Morgunblaðið - 05.06.1994, Page 32

Morgunblaðið - 05.06.1994, Page 32
32 SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1994 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Útför ástkær sonar okkar, bróður, mágs og frænda, GUÐMUNDARHANNESAR KETILSSONAR nema, Þjóttuseli 6, Reykjavík, sem lést 15. maí í Bangkok á Thai- landi, fer fram í Seljakirkju þriðjudaginn 7. júní kl. 13.30. Auður Ásta Jónasdóttir, Kristján Ketilsson, Bára Agnes Ketilsdóttir, írunn Ketilsdóttir, Steinunn Ketilsdóttir, Jónas Ketilsson Ketill Arnar Hannesson, Jón Einarsson, Bragi M. Reynisson, Grétar J. Jónsteinsson, og systkinabörn. t Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi, ÍVAR ÞÓR PÁLSSON, Hverfisgötu 70, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju á morgun, mánudaginn 6. júní kl. 13.30. Heiðar Ástvaldsson, Guðrún Pálsdóttir, Guðmundur Pálsson, Guðbjörg Pálsdóttir, Stanley Pálsson, Edda Pálsdóttir, Harpa Pálsdóttir, Hanna Frímannsdóttir, Ásgeir M. Jakobsson, Elín Theodórs, Vignir Garðarsson, Hera G. Newton, Magnús Björgvinsson, Haraldur Guðmundsson og fjötskyldur. Innilegar þakkir fyrir vinsemd og hlýhug við andlát og útför HREFNU SAMÚELSDÓTTURTYNES, Furugerði 1. Sérstakar þakkir til allra vina innan kirkj- unnar og skátahreyfingarinnar. Ásta, Ottó og Jón, barnabörn, langömmubörn og systkini. t Elskulegur eiginmaður, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐFINNUR SIGURJÓNSSON frá Vestmannaeyjum, Eskihlíð 22a, Reykjavík, hefurverið jarðsunginn frá Landakirkju, Vestmannaeyjum. Hjartans þakkir fær- um við öllum þeim, sem önnuðust hann í veikindum hans og sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför. Helga Bachmann, Þorkell Guðfinnsson, Edda Snorradóttir, Guðbjörg Guðfinnsdóttir, Jóhann Magni Jóhannsson, Sigurjón Guðfinnsson, Kristfn Birgisdóttir, Snorri og Guðfinnur Þorkelssynir, Magni, Guðfinnur og Anton Jóhannssynir, Sævar, Hafþór og Helga Sigurjónsbörn. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, dótt- ur, móður, tengdamóður og ömmu, GUÐBJARGAR ÓSKARSDÓTTUR, - ) Keldulandi 19, Reykjavfk. Einnig sendum við sérstakar þakkir til starfsfólks göngudeildar krabbameins- lækninga Landspítalans. Sigurður R. Sigurðsson, Óskar Sigurðsson, Óskar Már Sigurðsson, Edda Ragnarsdóttir, Þórunn Laufey Sigurðardóttir, Sigurður Pétursson, Sigríður Sigurðardóttir, Ragnar Örn Pétursson, Birgir Sigurðsson, Svava Einarsdóttir og barnabörn. IVAR ÞOR PALSSON + ívar Þór Páls- son var fæddur á Siglufirði 27. des- ember 1947. Hann lést í Reykjavík 26. maí siðastliðinn. Foreldrar hans voru Páll Guð- mundsson, f. 17 nóvember 1904, d. 2. nóvember 1963, og Ingibjörg Jón- ína Ingvarsdóttir, f. 4. október 1908, d. 10. október 1986. Systkini ívars eru Heiðar Astvalds- son, Guðrún Jónína Pálsdóttir, Guðmundur Skjöld- ur Pálsson, Guðbjörg Hlíf Páls- dóttir, Stanley Páll Pálsson, Edda Rut Pálsdóttir og Harpa Pálsdóttir. Útför Ivars Þórs fer fram frá Fossvogskirkju á morgun, mánudag. Mig langar í nokkrum orðum að minnast frænda míns og föðurbróð- ur ívars Þórs Pálssonar, en hann var yngstur bræðranna af átta systkinum pabba míns. Man ég best eftir honum þar sem hann bjó alla tíð hjá ömmu á Hverfisgöt- unni, en eftir að hún íéll frá bjó hann þar einn. ívar gekk ekki heill til skógar og barðist oft við þrálát veikindi þar til yfir lauk. Hann átti sínar erfiðu stundir, en líka ólgeymanlega tíma þar sem hann sýndi hlýju, kærleik og góðan húmor. Hann var fróður og vel að sér á þeim sviðum sem vöktu áhuga hans og sýndu ávallt áhuga á því sem við fjölskyld- an vorum að gera. Man ég vel þær stundir