Morgunblaðið - 11.10.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1994 21
Sonur Thatcher talinn hafa notið góðs
af stöðu móður sinnar
Sagður hafa
auðgast á vopna-
sölusamningi
Lundúnum. Reuter, The Daily Telegraph.
VERKAMANNAFLOKKURINN í Bretlandi krafðist í gær rannsóknar
vegna ásakana um að Mark Thatcher, einkasonur Margaret Thatcher,
fyrrverandi forsætisráðherra, hefði auðgast á vopnasölusamningi sem
móðir hans undirritaði.
Sunday Times hélt því fram um
helgina að Mark Thatcher, sem er
41 árs, hefði fengið 12 milljónir
punda, rúma 1,2 milljarða króna,
fyrir milligöngu um 20 milljarða
punda vopnasölusamning við Saudi-
Arabíu árið 1984. Bresk dagblöð
segja þetta stærsta, vopnasölusamn-
ing sem Bretar hafa gert.
Mark Thatcher, sem býr nú í
Dallas í Texas, varð vellauðugur á
síðasta áratug þegar hann hóf milli-
göngu um leynilega viðskiptasamn-
inga. í viðtali við bandaríska dag-
blaðið Today kvaðst hann aldrei
hafa komið nálægt vopnasölu.
Robin Cook, talsmaður Verka-
mannaflokksins í iðnaðar- og við-
skiptamálum, kvað nausynlegt að
óháðri stofnun yrði falið að rannsaka
þetta mál. Hann sagði að Margaret
Thatcher væri nú „vænd um að leyfa
syni sínum að notfæra sér stöðu
hennar til að maka krókinn með
mestu ívilnun sem sögur fara af.“
Sunday Times byggir ásökun sína
á útdrætti úr samtölum milli vopna-
sala og samningamanna konungs-
fjölskyldunnar í Saudi-Arabíu. Ut-
drátturinn er sagður koma frá leyni-
þjónustu Saudi-Arabíu.
Margaret Thatcher gaf í gær út
yfirlýsingu þar sem hún kvaðst „full-
viss um að rétt hefði verið staðið
að samningnum milli Saudi-Arabíu
og Bretlands". Hún kvaðst stolt af
samningnum, sagði hann afrakstur
mikillar vinnu ráðherra og embættis-
manna og hafa skapað þúsundir
starfa og útflutningstekjur upp á
milljarða punda.
Áfall fyrir íhaldsmenn
Þetta mál er mikið áfall fyrir
íhaldsflokkinn og kemur á slæmum
tíma þar sem hann er nú að undirbúa
árlegt landsþing sitt síðar í vikunni.
Samkvæmt skoðanakönnun, sem birt
var í The Daily Telegraph í gær, telja
61% Breta að íhaldsflokkurinn sé
„mjog illa þokkaður“, en aðeins 18%
töldu þessa lýsingu eiga við Verka-
mannaflokkinn.
„I augum kjósenda er stjórnin
flekkuð siðferðilega. Það verður ekki
auðvelt fyrir íhaldsmenn að afmá
þennan flekk,“ sagði í forystugrein
The Daily Telegraph, sem þykir hallt
undir íhaldsflokkinn.
Samkvæmt sömu könnun er fylgi
Verkamannaflokksins 54% og
íhaldsflokksins 25,5%.
Erfitt verður fyrir John Major for-
sætisráðherra að snúa vörn í sókn á
flokksþinginu í Bournemouth. íhalds-
menn yst til hægri telja að vandræði
flokksins megi rekja til skattahækk-
anna undanfarinna tveggja ára og
eina lausnin sé að lækka tekjuskatt-
inn, svo og að taka upp harðari af-
stöðu gegn auknum samruna Evr-
ópusambandsríkjanna. Fréttaský-
rendur segja hins vegar að flokkurinn
myndi ekki eiga neina möguleika á
sigri í næstu þingkosningum ef hann
tæki upp harðari hægristefnu á sama
tíma og Verkamannaflokkurinn er
farinn að höfða til miðjunnar.
