Morgunblaðið - 29.07.1994, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
FÖSTUDAGUR 29.JÚLÍ 1994 9
Morgunblaðið/Björn Gíslason
I SUNDLAUGARGARÐINUM fer fram hluti dagskrár fjölskylduhátíðarinnar á Akureyri um helgina.
Fjölbreytt dagskrá
Hljómeyki á tónleikum
SÍÐASTA tónleikaröð Sumartón-
leika á Norðurlandi á þessu sumri
verður nú um verslunarmannahelg-
ina. Þá munu sönghópurinn Hljóm-
eyki og Hafliði Hailgrímsson tón-
skáld flytja dagskrá með þjóðlögum
í útsetningu Jóns Norðdals og Haf-
liða Hallgrímssonar, Aldasöng, sem
Jón Norðdal samdi við nokkur göm-
ul miðaldakvæði og Hljómeyki frum-
Helgin í
Minjasafninu
UM verslunarmannahelgina verður
ýmislegt á dagskrá Minjasafnsins á
Akureyri.
Söngvaka verður í kirkju Minja-
safnsins á laugardag og sunnudag
klukkan 16. í tengslum við söng-
vökuna verður Minjasafnið opið til
klukkan 18, en annars er það opið
klukkan 11-17 alla daga.
Á sunnudag verður gönguferð
um Innbæinn og lagt af stað frá
Laxdalshúsi klukkan 13.30. Göngu-
menn verða fræddir um það sem
fyrir augu ber og þátttaka er ókeyp-
is. Laxdalshús verður opið klukkan
13-17, en þar eru sýndar Akur-
eyrarljósmyndir og einnig mynd-
bandið „Gamla Akureyri“.
flutti 1986, og tvö verk, Myrtuskóg
nr. 2 og Níundu stund, eftir Hafliða
Hallgrímsson. Tónleikarnir verða í
Dalvíkurkirkju á föstudagskvöld
klukkan 21 og í Reykjahlíðarkirkju
í Mývatnssveit á sama tíma á laugar-
dagskvöld. Tónleikarnir í Akureyrar-
kirkju verða á sunnudag klukkan 17
og í Blönduóskirkju á sunnudags-
kvöld klukkan 21.
Listasumar ’94
Ný sýning í Glugganum
í Glugg-
anum í
göngugöt-
unni verður
ný sýning
frá og með
deginum í dag. Þar sýnir Tinna
Gunnarsdóttir verk sín. Sýn-
ingarnar í Glugganum standa
í eina viku hver.
Gjörningur við Leirubrú
í tilefni lýðveldisafmælisins
mun Helga Björg Jónasardótt-
ir vera með gjörninginn Lýð-
veldið ísland í 50 ár við Leiru-
brú klukkan 18 í dag.
ÞEIR sem verða á Akureyri um
verslunarmannahelgina eiga um
margt að velja sér til dægrastytt-
ingar. Fjölskylduhátíðin „Sækjum
Akureyri heim“ hefst í dag og
stendur allt fram á mánudag. Eitt
helsta kjörorð hátíðarinnar er
„Stöðvum unglingadrykkju“, en í
því skyni hafa forráðamenn hátíðar-
innar sett upp mjög fjölbreytta dag-
skrá með viðfangsefnum við allra
hæfi. Lögregla og Hjálparsveit
Varðar-
lundur
vígður
UM SÍÐUSTU helgi vígði Vörð-
ur, félag ungra sjálfstæðismanna
á Akureyri, reit sem félagið mun
nota til gróðursetningar á trjám.
Haukur bóndi Magnússon í Gull-
brekku í Eyjafjarðarsveit lagði
til reitinn, sem nú nefnist Varð-
arlundur.
Varðarfélögum til trausts og
halds við gróðursetninguna voru
stjórnarmenn úr SUS og þau
Valgerður Hrólfsdótiir, Sigurð-
ur J. Sigurðsson svo og Tómas
Ingi Olrich alþingismaður, sem
hafði umsjón með verkinu.
Eftir að hafa gróðursett 400
plöntur snæddi fólk grillmat í
boði Kjarnafæðis. Ætlunin er að
gróðursetning í Varðarlundi
verði árviss viðburður. Eins og
myndin sýnir dró Guðlaugur
Þórðarson formaður SUS dró
ekki af sér við gróðursetninguna.
skáta munu hafa samstarf um
gæslu í bænum og skátar munu sjá
um fjölskyldutjaldbúðir og fjöl-
breytta afþreyingu í Kjarnaskógi.
Dagskrá hátíðarinnar hefur verið
dreift víða og liggur frammi í versl-
unum og á ýmsum þjónustustöðum
Magnús Már Þorvaldsson, fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar, sagði
að megindagskráin væri um miðjan
daginn, meðal annars margvísleg
útidagskrá á Torginu og í göngu-
götunni. Einnig verður leikjadag-
skrá á morgnana og skemmtistaðir
bæjarins sjá fólki fyrir kvöld-
skemmtunum.
