Morgunblaðið - 26.05.1994, Page 64
HEWLETT PACKARO
m
HPÁ ÍSLANDI H F Höfdabakka 9. Reykjavík, sími (91) 671000 Frá möguleika til veruleika
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
SÍMI 631100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 26. MAI1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/RAX
NÚ ERU ungarnir óðum að skríða úr eggjunum og á Tjörninni í Reykjavík má sjá þá á sundi með foreldrum sínum. Æðarkolla þessi var að viðra
ungana sína fjóra og reyndi einn að gera sig breiðan og æfa vængjasláttinn þó enn sé eitthvað í að hann geti hafið sig til flugs.
3.000 hafa
kosið utan
kjörstaða
í GÆR höfðu 3.216 kosið utan
kjörstaða í Armúlaskóla í
Reykjavík vegna sveitar-
stjórnarkosninganna 28. maí
næstkomandi. Við síðustu sveit-
arstjórnarkosningar árið 1990
höfðu 3.056 manns kosið mið-
vikudag fyrir kjördag. Kosið er
j^^Vrmúlaskóla alla daga vikunn-
^ar milli klukkan 10 og 12, frá
klukkan 14 til 18 og frá klukkan
20 til 22. Á myndinni sést kjós-
andi kjósa í Ármúlaskóla í gær.
---------------» ♦ -------
Sexá
Líf færist í starfsemi ráðningarfyrirtækja
Aukin eftirspum eftir
sérhæfðu starfsfólki
LÍF VIRÐIST hafa færst í starfsemi ráðningarfyrirtækja að undanförnu,
einkum hjá þeim sem annast ráðningar í stjómunar-, sölu-, skrifstofu-
og sérfræðistörf. Forráðamönnum þeirra ber saman um að fyrirtæki séu
farin að líta í kringum sig aftur eftir að hafa haldið að sér höndum í
mannaráðningum undanfarin misseri.
Morgunblaðið/Bjarni
Þórir Þorvarðarson hjá Hagvangi
segir að hann hafi fyrst tekið eftir
fjölgun ráðninga í desember og síð-
an hafí þeim fjölgað jafnt og þétt.
Umskipti hafí síðan orðið í apríl og
verkefnum fjölgað mjög mikið og
hefur orðið framhald á f maí.
Hann segist gera ráð fyrir því
að ráðningar í maí og júní verði
svipað margar en síðan dragi úr
þeim fram yfir verslunarmanna-
helgi.
Mikill fjöldi sé hins vegar á skrá
hjá fyrirtækinu og mun fleiri en árið
1992.
Fleiri hugsa sér til hreyfings
Guðni Jónsson segir að meira líf
sé í ráðningum um þessar mundir
og einnig mætti merkja að fleiri
hugsuðu sér til hreyfings en áður.
Hjá Liðsauka fengust þær upplýs-
ingar að fjölbreytt störf hefðu vérið
í boði undanfarið og mikið væri
beðið um sölufólk og tölvufræðinga.
Fyrirtæki gerðu hins vegar meiri
kröfur en áður og mörg teldu að
úr meiru væri að moða en reyndin
væri.
Guðný Harðardóttir hjá Ráðning-
arþjónustu Lögþings segir að það
veki athygli að nú hafi eftirspurn
eftir markaðsfólki aukist.
En þessi aukna eftirspurn eftir
sérhæfðu starfsfólki hefur ekki
komið fram hjá Atvinnumiðlun
námsmanna. Þar hefur eftirspurnin
verið svipuð og í fyrra en heldur
færri eru þar á skrá nú en síðasta
sumar.
■ Vaxandi bjartsýni/B4
sjúkra-
hús eftir
árekstur
Saudárkróki. Morjjunblaðið.
