Morgunblaðið - 26.05.1994, Side 22

Morgunblaðið - 26.05.1994, Side 22
22 FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Hvað með bamabörnin, Guðrún? Opið bréf til Guðrúnar Helgadóttur, alþingismanns SÆL VERTU Guð- rún. Það setti að mér hroll við að lesa svar- grein þína til Helga Sigurðssonar í Morg- unblaðinu 19.5. sl. Þá rifjaðist upp fyrir mér sami málflutningur, sömu rök og sama af- staða þín til reykinga og þú opinberaðir al- þjóð á árinu 1984. Það ár var frumvarp til nýrra tóbaksvama- laga til umfjöllunar á Alþingi íslendinga. Það er eins og þú haf- ir ekkert lært um tób- aksneyslu og áhrif hennar á heilsu og heilbrigði fólks á þessum 10 árum? Þú veður enn sama reyk! Þú ert enn við sama tóbakshomið! Þú bankar hausnum við sama gijótið og forðum og með sama árangri. Engin ný þekking síast inn. Engar nýjar hugsanir fæðast. Engin ný afstaða mótast. Málflutn- ingur þinn er sama tóbakið, hróp og skens. Þetta er mér umhugsun- arefni og það ætti að vera þér ástæða til íhugunar. Upplýsingar Helga Sigurðsson- ar læknis um óheilsu og tóbaks- neyslu í opnu bréfí til þín þann 17.5. sl. era réttar og byggðar á þeirri þekkingu sem fyrir hendi er þjóðhátíðarárið okkar. Þú kýst aft- ur á móti að kalla Helga Sigurðs- son ósannindamann, rök hann óvís- indaleg og gefur í skyn að fyrir honum vaki eitthvað annað en að upplýsa um staðreyndir. Þennan áfellisdóm hirðir þú ekki um að rökstyðja og en lætur nægja að gera hróp að manningum með glamuryrðum og gysi. Stöðu mannsins vegna telur þú þó við hæfi og þér skylt að senda honum tóninn. Þú ger- ir manna-mun Guð- rún. Nú hefur þú enn skipað sjálfri þér í fylkingarbijóst reyk- ingamanna. Það er við hæfi og drengskapur. Reykingamenn eru minnihlutahópur og eiga talsmenn fáa utan sinna vébanda. Mann- réttindi viljum vér í öndvegi og þau em fjöregg lýðræðis. Mannréttindi era réttur einstaklingsins til að velja og hafna, taka ákvarðanir og axla ábyrgð á eigin lífi. Umræð- an snýst einnig um réttindi þeirra sem ekki nota tóbak og þeir eru fleiri í þjóðfélaginu. Við erum því einnig að skoða lögmál og leikregl- ur lýðræðisins, Guðrún. Umræðan er einnig af siðfræðilegum toga. Er frelsi einstaklingsins svo óheft í þjóðfélagi að hann með gjörðum sínum megi skaða og jafnvel deyða náungann án þess að vera kallaður til ábyrgðar? Við viljum réttsýni og réttlæti fyrir reykingamenn og einnig hina sem kjósa að reykja ekki. Engum er bannað að reykja og er það einkamál hans Guðrún. Það era mannréttindi. í bemsku minni man ég eftir hrákadöllum á göngum Arnar- hváls, miðstöð opinberrar stjórn- sýslu hér á landi. í þann tíma nutu spýtingar enn tillits eins og hús- búnaður þessi í Arnarhváli sýndi. Ekki man ég eftir því Guðrún, að opinber umræða um mannréttindi skyrpingamanna færi fram en mjög var að þessum mönnum þrengt er hrákadallar voru aflagð- ir. Menn urðu að skyrpa utandyra ellegar á laun. Enginn skipaði sér í fylkingarbijóst þeim til vamar. Hvaða „offors og miskunnarleysi" átti sér þarna stað? Er of seint að beita sér í þessu máli og leiðrétta þeirra hlut? Ég hvet þig eindregið til þess Guðrún, því notkun munn- tóbaks fer nú aftur vaxandi. Það er skondið Guðrún, að þú skulir snúast til varnar einu mesta auðvaldi heims, tóbaksiðnaðinum. Auðvald, sem að útflutningsverð- mætum veltir yfir 4.000.000.000 (já, 4 og níu núll!) bandaríkjadala á ári. Auðvald, sem ver þúsundum milljóna til auglýsinga og áróðurs og oft á óbeinan hátt til að smjúga í gegnum landslög. Auðvald, sem hefur afl til