Morgunblaðið - 09.10.1994, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 09.10.1994, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1994 27 MIINIIMINGAR + Jóhann Dal- berg Sigurðs- son vélsljóri fædd- ist á Langanesi 3. nóvember 1920 en ólst upp á Skálum í sömu sveit. For- eldrar hans voru hjónin , Sigurður Jónsson útvegs- bóndi þar, f. 1862, dáinn 1945, og kona hans Hólm- fríður Sigurgeirs- dóttir, f. 1880, d. 1967. Jóhann átti fimm systkini. Þeir voru þrír bræðurnir og eru nú allir látnir, en systurnar þrjár lifa nú í hárri elli. Jóhann kynntist eftirlifandi konu sinni, Helgu Sigtryggsdóttur, f. 5. ágúst 1916, á Skálum, en hún var fædd og uppalin í Kumlavík á Langanesi. Þau giftust 26. desember 1942 og hófu búskap sinn á Húsavík i Þingeyjarsýslu. Eftir tveggja ára búskap þar fluttust þau til Innri-Njarðvík- ur, bjuggu þar í þijú ár, en hafa síðan búið í Keflavík, síð- ast á Birkiteig 23. Þau hjónin eignuðust þrjár dætur. Þær eru Dagný, f. 1944, maki Jóhann Hákonarson, búsett í Kópavogi; Ema, f. 1945, maki Jón Péturs- son, búsett í Reykjavík; og Lilja, f 1951, maki Hreggviður Her- mannsson, búsett í Keflavík. Barnabörn em níu og barna- barnabörn sex. Útför Jóhanns fór fram frá Keflavíkurkirkju í gær. JÓHANN Dalberg ólst upp á Skál- um á Langanesi. Hann bytjaði þar mjög ungur sjómensku eins og þá var títt, mest á opnum bátum og síðar sem formaður. Árið 1941-1942 fer hann í vél- stjóranám á Akureyri og lauk því námi með prýði, en hann hafði þá ekki annan undirbúning en stopula farskólakennslu. Eftir það heldur hann áfram sjómennsku og alltaf sem vélstjóri, fyrst á Húsavík og síðan frá Suðurnesjum. Þijú ár var hann þó vélstjóri í frystihúsi í Innri- Njarðvík, en annars alltaf á bátum héðan frá Suðurnesjum og lengst af á vélbátnum og aflaskipinu Guð- mundi Þórðarsyni úr Garði. Hann þótti mjög vandaður og öruggur í starfi svo orð fór af. Hann varð síðan að hætta sjó- mennsku eftir meiðsli er hann varð fyrir 1972. Eftir það vann hann sem bensínafgreiðslumaður til ársins 1983. Varð hann þá að hætta því starfi vegna veikinda. Hann átti mjög erfitt með það að þurfa að hætta starfi 63ja ára, maður sem aldrei hafði fallið verk úr hendi, þó aldrei væri hann heilsuhraustur. Sér til dundurs og til að drepa tímann 108 Reykjavik. Simi 31099 Opið ö!l kvöld til ki. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörar. byijaði hann að vinna ýmiss konar leðurmuni fyrir hestamenn. Þótti sú vinna hin mesta gersemi, enda maður- inn handlaginn og vandvirkur með af- brigðum og var nánast sama að hvaða verki hann gekk, allt lék í höndunum á honum. Jóhann var heiðrað- ur á sjómannadaginn í Keflavík 1991 fyrir langt og giftudijúgt starf sem vélstjóri og sjómaður. Honum þótti mjög vænt um þá viðurkenningu. Heiðarlegur og góður maður hef- ur nú gengið frá borði. Jóhann Dalberg Sigurðsson, „Dalli“ vél- stjóri og sjómaður mestan hluta síns starfsferils, er nú horfinn á vit feðra sinna. Okkur sem eftir sitjum og eigum eftir að sinna því skyldu- verki lífsins, vefst tunga um tönn, því margs er að minnast. Jóhann var jafnaðarmaður í hugsun og framferði í orðs þess bestu merkingu. Hann bar mjög fyrir bijósti hag og réttindi hins vinnandi manns og þá sérstaklega sjómanna. Hann mundi tíma tvenna í þeim efnum. Hafði sjálfur af spar- semi og útsjónarsemi orðið að sjá sér og sínum farborða, sérstaklega á fyrstu búskaparárum sínum. Hann gat sér gott orð hvar sem hann fór sakir prúðmennsku og heiðarleika. Hreinskilinn oft svo mörgum' þótti nóg um, en með meðfædda réttlætiskennd á því að „aðgát skal höfð í nærveru sálar“. En hann hikaði ekki við að segja hug sinn. Hann var á ýmsum skip- um og með ýmsum áhöfnum sjó- mannsferil sinn. En .