Morgunblaðið - 09.10.1994, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.10.1994, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYNDIR/LAUGARÁSBÍÓ er um þessar mundir að taka til sýninga ærslakenndu gamanmyndina The Mask með Jim Carrey í aðalhlutverki. STANLEY setur strik í reikning bankaræningj- anna; kemst undan með ránsfenginn en skilur bóf- ana eftir í skotbardaga við lögguna. hann að stjörnu á einni nóttu og fyrir leik sinn í The Mask hlaut hann um 500 milljónir íslenskra króna, sjö sinnum meira en fyrir hlutverk gæludýraspæjarans. Frá upphafi var myndin sniðin utan um Carrey en til að leikstýra var fenginn Charles Russel, sem meðal annars leikstýrði Nightmare on Elm Street III, þriðju myndinni um ófreskjuna Freddy Kruger en sú mynd tók inn meiri peninga í kvikmyndahúsum en allar aðrar myndir sem gerðar hafa verið utan stóru kvikmyndaveranna vestan- hafs. Umbreyting Stanleys Ipkiss í hetjuna sem í myndinni nefnist The Mask reyndi mikið á Jim Carrey, sem þurfti að byija hvern dag meðan á tökum stóð með því að eyða fjórum klukkustundum í förð- unarstólnum. Carrey, sem kallaður hefur verið arftaki Jerry Lewis, er ekki síst þekktur fyrir þau ótrúlegu svip- brigði og geiflur sem hann ræður yfir og þeir sem hönnðu gervi hans segja að mikið mál hafi verið að hanna grímuna þannig að hún drægi ekki úr möguleikum hans á að nýta sér þessa hæfileika. En gríman var ekki nóg til að koma eiginleikum ofurhetjunnar til skila því eins og öðrum slíkum er henni ekkert ómögulegt og þá er ekki síst átt við það að þær hreyf- ingar sem liðamót, liðbönd og nátt- úrulögmál takmarka hjá venjulegu fólki verða grímuklæddum Stanley Ipkiss síður en svo að fótakefli. Sú tækni sem beitt var við þetta markar að sögn framleiðenda myndarinnar ákveðin tímamót í kvikmyndagerð en þó eru það van- ir menn sem bera ábyrgð á brellun- um. Framleiðendur myndarinnar sneru sér til ILM, tæknibrellufyrir- tækis George Lucas, sem gert hef- ur allar tæknilega erfiðustu myndir seinni ára, allt frá Star Wars til Jurasssic Park mögulegar. ILM hefur átt þátt í 8 af 12 mest sóttu kvikmyndum allra tíma og starfsmenn þess hafa hlotið 13 Óskarsverðlaun fyrir tæknibrellur. Þetta var hins vegar í fyrsta skipti sem ILM kom nálægt gerð gaman- myndar en árangurinn er sá að allar þær fjölmörgu ótrúlegu brellur sem einkenna myndina The Mask urðu mögulegar. Gunga verður að garpi STANLEY Ipkiss (Jim Carrey) er gjaldkeri í banka og svo hlédrægur og óframfærinn að það er varla að sjálfvirkir hurðaopnarar veiti honum athygli. Stanley er of saklaus til að gera sér grein fyrir því hvenær verið er að misnota góðvild hans, sem kemur fyrir á hveijum degi. Kurteisari maður fyrirfinnst ekki; Stanley er svo venjulegur að hann hverfur gjör- samlega í fjöldann hvar sem hann kemur enda tekur hann helst aldrei áhættu og gerir aldrei neitt óvenju- legt, að því frátöldu að leyfa sér að sofa í skræpóttum náttfötum. En líf Stanleys Ipkiss er í þann veginn að taka róttækum breyting- um. Besti vinur Stanleys er vinnufé- lagi hans Charlie Shumacher (Ric- hard Jeni). Honum blöskrar að horfa á Stanley láta stöðugt fara með sig sem gólfþurrku, sem allir ganga yfir á skítugum skónum, hvort heldur er yfirmaður Stanleys, bifvélavirki sem hann þarf að skipta við eða konur sem hann er að reyna við. Charlie sannfærir vin sinn um það að fari þeir eitt kvöld í Coco Bongo næturklúbbinn muni Stanley öðlast það sjálfstraust sem hann þarf til að snúa lífí sínu við. Meðan Stanley er að meita þetta með næturklúbbinn opnast dymar að bankanum og inn gengur falleg- asta kona sem Stanley hefur séð. Hún dillar sér yfir gólfið í áttina að Stanley og gefur sig daðrandi á tal við hann. Stanley er of upptek- inn af fegurðardísinni til að taka eftir því að meðan hún daðrar við hann tekur hún myndir að hvelf- ingu bankans með örsmárri mynda- vél, sem sendir myndir í Coco Bongo næturklúbbinn þar sem kærasti hennar fylgist með af skjá. Það er ljóst að áhugi þessa manns