Morgunblaðið - 29.07.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29.JÚLÍ 1994 17
LISTIR
Litið inn
á Listasumar
MYNPLIST
Dciglan/Glugg-
inn/Myndlistar-
skólinn á Akurcyri
HÖGGMYNDIR, GRAFÍK
OG LÁGMYNDIR/
MÁLVERK
Brynhildur Þorgcirsdóttir, Sigfrid
Valtingojer og Sólveig Eggertsdótt-
ir/Kristín G. Gunnlaugsdóttir/Ad-
olfo Hasenkamp. Deiglan: Opið alla
daga 14—18 til 31. júlí. Glugginn:
Opið alla daga. Myndlistarskólinn á
Akureyri: Opið alla daga 14-18 til
7. ágúst. Aðgangur ókeypis.
LISTAHÁTÍÐIR eru vaxandi þátt-
ur í menningarlífinu hér á landi, og
eru nú farnar að skjóta rótum víðar
en áður. Listahátíð í Reykjavík á sér
langa hefð, Listahátíð í Hafnarfirði
hefur gengið vel frá því henni var
hleypt af stokkunum og nú hafa
norðanmenn einnig tekið upp merkið.
Hinn 24. júní hófst þar í annað sinn
„Listasumar" með fjölbreyttri dag-
skrá á sviði myndlistar, tónlistar,
gjörninga og leiklistar - alþjóðlegt
fomsagnaþing er meira að segja tal-
ið upp sem hluti þess sem um er að
vera allt til þess er yfir lýkur 29.
ágúst, á afmælisdegi Akureyrar.
Myndlistina á þessu listasumri er
m.a. að finna í Listasafninu, Mynd-
listaskólanum, Deiglunni, Café Ka-
rólínu og Galleríi Allra handa, en
allir þessir staðir eru í svonefndu
Listagili (við Kaupvangsstræti),
ásamt vinnustofum ýmissa lista-
manna, sem einnig eru opnar al-
menningi. Hér hefur á stuttum tíma
þróast athyglisverð listamiðstöð, þar
sem Gilfélagið er sameiningarafl li-
stafólks og bæjarins, sem hefur stutt
myndarlega við bakið á uppbyggingu
svæðisins.
í stuttri heimsókn norður um síð-
ustu helgi var aðeins hægt að líta
inn á nokkrum stöðum, en þar bar
margt athyglisvert fyrir augu, sem
vert er að nefna að nokkru.
Samsýning í Deiglunni
Deiglan er lítill fjölnotasalur sem
hentar jafn vel undir myndlist, leik-
sýningar og tónleika, enda notaður
undir allar þessar greinar i sumar.
Listagilið á Akureyri.
Þar sýna nú verk sín þtjár listakon-
ur, þær Brynhildur Þorgeirsdóttir,
Sigrid Valtingojer og Sólveig Eg-
gertsdóttir.
Hinir ólíku miðlar þeirra fara
ágætlega saman hér; Brynhildur sýn-
ir tvö verk, þar sem hlutur glersins
er einkar markviss, og einnig vekur
athygli að línur eru orðnar markaðri
en fyrr sem gefur þessum „Klettum"
og „Steinum" hvassara yfirbragð en
oft áður.
Sigrid Valtingojer sýnir m.a. nokk-
ur stór grafíkverk sem eru unnin
með ætingu/akvatintu, þar sem litb-
lær verður einkar sterkur, eins og
sést í „Dans“ (nr. 2); einnig eru hér
litlar monotýpur, sem eru leikandi
léttar minningar um staði og stund-
ir, eins og t.d. „Istanbul".
Verk Sólveigar Eggertsdóttur eru
unnin með því að steypa gamlar,
brotnar gifsstyttur í vax, þannig að
við áhorfendum blasir óljós ímynd,
sem um margt minnir á leikföng
æskunnar eða • skrautmuni liðinna
tíma. Sólveig sýndi slíkar lágmyndir
fyrr á þessu ári í Gallerí Sólon ísland-
us og þau vinna á við nánari kynni;
hér verða sterkir litir í einstökum
brúðum eins og ljósgeislar innan úr
myndunum.
