Morgunblaðið - 11.10.1994, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.10.1994, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Verðbólga í nokkrum ríkjum Hækkun neysluverðsvísitölu frá ágúst 1993 til ágúst 1994 Rlkl 0 2 4 10% 0 2 4 0 10% •Bráðabirgðalölur Helmlld: Eurostat. 0,1% lækkun vísitölu Verðbólga minnst hér VÍSITALA framfærslukostnaðar miðað við verðlag nú í októberbyijun reyndist samkvæmt reikningi kaup- lagsnefndar vera 170,8 stig, og lækkaði vísitalan um 0,1% frá sept- ember. Vísitala vöru og þjónustu í október reyndist vera 174,7 stig og lækkaði um 0,2% frá september. Samkvæmt upplýsingum frá Hag- stofu íslands var verðbólga hér á landi 0,8% á tímabilinu frá ágúst 1993 til ágúst 1994, og mældist verð- bólga hvergi lægri á Evrópska efna- hagssvæðinu. I fréttatilkynningu frá Hagstof- unni kemur fram að dilkakjöt nýtt eða frosið hækkaði um 8,4% og olli það 0,09% vísitöluhækkun. Verð á bensíni lækkaði um 2,9% sem hafði í för með sér 0,12% lækkun vísitölu framfærslukostnaðar. Orlofsferðir erlendis lækkuðu um 2,4% og olli það 0,07% lækkun vísitölunnar. Lægsta verðbólg'a innan EES Á tímabilinu frá ágúst 1993 til ágúst 1994 reyndist verðbólgan á íslandi vera 0,8% og mældist hvergi lægri verðbólga á Evrópska efna- hagssvæðinu á sama tímabili. Verð- bólgan í ríkjum Evrópusambandsins var 3,1% að meðaltali, 1,7% í Frakk- landi, 2,0% í Lúxemborg, 2,2% í Danmörku og 2,4% í Bretlandi. Málamiðlun við stjórnarkjör á aðalfundi SSH Signrður Geirdal næsti formaður samtakanna FULLTRÚAR Sjálfstæðisflokksins hafa ekki lengur hreinan meirihluta í stjóm Samtaka sveitarfélaga á höf- uðborgarsvæðinu en eiga eftir sem áður helming stjómarmanna að afloknum aðalfundi SSH sem haldinn var á laugardaginn. Samkomulag náðist við stjómarkjör á fundinum um að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins fengju sex fulltrúa í tólf manna stjórn samtakanna gegn því að láta eftir formennsku í samtökunum og náðist málamiðlun um að Sigurður Geirdal, fulltrúi Framsóknarflokks og bæjar- stjóri Kópavogs, yrði næsti formaður SSH. Fyrsta skipti í 19 ár Að sögn Áma Þórs Sigurðssonar, borgarfulltrúa í Reykjavík, mun Sig- urður Geirdal væntanlega taka form- lega við formennskunni á næsta stjómarfundi samtakanna. Er þetta Sjálf stæðismenn fengu 6 fulltrúa af 12 í stjórn í fyrsta skipti í 19 ára sögu SSH sem formaður samtakanna kemur ekki úr röðum sjálfstæðismanna en Sveinn Andri Sveinsson, fyrrv. borg- arfulltrúi, var formaður SSH síðast- liðin fjögur ár. Níu sveitarfélög mynda samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og eru kjörnir fulltrúar alls 73, þar af á Sjálfstæðisflokkurinn 32 fulltrúa en meirihluti annarra flokka er þó mjög tæpur, þar sem nokkrir fulltrú- ar úr minnstu sveitarfélögunum voru kjömir af listum óháðra í kosningun- um sl. vor. Á aðalfundinum vom eftirtaidir Ig'örnir aðalmenn í stjóm SSH: Hilmar Guðlaugsson og Stein- unn V. Óskarsdóttir úr Reykjavík, Arnór Pálsson og Sigurður Geirdal, Kópavogi, Valgerður Sigurðardóttir og Ámi Hjörleifsson, Hafnarfírði, Laufey Jóhannsdóttir, Garðabæ, Jón- as Sigurðsson úr Mosfellsbæ, Erna Nielsen, Seltjarnarnesi, Sigtryggur Jónsson, Bessastaðahreppi, Kolbrún Jónsdóttir, Kjalamesi, og Kristján Finnsson, Kjósarhreppi. Komið í veg fyrir klofning Einn viðmælenda Morgunblaðsins sagði að mæting á aðalfundinn hefði verið sú mesta í sögu samtakanna og að talsverð spenna hefði ríkt fyrir kosningamar. Með samkomulaginu sem gert var hefði tekist að koma í veg fyrir kosningar um formann sam- takanna í stjóm SSH, sem hefði getað haft þær afleiðingar að einstök sveitar- félög drægju sig út úr samstarfinu og að samtökin hefðu klofnað. Bjartsýni Sophiu styttir biðina Istanbul. Morgunblaðið. SOPHIA Hansen tók á móti íslenska landsliðshópnum í knattspyrnu þegar hann kom til Istanbul í fyrri- nótt. Hún brosti