Morgunblaðið - 09.10.1994, Side 48
Afl þegar þörf krefur!
RISC System / 6000
<o> NÝHERJI
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
SÍMl 691100, SÍMBRÉF 6911S1, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Forseti Islands o g utanríkisráðherra á fundi Bandaríkjaforseta
/ TT Am 1 / •
Vamar- og ör-
yggissamstarf
efst á baugi
FORSETI íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, og Jón Baldvin Hannib-
alsson, utanríkisráðherra áttu fund
með Bill Clinton, Bandaríkjaforseta,
í Hvíta húsinu, síðastliðinn föstudag.
Á fundinum, sem hófst klukkan
17.45 að staðartíma, ræddu forset-
arnir um vináttuna milli íslands og
Bandaríkjanna.
Frú Vigdís, sem var stödd í Was-
hington í tilefni hátíðahalda vegna
50 ára afmælis Lýðveldisins íslands,
þakkaði Clinton fyrir þá hjálp, sem
Bandaríkjamenn veittu íslendingum,
þegar tekin var ákvörðun um sjálf-
stæði landsins.
Ræddu NATO og
Evrópusamstarf
Aðspurð hvernig Bandaríkjafor-
seti hefði komið henni fyrir sjónir,
sagði frú Vigdís hann „fríðan og
föngulegan og koma mjög vel fyrir.“
Eftir að hafa rætt hvað samband
landanna er gott, ræddu forsetarnir
um NATO og Evrópusamstarf og
samskipti þjóðanna í varnar- og ör-
yggismálum.
„Ég fagna því,“ sagði frú Vigdís,
„að ég hef aldrei komið til Washing-
ton án þess að vera boðið í Hvíta
húsið í heimsókn," en þetta mun
vera í fjórða sinn, sem hún sækir
Bandaríkjaforseta heim.
Framkvæmd vamar-
samnings rædd
Jón Baldvin Hannibalsson, utan-
ríkisráðherra, sagði að á fundi sínum
og forseta með Clinton hefði hann
ítrekað meginþættina í þeim viðræð-
um, sem hann hefur átt undanfama
daga við forsvarsmenn utanríkis- og
varnarmála í Bandaríkjunum, um
framkvæmd þess varnarsamnings,
sem þjóðirnar gerðu með sér í jan-
úar síðastliðnum.
Utanríkisráðherra lagði áherslu á
endurnýjun varnarsamningsins árið
1996 og sagði að þar væru flugvarn-
ir grundvallaratriði.
Meðal annars var rætt um sam-
starfið innan Atlantshafsbandalags-
ins og stækkun þess í austur og er
ráðgert að sú stækkun nái til Tékk-
lands, Slóvakíu, Póllands og Ung-
veijalands.
Áð sögn utanríkisráðherra hafa
Bandaríkjamenn reynt að sannfæra
Jeltsín, í samtölum þeirra Clintons
og Jeltsíns, um að slíkt sé ekki ógn-
andi fyrir Rússland og að Banda-
ríkjamenn útiloki ekki rússneska
aðild í framtíðinni.
Morgunblaðið/DV - Guðmundur Magnússon
FRÚ VIGDÍS Finnbogadóttir ásamt Bill Clinton, Bandaríkjaforseta, í „Oval Office“ Hvita hússins.
SKÍRNARSÁRINN í Róm.
Skírnarsár
Thorvald-
sens í Róm
SKÍRNARFONT úr brenndum leir
eftir Bertel Thorvaldsen, sömu gerð-
ar og skímarfonturinn í Dómkirkj-
unni í Reykjavík, er að fínna í þýsku
mótmælendakirkjunni við Toscana-
götu í Róm. Tilvist fontsins hefur
verið á fárra vitorði. Sagt er frá
honum í nýútkomnu hefti Sögu,
tímarits Sögufélagsins.
Á fontinum í Róm er sama lat-
neska áletrun og á fontinum í Dóm-
'kirkjunni. Jónas Hallgrímsson skáld
þýddi hana svo: „Albert Thorvaldsen
gjörði smíðisgrip þennan í Róma-
borg, og gaf hann Islandi, ættjörð
sinni, í ræktunarskyni 1827.“
Að mati Veturliða Óskarssonar,
sem ritar í Sögu, hefur fonturinn í
Róm verið eins konar vinnueintak,
þar sem hann sé úr leir og gerður
T827 eða jafnvel fýrr. Fonturinn í
Dómkirkjunni er gerður 1833.