afskipta af heimsmál- um og þar era þær systur rétt- sýnni og miskunn í engum ráðum hafðar. Þú ert komin í vondan fé- lagsskap, Guðrún. Styður rangan málstað. „Yfirveguð upplýsinga- starfsemi" má sín lítils í þessum ójafna leik - og þó. Undanfarin ár hefur dregið úr reykingum á Vesturlöndum meðal menntafólks og þeirra sem betur mega sín efna- Iega. En hvernig réttum við þá hlut hinna, sem standa höllum fæti, Guðrún? „Yfirveguð upplýs- ingastarfsemi" dugir ekki. Árið 1988 var tóbaksframleiðsla í heiminum 6 milljónir tonna þurr- vigt. í dag er hún 7,9 milljónir og Snorri Ingimarsson. Það er skondið, segir Snorri Ingimarsson, að Guðrún Helgadóttir skuli snúast á sveif með mesta auðvaldi heims, tóbaksauðvaldinu. búist er við að heimsframleiðslan verði árið 2000 8,6 milljónir tonna þurrvigt. Hlutfallslega verður neysluaukningin mest í þróunar- löndunum. Þangað beinum við of- framleiðslunni í dag, Guðrún. Telur þú að „yfirveguð upplýsingastarf- semi“ í þróunarlöndunum geti forðað þeim frá vandanum eins og þú álítur að okkur dugi? Þessi lönd eiga sér engin tóbaksvarnalög og engin ákvæði um bann við tóbaks- auglýsingum era þar í gildi. Þessi lönd eru fátæk og berskjölduð. Oft hafa þau vonda og spillta leiðtoga. Möguleikar auðvaldsins eru miklir. Leikur kattarins að músunum er glannafenginn og háskalegur. Þú ert í vondum félagsskap, Guðrún. í álfunni okkar Evrópu deyr á þjóðhátíðarárinu um 1 milljón manna af völdum beinná og óbeinna reykinga. Sjöfalt færri lát- ast þar í umferðinni á sama tíma. Færa má rök fyrir að samgöngur séu nauðsyn. Reykingar era ekki „ósiður“ eins og þú kýst að kalla þær og var viðtekin málvenja fyrir aðeins fáum áratugum. Reykingar era dauðans alvara. Fer sem horf- ir munu frá árinu 2025 tvær millj- ónir manna látast árlega af völdum reykinga í Evrópu einni. Á næsta mannsaldri munu því rúmlega 50 milljónir manna deyja af völdum reykinga í álfunni okkar. Ógnvæn- leg tala og svo há að hún verður okkur óraunveruleg. En hugleiðum Guðrún, að allar þessar milljónir fólks eru fæddar þegar þessi orð eru skrifuð. Þetta eru börnin okkar og bamaböm. Þetta er harmleikur, harmleikurinn okkar, sem nú ráð- um för. Ef hér á landi væri mengandi stóriðja og ylli dauða hundruða íslendinga á ári hveiju þá mundi í þér heyrast alþingismaður góður. Nú vill svo til að hér á landi er starfsemi með tugþúsundir kvenna og karla við iðju sem heitir reyk- ingar og það deyja hundrað íslend- inga ár hvert fyrir vikið. Fyrir þessa stóriðju ert þú búin að skipa þig talsmann Guðrún. Afstaða þín til þess „tóbaksvarnafrumvarps sem lagt var fram á nýafstöðnu þingi og er enn vitlausara en hin * 1 fyrri“ er mér áhyggjuefni. Ég heyri i að þú sért góður rithöfundur efnis fyrir börn. Á þeim vettvangi átt þú heima. Tími er kominn til að taka sjón- aukann frá blinda auganu Guðrún. Þú hefur ekki verið réttsýn. Þú hefur ekki verið trúverðug í mál- flutningi þínum. Hróp þín og skens leysa engan vanda og vandann i verðum við að horfast í augu við. } Ekki börnin okkar og barnabörn. Heill og hamingja fylgdu Þor- ' geiri Ljósvetningagoða forðum undir feldinn. Enn í dag njóta ís- lendingar vits þessa manns, sem skar úr og afstýrði þingheimi að beijast kristnitökuárið. Hann lagði niður metnað sinn og trú fyrir heill heildarinnar. Mættum við eiga slíka skörunga á Alþingi íslend- inga nú. Farðu undir feldinn eða eld- ) vamateppi Guðrún og hugsaðu ráð ( þitt og okkar samferðamanna þinna. Einn sið skulum vér hafa. Höfundur er læknir og afi. Betra