Morgunblaðið - 26.05.1994, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 26.05.1994, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1994 41 SKÁK SPURT OG SVARAÐ UM BORGARMÁL Unibank-mótið í Kaupmannahöfn Góður enda- sprettur dugði FRAMAN af einkenndist mótið af því að flestir keppenda fóru með löndum. í tveimur umferðum í röð gekk þetta svo langt að öllum skák- unum lauk með jafntefli. Daninn Erling Mortensen leiddi mótið lengst af, en ég fór afar rólega af stað. Eftir sigur í fyrstu umferð gerði ég sex jafntefli í röð, en vegna þess hve mótið var jafnt dugði sig- ur á Mortensen í næstu umferð til þess að skjótast upp í efsta sætið. Með öðrum sigri í síðustu umferð á Dananum Henrik Danielsen var sigurinn síðan í höfn. Það kann að hafa haft einhver áhrif á tafl- mennsku keppenda að frábært vor- veður var í Kaupmannahöfn meðan á mótinu stóð. Sól skein í heiði og hitinn yfir 20 stig. Jafntefliskóngur mótsins varð Giplis sem gerði allar skákir sínar jafntefli og er það ekki í fyrsta sinn sem það hendir hann. Lokastaðan: 1. Margeir Pétursson 6 v. af 9 2. Erling Mortensen 5‘/2 v. 3. -4. Gyula Sax og Laszlo Hazai, báðir Ungverjalandi, 5 v. 5.-7. Aivar Giplis, Lettlandi, Peter Heine Nielsen og Bjarke Kristians- en 4'/2 v. 8. Lárs Schandorff 4 v. 9. Henrik Danielsen 3 'h v. 10. Þröstur Þórhallsson 2lh v. Eins og sjá má á lokastöðunni var Þröstur alveg heillum horfinn. Mikil sveifla í fyrstu umferð gerði gæfumuninn. Eftir að hafa fléttað laglega og átt sigurvænlega stöðu lék Þröstur skákinni alla leið niður í tap. Eftir þá óheppni sá hann síð- an aldrei til sólar á skákborðinu allt mótið. Svart: Erling Mortensen Hvítt: Þröstur Þórhallsson 28. Rh6!! Vinnur skiptamum því 28. — Dxg5?? er auðvitað svarað með 29. Rxf7 mát. 28. - Bd5 29. Rxg8 - Dxg5 30. Hxg5 - Kxg8 31. Hg3--------e4 32. Be2? Afdrifarík ónákvæmni, sem gefur svarti færi á að fá vel teflandi stöðu, því nú fellur hvíta peðið á f5. Rétt Danska skákfélagið K41 í Kaupmannahöfn gekkst fyrir skákmóti í maí sem var einkum ætlað að gefa alþjóðleg- um meisturum færi á að verða stórmeistarar. var 32. Bc4! — Bxc4 33. bxc4, því 33. — Hc8 er vel svarað með 34 HdÍ! - Kf8 35. Hd4 og hvítur á unnið endatafl. 32. - He5 33. Hfl - Bc6 34. Bc4 - Bd7 35. He3 - Bxf5 36. h3 - h5 37. Kh2 - h4 38. Hdl - g5 39. Hd6 - Kg7 40. Kgl - g4 41. hxg4 — Rxg4 42. He2 — Bg6 43. Hd7 - Hg5 44. Hd5 - Hxd5 45. Bxd5 - f5 46. Bb7 - Kf6 47. c4? Þröstur teflir enn stíft til vinnings, en hér hefði hann átt að leika 47. Hd2 og möguleikarnir virðast nokk- uð álíka. Nú nær svartur að mynda sér tvö stórhættuleg frípeð sem hvítur ræður ekki við. 47. - bxc3 48. Hc2 - Re5 49. Hxc3 - f4 50. Hc5 - h3! 51. gxh3 - e3 52. Hxa5 - f3 53. Ha6+ - Kf5 54. Ha4 - e2 55. Be4+ - Kf4 56. Kf2 - Bxe4 57. Hd4 - Rd3+ 58. Hxd3 - Bxd3 59. a4 — el=D+ og hvítur gafst upp. Yfirburðir Júditar Polgar Ungverska stúlkan Júdit Polgar átti ekki sérlega góðu gengi að fagna á árinu þangað til nú í maí að hún sigraði með yfirburðum á öflugu skákmóti í Madrid. Júdit, sem er 18 ára gömul, hlaut 7 vinn- inga af 9 mögulegum, en Ivan Sok- olov frá Bosníu náði öðru sætinu með 5 Vi v. Síðan komu ungu stigaháu skák- mennirnir Aleksei Shirov frá Lett- landi og Gata Kamsky frá Banda- ríkjunum auk heimamannsins III- escas. Þeir þrír hlutu allir 5 v. Voratskákmót Hellis Mótið fór fram í Menningarmið- stöðinni Gerðubergi. Úrslit urðu þessi: 1. Gunnar Gunnarsson 5‘/2 v. af 6. 