Morgunblaðið - 09.10.1994, Qupperneq 2
2 SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1994
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Skagfirðingar kaupa
frystitogarann Sjóla
DJÚPHAF hf., sem er nýstofnað dótturfyrirtæki
Skagfirðings hf. á Sauðárkróki, hefur keypt
frystiskipið Sjóla HF-1 af Sjólaskipi hf. í Hafnar-
firði. Einar Svansson, framkvæmdastjóri Skag-
firðings, segir að skipið verði gert áfram út frá
Hafnarfirði með svipuðum hætti og verið hafí.
Hann segir að ef þess þurfí verði eitt af skipum
Skagfirðings selt til að fjármagna kaupin. Áform
um sölu séu hins vegar ekki inni í áætlunum
fyrirtækisins.
Sjóli HF-1 er 1.500 tonna frystiskip byggt í
Flekkefjord 1987. Það er systurskip Haraldar
Kristjánssonar, sem Sjólaskip gerir út frá Hafn-
arfírði. Skipin hafa á undanfömum árum stundað
úthafskarfaveiðar og eru frumkvöðlar í þeim
veiðum. Það sem af er árinu hefur Sjóli veitt um
6.000 tonn af fiski, þar af um 3.500 tonn af
úthafskarfa og 1.000-2.000 tonn af þorski í
Smugunni.
400 tonna kvóti fylgir
Kvóti upp á 400 þorskígildistonn fylgir með í
kaupunum, en tæplega 1.000 t kvóti, sem verið
hefur á Sjóla, verður eftir hjá Sjólaskipum. Einar
sagði að kaupverðið yrði ekki gefíð upp að sinni.
Einar sagði að áformað væri að gera skipið
út með sama hætti og gert hefði verið undanfar-
in ár. „Það hefur verið mjög góð útgerð á þessu
skipi. Skipið hefur verið mjög framarlega í veið-
um á úthafskarfa. Skipveijar þekkja þær mjög
vel og líklega betur en flestir aðrir. Við viljum
nýta þessa þekkingu.“
Einar sagði að skipið yrði gert út frá Hafnar-
firði, a.m.k. til að byrja með. Auk veiða á úthafs-
karfa yrði skipið að veiðum í Smugunni. Hann
sagði að öllum sjómönnum sem verið hafa á
skipinu yrði boðin vinna áfram á skipinu. Sjóli
er nú í slipp, en verður afhentur nýjum eigendum
um næstu mánaðamót.
Skagfirðingur hf. á fjögur skip, sem sum
hver eru orðin nokkuð gömul. Einar sagði þessi
skipakaup ekki hugsuð sem endurnýjun á skipa-
stóli fyrirtækisins heldur sem hrein viðbót. Hann
sagði hins vegar að sá möguleiki væri inni í
myndinni að selja eitt af skipum Skagfirðings
ef þess þyrfti til að fjármagna kaupin. Sem stæði
væri sá möguleiki ekki inni í áætlunum fyrirtæk-
isins.
Viljayfirlýsing
hafnarstjórnar
Slippur
Stálsmiðju
keyptur
HAFNARSTJÓRN Reykjavíkur
hefur samþykkt viljayfírlýsingu,
um að Reykjavíkurhöfn sé tilbúin
til að kaupa slipp Stálsmiðjunnar
hf., á athafnasvæði félagsins við
Ægisgarð í Reykjavík. Umsamið
kaupverð er 70 milljónir króna.
Samningurinn er samþykktur með
þeim fyrirvara að nauðasamningar
verði samþykktir og að nýtt 40
milljóna króna hlutafé komi inn í
fyrirtækið. í fundargerð Hafnar-
stjómar kemur fram að Sigurður
Rúnar Magnússon, fulltrúi
Reykjavíkurlistans í stjórninni,
gerir athugasemd við að fjármunir
Reykjavíkurhafnar skuli nýttir til
að tryggja einokunarstöðu Stál-
smiðjunnar hf. á upptökubúnaði í
Reykjavíkurhöfn.
Yfirtökur 25 millj.