húsaleigubótakerfi HÉR í Morgunblaðinu hafa Björn Bjamason alþingismaður og Jó- hanna Sigurðardóttir félagsmála- ráðherra skipst á skoðunum um aðdraganda og lyktir þess að Al- þingi samþykkti á síðustu dögum þingsins lög um húsaleigubætur. Þar kemur fram að samþykktin gekk ekki þrautalaust. Margir al- þingismenn gerðu alvarlegar at- hugasemdir við lagaframvarpið og töldu á því það stóra ágalla að úti- lokað væri að samþykkja það án veralegra breytinga. Ekki náðist samstaða um breytingar á fram- varpinu en til að koma í veg fyrir að málið dagaði uppi, með alvarleg- um afleiðingum fyrir stjórnarsam- starfið, gaf ríkisstjórnin út yfirlýs- ingu til að leysa málið. í yfírlýsing- unni fellst, að nýsamþykkt lög um Úr glasfiber Með öllum búnaði £ D \J Z Verð 6 metrakr. 24.450.- 7 metrakr. 26.670.- 8metrakr.28.820,- TRANAVOG11 SÍMI682850 FAX 682856 < ec < Z \A húsaleigubætur, með gildistöku 1. janúar 1995, verði tekin til endurskoðunar í sumar og tillögur að breyting- um lagðar fyrir Alþingi næsta haust. Enga brýna nauðsyn bar því til að samþykkja lögin nú í vor og litlar líkur era til að þau taki nokkru sinni gildi óbreytt. Athugasemdir sambandsins Samband íslenskra sveitarfélaga og mörg sveitarfélög hafa gert alvarlegar athugasemdir við fjölmörg ákvæði nýsamþykktra laga. Þar var m.a. bent á eftirfar- andi: 1. Lögin gera ráð fyrir að komið verði á nýju flóknu samstarfsverk- efni ríkis og sveitarfélaga. Að und- anfömu hefur markvisst verið unn- ið að því að fækka slíkum sam- starfsverkefnum ríkis og sveitarfé- laga með góðum árangri. Nýtt sam- starfsverkefni, með þeim hætti sem lögin gera ráð fyrir, gengur þvert á þá viðleitni. 2. Það hlutverk, sem sveitarfé- lögunum og Jöfnunarsjóði sveitar- félaga er ætlað í lögunum varðandi framkvæmd bótagreiðslna og end- urgreiðslur til sveitarfélaga er allt of viðamikið og kostnaðarsamt. 3 Húsaleigubótakerfið mun leiða til veralegs kostnaðarauka fyrir sveitarfélögin vegna umsjónar og eftirlits og tímabundinnar fjár- mögnunar á hlutdeild ríkisins í húsaleigubótum. 4. Sveitarfélögin eiga að bera alla ábyrgð á framkvæmd kerfisins. Það er óeðlilegt fyrirkomulag, þar sem ríkisvaldið setur reglurnar og greiðir 60% kostnaðarins. 5. Félagsmálaráðherra setur reglugerð á grundvelli laganna með ákvæðum um útreikn- ing og fjárhæð húsa- leigubóta, sem sveitar- félögin eiga síðan að greiða að 40% hluta. Með því er verulega dregið úr sjálfsákvörð- unarrétti og ákvarð- anavaldi sveitar- stjóma. Samband íslenskra sveitarfélaga gat aldr- ei fallist á að sveitarfé- lögin yrðu lögþvinguð til að taka upp það flókna og kostnaðars- ama kerfí sem lögin kveða á um. Það er því á valdi hverrar einstakrar sveitarstjórnar hvort húsaleigubætur, samkv. lög- unum, verða greiddar til tekjulágra leigjenda í sveitarfélaginu. Vegna fjölmargra ágalla laganna era vera- legar líkur á að sveitarfélögin vilji standa utan við kerfið, sem leitt gæti til veralegrar mismununar fyr- ir leigjendur. Tillaga sambandsins Samband íslenskra sveitarfélaga hefur ætíð lagt til, að húsaleigubæt- ur ríkisins yrðu greiddar í gegnum skattakerfið með líku fyrirkomulagi og vaxtabætur til þeirra er búa í eigin húsnæði. Með því fyrirkomu- lagi öðluðust allir leigjendur, án til- lits til búsetu, rétt til húsaleigubóta eftir einföldum og samræmdum reglum. Einu mótbárurnar við þeirri aðferð voru þær, að húsaleigubætur bærast seint til leigjenda. Ýmsar leiðir eru til að draga úr þeim ágalla ef vilji er fyrir hendi t.d. era barna- bætur greiddar út