Morgunblaðið - 09.10.1994, Qupperneq 18
18 SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
A mörkum
listar og rýmis
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
MAGNÚS Pálsson við eitt verka sinna.
MYNDLIST
Kjarvalsstaðir
YFIRLITSSÝNING
MAGNÚS PÁLSSON
Opið alla daga kl. 10-18 til 23. októ-
ber. Aðgangm- kr. 300. Sýningarskrá
kr. 1.600.
EINS og nafnið ber með sér, er
felst eitt helsta gildi yfirlitssýninga
í þeirri heildarmynd sem þær geta
gefið af viðfangsefnum viðkomandi
listamanns yfir lengri tíma. Á slíkum
sýningum kemur einatt í ljós hvort
einhverjir þættir ganga í gegnum
allan feriiinn og ef svo reynist hvem-
ig þeir lýsa sér á hveijum tíma; slíkt
yfirlit kann jafnvel að koma lista-
manninum sjálfum á óvart, ekki síð-
ur en gestum.
Magnús Pálsson hefur unnið að
sinni list í kyrrþey undangengna
rúma þijá áratugi. Hann hefur kom-
ið víða við á ferli sínum, allt frá því
að hann lauk listnámi sínu um miðj-
an sjötta áratuginn, m.a. innan leik-
hússins og á sviði listkennslu, en
jafnframt hefur hann allan þann tíma
verið að skapa ágeng listaverk, sem
í samhengi sýningarinnar hér reyn-
ast mynda samfelldan þráð, þar sem
tekið er á mörkum listarinnar með
ýmsum hætti. Bakgrunnur Magnús-
ar í hugmyndalistinni er augljós; það
er hugmyndin sem ræður efni og
útfærslu, en ekki miðillinn sem slík-
ur. Alls staðar er kímnin hins vegar
skammt undan, og líkumar á að
sýningargestir yfírgefí Kjarvalsstaði
með bros á vör, endurnærðir eftir
frískandi heimsókn, eru yfírgnæf-
andi.
Sýningin er í öllu sýningarrými
hússins (sem og utandyra) og gefur
gott yfírlit yfír viðfangsefni lista-
mannsins. Henni er vel komið fyrir,
og einkum njóta þau verk sín vel,
sem fjalla um rýmisnotkun. Þetta á
við um vestursalinn, þar sem getur
að líta verk eins og „Tilfærslu rýmis
með tveimur persónum" (1976) og
„Sekúndurnar þar til Sirkoskyþyrlan
snertir" (1980), sem þurfa mikið
piáss eðli sínu samkvæmt, og í aust-
ursalnum er „í minningu Njáls-
brennu" (1977) í verðskulduðu önd-
vegi. Á göngum er rýmið einnig
nauðsynlegur þáttur í flokkum verka
eins og „Automobile", sem enn er
að þróast, og „Hundljóð" (1970), sem
vakti mikla athygli á sínum tíma.
Á sýningunni má greina ýmsa
þætti í list hans síðustu þijá áratugi
og þannig rekja sig í gegnum ferilinn
að vissu marki, en áhorfendur geta
ekki síður notið einstakra verka; flest
bera aldurinn vel og viðfangsefnin
flokkast skýrt niður.
Á sjöunda áratugnum hafí mest
borið á grófgerðum höggmyndum,
þar sem gömul föt og síðar gifs var
notað til að skapa eftirminnilegar
fígúrur, eins og í „Bestu stykkin"
(1965) og „Gifsbörn" (1970); síðar
urðu verkin fínlegri, oft unnin í hið
hlutlausa efni, gifsið, og tengdust
oftar en ekki rýminu, fyllingu þess
eða negatífum og pósitífum gildum.
Verk tengd hugmyndalistinni urðu
ríkjandi síðari hluta áttunda áratug-
arins, en síðustu ár hefur Magnús
unnið mikið með texta og hljóð, og
þannig hafa orðið til hljóðskúlptúrar
og svonefnd „tjóður" sem einkennt
hafa síðustu sýningar hans.
En það eru hin einstöku verk, sem
hafa staðist tímans tönn afar vel, sem
einkum vekja gleði áhorfandans. Af
slíkum má nefna sólúrin, sem eru
einkar skemmtilega hugsuð, verk
eins og „Tæm“ (1964) og mynda-
flokkinn „Stærðfræði" (1976), sem
býður upp á ýmsar vangaveltur.
Þó það sé að nokkru tekið fyrir í
ritgerðum í sýningarskrá, er helst
að áhorfandinn sakni hér fleiri tilvís-
ana til samhengis verka Magnúsar
við list samtímans eða listasöguna
yfírleitt. Þannig er hin skemmtilega
framkvæmd „Rúmbjarni" (1977)
með vissum hætti tilvísun í verk
annara listamanna í sögunni, sem
hafa viljað nota manninn sem mæli-
einingu verka sinna, og má þar benda
bæði til Leonardo da Vinci og Le
Corbusier; gildi efnisins hefur einnig
verið ofarlega á baugi margra lista-
manna á þessari öld, sem hafa leitað
óhefðbundinna leiða, m.a. með notk-
un á rusli og aðskotahlutum, eins
og Robert Rauschenberg og fleiri.
Þannig eru verk Magnúsar vissu-
lega sköpuð í samhengi listasögunn-
ar. Þar við bætist hins vegar, að lista-
maðurinn hefur haft mikinn áhuga
á ýmsum viðfangsefnum, sem eru
afar þjóðleg í eðli sínu, og hefur tek-
ist að skapa skemmtileg og lifandi
verk út frá þeim efnum. Þar meðal
annars nefna minnisvarðana „í
minningu Njálsbrennu" (1977), sem
er afar hnitmiðað verk, og „Ljós-
hirslu“ (1977), þar sem þjóðsagan
um Bakkabræður verður Ijóslifandi
á ný. Einnig er vert að benda á hin
svonefndu „ijóður“ í þessu sam-
hengi, en það er vafasamt að skapað-
ur verði þjóðlegri hljóðskúlptúr en
er að fínna í „Enginn gleypir sólina"
(1993), sem var upphaflega settur
upp í Gallerí einn einn og er hér
kominn á ný.
Þessi þjóðlega hlið í list Magnúsar
er mikilvægur þáttur á öllum hans
ferli og einkennir hann að hluta
umfram ýmsa aðra, þar á meðal
lærisveina hans á listabrautinni, sem
hafa á sér mun alþjóðlegra og oft
daufara yfírbragð, þó vinnulagið sé
ekki ósvipað.
Magnús hefur einnig unnið mikið
við leikhús og verið mikilvirkur kenn-
ari, og átti sem slíkur m.a. stóran
þátt í tilurð Nýlistadeildar (sem nú
heitir Fjöltæknideild) við Myndlista-
og handíðaskólann; sú er nú deilda
fjölmennust í skólanum. Hugmyndir
Magnúsar um kennslu sem listgrein
eru að nokkru ræddar í sýningar-
skránni, og er vert að benda sérstak-
lega á þær.
Þrátt fyrir að þannig skorti nokk-
uð á að hér fáist heildarmynd af öll-
um þeim fjölbreyttu viðfangsefnum,
sem Magnús Pálsson hefur verið að
fást við í gegnum árin, er hér á ferð-
inni vel heppnuð og ánægjuleg sýn-
ing, einkum fyrir það hversu vel list
hans ber aldurinn; verkin frá sjöunda
og áttunda áratugnum eru enn jafn
fersk og þau voru þegar þau komu
fyrst fram, og nú er samhengi þeirra
við jafnvel enn ljósara en fyrr. Sýn-
ingarskráin er eigulegur gripur, með
fjölda ljósmynda og greina um lista-
manninn; einkum er rétt að vekja
athygli á grein Ólafs Gíslasonar og
viðtali Carinu Hedén við Magnús,
þar sem sjónarmið hans koma vel
fram.
Að þessu sögðu er rétt að hvetja
sem flesta til að leggja leið sína á
Kjarvalsstaði næstu vikur til að sjá
þessa sýningu.
Eiríkur Þorláksson
QUATTRO stigateppi
HEIMTUG - SMEKKLEG - ÓDÝR
Þola hreinsun með klórhlöndu!
tnjDÍI
Wé
GLEÐUR AUGAO
Samræmdír og skýrir litir gera teppið
eins og gamalt málverk í nýjum
ramma. Litir falla saman í eina heild á
stórum sölum.
SANNURHARÐJAXL
Þrístrenda formið í nylonþræöinum tryggir
frábært álagsþol.
