðasta trompið af Hauki. En svín- ingin misheppnaðist og Haukur spilaði galvaskur litlu laufí undan kóngnum. Jón átti slaginn á drottningu og gaf Hauki spaðastungu, sem var sjötti slagur vamar- innar! Fjögur hjörtu unnust á mörgum borðum, sums staðar með yfírlag eftir spaðaníu út! VELVAKANDI Svarað í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Borðfánastöng AUGLÝST er eftir vitn- eskju um hver hafí hannað mjög sérstaka þjóðhá- tíðarborðfánastöng • frá 1944 og er lýsingin á henni eftirfarandi: Þríhyrndur stuðla- bergsstandur með skildi á með ártalinu 17. júní 1944 og mynd af íslandi. Viti einhver hver hefur hannað þetta er hann vin- samlega beðinn að hafa samband í síma 36649. Ása Ingólfsdóttir. Gott framtak - gott blað ÉG ER ekki vanur að segja álit mitt á einstökum málum opinberlega, hvað þá um fjölmiðla sérstak- lega, en nú er svo komið að ég get ekki lengur orða bundist. Málið er að nú um daginn rakst ég á veg- legt tímarit og keypti mér eintak, en þetta mun vera fýrsta tölublaðið og heitir íslenski boltinn. Þvílíkt blað. Þetta er eiginlega bók og áreiðan- lega einhver mesti upplýs- ingabanki um knatt- spyrnu sem ég hef augum litið. Þama era ljósmyndir, greinar, viðtöl og tölfræði- leg umfjöllun í slíku magni að leitun er að öðru eins. Þetta er gott framtak og þarft og vil ég hvetja alla íþróttaunnendur, og þá knattspymuunnendur sérstaklega, til að styrkja framtakið. Guðmundur Jónasson Vogar gott blað ÉG ER afsaplega ánægð- ur með blað sjálfstæðis- manna í Kópavogi. Oft hefur verið mjög mikið skítkast í bæjarblöðunum en Vogar hafa verið mál- efnalegir og jákvæðir í þessari kosningabaráttu. Það er krafa kjósenda að persónulegt skítkast sé ekki stundað og hvet ég forystumenn hinna flokk- anna í Kópavogi til að taka Sjálfstæðismenn sér til fyrirmyndar. Þórður Ó. Þórðarson, Meðalbraut 2, Kópavogi. Tapað/fundið Hjól í óskilum SVART karlmannsreið- hjól er í óskilum nálægt Borgarspítalanum. Upp- lýsingar í síma 33929. Týnthjól GRÁTT Mongoose 18 gíra fjallahjól hvarf frá Stiga- hlíð 34 laugardaginn 14. þ.m. Þess er sárt saknað af eiganda sem er 11 ára. Hafí einhver orðið var við hjólið er hann vinsamlega beðinn að láta vita í síma 30437 eða sá sem tók það er vinsamlega beðinn að skila því aftur í Stigahlíð 34. Herraúr tapaðist SÁ SEM fann Pierpoint herraúr í sturtuklefa í sól- baðstofunni Gullsól í Kópavogi föstudaginn 13. þ.m. er vinsamlega beðinn að skila því á sólbaðstof- una. Þetta úr var útskrift- argjöf og þess er sárt saknað. Sólgleraugu töpuðust SVÖRT sólgleraugu í svörtu hulstri töpuðust laugardaginn 14. maí sl. á leiðinni milli Norður- brúnar 1 og Kleppsvegar framhjá Skjóli. Skilvís fínnandi hringi í síma 14761. Skyrta tapaðist GRÁ fínköflótt, langerma Jive-skyrta með rennilás, tapaðist í nýja Kolaportinu á opnunardegi þess sl. laugardag. Skilvís finnandi vinsamlega hringi í síma 628703. Hjól tapaðist HVÍTT 21 gíra fjallahjól með svörtum bögglabera og stýri tapaðist fyrir utan Foldaskóla fýrir u.