Morgunblaðið - 09.10.1994, Síða 36
MORGUNBLAÐIÐ
36 SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1994
K0MIÐ06
DflNSlÐ!
1
æsta
námskeið
:RÐU 15‘ 09 16‘ október
LÉTTA
DANSSVEIFLU
ÁTVEIM
dögumí 620700
Áhugahópur um almenna dansþátttökuÉ íslandi
hringdu núna
KRIPALU1Ó6A
Leiðbeinandi:
DAYASHAKTI
(Sandra Scherer)
SAMSKIPTI TJÁNING. Kvöldnámskeið: (2 kvöld)
Flest okkar viljum meiri hreinskilni og kærleika í samskiptum. Lærum að: segja
sannleikann, heyra sannleikann, biðja um það sem við þörfnumst og skapa heil og
taust sambönd. Þriðjudagskvöldin 11. og 18. okt. kl. 20.00.
EINSTAKLINGSÞJÁLFUN. Stig I og 2. Helgarnámskeið
Markmið: Að þjálfa leiðbeinendur að liðsinna fólki um öldur tilfinninganna eins
og útfaert hefur verið og þróað á Kripalumiðstöðinni. Að styðja áframhaldandi
andlegan þroska þeirra sem veita eða þiggja þessa þjónustu.
Stig I: Föstud. 14. okt. Stig 2: Helgin 15.—16. okt.
ALDAN FRÁ SÁRSAUKA TIL GLEÐI. Helgamámskeið
Á þessu námskeiði munt þú læra á nýjan hátt að umbreyta sársauka í gleði. Þér
verður kennt á naergætinn hátt, með aðferðum sem byggðar eru á Kripalujóga,
að upplifa dýpt tilfinninganna og læra að þekkja þín innri skilaboð.
Helgin 21.—23. okt.
ÞJÁLFUN í NÁMSKEIÐAHALDI. Helgarnámskeið
Markmið: Að þjálfa þátttakendur I að halda og búa til námskeið I anda
Kripalustöðvarinnar þar sem leitast er við að næra hvern einstakling, þannig að
viska hans og orka fái notiö sín til fulls. Þekking á Kripalujóga nauðsynleg.
Helgin 28.-30. okL
SAMVERUSTUND: (Satsanga) með Dayashakti fimmtudagskvöldin 13., 20. og
27. okt. kl. 20.00. Ath. breyttan tíma. Allir velkomnir. Aðgangur ókeypis.
JÓGASTÖÐIN HEIMSLJÓS,
Skeifunni 19, 2. hæö. Sími 889181 milli kl. 17 og 19.
Skiptinemadvöi í Ástralíu, S-Ameríku,
Asíu, Evrópu og Bundaríkjunum
Ef þú ert á aldrinum 16-18 ára, átt þú möguleika á að gerast skiptinemi á veg-
um AFS. Þú dvelur 11 mánuði í viðkomandi landi, eykur þekkingu þína á umheim-
inum, lærir nýtt tungumál og kynnist skóla- og fjölskyldulífi í viðkomandi landi.
□ í janúar og febrúar 1995 fara íslenskir skiptinemar til Ástralíu, Chile,
Argentínu og Paraguay. Hugsanlegt er að fleiri lönd i S-Ameríku verði í boði.
□ í júlí og ágúst 1995 fara íslenskir skiptinemar til Jamaika, Venezuela,
Mexíkó, Guatemala, Ekvador, Brasilfu, Bólivíu, Bandaríkjanna, Portúgals,
Austurríkis, Ungverjalands, Frakklands, (talíu, Þýskalands, Lettiands,
Indónesíu, Tælands og Norðurlandanna. Hugsanlegt er að fleiri lönd verði
í boði. Sérstök athygli er vakin á því að AFS á íslandi hefur útvegað sér-
staka styrki til handa þeim, sem fara til Lettlands og Ungverjalands sumarið
1995. Nánari upplýsingar um styrkina veitir framkvæmdastjóri AFS á íslandi.
Umsóknarfrestur er til 14. október 1994.
