Morgunblaðið - 09.10.1994, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 09.10.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1994 23 LISTIR Fyrrum menntamálaráðherra Spánar heiðraður í Frankfurt Friðarverðlaun til Jorge Semprún Frankfurt. Morgunblaðið. SPÁNVERJINN Jorge Semprún fær Friðarverðlaun þýskra bóka- útgefanda og bóksala að þessu sinni. Verðlaunin, sem eru 25.000 þýsk mörk, verða afhent við hátíð- lega athöfn í Kirkju heilags Páls í Frankfurt í dag. Verðlaunin hafa verið veitt síð- an 1950 í tengslum við alþjóðlegu bókastefnuna í Frankfurt, en hún stendur nú yfir. Max Tau var fyrstur verðlauna- hafa, en meðal annarra má nefna Albert Schweitzer, Astrid Lind- gren, Octavio Paz og Vaclav Ha- vel. Friðarverðlaunin renna til þeirra sem að mati dómnefndar hafa lagt sitt af mörkum til friðar í heiminum, stuðlað að mannúð og skilningi milli þjóða. Jorge Semprún er fæddur í Madríd 1923. Fjölskylda hans flýði til Parísar 1937 á tímum Spænsku borgarastyijaldarinnar og þar hlaut hann menntun sína. Hann var snemma virkur kommúnisti og lét til sín taka á stríðsárunum í Frakklandi og í spænska kommúnistaflokknum. Það kostaði hann vist í Buchen- wald. Eftir stríð starfaði hann við þýðingar hjá Sameinuðu þjóðunum í París og beitti sér gegn Franco- stjórninni á Spáni. Á árunum 1957-1962 stjórnaði hann neðan- jarðarhreyfingu spænskra komm- Menningar- dagskráí Gerðubergi UR sönglagasafninu er viðfangs- efni erindis sem Trausti Jónsson veðurfræðingur og Baldur Símonar- son lífefnafræðingur flytja í Menn- ingarmiðstöðinni Gerðubergi í dag sunnudag 9. október, kl. 14. Hrafnhildur Guðmundsdóttir söngkona og Guðríður St. Sigurðar- dóttir píanóleikari flytja jafnframt því lög eftir Einar Markan, Elísa- betu Einarsdóttur, Höskuld J. Ólafsson, Jón Blöndal, Jón Laxdal, Kristján Kristjánsson, Maríu Brynj- ólfsdóttur, Pétur Sigurðsson og Þorvald Blöndal. Trausti og Baldur kynna höfund- ana og fjalla um verk þeirra. Sum laganna hafa mjög sjaldan verið flutt og ekki hafa þau öll komist á prent. í Gerðubergi var síðastliðinn sunnudag opnuð yfirlitssýningin Islenska einsöngslagið og stendur sú sýning til 1. desember. Allir eru velkomnir. ♦ ♦ ♦ únista gegn Franco undir dulnefn- inu Federico Sánchez. Hann sneri baki við kommúnistaflokknum 1964 þegar hann vildi fara aðrar leiðir en flokkslínan bauð. Hann fór til Parísar og fékkst þar við ritstörf, en eftir hann liggja eink- um skáldsögur og ritgerðasöfn. Hann var menntamálaráðherra Spánar 1988-1991, nú býr hann ýmist í París eða Madríd. Flestar bækur hans eru ritaðar á frönsku. ULPUR í öll veöur Einstaklega sterkar, vind- og vatnsþéttar (ENTRANT Gll) með útöndun. Rennilás fyrir flýspeysu. frá 16.960 kr. ilQLAQSHSIN ÆGIR Eyjaslóð 7 Reykjavík s. 621780 Húsnæðisstofn- un efnir til ljós- myndasýningar HÚSNÆÐISSTOFNUN efnir til Ijósmyndasýningar f tilefni af því að um þessar mundir er um aldar- fjórðungur frá því að stofnunin hóf að veita lán til öryrkja. Ljósmynda- sýningin ber yfirskriftina: Hús- næðislán til samtaka öryrkja í rúm- an aldarfjórðung. Sýningin er haldin í húsnæði Öryrkjabandalagsins, Hátúni 10, og stendur yfir til 23. október. Sýning- in er opin alla daga frá kl. 9-18. Námskeið s 1 sem þu græoir ’ a! Vinsælu jjdrmdlandmskeiðin hejjast ajtur! Námskeið um fjármál heimilisins „Eftir jjármúlanámskeiðiðgengur mér miklu betur með heimilis- bókhaldið og ég veit nákvæmlega í hvaðpeningarnir fara!“ Helga Birgisdóttir húsmóðir og Ijósmóðir Hvert námskeið er tvö kvöld og fer kennslan fram í Búnaðar- bankanum Austurstræti (gengið inn Hafnarstrætismegin) frá kl. 19:30 til 22:30. Námskeiðið kostar 2.500 kr. en félagar í Heimilislínunni greiða 1.900 kr. Innifalið í námskeiðsgjaldi er vegleg handbók um fjármál heimilanna, bókhaldsmappa og veitingar. Upplýsingar og skráning er í síma (91) 603 203 (markaðsdeild). Námskeið fyrir 12 til 15 ára unglinga Námskeiðin hefjast kl. 15:30 og standa yfir í tvo tíma. Þau fara fram í Búnaðarbankanum Austurstræti 5 (aðalbanka), 3. hæð. Innritun og nánari upplýsingar fást í síma 603267 (fræðsludeild). Hægt er að panta tíma fyrir nemendahópa. Þátttakendur fá fjármála- handbók og viðurkenn- ingarskjal. Boðið er upp á veitingar og bankinn skoðaður. Námskeiðin eru ókeypis og opin öllum unglingum áaldrinum 12-15 ára Hvað kostar að eiga bíl? Hvað kostar að reykja? Hvernig má spara? Hvar fást hagstæðustu lánin? Hvaða ávöxtunarleiðir eru bestar? Lánamöguleikar Áætlanagerð Heimilisbókhald Heimilisrekstur Bætur vegna húsnæðiskaupa Borga ég of mikið ískatta? Tryggingabætur o.fl. \ HEIMILISLINAN — Einfaldar fjirmálin F JÁRMÁLAÞ JÓNUSTA UNGLINGA Næstu námskeið Fjármál heimilisins: • Mánud. 10. okt. og miðvikud. 12. okt. FULLBÓKAÐ • Mánud. 17. október og miðvikud. 19. október. • Þriðjud. 18. október og fimmtud. 20. október. Námskeið fyrir unglinga 12 -15 ára: • Fimmtudagur 13. október • Miðvikudagur 19. október Námskeið utan Reykjavíkur verða auglýst síðar. BUNAÐARBANKINN - Traustur banki VjS / OISQH ViJAH

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.