2. Sölvi Jónsson 4‘/2 v. 3. Sigurður Áss Grétarsson 4‘/2 v. 4. Einar K. Einarsson 4 v. 5. Gunnar Nikulásson 4 v. 6. Kjartan Guðmundsson 4 v. 7. Sveinn Kristinsson 3‘/2 v. o.s.frv. Margeir Pétursson Þær styrktu Hjallakirkju ÞESSAR ungu stúlkur héldu nýlega hlutaveltu til styrktar Hjalla- kirkju í Kópavogi og varð ágóðinn 1.023 krónur. Þær heita Heiður Loftsdóttir, Sigurbjörg Viðarsdóttir, Helga Lóa Kristjánsdóttir, Birna Kristjánsdóttir og Ósk Kristinsdóttir. LESENDAÞJÓNUSTA MORGUNBLAÐSINS Arni Sigfússon borgarstjóri svarar spurningum lesenda Arni Sigfússon borgarstjóri í Reykjavík og efsti maður á framboðs- Iista sjálfstæðis- fólks í borgar- sljórnarkosningum, sem fram fara 28. mai næstkomandi, svarar spurningum í Morgunblaðinu um borgarmál í til- efni kosninganna. Lesendur Morgun- blaðsins geta hringt til ritstjómar blaðs- insí síma 691100 á milli kl. 11 og 12 í dag og á morgun, föstudag, og lagt spurningar fyrir borgarstjóra sem blaðið kemur á framfæri við hann. Svörin birtast síðan í þættinum Spurt og svarað um borgar- mál. Einnig má senda spumingar í bréfi til blaðsins. Utan á bréf skal rita: Spurt og svar- að um borgarmál, ritstjóm Morgun- blaðsins, pósthólf 3040,103 Reykja- vík. Nauðsynlegt er að nafn og heimilisfang spyij- anda komi fram. Velferð barna Hafliði Helgason, Iðufelli 10, 111 Reykjavfk, spyr: Mig langar að spyija Árna Sig- fússon hvort hann hafi hugsað sér að gera eitthvað róttækt í barna- verndarmálum ef hann verður áfram borgarstjóri. Það er allt í molum í þessu kerfi og ekki van- þörf á úrbótum. Svar: Ég verð áfram borgarstjóri og mun af áhuga sinna velferðarmál- um barna eins og öðrum ijöl- skyldumálum, sem ég hef lagt áherslu á. Vínveitinga- leyfi Þórunn Haraldsdóttir, Boða- granda 22, 107 Reykjavík, spyr: Hefur borgarstjóri hugleitt endurskoðun á rekstrarleyfi til veitingastaðanna við Vitastíg og Skúlagötu á grundvelli þess að nú hafi risið hús fyrir aldraða þar í nágrenninu? Svar: Lögreglustjóraembættið í Reykjavík veitir veitingaleyfi en borgaryfirvöld eru umsagnaraðili. Þegar veruleg breyting verður á íbúðabyggð eins og þarna hefur átt sér stað er ástæða til að endur- skoða leyfisveitinguna. Gatnatengingar Ólafur Víðir Björnsson, Lynghaga 1, 107 Reykjavík, spyr: 1. Hvenær er áætlað að lengja Ægisíðu og tengja hana við Suð- urgötu? 2. Er fyrirhugað að gera nýja Njarðargötu frá Hringbraut að afgreiðslu innanlandsflugs Flug- leiða? Ef svo er, þá hvenær? Svar: Samkvæmt skipulagi á að koma þarna tveggja akgreina gata og tengir hún Hringbraut við byggðina í „Litla Skeijagarði“ og þar með afgreiðslu innanlands- flugs Flugleiða. Ekki hefur verið ákveðið, hvenær þessi gata verður gerð, en vegna væntanlegra breytinga á Hringbraut frá Land- spítala, vestur fyrir Njarðargötu, eru annmarkar á því að ganga frá henni í endanlegri útfærslu. Húsaleigubæt- ur á næsta ári Jón frá Pálmholti, formaður Leigj- endasamtakanna, Yrsufelli 5,111 Reykjavík, spyr: Samkvæmt nýsamþykktum lögum um húsaleigubætur þarf hver sveitarstjóm að ákveða fyrir 1. október ár hvert hvort sveitar- félagið greiði húsaleigubætur á næsta ári. Mun borgarstjórnin í