Morgunblaðið - 11.10.1994, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Leik-
mannaskóli
kirkjunnar
LEIKMANNASKÓLI kirkj-
unnar starfar í Glerárkirkju í
vetur, um er að ræða átta
sjálfstæð námskeið, kennt
verður fjóra laugardaga fyrir
jól og fjóra eftir áramót. Leik-
mannaskólinn er samstarfs-
verkefni Fræðsludeildar kirkj-
unnar og guðfræðideildar
Háskóla íslands en þar gefst
almenningi kostur á að kynn-
ast ýmsum sviðum guðfræð-
innar.
Eftirfarandi námskeið eru
í boði: Trúfræði, sem dr. Ein-
ar Sigurbjömsson kennir, Sið-
fræði, kennari dr. Björn
Björnsson, Helgisiðir og tákn-
mál kirkjunnar, sem sr. Karl
Sigurbjörnsson kennir, þjón-
usta leikmanns í kirkjunni,
sem Halla Jónsdóttir kennir,
Inngangsfræði Gamla testa-
mentisins, kennari Gunnar J.
Gunnarsson, Kirkjusaga,
kennari dr. Hjalti Hugason,
Sálgæsla, kennari sr. Sigfinn-
ur Þorleifsson, og Inngangs-
fræði Nýja testamentisins,
kennari Gunnar J. Gunnars-
son.
Námskeiðsgjald er 4.000
krónur fyrir heilan vetur og
felur það í sér fræðslu, efnis-
kostnað, hádegisverð og
kaffihressingu í Glerárkirkju.
Einnig er hægt að taka hluta
námskeiðanna, einn laugar-
dag eða fleiri, og kostar þá
hvert skipti 1.000 krónur.
Upplýsingar og innritun eru
hjá Fræðsludeild kirkjunnar á
Biskupsstofu eða í Glerár-
kirkju.
Kyrrðar-
stund
KYRRÐARSTUND verður í
Glerárkirkju miðvikudaginn
12. október frá kl 12 til 13.
Orgelleikur, helgistund, altar-
issakramenti og fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðar-
heimili á eftir.
Sveitarstjórnarmenn sækja yfirgripsmikið fræðslunámskeið
Gott fyrir nýliða á vett-
vangi sveitarstjórna
S VEITARSTJ ÓRNARMENN af
Eyjafjarðarsvæðinu sóttu námskeið
sem fyrirtækið Rekstur og ráðgjöf
hf. efnir til en fyrirtækið hefur sam-
ið við Samband íslenskra sveitarfé-
laga um fræðslumál fyrir sveitar-
stjórnarmenn. Áætlað er að halda
alls 15 námskeið víðs vegar að um
landið á næstu tveimur mánuðum
en frá Akureyri lá leiðin til Húsavík-
ur þar sem þingeyskir sveitarstjóm-
armenn sækja þetta námskeið.
Tveir fyrrverandi sveitarstjórar á
Fáskrúðsfirði reka fyrirtækið
Rekstur og ráðgjöf, þeir Jón Gauti
Jónsson og Þröstur Sigurðsson, og
hafa gert síðustu 5 ár. Þeir hafa
nær eingöngu starfað að margvís-
legum ráðgjafaverkefnum fyrir
sveitarfélög.
Góð blanda
„Þetta er mjög skemmtilegur
hópur, blanda af reyndum sveitar-
stjórnarmönnum og nýliðum þannig
áð stemmningin er góð. Þá var
þátttaka líka einstök, eða 100%,
allir sem skráðu sig mættu, sam-
tals 28 manns,“ sagði Jón Gauti
en hann sagði hina reyndari á sviði
sveitarstjórnarmála gefa námskeið-
Guðný Þórarinn B.
Sverrisdóttir Jónsson
unum mikið gildi og margar dæmi-
sögur væru sagðar. „Þetta nám-
skeið víkkar sjóndeildarhring þeirra
sem reyndari eru og hinir nýrri
komast meira inn á svið sveitar-
stjórnarmálanna þar sem miklar
breytingar eru í gangi um þessar
mundir."
Námskeiðið skiptist upp í fjóra
meginþætti, umhverfi sveitarstjóm-
armála, stjórnskipulag, verkefni
sveitarstjóma og íjármál. Hvað
fyrsta þáttinn varðar er gerð grein
fyrir samstarfi sveitarfélaga og lýst
helstu forsendum fyrir samstarfi við
ríkisvaldið og einstakar stofnanir.
í kafla um stjórnskipulag er
dregin upp mynd af stjórnsýslu
sveitarfélaga, gerð grein fyrir und-
irbúningi og framkvæmd kosninga
og starfsháttum sveitarstjórna,
nefnda og ráða. í kafla um verk-
efni er farið yfir forsendur fyrir.
sameiginlegum tekjum og heístu
málaflokkum á verkefnasviði sveit-
arstjórna lýst en sérstök grein er
gerð fyrir þeim þremur málafiokk-
um sem hátt ber, félagsþjónustu,
fræðslumálum og atvinnumálum.
Síðasti hluti námskeiðsins fjallar
um íjármál og er þar almennt farið
yfir fjármál sveitarfélaga og fjár-
málastjórn.
Gagnlegt
„Þetta var býsna gagnlegt og ég
hafði gaman af,“ sagði Guðný
Sverrisdóttir sveitarstjóri í Grýtu-
bakkahreppi. „Það er ekki spurning
að þetta námskeið er einkum og
sér í lagi afar gagnlegt fyrir þá sem
eru að hefja þátttöku í sveitar-
stjórnarmálum, það ætti í raun að
vera skylda að fyrir fólk sem er að
byija að starfa á þessum vettvangi
að sækja námskeið af þessu tagi.
Það er farið yfir alla hluti sem varða
sveitarstjórnarmál og þarna fær
fólk þá beint í æð á einu bretti,
hluti sem oft eru annars að síast
smám saman inn í áranna rás. Fyr-
ir okkur, þessa gömlu rebba, er
gagnlegt að staldra aðeins við og
riíja upp,“ sagði Guðný.
„Þetta var mjög fræðandi nám-
skeið, sérstaklega gott fyrir nýliða
á þessum vettvangi eins og ég er,“
sagði Þórarinn B. Jónsson fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn
Akureyrar að loknu námskeiðinu.
„Ég fór á þetta námskeið af fullri
einlægni til að læra og mér þótti
þetta afar fræðandi og skemmti-
legt. