Morgunblaðið - 09.10.1994, Page 19

Morgunblaðið - 09.10.1994, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1994 19 HÚSASMIÐJAN Súðavogi 3-5 • Skútuvogi 16* Helluhrauni 16 og helstu byggingavöruverslanir á landsbyggðinni LISTIR Söng- skemmtun á sýningu GUÐRÚN Jónsdóttir sópran og Jónas Ingimundarson píanóleikari munu skemmta sýningargestum á málverkasýningu Kristínar Þor- kelsdóttur í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni, í dag, sunnudag, um klukkan 17. Þau munu flytja lög eftir Pál ísólfsson og óperuaríur eftir Pucc- ini. Sýningin er opin frá kl. 12 til 18 alla daga nema mánudaga. Aðgangur er ókeypis. Sýning- unni lýkur 16. október. -----» ♦ ♦ '- Háskóla- fyrirlestur SVEND Áge Madsen rithöfundur frá Danmörku flytur opinberan fyrirlestur í boði heimspekideildar Háskóla íslands mánudaginn 10. október 1994 kl. 18.00 í stofu 101 í Lögbergi. Fyrirlesturinn nefnist At fortælLe menneskene og fjallar um það hvernig hægt er að nota frásögn og hvernig hann hefur notað frásögn í verkum sínum. Skáldskapur Svend Áge Madsen er umfangsmikill og einkennist af kímnigáfu. Hann meðhöndlar hversdagsleg efni á óhefðbundinn hátt, snýr ef svo má til orða taka veruleikanum á hvolf, þannig að nýr, trúverðugur veruleiki mynd- ast. Sögusvið í bókum hans er nær undantekningarlaust borgin Árósar. Meðal bóka hans má nefna Sæt verden er til (1971), Tugt og utugt i mellemtiden (1976), At fortælle menneskene (1989) og Syv aldres galskab, sem kemur út 14. október nk. Fyrirlesturinn verður fiuttur á dönsku og er öllum opinn. -----».♦ ■ 4- Húnakórinn hefur sitt ann- að starfsár HÚNAKÓRINN er nú að hefja sitt annað starfsár og hefur Sesselja Guðmundsdóttir verið ráðin stjórn- andi í vetur. Húnakórinn var stofnaður á vegum Húnvetningafélagsins í Reykjavík í desember 1993. Helstu verkefni vetrarins verða meðal annars vetrarfagnaður 22. október í Húnabúð, heimsókn til kóra í Húnaþingi og árshátíð, auk þess sem stefnt er að tónleikum í vor. Allir þeir sem hafa áhuga á að starfa með Húnakórnum í vetur mæti næsta þriðjudag kl. 20 í Húnabúð, Skeifunni 17. -----*_♦_♦--- Kvikmynda- sýning í Nor- ræna húsinu DANSKA kvikmyndin „Hojda fra Pjort“ sem er byggð á sögu eftir Ole Lund Kirkegaard verður sýnd í Norræna húsinu í dag sunnudag kl. 14. Saga gerist í framandi landi og snýst um baráttu góðs og ills eins og öll spennandi ævintýri. Myndin segir frá Hojda sem flýgur um á teppi ásamt vinkonu sinni Smargad og lenda þau í ýmsum ævintýrum. Kvikmyndin er rúm klukkustund að lengd með dönsku tali. Allir eru velkomnir og er aðgangur ókeypis. Guðrún Jónsdóttir Maísbaunastrákurinn og fleiri sögur LESTRARDAGUR evrópskra leik- húsa er í dag sunnudag, en í dag er sama sagan lesin í leikhúsum víða um Evrópu og er upplesturinn sérstaklega ætlaður börnum. Að- gangur er ókeypis. Að þessu sinni verður lesin saga eftir portúgalska skáldkonu, Ag- ustina Bessa Luis, sem hlotið hefur margskonar viðurkenningar fyrir ritverk sín. Hún hefur skrifað fjöl- margar skáldsögur, smásögur og barnabækur sem byggðar eru á minningum úr bernsku hennar. , Maísbaunastrákurinn og fleiri sög- ur eru af þeim toga, sögur frá bernskuslóðum skáldkonunnar, sem hún kallar Sögur frá Amar- ante. Upplesturinn fer fram á Smíða- verkstæði Þjóðleikhússins og verða alls fjórir lestrar á sunnudeginum, því sögurnar eru fluttar nokkrum sinnum yfir daginn. Flytjendur að þessu sinni eru Guðrún Þ. Stephensen, Lilja Guð- rún Þorvaldsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Randver Þorláksson, Sigurður Skúlason og Ragnheiður Steindórsdóttir, sem jafnframt hef- ur umsjón með flutningnum. Maísbaunastrákurinn og fleiri sögur verða lesnar á Smíðaverk- stæðinu sunnudaginn 9. október og hefst fyrsti lestur klukkan 14, en hann er túlkaður á táknmáli. Næstu lestrar eru kl. 15, 16 og loks kl. 17. Allir velkomnir. SCANDIC Scandic parket er vönduð gæðaframleiðsla. A Scandic er rakaþolið og umhverfisvænt. A Scandic parketið er auðveldara að leggja en annað parket. A Seandic hefur meira höggþol en sambærilegt parket. A Scandic parket er shtsterkt og þohr mikinn umgang. A Scandic parket má slípa oftar en einu sinni. Scandic parket fæst sérpantað í mörgum htum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.