Morgunblaðið - 05.06.1994, Page 16

Morgunblaðið - 05.06.1994, Page 16
16 SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ eftir Urði Gunnorsdóttur Eifitt hefur reynst að fá upplýsingar um hversu margir íslendingar tóku á einn eða annan hátt þátt í innrásinni í Normandí. Sá eini þeirra sem Morgunblaðið hefur haft spurnir af, er Theodór Rósants- son, sem búsettur er í Bandaríkjunum. Hann var í bandaríska kaupskipafiotanum og vann við herflutninga frá Southampton til Norm- andí sumarið 1944. Frétti Theodór af fleiri íslendingum en fékk ekki frekari upplýsingar um hveijir þeir væru eða hversu margir. Theodór hafði verið á skipum sem sigldu undir fána Noregs og Panama fyrstu stríðs- árin en var munstraður á Thomas Scott, eitt Liberty-skipanna svokölluðu, í mars 1944. „Liberty-skipin voru framieidd í einingum og svo sett saman á mettíma, jafvel tæpum fjór- um dögum, og oft af viðvaningum í rafsuðu. Þau reyndust því ekki vel, mörg þeirra brotn- uðu á leiðinni til baka, þegar þau höfðu ver- ið affermd. Þau báru hins vegar mikið, um 10.800 lestir. Þá var aðbúnaður í þeim eins og best varð á kosið, maturinn eins og á hóteli." Siglt var frá Baltimore, þar sem skipið var lestað af matvælum, hveiti og korni, strand- gæslubátum og sprengjum, áður en siglt var til Skotlands. Þangað kom skipið í apríl og þar hófst undirbúningur innrásarinnar, sem gerð var 6. júní 1944. „Við vissum að mikil hernaðaraðgerð var í aðsigi þó að okkur væri auðvitað ekki sagt hvað ætti að gerast. Við máttum ekki segja fjölskyldum okkar hvar við værum staddir eða hvað við værum að gera, en þá datt ein- um í hug að láta mynda sig í skoskum bún- ingi og senda fjölskyldunni mynd. Þannig vissu ættingjarnir hvar við vorum, án þess að við segðum orð,“ segir Theodór. Ung og óreynd áhöfn Fljótlega var siglt á Southampton en það- an var siglt til Normandí. Alls fór skipið sem Theodór var á, Thomas Scott, fjórtán ferðir til Frakklandsstrandar, á Utah- og Omaha- strönd, eins Bandaríkjamenn nefndu hluta strandlengjunnar. Um þijátíu sjómenn voru í áhöfn og um tíu sjóliðar, sem voru við loft- varnarbyssur. „Af áhöfninni vorum við aðeins þrír sem vorum vanir sjómennsku, hinir voru óvanir en lærðu fljótt og voru harðduglegir," segir Theodór en hann varð tvítugur, viku fyrir innrásina. Meðalaldur áhafnarinnar var ekki mikið hærri, hermennimir kornungir og skipstjórinn aðeins 28 ára. Mjög mislangan tíma tók að losa skipin eftir veðri. „Það varð einnig til þess að inn- rásinni var seinkað, hún átti að hefjast 2. júní en dróst fram til þess 6. Við fluttum skotfæri, skriðdreka og hermenn, um 4-600 manns í hverri ferð. Meðal þeirra sem við skipanna sem fluttu vopn og hermenn til að taka þátt í innrásinni í Normandí HLAÐIN Liberty-skip á leið yfir Atlantshafið. Enginn tími til at vera hræddur Theodór Rósantsson var skipveiji á einu Liberty- var verulega brugðið við að sjá logandi menn- ina þeytast frá skipinu." Theodór segir mannfallið sem skipveijar urðu vitni að, vissulega hafa haft vond áhrif á þá og þeir hafi reynt að bægja þessum erfiðu hugsunum frá sér. Þá hafi þeir einnig verið í hættu, oft hafi verið skotið á skipið frá landi. Það var hins vegar ekki hæft. „Það var enginn tími til þess að vera hræddur, auk þess sem maður var ungur og vitlaus, en þetta hafði auðvitað sín áhrif.