Morgunblaðið - 11.10.1994, Síða 1

Morgunblaðið - 11.10.1994, Síða 1
64 SÍÐUR B 231. TBL. 82.ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS íraksstjórn segist ætla að draga herlið sitt til baka Kúveit, Sameinuðu þjóðunum, Washington. Reuter. . Reuter BANDARÍSKA flugmóðurskipið George Washington fór um Súezskurð í gær á leið til Kúveits. Þessi Egypti var þó ekkert uppnæmur yfir bryndrekanum þar sem hann sat og dorgaði. STJÓRNVÖLD í írak sögðust í gær hafa ákveðið að draga herlið sitt til baka frá Basra, nálægt landamær- unum að Kúveit, vegna „óska nokk- urra vinaþjóða" en eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna kváðust þó ekki sjá, að neitt fararsnið væri á íraska herliðinu. Bandaríkjamenn segja að írakar hafi verið að safna saman allt að 80.000 manna herliði í suðurhluta landsins, nálægt landamærunum _að Kúveit. Upplýsingamálaráðherra Ir- aks, Hamed Youssef Hummadi, vís- aði þessu á bug og sagði fréttir um liðsflutninga Iraka „tilbúning af hálfu Bandaríkjastjómar“. Utanrík- isráðherrann, Mohammed Saeed ai- Sahaf, sagði hins vegar að nokkrar hersveitir hefðu verið á svæðinu vegna heræfínga og þeim hefði verið skipað að fara frá landamærunum. Bandarískt herlið til Kúveits Fyrstu bandarísku hermennirnir komu til Kúveits í gær og herskip með um 2.000 hermenn komu að strönd landsins. Bandaríkjastjórn hefur ákveðið að senda 36.000 her- menn og 200 herflugvélar á svæðið til að koma í veg fyrir að írakar hernemi landið eins og árið 1990. í gær rann út frestur sem írakar gáfu öryggisráði Sameinuðu þjóð- anna til að taka ákvörðun um afnám viðskiptabannsins. Ekkert var þó fjallað um málið innan öryggisráðs- ins og flest bendir til, að það taki viðskiptabannið ekki til umfjöllunar fyrr en um miðjan næsta mánuð. írakar gengu út frá því að ráðið fengi í gær skýrslu frá Rolf Ekeus, odd- vita sérstakrar nefndar sem fylgist með því að gjöreyðingarvopn íraka verði eyðilögð. Af því varð ekki og búist er við að ráðið fái skýrsluna í dag og ræði hana á fimmtudag. Efasemdir um bannið Hans Sterken, formaður utanrík- ismálanefndar þýska þingsins, lét í ljós efasemdir um að hörð afstaða Bandaríkjanna og Bretlands gegn afnámi viðskiptabannsins væri rétt- mæt. Hann sagði að margir teldu að viðskiptahagsmunir fremur en pólitískar ástæður lægju að baki þessari hörðu afstöðu. Kvað hann litla hættu á nýju stríði fyrir botni Persaflóa og taldi að írakar væru aðeins að sýna klærnar til að knýja fram afnám viðskiptabannsins. Norges Fiskarlag Sjómenn í N-Noregi töpuðu Ósló. Morgunblaðið. SJÓMENN í Norður-Noregi töpuðu slaginum við togaraeig- endur um skiptingu þorskkvót- ans á fundi Norges Fiskarlags, helstu hagsmunasamtaka í norskum sjávarútvegi. Ekki er ljóst hvaða afleiðingar deilan mun hafa fyrir samtökin en þó er ekki talið líklegt að til beins klofnings komi. Togararnir hafa verið með 35% af þorskkvótanum en fé- lög sjómanna á Finnmörku, Troms og Norðlandi kröfðust þess, að hlutur þeirra yrði iækkaður í 30%. Niðurstaðan var hins vegar 33%. Raunar er það sjávarútvegsráðuneyt- ið, sem ákveður kvótaskipting- una endanlega, en það hefur alltaf farið að tillögum Norges Fiskarlags. Togara- og bátaútgerðin í Noregi hafa lengi deilt um kvótaskiptinguna en 1989 var ákveðið, að bátarnir fengju meira í sinn hiut en togararnir þegar illa áraði en þegar betur gengi ykist hlutur togaranna. Austurríki Búist við afsögn Vranitzkys Vín. Reuter. BÚIST er við að Franz Vranitzky, kanslari Austurríkis, segi af sér í dag en veiti starfsstjórn forsæti, þar