AFS eru ein virtustu samtök heims á sínu sviði og hafa staöið að nemendaskipt-
um í nálægt 50 ár. Samtökin starfa í 55 löndum í öllum heimsálfum. Markmið
samtakanna er að auka kynni og skilning milli þjóða heims og fólks af ólíkum
uppruna. Einnig að víkka sjóndeildarhring ungs fólks og bæta menntun þess.
AFS á íslandi eru samtök sem eru ekki rekin í hagnaðarskyni. Um 1.700 félagar
eru í samtökunum og eru þeir flestir fyrrum skiptinemar. Þegar skiptinemar
snúa heim eftir ársdvöl á erlendri grund gefst þeim kostur á að taka þátt í fjöl-
breyttu og uppbyggilegu félagsstarfi AFS á íslandi. Á hverju ári fara um 130
íslenskir skiptinemar erlendis á vegum AFS á íslandi og á sama tíma hýsa sam-
tökin um 40 erlenda skiptinema. AFS á íslandi leggur ríka áherslu á undirbúning
nema og foreldra fyrir brottför.
AFS á íslandi hvetur þá, sem eru að hugleiða skiptinemadvöl, að gera saman-
burð á reynslu, þjónustu og kjörum.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á skrifstofu AFS, Laugavegi 59,
3. hæð, milli kl. 10 og 16 virka daga. Sfmi 91-25450.
4FS Á ÍSL4NDI
Alþjóöleg fræðsla og samskipti
I DAG
BRIDS
VELVAKANDI
Umsjón Guóm. I’áli
Arnarsun
í grundvallaratriðum er
vandamál vesturs í vörninni
gegn 5 tíglum að staðsetja
hjartaásinn.
Suður gefur; NS á hættu.
Norður
♦ KG3
Y DG862
♦ DG6
♦ 106
Vestur
♦ Á762
¥ K3
♦ 54
♦ KD982
Vestur Norður Austur Suður
- - - 1 tígull
2 lauf 2 hjörtu Dobl* 5 tíglar
Pass Pass Pass
* neikvætt dobl, sem lofar
fyrst og fremst spaða
Útspil: laufkóngur.
Sagnhafi drepur strax á
laufás og spilar spaðatíu.
Vestur ákveður að drepa á
ásinn og austur sýnir fimm-
lit. Hvað nú?
Spilið er frá Rosenblum-
keppninni í Nýju-Mexíkó og
kom upp f leik sveita frá
Hong Kong og Bandaríkjun-
um. Vestur hugsaði sig um
í dágóða stund áður en hann
spilaði hlutlaust spaða. Hann
taldi ekki öruggt að makker
hans ætti hjartaásinn og
vonaðist til að fá slag á
hjartakóng í fýllingu tímans.
Honum varð ekki að þeirri
ósk sinni:
Norður
♦ KG3
¥ DG862
♦ DG6
♦ 106
Vestur
♦ Á762
¥ K3
♦ 54
♦ KD982
Austur
♦ 65
Suður
♦ 10
¥ 9
♦ ÁK109873
♦ ÁG73
Vestri er a.m.k. vorkunn
að spila ekki hjarta. Á þess-
um hættum þarf austur ekki
að eiga mikinn háspilastyrk
til að blanda sér í sagnir, því
hann getur verið að bjóða
upp á fóm. En austur gat
leyst vanda félaga síns á ein-
faldan og stílhreinan hátt
með því að henda spaða-
drottningunni undir ásinn!
Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
„Misjöfn
málagjöld“
í Þjóðarsálinni, Rás 2 var
farið með vísu 23. septem-
ber, sem margir kannast
við en muna á ýmsa vegu.