Stolten-
berg lofað
ábyrgðar-
stöðu
NORSKA dagblaðið Verdens Gang
fullyrti í gær að Thorvald Stolten-
berg, fyrrum utanríkisráðherra
Noregs og samningamaður Samein-
uðu þjóðanna í lýðveldum fyrrum
Júgóslavíu, myndi fara með sjávar-
útvegs- eða orkumál innan Evrópu-
sambandsins (ESB), samþykktu
Norðmenn inngöngu í sambandið.
Hefur blaðið þetta eftir áreiðán-
legum heimildum í Lúxemborg en
Gro Harlem Brundtland, forsætis-
ráðherra Noregs, átti í gær fund
með Jaques Santer, verðandi for-
seta framkvæmdastjórnar ESB og
forsætisráðherra Lúxemborgar.
„Stoltenberg mun fá mikilvægt og
þýðingarmikið verkefni í hinni nýju
framkvæmdastjórn, sem varðar
orkumál, sjávarútveg eða umhverf-
ismál," sagði Stanter við blaðamann
VG og bætti því við að þetta væru
þau mál sem Norðmenn sæktust
helst eftir.
Utlar líkur eru sagðar á því að
Norðmenn fái umhverfísmálin en
þeir munu hafa mestan áhuga á
sjávarútvegsmálum. Er VG bar und-
ir Brundtland ummæli Santers, varð
hún hvumsa við, en sagðist fagna
þeim. Er hún var spurð hvort Stolt-
enberg myndi fara með sjávar-
útvegsmál, sagði hún: „Hvers vegna
ekki?“
Reuter
JAQUES Santer, forsætisráð-
herra Lúxemborgar ásamt
starfssystur sinni, Gro Harl-
em Brundtland.
Frófkjör Sjálfstæöisflokksins
í Reykjavík
28. og 29. október
KATRÍN FJELDSTED
hefur opnað
kosningaskrifstofu í
Ingólfsstræti 5.
Símar 22360, 22366 og 22144.
Allir stuðningsmenn
velkomnir.
0 Opið virka daga frá kl. 16-21
i og um helgar frá kl. 13-18.
Reuter
Varað
við
plágu
PLÁGAN á Ind-
landi virðist vera
í rénun en viðbún-
aður er samt víða
mikill. Þessi ellefu
ára gamli dreng-
ur, Abdulkader
Hadrawala, í
Bombay hefur það
starf að vara fólk
við vágestinum og
hvetja til nauðsyn-
legra varúðarráð-
stafana en ekki er
enn vitað til að
sjúkdómurinn
hafi komið upp i
borginni. Opin-
berlega hefur að-
eins verið skýrt
frá láti 50 manna
vegna plágunnar.
Hægriöfga-
menn sigra
í Belgíu
Brussel. Reuter.
HÆGRIÖFGAMENN unnu mjög
á í borgarstjórnarkosningum í
belgísku hafnarborginni Antwer-
pen um helgina. Er Flæminingja-
blokkinn sem andvíg er innflytj-
endum, nú orðinn stærsti fiokkur-
inn í borgarráðinu en hann tvöfald-
aði fylgi sitt í kosningunum.
55 sæti eru í borgarráðinu og
hefur flæmingjablokkin nú 18 sæti.
„Þetta voru skammarlegar kosn-
ingar,“ sagði Bob Cools, borgar-
stjóri Antwerpen úr flokki sósíal-
ista. Talið er að andstæðingar
hægriöfgamannanna muni mynda
meirihluta til að útiloka þá frá
stjórn.
Þá unnu kynþáttahatarar á í
höfuðborginni Brussel. Blaðið Di-
manche Matin sem hafði spáð
hægrisveiflu, segir hana þó ekki
merki um það að Belgar hneigist
í vaxandi mæli að fasisma, heldur
lýsi fólk óánægju sinni með þessu.
Smábrauöin frá Hatting
Þal er munur...
...á nýbökuðuni og upphítuöum
Þegar þú setur hálfbökuðu Hatting smábrauðin í
ofninn færðu þau nýbökuð út en ekki bara upphituð
- í því liggur stór munur sem vert er að prófa.
Fín og gróf smábrauð og bóndabrauð
Katrímt í fremstu röð!
HHt NÚ AUaÝSNGASTOFA/SlA