Morgunblaðið - 09.10.1994, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 09.10.1994, Blaðsíða 26
26 SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1994 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Elskuleg móðir okkar, ERNA HAFDÍS BERG KRISTINSDÓTTIR, Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12, Reykjavfk, sem lést 30. september, verður jarð- sungin frá Bústaðakirkju mánudaginn 10. október kl. 13.30. Borgar Þór Guðjónsson, Bergþóra Berta Guðjónsdóttir, Ragnheiður Björk Guðjónsdóttir. t Útför móður okkar, GUÐMUNDU GUÐMUNDSDÓTTUR, ferframfrá Fossvogskapellu miðvikudaginn 12. októberkl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda. Hafsteinn Hansson, Kolbrún Mýhrberg. t Móðir okkar, systir, tengdamóðir, amma og langamma, GEIRLAUG ÓLAFSDÓTTIR frá Reynisvatni, verður jarðsett frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 11. október kl. 13.30. Ásdís Halldórsdóttir, Hreinn Bjarnason, Þórir Ólafur Halldórsson, Hrafnhildur Hannesdóttir, systkini, barnabörn og barnabarnabarn. + Sonur okkar, FRÓÐI FINNSSON, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriöjudaginn 11. október kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlega af- þakkaðir, en þeim, sem vildu minnast Fróða, er bent á Styrktarfélag krabba- meinssjúkra barna. Edda Þórarinsdóttir, Finnur Torfi Stefánsson. + Ástkaer faðir minn, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR GUÐMUNDSSON, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður Hrísmóa 6, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 11. október kl. 10.30. Ólöf Sigurðardóttir, Guðmundur Einarsson og barnabörn. + . i Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT BENEDIKTSDÓTTIR, Hrafnistu í Hafnarfirði, áður til heimilis á Öldugötu 47, Reykjavik, verður jarösungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 11. október kl. 15.00. Björg H. Randversdóttir, Þorlákur Þórðarson, Randver Þorláksson, Guðrún Þórðardóttir, Sigríður Þorláksdóttir, Ingvar Georgsson, Margrét Þóra Þorláksdóttir, Árni Jörgensen og barnabarnabörn. + Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við fráfall og útför móður minnar, MAGDALENU SIGURÞÓRSDÓTTUR handavinnukennara. Þórunn Sigurlásdóttir og aðrir aðstandendur. ERNA HAFDÍS BERG KRISTINSDÓTTIR + Erna Hafdís Berg Kristíns- dóttir var fædd á Eskifirði 25. mars 1935 og ólst upp á Reyðarfirði. Hún lést í Hátúni 12, Sjálfsbjargarhús- inu, 30. september síðastliðinn. For- eldrar hennar eru Bergljót Einars- dóttír og Kristínn Berg Pétursson sem nú er látínn. Hafdís giftíst Guð- jóni Jónssyni 1953 og eignuðst þau þrjú börn sam- an, Borgar Þór Guðjónsson, f. 1953, leigubílstjóri í Reykjavík, Bergþóra Berta, f. 1955, rekur æfingastúdíó í Njarðvík, og Ragnheiður Björk, f. 1957, verslunarmaður í Reykjavík. Hafdís og Guðjón slitu samvistir 1969. Hafdís áttí eina alsystur, Svanhildi, sem er látín, og ellefu hálfsystkini. Systkinin eru (sam- mæðra): Alda, Bára, Siggerður og Víðir Már Pétursböm. Systk- inin (samfeðra) em: Öm, Helgi, Unnar, Hafrún, Ragnhildur, Steinunn og Eygló Kristinsbörn. Útför Emu Ilafdísar Berg Kristínsdóttur fer fram frá Bú- staðakirkju á morgun. LÍFSDAGUR er liðinn hjá. Lokin kær þeim er hvíld þráði eftir örðuga tíð, örlög hörð og óvægin, magn- þrungin í miskunnarleysi sínu. Tær er eftirsjá okkar sem eftir stöndum, þakklæti þrungin. Fram í hugann streymir mergð minninga, muna- þýðar sem í töfrandi tíbrá birtast þær ein af annarri og á þær ber engan skugga, heiðríkja er öllu yf- ir, umvafín mildi og gullinni gleði þó tregaharpan titri. Sólvermdar svífa þær fyrir sjónum, sumar frá bemskunnar létta leik, aðrar frá æskunnar yndistíð, enn aðrar