BLÁSIO Á BLETTI
Flestir óhappablettir hverfa auöveldlega.
Á erfiðari bletti má nota klórefni.
EIMGIIVI RAFSTUÐ
BEKINOX leiöandi málmþráöur ofinn I
garnið gerir teppið varanlega
afrafmagnað.
Engin óþægileg stuö
vegna
stöðuspénriu.
h E
iiiiiiiiii
LITRÍKUR
SPRETTHLAUPARI
Innlæst litakorn tryggja varanlega og samfellda litun.
EKKERT BERGMÁL
Hljóðeinangrandi eiginleikar Imprel-CR tryggja
gott hljóðísog.
EIMGAR TROÐNAR SLÓÐIR
Þristrend bygging Imprel-CR nylonþráðanna tryggir
frábært fjaðurmagn og endurreisn á teppaflosinu. Hinn
þétti svampbotn er gerður úr Baysal T — hágæða
latexi frá Bayer.
AUÐÞRIFIÐ
Teppin eru auðþrifin án þess að litir láti á sjá —
jafnvel á miklum álagssvæðum.
BRUIMAÞOLIÐ
BS 4790 brunaþolspróf: Imprel—CR teppi á
actionbotni sýna lítinn íkveikjuradíus (WIRA-prófað).
ORKUSPARANDI
Imprel-CR teppi eru mjög einangrandi og draga því
úr hitunarkostnaði.
Stigahúsatilboð til 1. nóv.
20% afsláttur af Quattro
stigateppum en það samsvarar
ÓKEYPIS LÖGN
á stígahúsið. Leitið tilboða.
Við mælum, sníðum og leggjum, fljótt
og vel. Fjarlægjum gömul teppi.
wammBm
SUÐURLANDSBRAUT 26 - SÍMI 681950
Almanak Þjóðvinafé-
lagsins 1121. sinn
ALMANAK Hins íslenska þjóðvina-
félags er nýkomið út í 121. sinn.
Það kom fyrst út í Kaupmannahöfn
árið 1874 og hafði að geyma alman-
ak fyrir árið 1875 og íslandsárbók
fyrir árið 1873 auk annars efnis.
Alla tíð síðan 1874 hefur almanak-
ið komið út á vegum þjóðvinafélags-
ins og nú um langa hríð í samvinnu
við Háskóla íslands. Auk almanaks-
ins sjálfs hefur árbók íslands alltaf
verið fastur liður í rítinu og má
þannig fínna í almanökunum sam-
felldan annál síðustu 120 ára og
ríflega það.
Almanak þjóðvinafélagsins fyrir
árið 1995 er 192 bls. að stærð.
Almanakið sjálft hefur Þorsteinn
Sæmundsson Ph.D. stjörnufræð-
ingur reiknað og búið til prentunar.
Auk hefðbundins efnis í því fjallar
dr. Þorsteinn um sólina og dýra-
hringinn, ríki heimsins, tíðni sól-
myrkva og tunglmyrkva og
rimspillisár. Árbók Islands fyrir
árið 1993 ritar Heimir Þorleifsson
menntaskólakennari.
Eins og áður sagði er það Hið
íslenska þjóðvinafélag sem gefur
almanakið út en forseti þess og
umsjónarmaður almanaksins er Jó-
hannes Halldórsson cand.mag.
Prentsmiðjan Oddi prentaði ritið og
er það Sögufélag, Fischersundi 3,
sem sér um dreifíngu. Almanakið
fæst í flestum bókaverslunum og
kostar 1.254 kr. með virðisauka-
skatti. Til áskrifenda og félags-
manna Sögufélags er verðið 10%
lægra.
Tónleikar Kvennakórs
Reykjavíkur
KVENNAKÓR Reykjavíkur heldur tónlcika í Seljakirkju í dag,
sunnudag, klukkan 20.30. Efnisskráin verður afar fjölbreytt, ein-
söngvari verður Björk Jónsdóttir og hópar úr kórnum flytja ne-
grasálma og madrigala. Kvenfélag Seljasóknar stendur að tónleik-
unum. Röng mynd var birt með frétt um tónlcikana í Morgunblað-
inu á föstudaginn. Hér fylgir hins vegar mynd af Kvennakórnum
og beðist er velvirðingar á mistökunum.