á þriggja mánaða fresti. Greiðsla húsaleigubóta í gegnum skattakerfið leiðir til eðli- legrar samsvörunar milli þeirra tveggja endurgreiðslukerfa er ríkið beitir til aðstoðar láglaunafólki varðandi húsnæðismál og sveitarfé- lögin væru ekki dregin til ábyrgðar Þórður Skúlason Samband íslenskra sveitarfélaga hefur ætíð lagt til að húsaleigubæt- ur verði greiddar gegn- um skattakerfið, segir Þórður Skúlason, eða með svipuðu sniði og vaxtabætur til þeirra sem búa í eigin hús- næði. á framkvæmd og fjármögnun ann- ars þeirra. Sú leið er mun eðlilegri i ljósi umræðunnar um hreinni verkaskipti ríkis og sveitarfélaga en það viðamikla kostnaðarskipt- ingar- og endurgreiðslukerfi, sem lögin gera ráð fyrir. Mikilvæg viðhorfsbreyting Þessum sjónarmiðum var komið á framfæri strax í aðdraganda málsins á fundum fulltrúa sam- bandsins og félagsmálaráðherra. Nægur tími var til að taka tillit til þeirra athugasemda ef vilji hefði verið fyrir hendi enda var aldrei gert ráð fyrir að lög um húsaleigu- bætur kæmu til framkvæmda fyrr en um næstu áramót. Svo virðist sem félagsmálaráðherra hafi af ein- hveijum ástæðum tekið þá afstöðu að Ieggjast gegn breytingartillögum sambandins og sveitarfélaganna þó margir alþingismenn tækju undir sjónarmið þeirra. Af umfjöllun málsins á Álþingi og yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar má á hinn bóginn ráða, að vilji standi til þess að breyta lögunum og koma til móts við sjónarmið sveitarfélaganna með samningu nýs lagafrumvarps sem lagt verði fram á Alþingi í haust. Væntanlega leiðir það til sinna- skipta félagsmálaráðherra þannig að um þetta mikilvæga hagsmuna- mál leigjenda náist viðunandi og víðtækt samkomulag. Slík viðhorfs- breyting er mjög mikilvæg. Frumkvæði sveitarfélaganna Niðurgreiðsla á húsnæðiskostn- aði tekjulágra leigjenda er í sjálfu sér ekkert nýmæli á íslandi þó ríkis- valdið hafi til þessa ekki sýnt neina viðleitini í þá vera. í mörg ár hafa sveitarfélögin greitt niður hús- næðiskostnað tekjulágra leigjenda, ýmist í formi húsaleigustyrkja eða með útvegun á leiguhúsnæði með niðurgreiddri húsaleigu. Þess háttar aðstoð sveitarfélaganna nemur ár- lega hundraðum milljóna króna. Hana hafa sveitarfélögin veitt að eigin framkvæði og á eigin forsend- um og eftir þeim reglum er þau móta hvert fyrir sig. Til þess hafa þau nýtt sér sjálfsákvörðunarrétt sinn án nokkurra fyrirmæla eða afskipta ríkisvaldsins. Nauðsynlegar breytingar í grein í Morgunblaðinu 17. maí sl. segir félagsmálaráðhera að for- svarsmönnum Sambands íslenskra sveitarfélaga hafí nær þvi tekist að koma í veg fyrir þá kjarabót fyrir leigjendur, sem lögin kveða á um. Slík fullyrðing er fjarri öllu sanni. Þó sambandið hafí gert fjölmargar athugasemdir við ákvæði húsa- leigulaganna og lagt fram tillögu um annað fyrirkomulag hefur það aldrei lagst gegn því að ríkið greiði nú húsaleigubætur í fyrsta sinn. Þvert á móti hefur sambandið bent á miklu betri og einfaldari leið að því marki en lögin gera ráð fyrir. Mikilvægt er, að í sumar náist víð- tæk samstaða um endurskoðun á nýsamþykktum lögum um húsa- leigubætur, til að tryggja markviss- ari framkvæmd laganna eins og segir í yfírlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við samþykkt laganr.a. Það er brýnt hagsmunamál fyrir þá sem hafa lágar tekjur að komið verði á betra húsaleigubótakerfi en lögin gera ráð fyrir. Höfundur er framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga. i \ í I i i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.