Morgunblaðið - 26.05.1994, Side 16

Morgunblaðið - 26.05.1994, Side 16
16 FIMMTUDAGDR 26. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT Reuter Morðingjunum verði ekki sleppt úr haldi FORELDRAR James Bulgers, drengsins sem tveir ellefu ára piltar myrtu í fyrra, sögðust í gær ætla að helga líf sitt barátt- unni fyrir því að morðingjarnir yrðu alla ævina í fangelsi. Þeir afhentu stjórninni lista með nöfnum 280.000 manna sem hvöttu til þess að piltunum yrði ekki sleppt úr fangelsi. Áður hafði breskur dómstóll lagt til að piltarnir afplánuðu 8-10 ár af fangelsisdómnum. Á mynd- inni heldur móðirinn á fimm mánaða gömlum syni þeirra hjóna. Samherji Bills Clintons sakaður um spillingu Fer Dan Rosten- kowski í fangelsi? SENDIMAÐUR Sameinuðu þjóð- anna í Rúanda, Iqbal Riza, ræddi í gær við bráðabirgðastjórn Iands- ins í höfuðborginni, Kigali, og sagði að samið kynni að verða um vopnahlé bráðlega. Talið er að um hálf milljón manna hafi verið drepin í óöldinni í landinu undan- farna tvo mánuði og búist er við að Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna fordæmi drápin og hefji rannsókn á því hverjir beri ábyrgð á grimmdarverkunum. Hundruð þúsunda manna hafa flúið heim- kynni sín vegna óaldarinnar og á myndinni gengur aflimaður mað- ur framhjá þremur flóttamönnum f suðurhluta landsins. Þannig kæmist Rostenkowski hjá erfiðum réttarhöldum, sem myndu reyna mjög á fjölskyldu hans og kosta hann mikla fjár- muni. Verði hins vegar höfðað mál gegn honum á hann yfir höfði sér langan fangelsisdóm. Samkvæmt reglum þingsins verða formenn þingnefnda að segja af sér verði þeir ákærður fyrir glæpi sem varða meira en tveggja ára fangelsi. Reynt að koma á vopnahléi í Rúanda Rostenkowski er frá Chicago. Var hann fyrst kjörinn á þing 1958 og hefur því setið þar í 36 ár. Washington. Reuter. DAN Rostenkowski, þingmaður í fulltrúadeild Bandaríkjaþings og náinn samheiji Bills Clintons forseta, mun líklega semja um það við saksóknara alríkisins, að hann segi af sér þingmennsku á næstunni og fari í fangelsi. Er hann sakaður um að hafa notað almannafé í eigin þágu og hefur rannsókn í máli hans staðið í tvö ár. Rostenkowski er nú formaður tekjuöflunarnefndar Bandaríkja- þings og brotthvarf hans er talið munu verða mikið áfall fyrir bar- áttu Clintons fyrir breytingum á heilbrigðiskerfinu. Hann virðist þó vera í þann veginn að missa fleira en formannssætið því að CBS- sjónvarpsstöðin sagði í fyrradag, að lögfræðingar hans hefðu skýrt saksóknurum svo frá, að hann væri reiðubúinn að segja af sér þingmennsku og fara í fangelsi í skamman tíma ef málssókn gegn honum yrði hætt að öðru leyti. Banvæna bakteríusýkingin lengi verið þekkt Læknar vara við æsi- legum fréttaflutningi London. Reuter. BRESKIR læknar voru í gær að kanna fréttir um að níu manns en ekki sjö hefðu látist úr skæðri bakteríusýkingu en hún getur jafnvel dregið menn til dauða á einum sólarhring. Læknarnir vara hins vegar við æsifréttum af sjúk- dómnum og leggja áherslu á, að ekki sé um neinn faraldur að ræða. Frá árinu 1992 hefur 21 maður látist í Hollandi vegna sýkingar af þessum toga og í Bretlandi eru dauðsföll af hennar völdum yfir- leitt um tíu á ári. „Þessi fréttaflutningur hefur vakið upp ótta meðal fólks og nú er svo komið, að þeir, sem fá eitt- hvað í hálsinn, halda margir, að þeir standi við dauðans dyr,“ sagði Streptococcus- bakterían yfir- leitt meinlaus talsmaður bresku heilsugæslunnar en sýkingarinnar, sem að þessu sinni kom fyrst upp í Gloucesters- hire, hefur orðið vart víða um Bretland. Breskir fjölmiðlar, einkum gula pressan, hefur velt sér upp úr alls konar fréttum af sjúkdómnum. „Banvæna bakterían át af mér andlitið" var forsíðufyrirsögnin í æsifréttablaðinu Star en þar var rætt við mann, sem hafði sýkst og síðan þurft á skinnágræðslu að halda í andliti. Hollenska heilbrigðisráðuneytið skýrði frá því í gær, að í Hollandi hefði 21 maður látist af völdum þessarar sýkingar frá 1992. „Til- fellin eru dreifð um landið og talan er ekki há enda ekki um neinn faraldur að ræða,“ sagði talsmað- ur ráðuneytisins. Sömu sögu er að segja frá öðr- um Evrópulöndum og víðar að, sýking af völdum streptococcus- bakteríunnar, sem yfirleitt er fremur meinlaus, hefur lengi verið kunn en tilfellin mismörg milli ára. Oftast dugir fúkkalyfjameð- ferð nema þegar sjúkdómurinn er of langt fram genginn. Þaö nýiasta frá uvex Verð kr.2.150,- HadlMÍFffflH GLÆSIBÆ . SÍMI 812922 Húseigendur ath! MIX0LITH einangrunarmúrinn er ódýr og varanleg utanhússklæðning, t.d. á steypuskemmdir. Litaúrval Símar 91-870102/985-31560. Fax 91-870110.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.