Árið 1943 kom út lítið
kver sem nefndist Ljóð og
lausavísur eftir Þórð Ein-
arsson, sem flestir Hafn-
firðingar þekku, eða könn:
uðust við á þeim tíma. í
þessu kveri er þessi vísa
og nefnist þar „Misjöfn
málagjöld" og er svona:
Stelirðu litlu í steininn mátt
staulast, karl minn, sérðu.
En stelirðu miklu og standir hátt
í Sþ'ómarráðið ferðu.
Þuríður Sigurðardóttir,
Hjallabraut 3,
Hafnarfirði.
mLiimm
Kettlingur
10 VIKNA grábröndótt
kassavön læða fæst gefins
á gott heimili. Upplýsingar
í síma 23556.
Kettlingúr
ÞRIGGJA mánaða, kassa-
vön læða óskar eftir góðu
heimili. Upplýsingar í
síma 44708.
Týnd læða
LÍTIL alsvört kettlingafull
læða týndist frá nágrenni
Kringlunnar. Látið vita í
síma 38707.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Gullarmband
fannst
MJÓTT gullarmband
fannst á göngustíg við
Ægisíðu sem liggur út í
Skeijafjörð sl. laugardag.
Eigandinn má vitja þess í
síma 75185.
ÞESSAR stúlkur héldu hlutaveltu nýlega til styrktar
Baraaspítala Hringsins og varð ágóðinn 4.100 krónur.
Þær heha Bergrós K. Jóhannesdóttir og Valdís G. Vil-
hjálmsdóttir.
HÖGNIHREKKVÍSI
„ PápC htfar -e-idcL mikjS—ban*.
baunc*-boltou og bfefkúLu."
SKAK
Umsjðn Margcir
Pétursson
Á Sigeman & Wembro al-
þjóðlega mótinu í Malmö í
sumar kom þessi staða upp
í skák sænska alþjóðlega
meistarans Stellan Brynell
(2.480) og unga ungverska
stórmeistarans Zoltan Alm-
asi (2.620) sem hafði svart
og átti leik.
' Bent ‘Larsen ságðí eln-
hvem timann í gríni að sá
yrði ekki mát sem stutthrók-
aði og setti riddara á fl (eða
f8 með svörtu), en sú regla
gildir greinilega ekki alltaf:
21. - Rf3+!, 22. gxf3 -
Bxf3, 23. Rbd2 - Bxh2+!
og hvítur gafst upp, því eftir
24. Rxh2 — Dg6+ blasir
mátið við. Úrslit mótsins:
1.-2. Hellers, Svíþjóð, og
Curt hansen, Danmörku, 7
v. af 9 mögulegum, 3.-4.
Episín, Rússlandi, og Almasi
6'/2 v., 5. Andersson, Sví-
þjóð, 6 v., 6. Krasenkov,
Rússlandi, 4 v.
Víkveiji skrifar...
Hvað er það sem 35 milljónir
manna af íbúum OECD-ríkja
eiga sameiginlegt á þessu herrans
ári 1994?
Sjálfsagt margt. Eitt af því, og
ekki það skemmtilegasta, speglast í
eftirfarandi pistli sem Víkverji barði
augum í Þjóðhagsáætlun fyrir árið
1995:
„Áætlað er að um 35 milljónir
manna, eða 8,5% mannafla, séu án
atvinnu í aðildarríkjum OECD í ár -
og aðrar 15 milljónir hafi annað hvort
horfið af vinnumarkaðnum eða farið
í hlutastarf án þess að óska þess.
Atvinnuleysi var enn meira meðal
fólks á aldrinum 15-24 ára, eða um
15% 1993 ... Atvinnuástand meðal
aðildarríkja í Evrópu er mun lakara,
því bæði er atvinnuleysið meira, eða
11,7% í ár, og vinnúaflið dregst þar
enn saman.“
Atvinnuleysi hér á landi í ár verð-
ur að meðaltali, samkvæmt spám,
4,8%, sem þýðir að um 6.300 ein-
staklingar séu án vinnu að jafnaði.
