Morgunblaðið - 09.10.1994, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1994 43
I
I
:
i
i
i
i
i
í
i
í
4
4
4
Jafnokar Bakkabræðra ræna Lilla, barni forríkra foreldra, en
sá stutti strýkur úr vistinni - á fjórum fótum!
Sprellfjörug og stórskemmtileg gamanmynd úr smiðju
höfundar Home Alone-myndanna.
Sannkölluð stórmynd fyrir alla fjölskylduna.
Aöalhiutverk: Joe Mantegna, Lara Flynn Boyle, Joe Pantoliano.
Handrit: John Hughes.
Leikstjóri: Patrick Read Johnson.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9og11.____________________
Emmess-ís á 3- sýningu:
Allir krakkar á þrjú sýningu fá
ókeypis ís frá Emmess.
Neyðarúrræði Spennandi, stílfærð, áleitin og erótísk ný- sjálensk verðlauna- mynd sem sameinar á eintakan hátt leikhús, óperur og kvikmynd- ir. Sannkölluð veisla fyrir augu og eyru. Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 14 ára. mpJswJiyniflESku Allir heimsins morgnar ★★★★ Ó.T Rás2 ★★★ A.I.MBL ★★★ Eintak ★★★ H.K. DV. Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
Ástríðufiskurinn **★ G.E. DV Sýnd kl. 5.10. Ljóti strákurinn Bubby *** A.i. MBL.*** Ó.T. RÁS 2. Sýnd kl. 3, 9 og 11.10. B. i. 16 ára. GESTIRNIR *** Ó.T. RÁS 2. Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. B. i. 12 ára.
Fólk
Fraser í vinsælda
samkeppni
KELSEY Grammer sem Fraser. Nú veitir ekki af einhveiju sniðugu.
► Óskapleg samkeppni er milli
stóru sjónvarpstöðvanna vestan-
hafs um áhorfendur. Vinur okkar
hér, Fraser sálfræðingur, er þar
í harðri keppni um besta áhorf-
endatímann. Hann er á NBC sjón-
varpsstöðinni klukkan 9 á þriðju-
dagskvöldum, fluttur á þessan
óskatíma til þess að sigra
Rosanne, aðra þætti sem íslend-
ingum eru kunnir. En nú hefur
ABC sjónvarpsstöðin tekið upp á
því að skifta Rosanne út fyrir enn
harðari samkeppnisaðila, þátt
sem nefnist á frummálinu “Home
Improvement" með Tim Allen.
Er gefið upp að Allen hafi náð
til 36,3 milljón áhorfenda meðan
Fraser hefur 25,9 milljón áhorf-
endur. Eru það einkum karlar
sem sá fyrrnefndi dregur að.
Ekki var Kelsey Grammer sem
leikur Fraser neitt ánægður þeg-
ar hann heyrði að stöðin hans
væri að hugsa um að færa hann
til, sagði nóg komið eftir flutning-
inn á þriðjudaga vegna Rosanne
og nú vilji hann bara leiða bardag-
ann til enda. En framleiðendur
leggja heilann í bleyti um hvernig
þeir geti unnið á. Þar sem mótað-
ilinn leggur áherslu á samspil og
samheldni stórrar fjölskyldu segj-
ast þeir ætla á næstu önn að
ganga í þá áttina:“Við ætlum að
beina athyglinni meira að þessari
yndislega skrikkjóttu fjölskyldu-
mynd. Þótt góður skammtur af
þættinum haldi áfram að fara
fram í útvarpsstöð Frasers, verð-
ur áherslan lögð á heimilislíf sál-
fræðingsins“, segir framleiðand-
inn.“Fraser mun halda áfram að
þroskast, skilja föður sinn betur,
verða nákomnari bróður sínum
og kannski taka á endanum upp
samband við konu. Það er aðra
konu en Lilith, en hafið ekki
áhyggjur Lilith kemur aftur, að
minnsta kosti í einni þáttaröð.
David Hyde Pierce, sem leikur
Niles bróður Frasers, ljóstrar því
uþp að fjölskyldan kunni að
stækka, enda búið að gefa í skyn
að hann langi til að eignast erf-
ingja“. Og loks segir framleiðand-
inn að Fraser muni vísast taka
aftur upp samband við píanókenn-
arann sinn, sem leiddi hann fyrstu
sporin í kynlífinu þegar hann var
17 ára gamall." En Fraser er nú
41 árs og hún...þá líklega um sjö-
tugt. Þegar gengið var á hann
um hvort fleira væri í farvatninu,
sagði hann að hundurinn Eddie
lendi í mestu hremmingum, gott
ef ekki verði að gelda hann, eftir
að þrjóturinn gerir Lhasa Apso í
sambýlishúsi í nágrenninu hvolp.
Og hinar persónurnar sem héldu
að þær væru í klandri!