áhvílandi veðskulda
í viljayfírlýsingu hafnarstjómar
kemur fram að umsamið kaupverð
eigi að greiða með yfirtöku áhvfl-
andi veðskulda að fjárhæð 25 millj.
samkvæmt sérstöku samkomulagi
við veðhafa. Gért er ráð fyrir að
30 millj. verði greiddar með pen-
ingum og er miðað við að lána-
stofnanir með veðrétt í eigninni
muni lána Reykjavíkurhöfn upp-
hæðina. Jafnframt að greiðslur
verði inntar af hendi eftir því sem
viðgerðum á slippnum lýkur. Þá
er gert ráð fyrir að 15 millj. verði
greiddar vegna efniskostnaðar við
endurbætur á eigninni og skulu
þær greiðast eftir því sem endur-
bótunum miðar áfram. Tekið er
fram að þeim skuli ljúka innan 12
mánaða frá dagsetningu kaup-
samningsins.
Endurskipulagning takist
Yfirlýsingin er með þeim fyrir-
vörum að fjárhagsleg endurskipu-
lagning takist eins og fram hefur
komið og að fyrir liggi samþykki
þeirra lánastofnana sem veðrétt-
indi eiga í tækjum, áhöldum og
lóðaréttindum. Jafnframt að
samningar takist milli Reykjavík-
urhafnar og Stálsmiðjunnar hf.
um leigu á þeim áhöldum og tækj-
um sem fjallað er um í yfírlýsing-
unni. Þannig að árlegar leigu-
greiðsiur verði ákveðinn hundraðs-
hluti af framreiknuðu kaupverði
og ákveðin fjárhæð sem leigutaki
skal veija til viðhalds.
EINS og sjá má er í raun um að ræða tvö hús með tengibyggingu. Ef allt gengur að óskum stefna
Bretar og Þjóðverjar á að taka húsið í notkun á 50 ára afmæli stríðsloka á næsta ári.
Bretar og Þjóðverjar
hanna sendiráð saman
Umsóknin afgreidd frá skipulagsnefnd eftir helgi
„EG vona að umsókn okkar verði
afgreidd fljótlega, svo við getum
hafíst handa við bygginguna," sagði
Michael Hone, sendiherra Bretlands
á Islandi, í samtali við Morgunblað-
ið. Bretar og Þjóðveijar hafa látið
hanna sameinginlega sendiráðs-
byggingu þjóðanna, sem þeir hafa
hug á að byggja á lóð í eigu breska
ríkisins að Laufásvegi 31. Mótmæli
hafa borist frá íbúum í Þingholtun-
um, sem telja húsið of stórt og að
umferð aukist með tilkomu þess.
Guðrún Ágústsdóttir, formaður
skipulagsnefndar, segir að málið,
verði tekið fyrir að fundi nefndar-
innar á mánudag.
Stórlax
sleppt í
Reynisvatn
ÞAÐ voru engir smálaxar sem
Halldór Sigurðsson, veiðivörður
í Laxalóni, sleppti í Reynisvatn í
vikunni. Þessi er 28 pund og einn-
ig var einum 22 punda laxi
sleppt. Fyrir tveimur vikum var
40 löxum sleppt i vatnið. Af þeim
hafa 17 veiðst nú þegar. Að sögn
Ólafs Skúlasonar í Laxalóni
verða laxarnir eins konar bónus
fyrir veiðimenn sem renna fyrir
silung í vatninu. Mikil spurn hef-
ur verið eftir veiðileyfum í vatn-
ið í sumar og hafaum 10.000
stykki af silungi komið á land.
Veiðinni verður haldið áfram út
þennan mánuð. Góð veiði hefur
verið upp á síðkastið.
Bretar og Þjóðveijar ætla að reisa
húsið, sem er hannað af Arkþingi
hf., en áður hafði verið rætt um að
Frakkar og ítalir tækju einnig þátt
í byggingunni. Af þvi varð þó ekki.
„Við lögðum teikningar okkar og
áætlanir fyrir borgaryfirvöld í byij-
un júlí og bíðum nú svara. Við hlökk-
um til samstarfsins við Þjóðveija
og ætlum að hefja bygginguna um
leið og við fáum til þess heimild,“
sagði sendiherra Breta, Michael
Hone. Hann kvaðst ekki hafa
ástæðu til að ætla annað en leyfið
fengist, en það tæki tíma, þar sem
það þyrfti að fara fyrir skipulags-
og byggingaryfirvöld.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tvö hús og tengibygging
Guðrún Ágústsdóttir, formaður
skipulagsnefndar Reykj avíkurborg-
ar, sagði að íbúar í nágrenni fyrir-
hugaðrar sendiráðsbyggingar hefðu
gert athugasemdir við hana. „íbú-
amir óttast aukna umferð á gatna-
mótunum, auk þess sem þeir gera
athugasemd við stærð hússins og
hvernig það fellur að nánasta um-
hverfí. Þama er í raun um tvö hús
að ræða, með tengibyggingu á
milli."
