Morgunblaðið - 26.05.1994, Qupperneq 40
40 FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGARNAR 28. MAÍ
Er Garðabær líka bær
fyrir ungt fólk?
í GARÐABÆ hefur
verið við stjórnvölinn
síðustu misserin meiri-
hluti sjálfstæðismanna,
og það er óhrekjanleg
staðreynd að flokkur í
slíkri aðstöðu ber jafn-
an ábyrgð á því sem
miður hefur farið og
því sem vel hefur verið
gert. í þessari stuttu
grein er ekki ætlunin
að rekja störf meirihlu-
taflokksins, né störf
minnihlutaflokkanna,
Alþýðuflokks, Fram-
sóknarflokks, Alþýðu-
bandalags og Kvenna-
lista. Þvert á móti er
Karl Rúnar
Þórsson
þar búi vinni
staðar, og sé að auki
vellauðugt fólk sem
ekki viti aura sinna tal
og kjósi ekkert frekar
en að hafa Garðabæ
sem eins konar hvíldar-
stað sinna líkra. En er
þetta sönn mynd sem
dregin er upp af bæjar-
félaginu? Sem betur fer
er Garðabær nokkuð
friðsælt og þægilegt
bæjarfélag. Þar er mið-
bæjarkjami með þjón-
ustu og verslunum. í
bænum er auk þess
önnur atvinnustarfsemi
sem raunhæft er að í
annars \ Garðabæ er staða
ungs fólks, sem komið
er að þeim punkti að
yfirgefa foreldrahús,
með ólíkindum, segir
Karl Rúnar Þórsson,
og framboð á húsnæði
við þess hæfi varla fyrir
hendi.
ætlunin sú að hugleiða stöðu ungs
fólks í Garðabæ, þeirra sem í dag
standa á tímamótum en hafa stærst-
an hluta ævi sinnar alist upp í bæn-
uni, gengið þar í skóla og tekið þátt
í því íþrótta- og æskulýðsstarfí sem
þar er í boði. Þetta er sá hópur sem
hlotið hefur uppeldi sitt í bænum
og verið á sinn hátt virkur þátttak-
’andi í bæjarlífinu. Sá er þetta ritar
er einn þeirra mörgu ungu Garðbæ-
inga á kosningaaldri sem inn í þenn-
an hóp falla, og hefur séð og upplif-
að umtalsverðar breytingar á skipu-
lagi og starfsemi í Garðabænum.
Er Garðabær raunverulega
bær?
Oft hefur þeirri staðhæfíngu ver-
ið slegið fram að Garðabær sé bara
svefnbær, því meirihluti þeirra sem
framtíðinni eigi eftir að eflast, enda
Garðabær stutt frá Reykjavík,
kjama atvinnulífsins. Garðabær
státar af öflugu íþrótta- og tóm-
stundastarfí jafnt fyrir börn sem
fullorðna, og skólum, allt frá leik-
skólum til fjölbrautaskóla. Allt það
sem hér hefur verið nefnt á sinn
þátt í að gera Garðabæ að bæjarfé-
lagi sem stendur undir nafni a.m.k.
í hugum þeirra sem þar eru uppald-
ir. En það eru fleiri en þessir þætt-
ir sem koma upp í huga fólks í
Garðabæ þegar spurningunni um
það hvort Garðabær sé raunveru-
lega bær er svarað,
Hvað um bæjarbraginn?
Bæjarbragurinn og stemmningin
í bæjarlífínu t.d. í kringum hátíða-
höld eða íþróttaviðburði er án efa
TRULOFUNARHRINGAR
M
O
R
G
G
l
F
T
I
N
G
A
H
R
I
N
G
A
R
BRUÐKAUPSDAGAR
DEMANTAHUSID BORGARKRINGLUNNIS: 679944
önnur mikilvæg vísbending um það
hvort Garðabær sé raunverulega
bær eða ekki. En skemmtilegur
bæjarbragur og stemmning sem
auðgar mannlífið verður ekki til á
nokkrum dögum og á það jafnt við
um Garðabæ sem önnur bæjarfélög.