“ í hrakningum á heimleið Theodór var munstraður af Thomas Scott í október 1944. í febrúar 1945 hugðist hann halda heim á leið með Dettifossi en skipið fórst á leiðinni og fimmtán manns með því. Segir Theodór það hafa verið erfiða reynslu og lengi eftir það hafi hann hrokkið upp við minnsta hávaða á borð við bílflaut. Hann komst svo heim með Brúarfossi. Ekki átti þó að leyfa honum að fara til íslands. Yfir- völd vildu skrá hann í herinn, þar sem hann væri ekki á sjónum en þeir sjómenn sem voru of lengi í landi, voru jafnan kallaðir í herinn. Helga Briem, ræðismanni, tókst að koma Theodór og öðrum íslendingi, sem ver- ið hafði í siglingum, heim. Theodór hóf nám í Stýrimannaskólanum og útskrifaðist 1948. Hann lærði siglinga- fræði í Bretlandi að því loknu og var í sigling- um á íslenskum og erlendum skipum fram til ársins 1953 en þá hélt hann til New Jers- ey og síðar New York. Þar bjó hann í tíu ár, vann mest í byggingarvinnu. Hann kom heim árið 1963 og var á síldarbátum fram til ársins 1969 að hann flutti að nýju til Bandaríkjanna, að þessu sinni Kaliforníu, þar sem hann tók upp þráðinn í byggingarvinn- unni. Hann fór á eftirlaun 1988. Theodór er giftur Helgu Pétursdóttur og eiga þau einn son. Aftur til Normandí fluttum' voru hermenn sem höfðu barist í Norð- ur-Afríku og á Sikiley og var sagt að þeir væru að fara heim í frí. Ein- hverra hluta vegna lentu þeir til Bretlands og voru í innrásarhópnum. Þá voru einnig í hópnum hermenn_ sem verið höfðu á íslandi og vildu endilega sýna mér myndir af íslensku stúlkunum sínum sem þeir hugðust sækja að stríði loknu.“ Þrátt fyrir að Liberty-skipin kæmust nærri landi, voru hermenn og vopn flutt í land á prömmum. Gátu skipveijar því fylgst með er pramm- arnir náðu landi. „Fyrsti pramminn sem fór frá skipinu lenti á jarð- sprengju og það var hræðileg sjón að sjá mennina sem við höfð- um óskað góðs gengis skömmu áður, farast. Þetta hafði slæm áhrif á okkur alla. Þá sáum við einnig þegar skotið var á annað Liberty- skip, skammt frá okkur. Sprengjan lenti á lestinni þar sem hermennirnir voru og okkur Fyrir fjórum árum kom Theodór til Norm- andí. „Mig langaði til að sjá staðinn aftur og koma á ströndina, því að við fórum aldrei í land sumarið 1944. Það þutu margar hugs- anir um kollinn við að sjá ströndina aftur, hugsanir sem margar voru löngu gleymdar. Samt var ströndin allt öðruvísi umhorfs en í stríðinu. Þá sáum við einnig hermannagraf- reitina, sem var átakanleg sjón, því þar lágu án efa margir þeirra sem við fluttum að ströndinni." Theodór segir að sig hafi vissulega langað til að taka þátt í hátíðarhöldunum nú, sér- staklega þar sem sigla á nokkrum Liberty- skipum til Normandí. Ásóknin hafí hins veg- ar verið svo mikil í það að það hafi reynst útilokað. Theodór Rósantsson í stríðslok, þá 21 árs. SIEMENS cc Tveir góðir á útsöluverði Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs Borgarnes: Glitnir Borgarfjörður: Rafstofan Hvítárskála Hellissandur: Blómsturvellir Grundarfjörður: Guðni Hallgrímsson Stykkishólmur: Skipavík Búðardalur: ísafjörður: Póllinn Hvammstangi: Skjanni Blönduós: Hjörleifur Júlíusson Sauðárkrókur: Rafsjá Siglufíörðun Torgio Akureyri: Ljósgjafinn Húsavík: Öryggi Þórshöfn: Norðurraf Aðurkr. 60*450.- Nú kr. 55,707. - Stgr. • 148 x 60 x 50 sm (hxbxd) • 188 I kælirými • 68 I fjögurra stjörnu frystirými • 2 hurðir Áðurkr. 6*fe&t&.- Illú kr. 59.427.- stgr. íí't! Fjölbreytt úrual annarra kæli- og frystitækja SMITH & NORLAND NÓATÚNI 4 • SÍMI 628300 ífiljir þú endingu ag gæði - Gœða húsgögn á góðu verði dcoletti IB Salottí \alu//i Frábært úrval af nýjum sófasettum, homsófum og stökum sófum í leðri frá Ítalíu. Litir í miklu úrvali. Verð við allra hœfi. Valhusgögn ÁRMÚLA 8, SÍMAR 812275, 685375

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.