Samkvæmt aðalskipulagi er þetta
svæði íbúðabyggð og þarf að sam-
þykkja breytingu þar á.
Sleppt
eftir tugi
innbrota
HÆSTIRÉTTUR felldi á föstudag
úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð
yfír tveimur mönnum sem brutust
inn á 15-20 stöðum aðfaranótt
fímmtudags í síðustu viku og voru
þeir látnir lausir.
Mennirnir kærðu 45 daga
gæsluvarðhaldsúrskurð héraðs-
dóms til hæstaréttar. Hæstiréttur
tók ekki undir sjónarmið Rann-
sóknarlögreglu ríkisins og héraðs-
dómS sem voru þau að í ljósi þess
að mennirnir, sem báðir eru undir
tvítugu, ættu talsverðan afbrota-
feril og annar þeirra óafplánaðan
dóm, þyrfti að ljúka málum þeirra
til að koma í veg fyrir frekari af-
brot.
A
► 1-48
Við höfum skipt um gír
►Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra hefur nú lagt fram síðasta
fjárlagafrumvarp sitt á kjörtíma-
bilinu og lýsir hér sigrum og ósigr-
um í baráttunni við ríkisútgjöldin,
nýjum viðhorfum til velferðarkerf-
isins og markmiðum næstu ára./lO
Sagan leiðrétt
►Með játningum sínum um tengsl
við leppstjóm nasista hefur
Francois Mitterand Frakklandsfor-
seti komið aftan að stuðnings-
mönnum sínum og ruglað and-
stæðingana með því að draga fram
í dagsljósið ýmsar óþægilegar
staðreyndir um sögu Frakka./12
Fordómar og þjóðar-
sálin
►Um viðhorf Íslendinga til inn-
flytjenda, en greinin er byggð á
rannsóknum fjöimiðlafræðinema á
viðhorfum gagnvart fímm innflytj-
endahópum sem hingað hafa kom-
ið./14
Að þegja yfir sannleik-
anum
►Rætt við Arvo Alas, sendiherra
Eistlands um Stalín, Gretti og
nútímann./16
Gríptu daginn!
►í viðskiptum og atvinnulífí á
sunnudegi er rætt við Óskar Finns-
son og Kristján Þór Sigfússon um
veitingarekstur./20
B
► 1-28
Uppskerudagar í Bo-
urgogne
►í nokkrar vikur á hveiju hausti
fyllast litlu rólegu bæimir á vín-
svæðum Búrgundarhéraðs í
Frakklandi af lífí. Blaðamaður
Morgnblaðsins var þar á ferð ný-
verið og fýlgdist með þegar vín-
þrúgunum var komið í hús./l
Forspár um tækni 20.
aldar
►Týnd vísindaskáldsaga Jules
Veme komin í leitimar./6
Hvernig væri að vinna
lín?
►Hugmyndir um línrækt á íslandi
hefur fallið í góðan jarðveg./12
Lífsbrot
►Kristinn á Dröngum er 82 ára
og fer á hveiju sumri að Dröngum
á Ströndum þar sem hann nytjar
æðarvarp og önnur lífsins
gæði./14
BÍLAR______________
► 1-4
Fornbílar
►Sagt frá Renault „hagamúsinni"
sem á sér skemmtilega sögu á ís-
landi./2
Reynsluakstur
►Hljóðlátur og lipur Toyota Car-
ina E Catchy GLÍ./4
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Velvakandi 36
leiðari 24 Fólk t fréttum 38
Helgispjall 24 Bíó/dans 39
Reykjavtkurbréf 24 íþróttir 44
Minningar 26 Útvarp/sjónvarp 46
Myndasögur 34 Dagbók/veður 47
Brids 34 Mannlífsstr. 4b
Stjömuspá 34 Kvikmyndir 8b
Skák 34 Dægurtónlist 9b
Bréf til blaðsins 34
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4