breitt, var kát og hress og þakklát fyrir söfnunina hennar vegna á Islandi fyrir helgi. Að þessu sinni hefur Sophia verið í Tyrklandi síðan 21. júní sl., en til stóð að taka forræðismálið fyrir þjá undirrétti í Istanbul 25. sama mánaðar. Ekkert varð af því eins og kunnugt er og þó úrskurðað hafi verið að hún mætti hafa dæturnar hjá sér um hverja helgi, frá klukkan fimm á föstudegi til klukk- an fimm á sunnudegi, hefur faðirinn Halim A1 virt úrskurðinn að vettugi og komist upp með það. „Innst inni veit ég að hann lætur mig ekki fá dætur mínar um helgar, en samt undirbý ég komu þeirra um hverja helgi; tek til, gæti þess að nóg sé til í ísskápn- um og hef allt eins og þær séu að koma.“ Hún segir að biðin hafi verið erfið. Hún hafi brotn- að andlega og líkamlega í fyrra, en nám í tyrknesku í sumar hafi breytt öllu. „Það hélt mér gangandi síðustu tvo mánuði,“ sagði hún og áréttaði að aðgerð- arleysið hefði verið yfirþyrmandi. „Eg var í skólanum frá klukkan níu til eitt á hveijum degi og gerði síð- an varla nokkuð annað en að læra. En nú stend ég líka mun betur að vígi með betri tök á málinu og ég hefði viljað halda áfram, en tyrkneski lögfræðing- urinn minn segir að þeir geti ekki frestað málinu endalaust og því hljóti eitthvað að fara að gerast. Þegar það gerist get ég ekki verið bundin við eitt- hvað annað.“ Mánaðarleigan 70 þúsund Mikil verðbólga er í Tyrklandi og verðlagið óskilj- anlegt, sumt nánast gefið, en svimandi háar upphæð- ir þarf að greiða fyrir annað. Sophia býr ein í blokk- aríbúð í góðu hverfi að hennar sögn og því þarf hún að borga um 70 þúsund krónur í leigu á mánuði. Hún segir að öryggið skipti öllu, en hefur samt vað- ið fyrir neðan sig og geymir til dæmis engin gögn varðandi forræðismálið heima hjá sér. „Eg þori ekki að hafa neitt hérna ef brotist yrði inn hjá mér.“ Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson SOPHIA Hansen í Tyrklandi í gær með einkunna- bókina eftir tyrkneskunámið. Á meðan við sötrum Neskaffi og gæðum okkur á gómsætri köku hringir síminn nær látlaust. Hún svar- ar ekki fyrr en sá sem hringir hveiju sinni hefur talað inn á símsvara. Þegar hún tók á móti landslið- inu var vinur hennar með henni, Iífvörður hennar, og meðan á heimsókninni stóð hringdi hann til að athuga hvort allt væri í lagi. „Hjálp hans hefur verið mér ómetanleg. Hann keyrði mig alltaf í skólann og sótti mig og er mikið hjá mér á kvöldin. Ég veit aldrei á hveiju ég á von og því er mikill styrkur að hon- um.“ Auk þess segist hún eiga nokkra góða vini hérna, sem auðveldi henni biðina. Hver dagur er öðrum lík- ur, „en fóstudagar fara í taugarnar á mér af fyrr- nefndum ástæðum. En skólinn breytti ótrúlega miklu, ég er miklu hressari og er með unnið mál.“ Davíð Oddsson forsætisráðherra í umræðum sem fram fóru á Alþingi Stjórnarslit eru ekki á döfinni DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra lýsti því yfír á Alþingi í gær, að ekki stæði til að ríkisstjómin færi frá eða boðað yrði til kosninga fyrr en í haust. Stjórnarsamstarfið væri traust þrátt. fyrir ágreining þeirra utanríkisráðherra í Evrópumálum. Fulltrúar stjómarandstöðunnar kröfðust hins vegar áfsagnar ríkis- stjórnarinnar, m.a. í ljósi þess að trúnaðarbrestur virtist vera milli oddvita stjómarflokkanna, vafasamt væri að félagsmálaráðherra nyti trausts samráðherra sinna og að Jóhanna Sigurðardóttir hefði sagt af sér ráðherraembætti og sagt sig úr Alþýðuflokknum. Jóhanna sagði hins vegar í umræð- unni að það væri mun meiri ástæða til að krefjast afsagnar ríkisstjómar- innar og kosninga sem fyrst, að í fjárlagafrumvarpinu eða öðrum mál- um stjómarinnar kæmi ekki fram fyrirætlun um að breyta skiptingu þjóðarkökunnar þannig að þeir sern minnst hafa borið úr býtum fái meira í sinn hlut. Könnun á vantrausti Fram fór á Alþingi í gær utandag- skrárumræða um stöðu og stefnu rík- isstjómarinnar að ósk stjómarand- stöðunnar. Var yfirlýst að umræðan væri til þess ætluð að kanna hver staða stjómarflokkanna væri og meta í framhaldinu hvort leggja eigi fram vantrauststillögu á ríkisstjómina. Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokks, hóf umræðuna og sagði nauðsynlegt að oddvitar rík- isstjórnarinnar gerðu grein fyrir sín- um innri málum þar sem í hönd færu mikilvægir samningar við Evr- ópusambandið og viðræður við Norð- menn og Rússa um veiðar í Barents- hafi. Halidór spurði hvort forsætis- ráðherrann ætlaði að sitja áfram þar sem hann hefði ekki lengur traust á sínum eigin ráðherrum. Davíð Oddsson sagði að ekki stæði til að ríkisstjórnin færi frá eða að boða til kosninga fyrr en í vor. Dav- íð sagðist hafa átt mjög gott sam- starf við utanríkisráðherra þótt þá greindi á um ýmislegt. Og einstök ummæli í ræðum eða viðtölum segðu ekki til um hvort nægilegur trúnaður væri milli manna heldur þau verk sem þeir skiluðu. „Ég leyfi mér að fullyrða að árang- ur ríkisstjórnarinnar í efnahagsmál- um sé sá besti og mesti sem nokkur ríkisstjórn hafi náð við jafn erfiðar aðstæður. Sú ríkisstjórn sem nær slíkum árangri hlýtur að hafa and- rúmsloft vinnufriðar innan sinna raða,“ sagði Davíð. Jón Baldvin Hannibalsson utanrík- isráðherra sagðist telja að flestum bæri saman um að staða ríkisstjórn- arinnar væri sterk. Á fyrri efna- hagssamdráttarskeiðum hefði venju- lega allt farið úr böndunum á íslandi en nú væri ríkjandi festa og stöðug- leiki og leitun væri á að ríkisstjórn hefði skilað af sér jafn vel. Ráðist á konu í Breiðholti RÁÐIST var á konu á heimili hennar í Breiðholti aðfaranótt sunnudags. Samkvæmt upplýsingum frá Rannsóknarlögreglu ríkis- ins segist konunni svo frá að hún hafi verið slegin í höfuðið og við það misst meðvitund. Þegar hún kom til sjálfrar sín var árásarmaðurinn á bak og burt en hún með áverka. Þá var búið að rífa hana úr fötun- um að einhvetju leyti. Konan var flutt á móttöku Borgar- spítalans fyrir fórnarlömb nauðgana en að sögn RLR er það sjálfsagt í tilviki sem þessu. Lömb særð eftir haglaskot Eyja- og Miklaholtshreppi. Morgunblaðið. ÞEGAR kindur sem geymdar hafa verið á túninu í Gröf um nokkum tíma voru sóttar þangað, því að nú átti að farga þeim í sláturhúsi í Borgar- nesi, kom í ljós, að tvö lömb voru særð eftir haglaskot, annað sært á munni og and- liti, en hitt á bijósti og fótum. Bæði lömbin þurfti að aflífa. Undanfarið hefur nokkuð verið um það að gæsir væru þar í túni. Byssuglaðar gæsa- skyttur hafa örugglega verið heldur skotbráðar og mann- dóm hefur skort, því að ekki hefur verið veitt leyfí til þess að mega skjóta þar fugla. Sendiráðs- bygging leyfð SKIPULAGSNEFND sam- þykkti í gær að sendiráð verði reist á lóðinni að Laufásvegi 31, þar sem Bretar og Þjóð- verjar vilja reisa sameiginlega sendiráðsbyggingu. Að sögn Guðrúnar Ágústs- dóttur, formanns skipulags- nefndar, vom nefndarmenn sammála um að fyrirhuguð bygging mætti falla betur að umhverfinu. Ákveðið var að fela fulltrúum skipulags- nefndar, bygginganefndar og borgarskipulags að komast að sameiginlegri niðurstöðu þar að lútandi í viðræðum við verktaka. Dóttur vikið úr starfi HELGI V. Jónsson, hrj., veij- andi Björns Önundarsonar, fyrrum tryggingayfirlæknis, gagnrýndi ríkisskattstjóra harðlega við málflutning vegna meintra skattsvika læknisins í Héraðsdómi í gær og sagði m.a. að dóttur Björns hefði verið sagt upp starfi lög- fræðings við embætti ríkis- skattstjóra vegna rannsóknar á máli föður hennar. Dóttir Björns hafi ráðið sig til starfa í virðisaukaskatts- deild Ríkisskattstjóra en henni hafi verið vikið úr starfi eftir tveggja daga starfstíma vegna þess að meint brot föð- ur hennar á lögum um tekju- og eignarskatt hafi þá verið til meðferðar hjá embættinu. ■ Nutu ekki jafnræðis/6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.