Morgunblaðið - 09.10.1994, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 09.10.1994, Qupperneq 44
44 SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR HANDKNATTLEIKUR Paul Tiedemann, þjálfarinn frábæri, velurtíu bestu handknattleiksmenn allra tíma Vujovic bestur - sá sem kemst næst fullkomnun 1VESELIN VUJOVIC. í hóp- íþróttum er það mjög erfitt að velja besta leikmann allra tíma, og sjálfsagt í rauninni ómögulegt. Tilraun til slíks hlýtur alltaf að vera huglæg og þannig er það hjá mér. Besti leikmaður allra tíma er í mín- um huga Júgóslavinn Vesely Vujovic, en samkvæmt mínum kokkabókum kemst hann næst því að vera hinn fullkomni leikmaður. Hann hafði mikla útgeislun, ein- staka skottækni og fáheyrða skot- hörku. Vujovic er gífurlega mikill persónuleiki á vellinum. Vujovic er fæddur árið 1961. Hann lék sem útileikmaður með Metaloplastiea Sabac í Júgóslavíu, FC Barcelona og Balonmano Gran- ollers á Spáni. Hann varð heims- meistari og Evrópumeistari og árið 1988 var hann valinn besti hand- knattleiksmaður í heimi. 2HV0RJE HORVAT. Hann fór fyrir besta liði sem nokkru sinni hefur leikið handknattleik, júgóslavneska landsliðinu sem varð Ólympíumeistari árið 1972. Liðið naut góðs af stjórnunarhæfileika og snilli Horvats, bæði í sókn og í vörn, en hann fór fremstur í öllu sem þurfti að gera og hafði ein- stakt lag á að finna alltaf bestu leiðina að settu marki. Horvat er fæddur árið 1946 og var leikstjórnandi. Hann lék með Partiza Bjelovar í Júgóslavíu og síðar MTSV Schwabing í þýsku úrvalsdeiídinni. Hann varð Ólymp- íumeistari árið 1972. 3MAGNUS ANDERSON. Hann afsannar kenninguna um að handknattleikmenn verði að vera hávaxnir. Hann er einn tekn- ískasti handknattleiksmaður sem komið hefur fram. Sérlega snjall stjórnandi sem hefur gott auga fyr- ir öllum samleik og sem skytta er hann gjörsamlega óútreiknanlegur. Hann er einn þeirra leikmanna sem gerir handknattleikinn skemmtileg- an. Anderson er fæddur árið 1966 og leikur sem leikstjómandi. Hann varð heimsmeistari með Svíum og lék eitt ár með Schutterwald í þýsku deildinni en leikur nú með Drott í Svíþjóð. 4GE0RGHE GRUIA. Ein fárra skytta í heiminum sem gat unnið leik upp á sitt einsdæmi, og gerði reyndar oft. Hann var ekki njörfaður niður í ákveðin leik- kerfi heldur þurfti aðeins aðstoð félaga sinna til að fá smá rými. Á sínum tíma, og miðað við þann handknattleik sem þá var leikinn, var hann nærri fullkominn. Gruia er fæddur árið 1940 og lék í stöðu skyttu. Hann varð heims- meistari með Rúmenum og Evrópu- meistari með Steaua Búkarest. 5MILE ISAKOVIC. Hinn full- komni hornamaður. Gríðar- lega skynsamur og með frábæra skottækni auk þess sem hann var einstaklega sterkur í stöðunni mað- ur á móti manni. Hann missti samt ekki yfirsýnina og var oft óútreikn- anlegur. Hann var einstakur „slútt- ari“. Isakovic er fæddur árið 1958 og lék í vinstra horninu. Heimsmeist- ari varð hann með Júgóslavíu, Evr- ópumeistari með Metalopastica Sabac, lék með Milbertshofen í þýsku deildinni og US Creteil í Frakklandi. Tveir frábærir Morgunblaðið/Júlíus VESELIN Vujovic, t.v., bestl handknattleiksmaður sögunnar að mati Pauls Tiedemanns, og Mile Isakovic, hornamaðurinn frábæri, en þeir léku hlið við hlið með Metaloplastica og Júgóslavíu. I\lýr stfll JAE-WON Kang kynntl nýjan stíl í alþjóðlegum handbolta. Þýskalandi, Evrópumeistari með SC Magdeburg. 