Fyrir þá yngstu
Á laugardag, sunnudag og
mánudag verður ijölskyldudagskrá
við sundlaugina. Auk sundlaugar
og rennibrauta eru í garði Sund-
laugarinnar margvísleg leikja- og
þrautatæki og þarna verður fjöl-
breytt dagskrá. Tívolí verður alla
dagana á flötinni neðan samkomu-
hússins og Brúðubíllinn verður í
miðbænum á laugardaginn, við
Sundlaugina og einnig i miðbænum
á sunnudag.
Margvíslegar íþróttir
Þolfimisýning verður á Torginu
í dag og gestum í Kjarnaskógi gefst
kostur á að taka þátt í þolfimi á
morgun og sunnudag. Þá munu
skátar líka sjá um ratleiki og
þrautabrautir í skóginum. Keppt
verður í götukörfubolta við Torgið
á morgun. Fjölskylduhlaup verður
í Kjarnaskógi á sunnudag og grill-
veisla að því loknu.
í miðbænum
Margt verður um að vera í mið-
bænum, meðal annars útitónleikar
alla dagana, tískusýning, þjóna-
hlaup og útimarkaður á laugardag
auk þess sem þá verður langur laug-
ardagur og verslanir opnar til
klukkan 16. Brúðubíllinn er í mið-
bænum laugardag og sunnudag, en
á sunnudag verður hljómsveita-
keppni í Dynheimum, sjóþotukeppni
og fleira sjósport í króknum við
Strandgötu, göngugerð um Innbæ-
inn og margt fleira.
Á kvöldin
Dansleikir verða fyrir unglinga í
Dynheimum og á sunnudagskvöld
fyrir 16-20 ára í 1929. Aðrir
skemmtistaðir eru á kvöldin ætlaðir
þeim sem eldri eru. Ekki eru skipu-
lagðar útiskemmtanir á kvöldin.
Hér hefur ekki verið sagt frá
nema litlu af því sem í boði er fyr-
ir þá sem sækja Akureyri heim eða
dveljast þar um helgina, en nánari
lýsingar og tímasetningar eru í
dagskrá hátíðarinnar.
Hvar má tjalda?
Tjaldstæði Akureyrar við Þór-
unnarstræti, eru opin en auk þess
verða fjölskyldutjaldbúðir í Kjarna-
skógi á vegum skáta. Skátar bjóða
auk margra daglegra liða upp á
kvöldvöku í Kjarnaskógi í kvöld.
Að sögn Magnúsar Más er von
þeirra fjölmörgu aðila sem að hátíð-
inni standa að hún megi fara vel
fram og verði upphaf að reglulegri
íjölskylduhátíð þar sem unglingar
þurfa ekki að rangla um augafullir
og án eftirlits.
Hér verði að verða hugarfars-
breyting og hún verði ekki gerð
eingöngu með strangri gæslu held-
ur umfram allt með samstilltu átaki
allra, jafnt ungra sem aldinna.
Nýtt frá Frakklandi
Jakkar frá kr. 16.000,-
Buxur frá kr. 7.000,-
TKSS
IMt
NEÐST VIÐ
DUNHAGA,
S. 622230.
Opið virka daga
kl.9-18,
laugardag
kl. 10-14.
Nátthagi - garðplöntustöð
Víðir og skrautrunnar ræktaðir í pottum,
hentugar í síðsumars- og haustgróðursetningu.
Alparósir/lyngrósir og einnig skógarplöntur í bökkum.
Er rétt austan við Ölfusborgir, við þjóðveg nr. 374,
milli bæjanna Hvamms og Gljúfurs.
Sími 98-34840.
Opið dagiega frá 16.30-21.00.
ÚTSALAN
ERHAFIIM
Skóverslunin Skóglugginn,
Reykjavíkurvegi 50,
sími 654275.
Fólk er alltaf
að vinna
íGullnámunni:
61 milljón
Vikuna 21. til 27. júlí voru
samtals 61.373.412 kr. greiddar út
í happdrættisvélum um allt land.
Þetta voru bæöi veglegir Silfurpottar
og fjöldinn allur af öörum vinningum.
Silfurpottar í vikunni:
Dags. Staður: Upphæö kr.:
22. júlí Háspenna, Laugavegi........ 134.122
24. júlí Mamma Rósa................... 275.725
26. júlí Mamma Rósa................... 152.466
26. júlí Kringlukráin................. 110.545
27. júlí Háspenna, Laugavegi........ 148.480
27. júlí Kringlukráin.................. 92.827
Staöa Gullpottsins 28. júlí, kl. 12:00
var 10.771.245 krónur.
Silfurpottarnir byrja alltaf í 50.000 kr. og Gullpottarnir í 2.000.000 kr.
og hækka slban jafnt og þétt þar til þeir detta.