Kristín G. Gunnlaugsdóttir í
„Glugganum“
Ein skemmtilegasta tilraun lista-
sumarsins felst í „Glugganum", sem
er einfaldlega sýningargluggi í vöru-
húsi KEA við Hafnarstræti, sem
hefur verið tekinn undir myndlist í
stað vöruútstillinga. Hver sýning
stendur í viku í senr. og meðal þeirra
sem þegar hafa átt verk þarna eru
Laufey Pálsdóttir og Daníel Magnús-
son, en síðar í sumar verða þar m.a.
myndir eftir Sigurð Árna Sigurðsson
og Biynhildi Kristinsdóttur; nú (til
28. júlí) eru í glugganum myndir
eftir Kristínu G. Gunnlaugsdótfur.
Kristín hefur tileinkað sér afar
persónulega myndgerð, sem byggir
með vissum formerkjum á myndgerð
síð-miðalda; dýrlingar, maríumyndir
og englar málaðir með olíulit eða
egg-tempera á gullinn bakgrunn
vekja óneitanlega mikla athygli í
samhengi nútímalistar, en slíkar
myndir Kristínar getur að líta í
Glugganum. Næst koma þar upp
verk Tinnu Gunnarsdóttur.
Adolfo Hasenkamp í
Myndlistaskólanum
Myndir Adolfo Hasenkamps, sem
er þýskur landslagsmálari af gamla
skólanum, voru áður sýndar í Reykja-
vík, þar sem ágóði af sölu þeirra
rann til Samtaka um Tónlistarhús. Á
Akureyri tengist sýningin starfsemi
Zonta-systra og mun ágóðinn af sölu
verka þar renna til verkefnis á vegum
þeirra.
Á sýningunni eru yfir sextíu
myndir, bæði óhlutbundnar og lands-
lagsverk frá stöðum víða um landið.
Hin síðarnefndu gefa oftar en ekki
yfirlitssýn yfir þekkta staði, og er
mest málað með daufum jarðlitum,
en óhlutbundnu verkin eru gjarna
tengd ýmsum fyrirbærum náttúr-
unnar, s.s. norðurljósum, kristöllum,
söndum, mosa o.s.frv. Hér er á ferð-
inni mjög svo hefðbundin myndlist,
sem fremur má kenna við heiðarleg-
an áhuga en næma innsýn eða frum-
lega úrvinnslu myndefnis.
Vert er að leggja áherslu á að það
er mikið um að vera í listaiífinu á
Akureyri í sumar og ber að hvetja
ferðafólk og aðra gesti jafnt sem
heimamenn til að kynna sér dag-
skrána, og njóta þess sem hún hefur
upp á að bjóða; skemmtileg staðsetn-
ing í miðbænum gerir að verkum að
Listagilið finnst örugglega.
Eiríkur Þorláksson
Heimsþekktur söngvari syng-
ur Sál með Mótettukórnum
BARITÓNSÖNGVARINN Andreas
Schmidt verður meðal einsöngvara
í flutningi Mótettukórs Hallgríms-
kirkju á óratóríunni Sál eftir Georg
Friedrich Hándel í Skálholti og í
Hallgrímskirkju 20. og 21. ágúst nk.
Andreas Schmidt er meðal þekkt-
ustu og eftirsóttustu söngvara á sínu
sviði í heiminum í dag. Hann hefur
sungið inn á fjölmargar hljómplötur
og diska hjá helstu útgáfufyrirtækj-
um heims, haldið einsöngstónleika
og sungið í virtum óperuhúsum.
Hann er íslendingum líka að góðu
kunnur því að hann hefur haldið
ljóðatónleika hér á landi og tvisvar
áður tekið þátt í óratóríuflutningi
með Mótettukór Hallgrímskirkju.
Annar erlendur söngvat'i verður
Karl-Heinz Brandt sem söng guð-
spjallamann í Jóhannesarpassíunni
með Mótettukór Hallgrímskirkju
árið 1992. Heimsókn erlendra lista-
manna úr fremstu röð er alltaf mik-
ill viðburður. En ekki er síður
ánægjuefni að státa af íslenskum
söngvurum í uppfærslunni: Þeim
Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, Margréti
Bóasdóttur, Mörtu Guðrúnu Hall-
dórsdóttur, Hrafnhildi Guðmunds-
dóttur, Snorra Wium og Heimi
Wium.
