Morgunblaðið - 26.05.1994, Page 15

Morgunblaðið - 26.05.1994, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1994 15 NEYTENDUR Skötuselur og rauðmagi GULLI er forstjórinn en Stefán er formaðurinn ÝMSIR matreiðslumeistarar tóku þátt í keppninni um Oscars-verð- launin fyrir skömmu. Það var Úlfar Finnbjörnsson matreiðslumeist- ari á Jónatan Livingstone mávi sem hlaut titilinn. Tveir aðrir matreiðslumeistarar hlutu tilnefningu, þeir Guðmundur Ragnars- son á Lauga-Ási og Walter G.E.K. Riedel. Eins og fram hefur komið var Úlfar einnig kjörinn matreiðslu- meistari ársins sömu helgi. Sú keppni sem haldin var í fyrsta skipti hér á landi og Félag matreiðslu- manna og Klúbbur matreiðslumeist- ara stóðu fyrir og var studd af heild- verslun Ásbjöms Ólafssonar. í síðustu viku birtum við upp skrift Úlfars Finnbjörnssonar að forrétti sem hann var með í þeirri keppni en Oscarsverðlsaunaupp- skriftir birtast nú. hveiti og steiktur í olíu. Kryddaður með salti og pipar. Sósa: Soðið, andakraftur og Grandkrem er soðið saman. Þykkt með maizena ef vill og bragðbætt með safa af ávöxtum, rjóma og hvítvíni. í Grandkrem má nota vanillusyk- ur í stað Grand Marnier. Skötuselur með ávöxtum í karrýsósu Úlfar Finnbjörnsson matreiðslu- meistari 4 x 200 gramma skötuselssneiðar 'h mangó skorið í sneiðar 'h epli skorið í sneiðar 'h banani skorinn í Sendast ókeypis fyrir aldraða og blinda ÞAÐ er hægt að ferðast um borgina á ýmsan hátt í atvinnu- skyni og fararskjótar þeirra Gulla og Stefáns eru þessi for- láta sendlahjól með kerr- um. Þeir starfa saman félagarnir, annar er formaður en hinn forstjóri og fram til þessa hafa þeir haft aðstöðu hjá Greiðabílum. Stefán segist líka vera með símboða þurfi við- skiptavinirnir nauðsynlega að ná sambandi við sig. Það er aðeins kerra á öðru hjólinu en verið að smíða aðra á hitt hjól- ið núna. Kerrurnar eru nefni- lega hentugar undir pakka og annan varning sem þeir sendast með fyrir fyrirtæki og einstakl- inga og kostar ferðin innan höfuðborgarinnar 300 krónur. Hinsvegar taka þeir ekki krónu fyrir að sendast fyrir blinda og aldraða. Það gera þeir ókeypis. Karrýristaöur rauðmagi með suðrænni ávaxtakremsósu sneiðar 'h bolli ananas skorinn í sneiðar 1 msk. kókos Oscars-verðlaunauppskriftirnar Omega-3 lýsis- þykkni FISKAFURÐIR voru með bás á matvælasýningunni Matur ’94 en fyrirtækið hefur lagt áherslu á útflutning sjávaraf- urða og framleiðslu og sölu þorskalýsis. Helstu útflutnings- afurðir eru mjöl, lýsi, þurrkaðir hausar, frosinn fiskur og inn- og útflutningur á Rússafiski. Lýsisverksmiðja Fiskafurða í Þorlákshöfn setti nýlega á markað Omega-3 lýsisþykkni sem er ætlað þeim sem vilja auka hlutfall fjölómettaðra fitusýra í fæðunni og talið er að Omega-3 fitusýrur geti hjálpað til í baráttunni við hjarta- og æðasjúkdóma. Omega-3 pillurnar innihalda ekki vítamín. Omega-3 lýsisþykkni Guðmundur Ragnarsson mat- reiðslumeistari 500 g rauðmagaflök 1 tsk. karrý 100 g hveiti 2 dl Oscars-fiskikraftur 'Atsk. Oscars-andakraftur 2 dl Grand krem, sem í er: 1 'hd\ mjólk 'hd\ Grand Marnier 50 g Oscars-þeytikrem 2 kakí _________2 plómur, rauðar_________ olía, salt og pipar ananas og jarðarber til skreytingar Fiski velt úr blöndu af karrý og 1 -2 msk. karrý 1 msk Oscars-fiskikraftur 'h msk. Oscars-grænmetiskraftur 4 dl rjómi 2 msk. olía salt og pipar 1 -2 dl mysa Ávextirnir látnir krauma á pönnu í olíu. Bætið karrýi og kókos á pönn- una og brennið lítillega. Þá er mysu bætt út í og soðið niður um helm- ing. Rjóma er bætt á pönnuna og soðið þangað til hann fer að þykkna. Steikið skötusel í olíu í um það bil 1-2 mínútur á hvorri hlið. Berið fram með sósu og hrísgijónum. 