Nei, slíkt mótast á löngum tíma og
tekur jafnvel nokkrar kynslóðir að
þróast.
Þetta leiðir hugann að unga fólk-
inu í Garðabæ sem stendur á tíma-
mótum, og er við það að yfírgefa
foreldrahús. Margir eru í framhalds-
námi, einhverjir hafa lokið námi og
aðrir hafa þegar farið út á vinnu-
markaðinn. Tvennt á þetta unga
fólk sameiginlegt: Að þurfa að finna
sér húsnæði við hæfí og að hafa
alist upp í bænum og gengið þar í
skóla; bæjarbragurinn er því hluti
af uppeldi þess. íbúar sem alist
hafa upp í bænum hljóta að vera
hverju bæjarfélagi nauðsyn a.m.k.
ef markmið ráðamanna er raunveru-
lega að byggja upp bæ, og hlýtur
það sama að gilda um Garðabæ.
Nei, Garðabær vill ekki
„börnin sín“
í Garðabæ er staða ungs fólks
sem komið er að þeim tímapunkti
að yfirgefa foreldrahús með ólíkind-
um. Framboð á húsnæði í bænum
við þeirra hæfí er mjög takmarkað
og varla fyrir hendi. Það er hreint
ekki á valdi ungs fólks að ráða við
þau kjör sem þar eru í boði, hvort
heldur sem er til kaups eða leigu.
Garðabær, bæjarfélagið og „upp-
alandinn“ sem alið hefur upp þetta
unga fólk, er þegar á reynir ekki í
stakk búinn til þess að taka við
þeim sem þar hafa alist upp, a.m.k.
ekki fyrr en unga fólkið hefur meira
umleikis. Þessi staðreynd leiðir til
þess að stærsti hluti ungra Garðbæ-
inga hefur fram að þessu orðið sér
úti um húsnæði annars staðar en í
Garðabæ. Dæmin sanna að þegar
fólk hefur eitt sinn komið sér fyrir
í öðru bæjarfélagi er óvíst að Garða-
bærinn verði seinna fyrir valinu og
er þá hætt við að „Garðabæjarupp-
eldið“ sé unnið fyrir gýg.
Þverpólitískt mál
Það skiptir ekki máli hvar í litrófí
stjórnmálanna ungt fólk í Garðabæ
stendur þegar húsnæðismálin eru
rædd. Þeir sem á annað borð vilja
búa í Garðabæ, vilja verða sér úti
um sitt fyrsta húsnæði þar í bæ en
ekki í nágrannabæjarfélögunum, og
er það varla mjög ósanngjörn krafa.
Margir foreldrar í Garðabæ hafa
iekið undir þessa kröfu, og sagt að
Garðabær eigi að vera bær fyrir
unga Garðbæinga rétt eins alla aðra
sem í bænum vilji búa. Til að svo
megi verða vantar nú þegar í bæinn
húsnæði við hæfí ungs fólks, hús-
næði sem byggt er á hagkvæman
hátt og af hentugri stærð. Ef vilji
er fyrir hendi hjá bæjaryfírvöldum 1
Garðabæ, er fullvíst að húsnæðismál
ungs fólks í Garðabæ er hægt að
leysa. • Möguleikamir eru margir,
hvort heldur sem er á almennum
markaði eða á félagslegum grunni.
Vilji ungs fóks í Garðabæ er fyrir
hendi, en vilji bæjatyfírvalda til
skipulagningar og framkvæmdar er
það sem þarf, eigi Garðabær að verða
líka bær fyrir ungt fólk.
Höfundur er Garðbæingur og
stundar nám ísagnfræði við
Háskóla íslands.
Olfusingar - breytum til!
í Ölfushreppi eru mörg
tækifæri til að efla at-
vinnulífið, segir Karl
Karlsson, sem telur að
þau þurfi að nýta.