á bankanum er hvorki bund- inn við gengisskráningu né vaxta- stig heldur hefur hann eitthvað illt í hyggju. Þetta kvöld hittast svo Charlie og Stanley ásamt fleirum við Coco Bongo klúbbinn og sjá þá á auglýs- ingaspjaldi við dyrnar að söngkona og stjama klúbbsins er engin önnur en Tina (súperfyrirsætan Cameron Diaz) sú sem gefið hafði Stanley undir fótinn í bankanum. En aftur snúa heilladísimar baki við Stanley því að dyraverðir klúbbsins láta sem hann sé ekki til, ýta honum til hliðar út í rigning- una en hleypa Charlie og hinum inn í dýrðina. Stanley er í öngum sínum og á leiðinni heim stoppar hann á brú og sér hvar eitthvað flýtur í vatn- inu. Hann heldur að það sé lík en í Ijós kemur aðum er að ræða ein- hveija furðulega grímu sem hann tekur með sér heim. Þangað komin mátar hann á sig grímuna, sem samstundis aðlagast andliti hans og breytir honumm í mennskan fellibyl. Ut úr fellibyln- um stígur Stanley íklæddur ótrú- legum alklæðnaði, grænn í framan, með risastórar hvítar tennur og einkennilegan glampa í augunum. En það er ekki nóg með að Stanl- ey hafi breyst í útliti heldur býr hann nú yfir ofurmannlegum eigin- leikum; er í raun lifandi teikni- myndapersóna og er ekkert ómögu- legt. Hann getur nú látið sína leyndustu drauma rætast og komið fram hefndum gegn öllum þeim sem hafa gert á hlut hans. Það er hins vegar ekki fyrr en SEM grímuklædda ofurmennið gerir Stanley allt vitlaust í sínum heimabæ. UM SÍÐIR segir Stanley (Jim Carrey) Tinu (Cameron Diaz) frá leyndarmálinu. FYRIRSÆTAN Cameron Diaz leikur Tinu. klúbbinn og þar er hann í dansi við hina ægifögru Tinu þegar ræn- ingjamir koma að segja foringja sínum að ránstilraunin hafi farið í vaskinn og benda á sökudólgjnn á dansgólfinu. Um svipað leyti og Stanley kemst að því að byssukúlur bíta ekki lengur á honum kemur lögreglan í klúbbinn og handtekur ræningjana. En Stanley er langt í frá óhultur in The Mask sé af ætt myndanna um hetjur á borð við t.d. Super- man; eins og Stanley var Clark Kent uppburðarlítill blaðamaður sem breyttist þegar minnst varði í ofurmennskan baráttumann í þágu hins góða í heiminum og alveg eins og í Superman lítur konan sem hann elskar ekki við honum af því að hún er svo upptekin af ofurhetj- unni og veit ekki að gungan og garpurinn eru eitt. The Mask var gerð í kjölfar þeirra gríðarlegu vinsælda sem gamanleikarinn Jim Carrey aflaði sér sem gæludýraspæjarinn í Ace Ventura: Pet Detective, sem sýnd var hér fyrr á árinu. Carrey, sem er Kanadamaður, hafði áður getið sér vinsældir fyrir gamanleik í sjónvarpi í Bandaríkj- unum en með Ace Ventura varð daginn eftir þegar lögreglan bank- ar upp á að Staniey gerir sér grein fyrir að þetta var ekki bara draum- ur. Síðast hafði sést til dularfulu verunnar sem gerði allt vitlaust í bænum á leið inn í húsið þar sem Stanley býr. Stanley lætur sér fyrst detta í hug að losa sig við grímuna en hættir við og ákveður að setja hana upp einu sini enn. í gervi grímu- klædda ofurmennisins fer hann í bankann og kemur þar að sem bankaránið sem kærasti Tinu hafði skipuiagt stendur sem hæst. Hinn grímuklæddi Stanley setur strik í reikninginn og kemst undan með ránsfenginn en skilur ræningj- ana eftir í skotbardaga við lögregl- una. Stanley fer nú í Coco Bongo því lögregluna er farið að gruna að hann tengist dularfulla grímu- manninum. Honum tekst naumlega að komast undan handtöku en er þá leiddur beint í gildru ræningja- foringja sem slær eign sinni á grím- una, hirðir ránsfenginn, skilar Stanley af sér á lögreglustöðinni og breytir sjálfum sér í ósigrandi illmenni. Stanley tekst hins vegar að sleppa úr fangelsinu og fer enn á ný í klúbbinn þar sem dregur að hinu óumflýjanlega uppgjöri milli hans og ræningjaforingjans, góðs og ills, um grímuna og stúlkuna, sem er orðin ástfangin af græna grímumanninum, sem virðist alltaf skammt undan þar sem saklausa bankagjaldkerann er að finna. Að sumu leyti má segja að mynd-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.