til ný stjórn hefur verið mynd- uð. Stjórnarflokkarnir tveir, Jafnaðarmannaflokkur Vranitzk- ys og Þjóðarflokkurinn, töpuðu miklu fylgi í þingkosningum á sunnudag en halda þó þingmeiri- hluta sínum. Sigurvegari kosninganna er Frelsisflokkurinn, flokkur yst til hægri, sem Jörg Haider veitir for- stöðu. Jók hann fylgi sitt úr 16,6% í 22,6%. Flest bendir til að stjórnarmynd- unarviðræðurnar leiði til samstarfs sömu flokka og nú eru við stjórn- völinn og að Vranitzky verði áfram kanslari. Stjórnmálaskýrendur í Austurríki létu þó í ljós efasemdir í gær um langlífi stjórnar, sem þannig yrði skipuð. Uppstokkun fagnað Fögnuðu sumir leiðarahöfundar þeirri uppstokkun, sem átt hefði sér stað í austurrískum stjórnmál- um, og sögðu hana hvorki slæma fyrir Austurríki né lýðræðið. Úr- slitin þýddu í raun að hið „þægi- lega fyrirkomulag“, sem hefði ein- kennt stjórnmálalífið frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar, og byggðist á völdum tveggja flokka, væri liðið undir lok. ■ Frelsisflokkur Haiders/20 Mikill fögnuður þeg- ar Cedras sagði af sér Port-au-Prince. Reuter. Herforingjarnir á Haítí láta af völdum og ætla úr landi RAOUL Cedras, hershöfðingi á Haítí, sagði af sér í gær í samræmi við samning herforingjastjómarinn- ar við Bandaríkjamenn sem kveður á um endurkomu hins útlæga' forseta, Jean-Bertrands Aristides, til landsins í lok vikunnar. Er Cedras hélt ásamt eigin- konu sinni á brott frá forsetahöllinni eftir að hafa tilkynnt afsögnina, flykktist almenningur að bíl hans, sparkaði í hann og barði og kvaðst mundu hitta herforingjann fyrir á himnum. Herforingjastjórnin steypti Aristide af stóli árið 1991 og síðan lét Ced- ras utanaðkomandi þrýsting um að fara frá sem vind um eyru þjóta þar til hann sagði af sér nú. Cedras tilkynnti afsögn sína á hersýningu og fagnaði mannfjöld- inn, sem var samankominn, henni með söng og dansi. Urðu banda- rískir hermenn að veija hershöfð- ingjann. „Eg hef ákveðið að yfir- gefa land okkar svo að nærvera mín muni ekki verða notuð til að skapa skelfingu,“ sagði Cedras. „Ég mun þjást þegar þið þjáist og gleðjast þegar þið gleðjist.“ Eftirmaðurinn hrópaður niður Reuter MIKILL fögnuður braust út þegar Cedras tilkynnti, að hann léti af völdum og ætlaði að fara úr landi. Var því tekið með söng og dansi og bandarísk yfirvöld sögðu, að nú væri lokið dapurlegu skeiði í sögu Haítí. Ekki var ljóst til hvaða lands Cedras færi. Cedras afsalaði sér völdum til Jean-Claude Duperval undirhers- höfðingja, sem mun fara með stjórn hersins þar til Aristide út- nefnir hershöfðingja. Bar Duperv- al lof á veru Bandaríkjahers á Haítí en mannfjöldinn hrópaði hann niður. Bandarísk yfirvöld fögnuðu í gær afsögn Cedras og sögðu hana marka endalok dapurlegs skeiðs í sögu Haítí. Sagði talsmaður sendi- ráðsins, Stanley Schrager, að Spánn, Argentína og Panama hefðu látið að því liggja að þau væru reiðubúin að taka við Cedras. Sviss Þriðja mannsins leitað Genf. Daily Telegraph, Reuter. SVISSNESKA lögreglan leitar að 68 ára gömlum úrasala, Camille Pilet, sem talinn er tengjast dularfullum morðum á 48 félögum sértrúarsafnaðarins Reglu sólmusterisins. Er hann sagður vera „fjármálastjóri“ safnaðarins. Pilet sást síðast í fylgd með forsprökkum safnaðarins fimm dögum fyrir morðin. Funduðu þeir á hótelherbergi í Genf og gerði Pilet upp reikninginn með krítarkorti. Fjölmiðlar hafa leitt getum að því, að þá hafi verið lagt á ráðin um aftökurnar. ■ Morðin sögð skipulögð/20

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.