Morgunblaðið - 09.10.1994, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1994 7
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
ÞAÐ var ekki mikið eftir af húsunum þegar slökkvilið Skagastrandar mætti á staðinn.
Þrjú hús brunnu í Kálfshamarsvík
Morgunblaðið. Skagaströnd.
ÞRJÚ hús brunnu til kaldra kola í
Kálfshamarsvík aðfaranótt 4. októ-
ber. Húsin stóðu í þyrpingu og var
stutt á milli þeirra en öll hafa þau
verið notuð sem geymslur.
Það var um klukkan 1.40 sem
Sveinn Sveinsson, bóndi á Tjörn,
varð eldsins var. Þá var mikill eldur
í húsunum. Þar sem ekkert slökkvi-
lið er starfandi í Skagahreppi kall-
aði hann til slökkviliðið á Skaga-
strönd, en rúmlega 25 km eru það-
an að Kálfshamarsvík og voru hús-
in brunnin til ösku er slökkviliðið
kom. Talið er að kviknað hafí í út
frá rafmagni.
Nú stendur aðeins eitt hús eftir
ásamt vitanum á þessum sögu-
fræga stað þar sem eitt sinn bjó á
annað hundrað manns.
Sjálf stæðisflokkurinn
í Austurlandskjördæmi
Fyrsta prófkjör
fyrir kosningar
FYRSTA prófkjörið fyrir komandi
alþingiskosningar, prófkjör Sjáif-
stæðisflokksins á Austurlandi, fór
fram í gær. Kosið er á öllum þétt-
býlisstöðum kjördæmisins og sums
staðar í sveitum. Kjörstaðir voru
opnaðir um klukkan tíu og kosn-
ingu átti að Ijúka í síðasta lagi
klukkan 18.
Raðað í sjö efstu
Níu buðu sig fram í prófkjörinu:
Kristinn Pétursson, Jóhanna Hall-
grímsdóttir, Skúli Sigurðsson,
Olafur Ragnarsson, Arnbjörg
Sveinsdóttir, Egill Jónsson, Magn-
ús Brandsson, Sigurður Eymunds-
son og Asmundur Ásmundsson.
Kjósendur áttu að raða fram-
bjóðendum í sjö efstu sætin.
Flokksbundið sjálfstæðisfólk 16
ára og eldra var á kjörskrá, svo
og þeir sem undirrituðu stuðnings-
yfirlýsingu við væntanlegt fram-
boð flokksins í kjördæminu.
Telja átti í Þórðarbúð á Reyðar-
firði á laugardagskvöld. Urslit
ættu að liggja fyrir í dag, sunnu-
dag.
-------♦ ♦ ♦-------
■ / BRÉFI til blaðsins sem birt-
ist í gær, laugardag, segir að
kirkjudagur í Laugarneskirkju
sé „á morgun, sunnudaginn 16.
október." Eins og glöggir lesendur
munu átta sig á er kirkjudagurinn
ekki fyrr en eftir viku.
ut.ur ciiEríf
\ . iUii'KBvn/ *
VcjiADAosr^
ískir ostar eru hrein orkulind sem
3 kiak raft í á öllum tímum tlags. Auk Jress
a peir tennur og Lein. Njóttu nragðsins og
fjölkreytninnar — prófaðu |iá alla!
ÍSLENSKIR m
^WllNASfy
>
HVÍTA HÚSin / RÍA