frá hversdagsins önn og erli. Leiksystir og ljúfur vinur hefur lagt upp í ókunna ferð, lokaferð. Það slær ljóma á liðna tíð með ljúfsáru ívafi. Ég sé okkur lítil böm að leik í laufgrænu skrúði hlíðarinnar heima, í iðjagrænu túngresi eða þá á snævi þakinni, frostkaldri fönn sem tindr- aði í tunglskininu. Bemskunnar óræða eftirvænting allt um kring með fangið fullt af fyrirheitum. Haddý hress og kát, hugvitssöm og hugdjörf, hláturinn þrunginn gleði og góðum væntingum, hlýtt brosið um allt andlitið, en þó ekki sízt í augunum, athugulum og glettnum um leið, brúnaljósunum brúnu. Ég hugsa til skólasamverunnar heima og á Eiðum. Haddý í fylking fremst með gleði og óróa æskunnar í ungum barmi, falleg og fyndin, fjörmikil en fasprúð, tilfinninga- næm en teprulaus. Námsgáfumar geislandi góðar, ástkæra, ylhýra málið hafði hún vissulega á valdi sínu, tungumál nam hún án minnstu fynrhafnar. Ég minnist margra stunda seinna eftir að fjarlægðin milli okkar varð meiri, hlýtt brosið, gefandi gáskinn, umhyggjusöm alúðin, einlæg vin- áttan. Minnisstæðast mun mér þó er ég heimsótti hana, er hún hafði fengið fregnirnar um hinn grimma sjúkdóm, úrskurðinn um hinn örð- uga stig sem þungbært yrði að þræða. Kjarkurinn og æðruleysið sem hún átti þá og æ síðan til sannrar fyrir- myndar. Hún sem hreyfíngunni unni, hin- um glaða dansi, var nú hneppt í viðjar MS- sjúkdómsins sem í engu eirði henni allt til endadægurs. Það var hún sem átti uppörvandi bros, spozka spaugsemi, glaðbjarta upprifjun gamalla stunda, án þess að brygði fyrir beizkju vegna biturra örlaga. Síðast átti hún augun nær ein til túlkunar því sem inni fyrir bjó og mér varð mjög um megn að hitta hana, of seint er nú að iðrast, en angur í hugans leynum eitt til vitnis. Og hugurinn reikar. Vissulega hefði hún Haddý átt að velja menntabrautina, en hún gegndi góðu hlutverki í lífínu og var því trú. Móður- og húsmóðurhlutverkið varð hennar, en hún vann úti af atorku og kappi meðan kraftar leyfðu. Af alúð vann hún sín verk, vinsæl á vinnustað og vel látin, hlífði sér hvergi, hressileg og glaðsinna, mæta eðliskosti mátu allir er máttu kynnast. Bömin þijú yndi hennar allt, hún sagði mér af því hvemig þeim vegnaði og hve hún vildi afl til að létta þeim lífsgöngu sína. Hvergi skyldi gleymt órofafylgd hennar við þá samfélagsskoðun er gagntók okkur bæði í æsku, í því sem öðra var hún heil og sönn, glögg greining hennar á þjóðmálum fór saman við heita sannfæringu. Þá fylgd skal þakka sem annað allt. Langri og erfíðri baráttu er lokið með sigri sjúkdómsins er hana hel- tók. En á sjúkdómsbrautinni var hún sigurvegari á svo margan veg, í svo ótalmörgu. Söknuður grípur sál manns, en sannarlega var ekki eftir neinu að bíða. Börnunum hennar og þeirra fólki, hennar góðu móður og miklu vin- konu okkar svo og öðrum er syrgja sendum við Hanna hugumkærar samúðarkveðjur. í hljóðri þökk og hlýrri er hún Haddý kvödd klökkum huga. Hún trúði á undralönd eilífð- ar, unaði vafín. Verði henni ~þar vistin góð. Helgi Seljan. Með nokkram fátæklegum orð- um ætla ég að minnast móður æskuvinkvenna minna. Bemskan er flestum hugleikin og maður tengist sterkt því fólki sem maður kynnist þá. í næsta húsi við mig þegar ég var bam bjó Haddý, reyndar hét hún Ema Hafdís Berg, og þótti mér nafnið það tilkomumik- ið að uppáhaldsdúkkan mín var látin heita sama nafni. Haddý var ekki eins og frú Berg í Lottusögunum heldur var þama há og myndarleg kona sem gustaði af. Hún var fork- ur til vinnu og myndarleg í höndum svo af bar. Ekkert vafðist það fyrir henni að búa til brúðarkjóla á Barbí- dúkkur og þegar hún gerði húfur á dúkkumar fyrir dætur sínar lét hún sig ekki muna um að gera eins fyr- ir mína