ÍBÚUM Ölfus-
hrepps gefst nú tæki-
færi til að breyta til
varðandi stjóm sveit-
arfélagsins í kosn-
ingunum 28. maí. Þá
má spyija: Er einhver
ástæða til að breyta
til? Mitt svar er já, það
er ástæða til og meira
að segja ærin ástæða.
Kreppa hefur verið
í þjóðfélaginu síðustu
ár og svo virðist sem
húh verði eitthvað
áfram. Misjafnt er
hversu hart þessi Karl Karlsson
kreppa hefur komið
niður á fólki, það fer til dæmis
svolítið eftir því hvar menn búa. í
sumum byggðarlögum er ástandið
allgott þrátt fyrir allt.
I Ölfushreppi eru mörg tækifæri
til að efla atvinnulífið og auka fjöl-
breytni þess, en það er ekki nóg
að hafa tækifærin. Það þarf líka
að nýta þau. I Þorlákshöfn eru fisk-
veiðar og vinnsla undirstaðan, en
auðvitað er hægt að
gera fleira þar og þess
vegna þarf að hvetja
fyrirtæki í öðrum
greinum til að hefja
þar starfsemi. í sveit-
inni eru fjölmargir
staðir sem bjóða upp
á starfsemi í ferða-
þjónustu. Til dæmis
eru margar perlur í
Selvoginum.
Til þess að nýta
þessi tækifæri sem
liggja fyrir fótum okk-
ar þarf fólkið í foryst-
unni, sveitarstjórnin,
að hafa áhuga og sýna
frumkvæði, vinna af krafti við
fjölgun atvinnutækifæra í hreppn-
um og laða hingað nýja starfsemi,
styðja við bakið á þeim sem fyrir
eru með ráðum og dáð, sjá til þess
að skilyrði séu fyrir hendi til upp-
byggingar.
Þess vegna er mikilvægt að I-
listinn fái góða kosningu til
sveitarstjórnar. I forystu hans er
fólk sem hefur áhugann, kraftinn
og hefur sýnt að það er óhrætt við
að ryðja nýjar brautir. Þar er fólk
með víðtæka reynslu, fólk sem er
óbundið af hefðbundnum flokks-
pólitískum viðhorfum, fólk sem er
treystandi til að efla byggðarlagið
og skapa betri skilyrði til góðs
mannlífs í Ölfushreppi. Þess vegna
skora ég á kjósendur í Ölfushreppi
að veita I-listanum brautargengi í
kosningunum.
Höfundur er fyrrverandi
skipstjóri og skipar 14. sæti á
1-listanum í Ölfushreppi.
TIL GRÆNLANPS MEÐ FLUGLEIÐUM » TEL GRÆNLANPS MEÐ FLUGLEIÐUM « TIL GRÆNLANPS MEÐ FIXJGLEIÐUM « TEL GRÆNLANPB
Sértilboð
* Á manninn í tvibýli í 5 daga og 4 nætur. Innifalið flug, ferðir til og frá flugvelli,
bátsferð til Qaqortoq, gisting og morgunverður (hótel Inuili, hótel Qaqortoq).
Heimsókn að Görðum og Bröttuhlíð. Flugvallarskattar ekki innifaldir.
** Á manninn í tvíbýli í 4 daga og 3 nætur. Innifalið flug (viðkoma í Syðri
Staumfirði á útleið), ferðir til og frá flugvelli, gisting og morgunverður (hótel
Inuili). Bátsferð til Narsaq og viðkoma í Bröttuhlíð í bakaleið. Flugvallarskattar
ekki innifaldir.
GRÆNLANDS MEÐ FLUGLEIÐUM • TIL GRÆNLANDS MEÐ FLUGIÆIÐUM • TIL GI
Hafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðsmenn um
allt land, ferðaskrifstofurnar eða í sfma 690300
(svarað mánud. - föstud. frá kl. 8 -19 og á laugard. frá kl. 8-16.)
FLUGLEIDIR
Traustiir íslenskur ferðafélagi