30 stjúpur í bakka á tilboðsverði ÞRJÁTÍU stjúpur í bakka eru nú seldar á 999 krónur í versluninni Blómaval. Bjarni Finnsson eigandi verslunarinnar segir að nærri 200 þúsund blandaðar stjúpur hafi ver- ið ræktaðar sérstaklega í Hvera- gerði með það fyrir augum að selja þær í svokölluðum þjóðhátíðar- bökkum. Stakar stjúpur kosta 50 krónur stykkið en verð á hverri stjúpu í 30 stykkja bakka er rúmlega 30 krónur. „Við höfum ekki selt stjúp- ur á svona iágu verði í tíu ár,“ seg- ir Bjarni, en þess má geta að í Blómavali eru stjúpur um 70% af allri sölu sumarblóma. Ýmis tilboð í gangi á hárgreiðslustofum I AUKNUM mæli tíðkast það nú að eigendur hárgreiðslustofa bjóði viðskiptavinum sínum upp á ýmis tilboðskjör. Hinsvegar eru líka margar stofur sem bjóða enga af- slætti en segjast halda verði í lág- marki. Eitt er víst, það er mikil samkeppni milli hárgreiðslustofa núna. Við hringdum á nokkrar stofur og athuguðum hvort eigendur byðu viðskiptavinum sínum afslætti eða önnur tilboð. Um helmingur þeirra hárgreiðslustofa sem haft var sam- band við var með einhverskonar tilboð í gangi. Hjá hárgreiðslustofunni Yr eru alltaf einhver tilboð, tvo mánuði í senn og misjafnt hvernig tilboð er um að ræða. Þá fá viðskiptavinir hárgreiðslustofunnar einnig svo- kallað klippikort. Klippt er af kort- inu í hvert skipti sem komið er á stofuna og í sjötta skipti fær við- komandi einhveija gjöf og í tólfta skipti ókeypis klippingu. Hjá hárgreiðslustofunni Valhöll er viðskiptavinum boðið upp á svo- kallað fjölskyldukort. í hvert skipti sem fjölskyldumeðlimur kemur er stimplað á kortið og í sjötta skipti er heimsóknin á hárgreiðslustof- una ókeypis. Korthafar njóta ann- arra fríðinda s.s. afsláttar af vörum og svo framvegis og fríðindin verða meiri eftir því sem heimsóknirnar verða fleiri. Hjá Hár-Stúdíói er mánaðartil- boð í gangi núna, 20% afsláttur af permanenti, lit og strípum og einnig er viðskiptavinum boðið klippikort. Þá er tíunda skiptið á stofuna ókeypis. Svokallaður permanent og lita- pakki er einnig þjá þeim núna, 25% afsláttur er veittur af klippingu, djúpnæringu, blæstri og perman- enti eða litun. Þetta er aðeins sýnishorn af því sem er hjá hárgreiðslustofum þessa dagana en svo eru lika marg- ar stofur sem bjóða ekki upp á nein tilboð. Eigendur nokkurra stofa sem ekki voru með tilboð héldu því fram að ekki væri allt sem sýndist. Oft væri þjónustan á hærra verði en annarsstaðar og því væru tilboðin hálfgert plat þeg- ar upp væri staðið. Yfirleitt leggja eigendur nú mikið uppúr því að halda sínum föstu viðskiptavinum, hliðra til fyr- ir þeim ef þarf og taka ekki alltaf fyrir alla þjónustu sem þeir fá. Hallveig Sigurðardóttir á hár- greiðslustofunni Cortex segist ekki beint veita föstum viðskiptavinum afslátt en taka kannski ekki fyrir hárþvott eða sleppa að rukka fyrir blástur ef því sé að skipta. Þriggja Retta Kvöldverður Hvítlauksbœtt öóuskelssúpa með safranþráóum Kryddleginjiskiþrenna (lúóa, silungur og langhali) í engifer, meó kiwisósu Döóluterta meó bláberjaís Verðkr. 1.960,- Skólabrú Sími 624455

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.