sem mér fannst ég sitja fyrir svörum í sjónvarpsviðtali því að slík var ákefð hans stundum, að maður komst ekki upp með að svara ekki af fullri hreinskilni og sannleika. En þótt þolinmæði mín væri oft af skornum skammti þá hafði ívar sterkt samband við öll systkini sín, þó með ólíkum hætti við hvert þeirra. Mér eru sérstak- lega minnisstæð símtöl ívars og pabba. Áttu þeir bræður sín dag- legu og einlægu símtöl, þar sem þeir bæði hlógu saman og ræddu heimsins alvarlegustu mál. Elsku ívar, mig langar að þakka þér fyrir þær stundir sem við höfum átt saman og þann hlýhug sem þú sýndir mér og fjölskyldu minni síðast þegar við sáumst. Guð geymi þig og varðveiti. Þín frænka, Linda Björk Guð- mundsdóttir, Dundee, Skotlandi. Dáinn, horfinn! - Harmafregn! Hvílíkt orð mig dynur yfir! En ég veit að látinn lifir; það er huggun harmi gegn. (Jónas Hallgrimsson.) Þetta kvæði var það fyrsta sem kom mér í hug þegar ég heyrði að hann ívar minn væri látinn. Það er alltaf sárt að sjá á eftir ástvini en minningin lifir í hjörtum okkar. ívar frændi minn hefur ávallt verið til staðar og okkur hættir til að taka ástvinum sem of sjálfsögð- um hlut. Nú þegar hann er farinn er svo margt sem ég vildi sagt hafa við hann, mér finnst að ég hafi ekki sagt honum nógu oft hve vænt mér þótti um hann qg hve miklu máli hann skipti mig. I hjarta mínu trúi ég og vona að hann hafi samt vitað það. Ef eitthvað gerðist í lífi mínu, alveg sama hvort það var skemmtilegt eða sorglegt, þá varð ég að segja honum ívari mínum frá því. ívar frændi var mér sem besti bróðir og milli okkar var góð vin- átta. Ég ólst upp hjá ömmu Ingi- björgu, móður hans, og ívari frænda á Hverfisgötu 70. Þaðan á ég margar góðar minningar. Hann var mér mjög góður þegar ég var krakki, þó að það væru tuttugu ár á milli okkar og þrátt fyrir að hann ætti við mikil veikindi að stríða frá þvi að hann var ungur maður. Ávallt var hann ívar minn tilbúinn að hjálpa mér með heimalærdóminn og vandamálin sem upp komu. Hann ívar minn var afar vel gefinn og fékk ég að njóta góðs af því alla mína tíð. Ég held að enginn hafi verið eins stoltur af mér og hann ívar minn þegar ég lauk námi frá Verzlunarskólanum, honum fannst hann með réttu hafa átt mikinn þátt í því. ívar hafði sjálfur lokið verzlunarprófí þaðan JÓHANNES JÚLÍUSSON + Jóhannes Júl- íusson var fæddur í Reykjavík 24. júní 1926. Hann lést í Reykjavík 18. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sigríður Árnadóttir og Júl- íus Þorbergsson, en hann ólst upp á Úlfarsfelli í Mos- fellsdal hjá Skúla Guðmundssyni Norðdahl og Guð- björgu Guðmunds- dóttur frá Miðdal. Böm Sigriðar og Júlíusar voru, auk Jóhannesar: Dagmar (lát- in), og Árni, búsettur í Reykja- vík. Uppeldissystkini Jóhannes- ar, börn Skúla og Guðbjargar, voru sex: Haraldur (látinn), Lára (látin), Grímur, Guðrún (látin), Úlfar og Kjartan (lát- inn). Auk þess tóku Skúli og Guðbjörg í fóstur þau Guðrúnu EUiðadóttur og Fjólu Bjarna- dóttur. Jóhannes giftist 31. des- ember 1947 Maríu Sigríði Ósk- arsdóttur, f. 30. apríl 1929, d. 29. apríl 1980. Þau eignuðust fimm börn: Jóhannes, f. 28. desember 1948, d. 7. apríl 1971, Skúla Guðbjörn, f. 18. júlí 1950, Þorvald Þór, f. 7. júní 1953, Helenu Sigríði, f. 1. apríl 1956, og Heimi Má, f. 1. júlí 1960. Jóhannes var matreiðslumaður og vann á hótelum hér heima og erlend- is, auk þess sem hann var til sjós. Útför hans fór fram frá Fossvogskirkju 30. maí siðastliðinn. NÚ er komið að kveð- justund, elsku afi minn. Ég veit að ég hef ekki verið dugleg að koma og heilsa upp á þig. En við eigum okkar mninningar. Minningar sem gleymast