MÓTORHJÓL og fólksbíll rákust
saman við ytri vegamót Hofsóss
og Siglufjarðarvegar á tólfta tím-
anum í gærkvöldi. Áreksturinn
varð mjög harður og þurfti að flytja
sex menn á sjúkrahúsið á Sauðár-
króki. Ekki fengust skýrar upplýs-
ingar um líðan þeirra, en sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins er enginn í lífshættu.
Lögreglan fékk tilkynningu um
slysið um klukkan 23.20 og voru
þegar sendir tveir sjúkrabílar á
slysstað. Samkvæmt óstaðfestum
upplýsingum valt bíllinn við
áreksturinn. Fimm menn, sem í
honum voru, slösuðust allir.
Héraðsdómur gerir lækni skaðabótaskyldan vegna mistaka
4,6 milljón-
ir í bætur
Læknirinn hafði keypt sér tryggingu
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær bæklunarlækni í
Reykjavík til að greiða 38 ára
gömlum manni 4,6 milljónir króna
með vöxtum frá janúar 1989 í
skaða- og miskabætur. Er hann
dæmdur fyrir að hafa ekki veitt
manninum rétta meðferð með
þeim afleiðingum að krabba-
meinsæxli í fæti hans greindist
ekki fyrr en svo seint að að nema
varð á brott fót mannsins ofan
við hné.
Við rekstur málsins kom fram,
að sögn Gísla Baldurs Garðarsson-
ar hrl., lögmanns mannsins, að
læknirinn hefði keypt sér trygg-
ingu gegn kröfum af þessu tagi.
Maðurinn hafði leitað til læknis-
ins í desember 1986 og átti þá
að baki margra ára sögu um verki
í framanverðum hægri fótlegg.
Þremur árum áður hafði hann
farið í endurteknar skurðaðgerðir
á Akranesi til að létta á þrýstingi
í fætinum.
Sérfræðingurinn sendi manninn
í geislameðferð og nudd sem kom
ekki í veg fyrir að ástand hans
versnaði en sýni sem ítrekað voru
tekin og skoðanir sem margsinnis
voru gerðar á fætinum leiddu ekki
í ljós að um illkynja æxli væri að
ræða en ekki var þá gerð rann-
sókn til að ganga úr skugga um
hvort um illkynja æxli væri að
ræða.
í niðurstöðum Héraðsdóms seg-
ir að sjúkrasaga mannsins og
ástand fótleggs hans hefði þegar
í upphafi átt að kalla á mun mark-
vissari rannsóknir af hálfu bækl-
unarlæknisins en gerðar voru og
að læknirinn hafi staðið rangt að
málum þegar hann byggði sjúk-
dómsgreiningu á þriggja ára gam-
alli greiningu frá Akranesi án
þess að framkvæma sjálfstæða
rannsókn enda þótt ljóst mætti
vera að meðferðin á Akranesi
hefði engum varanlegum árangri
skilað. Rangt hafi verið af læknin-
um að senda manninn í sjúkra-
þjálfun án þess að framkvæma
ítarlegar rannsóknir á meini hans
fyrst. Einnig hafi verið rangt að
láta hjá Iíða að gera frumurann-
sókn á vökvasýni úr meininu en
sýni hafi ekki verið rannsökuð
þótt sárið greri illa og ítrekað
væri tappað úr því vökva. Dómur-
inn telur að það hefði ekki átt að
dyljast lækninum að um ívöxt
væri að ræða sem allt eins gæti
verið illkynja.
200 þús. kr. miski
Læknirinn var dæmdur til að
greiða manninum bætur fyrir þá
viðbótarörorku sem talið var að
hann hefði orðið fyrir vegna drátt-
ar á réttri meðferð. Varanleg ör-
orka hans er talin 65% en hefði
með réttri meðferð orðið 35%. Að
teknu tilliti til skattfrelsis bótanna
og hagræðis af eingreiðslu var
læknirinn dæmdur til að greiða
manninum 4,4 milljónir króna í
skaðabætur og 200 þúsund krónur
í miskabætur vegna málsins, auk
rúmra 800 þúsund króna í máls-
kostnað.