Reykjavík taka slíka ákvörðun fyrir 1. október nk. og greiða húsaleigubætur á næsta ári? Svar: Þrátt fyrir þá annmarka sem eru á lögunum mun ég beita mér fyrir því að leigjendur í Reykjavík fái greiddar húsaleigubætur á næsta ári og sitji í þessu efni ekki við lakara borð en íbúar ann- arra sveitarfélaga. b) Kostnaður við rekstur skrif- stofu. c) Kostnaður við töku, geymslu, aflífun og fóðrun skráðra og óskráðra hunda sem fluttir eru á dýraspítala og hundaeigendur vitja ekki og greiða þar af leið- andi ekki áfallinn kostnað. d) Innheimta leyfisgjalds, sem er vaxandi vandamál. e) Ábyrgðartrygging fyrir alla skráða hunda. Tryggingin nær til alls þess tjóns sem dýrið kann að valda á mönnum, dýrum, góðri og munum. 2. Heilbrigðisreglugerð bannar aðgang hunda að tilteknum stöð- um og er ekki heimilt að víkja frá því. Hundaeigendur hafa um mörg önnur svæði að velja í borg- inni þar sem þeir geta farið um með hunda sína í bandi. 3. Samþykkt um hundahald gerir ekki ráð fyrir afslætti til til- tekinna hópa. Það hefur verið kannað og þykir erfitt í fram- kvæmd vegna þess hve auðvelt væri að misnota slíka undanþágu. Undirgöng Guðríður Haraldsdóttir, Flúð- aseli 86, 109 Rvík, spyr: Verða undirgöng lögð undir nýju Breiðholtsbrautina á milli þeirra tveggja sem fyrir eru vegna óöryggis fólks við að komast yfir á umferðarljósum þar sem eru beygjuakreinar? Svar: Ekki eru að sinni uppi áform um að gera fleiri undirgöng á þessu svæði. Hins vegar er ætlun- in að gera undirgöng undir Breið- holtsbraut milli Mjóddar og Suð- ur-Mjóddar. Auðvitað væri æski- legt að gera undirgöng miklu víð- ar en gert er, en staðreyndin er sú að undirgöng, sem fullnægja þeim kröfum sem gera verður, eru Hundahald Kristín Eiríksdóttir, Blönduhlíð 24, 105 Reykjavík, spyr: 1. Mig langar til að vita í hvað þessar 9.600 krónursem við borg- um árlega fyrir hundaleyfi eru notaðar? 2. Væri mögulegt að heimilt væri að vera með hund í ól á ein- hveijum af þeim fjölmörgu stöð- um þar sem algjörlega er bannað að vera með hund núna? 3. Gætu ellilífeyrisþegar fengið einhvern afslátt af þessu hunda- leyfagjaldi? Svar: 1. Samkvæmt upplýsingum Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur er kostnaður og þjónusta vegna hundaeftirlits margs konar m.a. þessi: a) Laun tveggja hundaeftirlits- manna og eins ritara sem annast skrifstofustörf vegna hundaeftir- litsins. Aksturskostnaður eftirlits- manna og yfirvinna m.a. vegna aðstoðar við lögreglu um nætur og helgar. miklu dýrari mannvirki en fólk almennt gerir sér grein fyrir. Það er þessi mikli kostnaður sem veld- ur því að reynt er víða að tryggja öryggi vegfarenda með öðrum hætti eins og umferðarljósum og merktum gangbrautum. Hornlóð Kristján Gunnarsson, Báru granda 9, 107 Reykjavík, spyr: íbúa við Bárugranda, Álagranda og Grandaveg í vesturbæ Reykja víkur langar að spyrja borgarstjóra hvernig málin standa varðandi frá gang lóðar á horni Álagranda og Bárugranda. Svæðið hefur verið ófrágengið í mörg ár þrátt fyrir ít- rekaðar fyrirspurnir og íbúar orðnir langþreyttir á aðgerðaleysi borgar yfirvalda. Svar: Á þessu svæði eru óbyggðar ló ir fyrir þijú lítil „flutningshús Þeim tilmælum verður beint gatnamálastjóra og garðyrkjustjó að svæðið verði snyrt.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.