þ.b. tveimur vikum síðan. Skil- vís finnandi vinsamlega hafi samband í síma 676517. Gæludýr Kettlingar ÁTTA vikna gamlir svart- ir kettlingar, kassavanir, óska eftir heimili. Upplýs- ingar í síma 672554. Læða og kettlingur fást gefins ÁRS gömul læða og átta vikna kettlingur þurfa að eignast gott heimili vegna breyttra aðstæðna eig- enda þeirra. Þær eru blíð- ar og góðar. Uppl. í síma 42384. Týndur köttur KÖTTURINN okkar, Dep- ill, hvarf frá heimili sínu í Seljahverfi laugardaginn 14. maí sl. Depill er hvítur með rauðbrún eyru og rauðbrúnt í baki og rófu. Hann er ómerktur en ef einhver veit um afdrif hans eða verustað er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 77967. De- pils er sárt saknað og góð fundarlaun eru í boði. Kettlingur fæst gefins TÍU vikna kettlingur, kassavanur, fæst gefins. Uppl. í síma 814719. Kanína óskast TÍU ára stúlka í sveit ósk- ar eftir að fá gefins kan- ínu. Upplýsingar í síma 98-65540. Sigrún. Síamslæða fannst SEAL-point síamslæða fárveik og grindhoruð fannst mánudaginn 16. maí sl. við Torfufell. Hún er með rauða hálsól. Eig- andinn má vitja hennar í síma 79721. Kettlingar fást gefins SEX yndislega fallega og góða kettlinga vantar góð heimili. Uppl. í sfma 653672. Víkveiji skrifar... Eftir þreytandi myrkur og kulda- gjóstur vetrarins leysist lífið úr læðingi með sumarkomunni. í góðviðrinu undanfarna daga hefur mátt sjá iðandi líf út. um allar koppagrundir. Um síðustu helgi var t.d. líf og fjör í Heiðmörkinni og einhver sagði að á sumum vegar- slóðanna hefði umferðin verið eins og á Laugaveginum. Þarfasta þjón- inn og aðdáendur hans var að finna á Fáksmóti í Víðidalnum svo dæmi sé tekið og aðrir hafa sjálfsagtþan- ið vélfáka sína á hálendinu. Otrú- legustu menn tala um lauka og fræ, rósir og runna, arfa og annað ill- gresi. Það er klippt og slegið, sáð og sandað og grænir fingur kvarta þreyttir en ánægðir um bakverki og blöðrur. Kylfíngar hafa tekið gleði sína, beija hvítu kúluna óspart og þykj- ast hafa mikið vit á hvort flatir komi vel eða illa undan vetri. Veiði- menn eru farnir að gjóa augum í flúðir og fossa og gera sér erindi inn að Elliðaám þó þeir hafi ein- göngu þóst ætla út í búð að kaupa mjólkurlítra eða oststykki. Öll nátt- úran hefur tekið við sér. Það er léttara yfir strákunum í miðbænum og stúlkurnar sumarlegri og sæt- ari. Eða hvað? XXX Vestast á Seltjamamesinu, þar sem heitir Suðurnes, beijast kylfíngar og kríur um yfirráðin. Reyndar er spurningin frekar um gagnkvæma virðingu en völd. Hún gæti sagt við kylfmgana: „Vertu á brautinni, góði, fyrirþað borgaðirðu árgjaldið í golfldúbbnum. Ef þú ert eitthvað að þvælast inn á mitt svæði, sem er í gijótinu og grasinu við fjöruna, gogga ég í hausinn á þér.“ Krían er að byija að verpa og á hveiju vori er jafn gaman að fylgj- ast með tilhugalífi þessa litla, en kraftmikla fugls, sem fer um langan veg vor og haust til að komast í kjörlendurnar. Tjaldurinn er löngu sestur og sömuleiðis kollurnar, sem hreyfa sig vart þó nánast sé stigið ofan á þær. Sambýlið á þessum stað er með ólíkindum og yfir vak- ir voldugur Snæfellsjökullinn í vestri. xxx Knattspyrnumenn í.efstu deild- um em byrjaðir íslandsmótið og þó aðrir en KR-ingar hafí verið sparir á markaskorun var mikið líf í leikjum 1. deildar á mánudaginn. Ahugi fólks á íþróttinni er mikill og yfir fimm þúsund manns fylgd- ust með leikjunum fímm í fyrstu umferðinni. En þó hefðbundinn tími knattspyrnumanna sé hafínn er langt í frá að körfuboltamenn séu komnir í hvíld. Áður vom strákar skjótandi á mark á hverri einustu grasflöt á þessum árstíma, bíiskúrs- hurðir vom stórlega skemmdar og skólalóðir gerðar að fótboltavöllum. Nú hefur körfuboltinn sótt í sig veðrið og víða er að finna körfur sem strákar skjóta í daginn út og inn. Þeir mæta snemma á morgn- ana, gjarnan þeir yngri, og þeir eldri em að langt fram á bjarta nóttina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.