8JAE-WON KANG. Sterkasti handknattleiksmaður sem ég hef séð í stöðunni maður á móti manni. Kynnti nýjan stíl í alþjóðleg- um handknattleik með Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum 1988. Hann er fljótur og svo „lúmskur" að maður nemur ekki allt sem hann gerir. Kang er fæddur árið 1963 og leikur sem skytta. Hann vann til silfurverðlauna með Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum árið 1988. Lék síðast í Sviss. 9JOACHIM DECKARM. Úti- spilari með einstaklega góða nýtingu. Þegar hann skaut skoraði hann oftast. Einstök stökktækni og eins var hann mjög góður í stökk- skotum auk þess sem hann var góður í aukaköstum og í vörn. Því miður slsaðist hann mjög alvarlega og gat ekki leikið eftir það. Deckarm er fæddur árið 1954 og lék sem útispilari, einnig í vinstra horninu. Heimsmeistari með Þýska- landi og Evrópumeistari með Gum- mersbach. 4 INGOLF WIEGERT. i Línumaður af Guðs náð. Mjög sterkur og hafði mikinn sprengikraft auk þess sem hann skoraði alltaf mikið úr því sem kalla má hálffæri. Hafði gott auga fyrir meðspilurum sínum og setti upp kröftuga og snjalla blokk fyrir skytturnar. Wiegert er fæddur árið 1957 og lék sem línumaður. Hann varð Ólympíumeistari með Austur- Þýskalandi og Evrópumeistari með Magdeburg. 6ALEXANDER KARSAKI- EWITSCH. Besti hraðaupp- hlaupsmaður sem sögur fara af. Hann var svo fljótur fram kantinn að það var ómögulegt að stöðva hann og í þokkabót hafði hann mikinn skilning á leiknum. Hann var kænn í að skipta um stöður á vellinum og skaust í þær með leift- urhraða. Karsakiewitsch er fæddur árið 1959 og var hornamaður vinstra megin. Hann varð heimsmeistari með Rússlandi og Evrópumeistari með SKA Minsk. 7WIELAND SCHMIDT. Besti markvörður allra tíma þrátt fyrir marga góða eins og Jiri Vicha (Tékkóslóvakíu), Penu (Rúmeníu), Mats Olssop (Svíþjóð) og Andreas Thiel (Þýskalandi). Auk hæfileika sinna sem markvörður hafði hann ódrepandi vilja til að sigra og smit- aði út frá sér þannig að lið sem hann lék með vildu alltaf sigra. Það var ekki síst honum að þakka að Austur-Þýskaland varð Ólympíu- meistari árið 1980. Schmidt er fæddur árið 1953. Ólympíumeistari með Austur- Hraði ALEXANDER Karsakiewitsch: besti hraðaupphlaupsmaöur sem komið hefur fram. Margur er... MAGNUS Andersson afsannar þá kenningu að handboltamenn verði að vera hávaxnlr. Tiedemann PAUL Tiedemann er tvímæla- laust meðal þekktari hand- knattleiksþjálfara heims. Hann lék handknattleik á sín- um yngri árum og þótti góður en stærstu viðurkenninguna fékk hann samt sem þjálfari. Hann gerði marga handknatt- leiksmenn að stórkostleg- um leik- mönnum og toppnum sem þjálfari náðí hann er austur-þýska landsliðið yarð Ólympíu- meistari undir hans stjórn í Moskvu árið 1980. Ekki alls fyrir löngu valdi hann tíu bestu handknattleiksmenn heims fyrr og síðar fyrir þýska íþróttatímaritið Kicker og birt- aBt niðurstöður hans hér á síð- unni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.