óvildarmenn átti hann fáa eða enga. "Hann var ákaflega nákvæmur í allri sinni framkomu og gjörðum. Skilamaður slíkur að þar mátti aldrei skeika og að svíkja loforð var í hans huga goðgá. Eftir að Jóhann var sestur í helg- an stein var helsta áhugamál hans velferð fjölskyldunnar. Hann varð helst að vita alla hluti um ráðagerð- ir þeirra þeirra og áform, ekki vegna afskiptasemi, heldur frekar til þess að fylgjast með framvindu mála. Átti hann þá til að segja álit sitt umbúðalaust, en á þann hátt að allir fundu að hlýhugur og um- hyggja bjó þar að baki, hjálpsemi ef eitthvað bjátaði á var alltaf á næsta leiti. Jóhann hafði unun af lestri bóka og vandfundinn er sá, er las dag- blöðin af annarri eins natni og hann. Þá var það eitt í fari hans sem aldrei kulnaði þó kraftur og úthald minnk- aði. Það var gleði veiðimannsins yfir afla og aflasæld. Hann var góður skotveiðimaður og gekk til ijúpu meðan þrek og heilsa leyfði. Eins var með lax- og silungsveiði, sem hann stundaði allnokkuð. Hann naut þess að fara í þessar ferðir. Þá kom vel fram veiðigleði og kapp sjómannsins, þess sem sækja þarf björg í bú. Gleði hans yfir vel heppn- aðri veiðiferð á sjó eðs landi og upprifjum slíkra sagna voru honum kærkomið umræðuefni. Helga og Dalli fóru oft í silungsveiðiferðir saman og höfðu bæði gleði og gam- an af þeim stundum. Jóhann var sérstakur gæfumaður með val á sínum lífsförunaut, Helgu Sig- tryggsdóttur. Þar fór saman hjá báðum elska og einhugur. Hvorugt mátti af öðru sjá. Þau voru búin að búa langa ævi saman eða fimm- tíu og tvö ár í farsælu hjónabandi og nánast búin að ala hvort annað upp. Alla hluti gerðu þau saman og ekki var ráð ráðið nema bæði tvö stæðu saman í eindrægni um þá ákvörðun sem síðar var tekin. Hvorugt bar annað ofurliði. í sátt og samlyndi var kýtt um smáatriði en þegar ákvörðun kom var eitt járn í eldinum. Nú er kvaddur Jóhann Dalberg Sigurðsson. Sigling hans frá vöggu til grafar var slík að heimkoman verður kær. Ástkæra tengdamóðir, Helga. Sorg og söknuður hefur nú kvatt dyra. Megi Drottinn veita þér huggun í sorg þinni og þér og okk- ur aðstandendum kraft til þess að takast á við lífið af sama æðruleysi og trúmennsku og hann gerði. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt (V. Briem.) Hreggviður Hermannsson, Jón Pétursson, Jóhann Hákonarson. + Hjartkær systir okkar, ELÍN KARÍTAS THORARENSEN, Hagamel 42, sem andaðist 30. september, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 12. október kl. 13.30. Hildur Thorarensen, Ólafur Thorarensen, Aðalsteinn Thorarensen. + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EIRÍKUR KRISTINSSON fyrrverandi kennari, Lönguhlíð 6, Akureyri, verður jarðsunginn frá Glerárkirkju þriðjudaginn 11. október kl. 14.00. Kolbrún Eiríksdóttir, Hólmfríður Eiríksdóttir, Ólöf Eiríksdóttir, Kristján Ottested, Birgir Eiríksson, Hólmfríður Ingvarsdóttir, Einar Eiríksson, Sigríður Ingvarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. JÓHANN DALBERG SIGURÐSSON + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu vegna fráfalls og útfarar eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGURBJÖRNS MAGNÚSSONAR hárskera, Borgarási 10, Garðabæ. Gunnþórunn Egilsdóttir, Sigríður Sigurbjörnsdóttir, Geir Magnússon, Örlygur Sigurbjörnsson, Lilja Óskarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, EGGERTS ÓLAFSSONAR, Búastaðabraut 3, Vestmannaeyjum. Halldóra B. Eggertsdóttir, Sigurður G. Bogason, Jónas K. Eggertsson, Kristín A. Lárusdöttir, barnabörn og barnabarnabarn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför KOLBEINS ÞORSTEINSSONAR. Systkinin. + Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför dóttur okkar, systur og mágkonu, GUÐNÝJAR JÓNSDÓTTUR, Hofsvallagötu 21, Reykjavík. Jón Þórðarson, Jóhanna Sveinsdóttir, Auðbjörg Pétursdóttir, Ögmundur Frímannsson, Pétur Jónsson, Sigrún Jónsdóttir, Hjalti Björnsson, Guðrún Jónsdóttir, Úlfar Herbertsson, Ægir Þór Jónsson, Jan Dodge Jónsson, Haraldur Ögmundsson. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og bróður, BENEDIKTS BJÖRNSSONAR, Fellsmúla 22, Reykjavík. Sérstakar þakkirtil hjúkrunar- og starfs- fólks deildar 13D Landspitala og Karitas heimahlynningar. Kristín Magnúsdóttir, Björn S. Benediktsson, Margrét Finnbogadóttir, Haraldur Benediktsson, Brynja Halldórsdóttir, barnabörn, Sigrún, Jóhanna og Birna Björnsdætur. + Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og lang- afa, HARALDAR STEFÁNSSONAR, Háteigsvegi 48, Reykjavík. Jenný Magnúsdóttir, Guðlaug Haraldsdóttir, Ásbjörn Arnars, Helgi Már Haraldsson, Jóna Guðrún Ásgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.