Sál hefur ekki verið flutt áður hér
á landi. Þetta er dramatískt verk
um hinn mikla konung Sál og Davíð
litla með slönguvaðinn sem varð
hetja og uppskar _ást, en einnig öf-
und og afbrýði. Óratórían er mjög
stór í sniðum, fjölbreytt og kröfu-
hörð við flytjendurna.
Þetta er í fyrsta sinn sem lagt er
í svo stóra óratóríutónleika á íslandi
að sumarlagi. Búast má við mikilli
eftirsókn eftir miðum vegna fjölda
ferðamanna á þessum árstíma og
er forsala aðgöngumiða þegar hafin
í Hallgrímskirkju. Tónleikarnir í
Skálholti verða laugardaginn 20.
ágúst kl. 16.00 og í Hallgrímskirkju
sunnudagskvöldið 21. ágúst kl.
20.30. Miðaverð er 1500 kr.
Gunnar
Gránz sýnir
í Tryggva-
skála
Selfossi, Morgunblaðið.
GUNNAR Gránz listmálari heldur
sýningu í Tryggvaskála á Selfossi
30. júlí til 7. ágúst. Gunnar hefur
frá upphafí verið félagi í Myndlist-
arfélagi Árnessýslu og tekið þátt
í samsýningum þess en þetta er
hans fyrsta einkasýning.
Með þessari sýningu segist
Gunnar vilja lífga upp á tilvist
Skálans, þess merka húss. Hann
segist hafa helgað sig myndlistinni
í sumar til að breyta til og reyna
sig af alvöru.
Sýningin verður opnuð klukkan
14.00 30. júlí og verður opin um
helgar frá 14.00-21.00 og virka
daga kl. 17.00-21.00. „Það eru
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Gunnar Granz með tvær af
myndum sínum.
allir velkomnir á sýninguna bæði
háir sem smáir í okkar gamla
góða Tryggvaskála," sagði Gunn-
ar Gránz.
Skagaleikflokkurinn
á Siglufirði
SKAGALEIKFLOKKURINN sýnir
verk Kristjáns Kristjánssonar Állt-
af má fá annað skip á Siglufírði
um verlsunarmannahelgina. Tvær
sýningar verða á leikritinu laugar-
daginn 30. og sunnudaginn 31.
júlí. Sýnt verður í Alþýðuleikhúsinu
og hefjast sýningar klukkan 20.
Skagaleikflokkurinn er nýkom-
inn frá norrænni-baltískri leik-
listarhátíð áhugamanna í Tonder
í Danmörku. Fimmtán leikhópar
tóku þátt í hátíðinni sem var skipu-
lögð af Danmarks Amator Theater
Samvirke í samvinnu við samtök
norræna áhugaleikfélaga. Sýning
flokksins fékk jákvæða umfjöllun
hjá danska gagnrýnandanum Ni-
els Djamkjær. Hann sagði m.a.
að íslenska sýningin væri á allan
hátt vel samin, vel leikin og prýði-
lega útfærð, og framlag íslend-
inga vægi álíka þungt og væri
ísland þéttbýlt land.
S o f t L o o k
n
.
é
■ u r /
IIÉP
t’að er eitthvað bogið við nviu
ísskápalínuna frá Whirlpool
TEGUND HLUTFÓLL HURÐ HÆÐ BREIDDDÝPT VERÐsTGR.
1901122■ 2 180 60 60
362 1 242/83 í 2 18
202196 2 179
204160 '1 159
KOMDU O®
Bogadregin línan í hurðunum
á nýju ískápalínunni fra
Whirpool gefur nútímalegt
yfirbragð. Um leið er það
afturhvarf til fortíðar og því
má segja að gamli og nýi
tíminn inætist í nýju Soft
Look línunni frá Whirlpool.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SlMI 69 15 OO
Umboðsmenn um land allt.
Ikki fara til útlanda
D3?‘ 18. ágúst rz