aldrei. Ragga hringdi í mig og óskaði mér til hamingju með afmælið döp- ur í bragði og sagði mér síðan að þú værir dáinn. Eg trúði varla að það væri satt. En allir verða ein- hverntímann að kveðja þetta líf til þess að takast á við önnur verk- efni, eins og við bæði vitum og trú- um. Nú ertu laus við allar þær áhyggjur sem þú hafðir alltaf um að ná sáttum við suma af afkom- endum þínum. Það skiptir ekki máli lengur. Þau þurfa bara að læra að fyrirgefa eins og þú sagðir alltaf. Elsku afi minn, hvíl í friði og lifi minning þín. en náði því miður ekki að halda áfram námi vegna veikinda. fvar var drengur góður sem vildi öllum vel. Lífið var honum erfitt, en þrátt fyrir það var hann alltaf gamansamur, hann gat séð spaugi- lega hlið á öllum málum. Milli okk- ar var góð vinátta sem hélst eftir að ég flutti að heiman. Mér þóttu samtölin okkar mikils virði, við gát- um talað saman um heima og geima. ívar hélt góðu sambandi við ástvini sína og vildi vita að allt væri í góðu lagi hjá þeim. Hann fylgdist vel með öllum fréttum og var vel að sér hvað var að gerast úti í hinum harða heimi. Við áttum oft mjög heimspekilegar viðræður um lífið og tilveruna, ferðalög, tón- list, tæknina og trúna, en hann var mjög trúaður. ívar frændi hélt mikið upp á eftir- farandi sálm sem amma Ingibjörg kenndi okkur öllum. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engill, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson.) Nú sefur hann svefninum langa, eflaust hvíldinni feginn. Nú er hann kominn til ömmu Ingibjargar. Hvíl í friði, elsku frændi. Guð blessi minningu þína. Ingibjörg Halldórsdóttir. Bekkjarbróðir er fallinn í valinn, ívar Pálsson er borinn til moldar í dag. Eftir langan veikindadag hefur húmað hægt að kvöldi og með húm- inu kom loks birtan og frelsið. Af sjúkrabeði er sálin nú fijáls eins og fuglinn og farginu er af henni létt. Vegir sálarinnar eru jafn ókunnir og vegir guðdómsins og víst er að dauðlegu fólki er ekki ætlað að skilja hin æðstu máttarvöld. Vinur okkar ívar hefur náð þeim áfanga- stað þar sem sálin og guðdómurinn leiðast hönd í hönd um eina og sömu veröld. Honum er búin himnavist og djúpur himnafriður. Að leiðarlokum senda skólafélag- arnir fjölskyldu ívars Pálssonar ein- lægar samúðarkveðjur. Ástvinir hans runnu ekki af hólmi þegar þörfin var mest fyrir ást þeirra og umhyggju. Alfaðir blessi þá og styrki. Ásgeir Ilannes. Verður það oft, þá varir minnst, voveifleg hætta búin finnst. Ein nótt er ei til enda trygg, að því á kvöldin, sál mín, hygg. Hvað helzt sem kann að koma’ upp á, kjós Jesú þér að vera hjá. Skelfing engin þig skaðar þá. (H.P.) Þín sonardóttir, Dagmar Björg J óhannesdóttir. Við viljum minnast afa okkar, sem við kölluðum alltaf afa á Gnoðó. Þegar við systkinin komum saman og minnumst hans rifjast upp margar minningar, eins og til dæmis frá ferðum í Sædýrasafnið og veiðiferðum. En aðal fjörið var á veturna þugar við fengum að fara á stóra sleðann. Síðan kunni hann eina list að okkar mati og öfunduð- um við hann mikið af því. Það var hvernig hann handlék pönnukök- umar, sneri þeim i loftinu og greip þær aftur. En nú eigum við einungis eftir minningar, minningar sem við geymum í hjarta okkar. Þreyttur leggst ég nú til náða, náðarfaðir, gættu min. Alla mædda, alla þjáða endumæri miskunn þín. Gef þú öllum góða nótt, gef að morgni nýjan þrótt öllum þeim, þú aftur vekur, eilíft líf þeim burt þú tekur. (Ólafur Indriðason) Ragnheiður Brimrún, Jó- hannes Þorvaldur og Dagmar Björg Jóhannesarbörn, Isabel Lilja og Sesselja Hrönn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.