Ríkíssjóður þarf ekki
meira lánsfé á árinu
Staða Islands á erlendum lánamörk-
uðum góð miðað við önnur ríki
RÍKISSJÓÐUR mun ekki afla frekari lánsfjár á innlendum mark-
aði á þessu ári þegar undan er skilin útgáfa í þessari viku á
nýrri tegund spariskírteina til 5 ára sem verður tengd við evr-
ópsku mynteininguna ECU og er ætlað að breikka það úrval
verðbréfa sem ríkissjóður býður hér á landi.
isfjármálin á kjörtímabilinu segir
Friðrik Sophusson að breytingar á
innlenda lánamarkaðnum væri það
verk ríkisstjórnar Davíðs Oddsson-
ar, sem myndi skilja mest eftir sig
þegar til lengri tíma væri litið.
Skattahækkun
réttlætanleg
Friðrik segir einnig að markmið
um hallalaus fjárlög á næstu árum
sé svo mikilvægt, að grípa verði til
aukinnar skattheimtu til að brúa
bilið, takist ekki að skera nægilega
niður ríkisútgjöld. Hann lýsir því
þó yfír að núverandi ríkisstjórn
muni ekki Ieggja á fjármagnstekju-
skatt, þar sem slíkt sé ekki ráðlegt
við núverandi skilyrði. Hann segir
einnig, að fjármagnstekjuskattur
sé víkjandi skattform í nágranna-
löndunum, þar sem alþjóðleg sam-
keppni um fjármagn fari sífellt
harðnandi.
■ Höfum skipt um gír/10
„Þetta þýðir að lánsfjárþörf ríkis-
ins mun ekki leiða til eftirspurnar
á ijármagnsmarkaðnum það sem
eftir er ársins. Það hlýtur því að
leiða til meira jafnvægis og draga
úr þrýstingi á vextina," sagði Frið-
rik Sophusson fjármálaráðherra við
Morgunblaðið.
Ríkissjóður hefur í lok september
aflað með sölu verðbréfa á lánsfjár-
markaði innanlands 9,6 milljarða
króna að frádreginni innlausn eldri
bréfa. Síðustu mánuði ársins hefur
ríkissjóður hins vegar meiri tekjur
en gjöld og þarf því ekki meira
lánsfé.
Friðrik sagði að í samtölum við
lánardrottna Islendinga á aðalfundi
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Madrid
í síðustu viku hefði komið fram að
staða íslands á erlendum lánamörk-
uðum væri mjög góð í samanburði
við aðrar þjóðir og Islendingar nytu
þar áfram góðra kjara.
í viðtali við Morgunblaðið um
fjárlagafrumvarp næsta árs og rík-
Morgunblaðið/Þorkell
Kirkjugarðsklukkan úr skipi?
ÞEGAR klukkan í klukknaportinu
í gamla kirkjugarðinum við Suð-
urgötu var tekin niður fyrir
nokkru vegna endurbyggingar
portsins, kom í ljós á henni áletr-
un, sem þykir geta bent til að
klukkan hafi komið úr skipi.
Áletrunin virðistvera „The Nic-
holas and Anne“. Kirkjan er með
kirkjuklukkulagi, og telja fróðir
menn hugsanlegt að hún hafi
upphaflega verið í kirkju, en svo
farið i skip. Það rökstyður þá til-
gátu að áletrunin er höggvin í
hana, en ekki steypt.
Klukka þessi er sennilega kom-
in úr gamla líkhúsinu, sem stóð
þar sem klukknaportið stendur
nú í austanverðum garðinum og
var reist 1838. Líkhúsið var notað
sem kirkja meðan á stækkun
Dómkirkjunnar stóð 1847-48, og
í önnur skipti, sem Dómkirkjan
var í viðgerð. Klukka þessi kall-
aði Reykvíkinga þá til messu.
Henni var einnig hringt þegar
jarðað var í garðinum.
Nú hefur klukkunni ekki verið
hringt í mörg ár, og er ekki einu
sinni spotti i henni lengur.