dúkku. Árin liðu og ég verð fullorðin og fyrir 16 áram, haustið sem ég geng með mitt fyrsta bam, fer ég að heimsækja hana eins og vinkonu. Hún var orðin veik en var ennþá LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — sími 871960 I V heima og var ekki búið að greina hvaða sjúkdóm hún var með. I byrj- un kom hún sjálf til dyra en var frekar óstöðug. Fljótlega gat hún það ekki lengur og maður gekk bara sjálfur inn. Hún sat í stólnum sínum og pjónaði dúka og virtist ekki láta mikið á sig fá þó að hún væri svona veik og væri að bíða eftir spítalaplássi. Þegar hún brosti komu fallegu spékopparnir í ljós og ég hugsaði um hvað það væri ósanngjarnt að svona ung og falleg kona væri svona veik. Um vorið fór hún á spítala, síðari á Reykjalund og endaði í Sjálfs- bjargarhúsinu. Henni hrakaði mjög ört og fljótlega kom að því að hún varð algjörlega ósjálfbjarga. Fyrir svona atorkumikla konu hefur vafa- laust verið erfítt að sætta sig við svona örlög en aldrei sá maður það á henni og tók hún manni með brosi. Hvíldinni hefur hún vafalaust orðin fegin og vona ég að hún fái góða heimkomu. Börnum hennar sendi ég samúðarkveðjur. Díana. Ég vil hér með örfáum orðum minnast Hafdísar, sem hefur nú lok- ið áralangri baráttu sinni við hinn illvíga sjúkdóm MS, sem læknavís- indin standa enn ráðþrota gegn. Ég gleymi því aldrei er við hitt- umst fyrst. Hún var þá að mála miðstöðvarketilinn í kjallaranum á húsinu sínu silfurlitan. Þetta fannst mér stelpuhnokkanum mjög flott. Ég var nýflutt í næsta hús. En þann- ig var Haddý. Hún vildi alltaf vera að snurfusa og hafa fínt í kringum sig. Ég gleymi heldur ekki stolti henn- ar þegar búið var að stækka litla húsið og gjörbylta eldhúsinu þannig að hún gat haft nýju þvottavélina sína þar inni. En í þessu eldhúsi var oft glatt á hjalla því að Haddý lað- aði alla að sér með glaðværð sinni og kátínu. Er skemmst frá því að segja að ég var þama heimagangur alla mína æsku. Haddý átti mikið af bókum og var alltaf hægt að fá þær lánaðar. Einig hafði hún gaman af að spila og kenndi mér stopp- kapalinn sem við undum okkur oft við að spila. Ég fór í sendiferðir fyrir hana og passaði börnin hennar. Þegar ég sjálf varð svo móðir var gott að eiga hana að í næsta húsi, en foreldrar mínir vora þá að störfum úti á landi. Var alltaf gott að heimsækja Haddý. Heimsóknum á sjúkrastofnanir síð- ustu árin fækkaði smám smaan eft- ir því sem sjúkdómurinn ágerðist. Elsku Berta, Borgar og Lilla. Ég votta ykkur samúð mína. Blessuð sé minning móður ykkar. Harpa Jósefsdóttir Amin. Elsku mamma mín, þakka þér fyrir það sem þú kenndir mér, þakka þér fyrir það veganesti sem þú gafst mér út í lífið, þakka þér fyrir að kenna mér að meta góðar bækur og falleg ljóð og fyrir að leiðrétta mig þegar ég talaði vit- laust. Þótt ég væri stundum pirruð yfír því þegar ég var lítil þá bý ég að því í dag. Þakka þér fyrir öll yndislegu lögin sem þú söngst fyrir okkur systkinin, það var oft grátið yfir sorglegum textum. Þakka þér fyrir að vera vinkona mín, hlusta og leiðbeina mér með unglinga- vandamálin þótt ég vildi óska að ég hefði fengið að hafa þig lengur. Þú hvattir okkur alla tíð til að lifa heilbrigði og sjálfstæðu lífi. Elsku mamma mín, ég kveð þig nú í hinsta sinn og gleðst í hjarta mínu yfir því að þú skulir vera laus úr þessum líkama sem var búinn eftir tuttugu ára veikindabaráttu. Ég veit að nú dansar þú og syngur á ný með horfnum vinum á æðri stöðum. Hvers hönd, sem aldrei hlifir sér? Hvers hönd er það, sem liprust er? Hvers hönd, svo fús að þjóna og þjást? Hún þrek sitt fær hjá móðurást. (Móðurást: Pétur Sigurðsson.) Þín elskandi dóttir, Berta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.