Þetta er alltof mikið. Samt verulega
minna en í umheiminum, samanber
framansagt, og minna en fyrri spár
stóðu til, vegna nokkurrar uppsveiflu
í íslenzku atvinnulífi og átaksverk-
efna ríkis og sveitarfélaga.
xxx
Landbúnaður var frá upphafi
byggðar og fram um síðustu
aldamót höfuðatvinnugrein þjóðar-
innar, þótt sjór væri jafnframt stund-
aður frá fyrstu tíð. Um aldamótin
síðustu bjuggu enn um 73% þjóðar-
innar í strjálbýli; aðeins 27% í þétt-
býli. Þetta hefur heldur betur breytzt
á 20. öldinni. Nú búa níu af hveijum
tíu íslendingum, og reyndar rúmlega
það, í þéttbýli.
Á síðustu áratugum hefur land-
búnaðurinn legið undir vaxandi
gagnrýni vegna útflutningsbóta á
búvöru, niðurgreiðslna og annarra
opinberra fjárframlaga, sem verið
hafa fyrirferðamikil í fjárlögum og
hallareknum ríkisbúskapnum. Land-
búnaðurinn hefur átt undir högg að
sækja vegna breyttra neyzluvenja
fólks og erlendrar samkeppni.
Bæði stjórnvöld og bændur sjálfir
hafa unnið hörðum höndum að því
að aðlaga landbúnaðinn breyttum
aðstæðum - og skera niður landbún-
aðarstyrkina. Þannig les Víkveiji í
áður tilvitnaðri Þjóðhagsspá:
„Afnám útflutningsbóta og sam-
dráttur í framleiðslu kindakjöts og
mjólkur í kjölfar búvörusamningsins
hefur leitt til þess að útgjöld ríkisins
til landbúnaðarmála eru nú um 40%
minni en þau voru fyrir nokkrum
árum. Hér er um varanlegan niður-
skurð að ræða ....
Framundan eru miklir breytinga-
tímar í íslenzkum landbúnaði. Mikil-
vægasta verkefni stjómvalda er að
greiða fyrir nauðsynlegri hagræð-
ingu til þess að bæta samkeppnis-
stöðu landbúnaðarins gagnvart er-
lendum afurðum og til að mæta kröf-
um neytenda um lægra vöruverð og
fjölbreytt vöruúrval."
XXX
Víkveiji hefur áður minnt á það,
hve þjóðarbúskapur okkar og
lífskjör eru háð milliríkjaverzlun,
verði útflutnings og innflutnings.
Fáar þjóðir flytja út jafn stóran hluta
framleiðslu sinnar né inn jafn hátt
hlutfall meintra lífsnauðsynja. Af
þessum sökum hefur efnahagsþróun-
in í umheiminum ómæld áhrif á af-
komu okkar og efnahag.
Á seinustu árum liðins áratugar og
það sem af er líðandi hefur heimsbú-
skapurinn gengið í gegn um eitt
lengsta skeið stöðnunar og samdráttar
frá lyktum síðari heimsstyijaldar. Sá
veruleiki hafði mikil neikvæð áhrif hér.
Þetta stöðnunartímabil er nú um
það bil á enda runnið. Hagfróðir spá
nokkrum hagvexti í OECD-ríkjum
1994 og 1995, allt að 3%. Heldur
bjartara er yfir efnahagshimni Norð-
urlanda en annarra OECD-ríkja.
Þessi bati í umheiminum auðveldar
íslendingum, að dómi Víkveija, að
rétta úr kútnum, ef þeim tekst að
viðhalda stöðugleikanum heimafyrir:
á vinnumarkaði, í verðþróun, í gengi,
í vöxtum o.sv.fv. Að ekki sé nú talað
um ef þeir slá skjaldborg um þorsk-
stofninn og aðrar sjávarauðlindir -
og hætta að eta „útsæðið"!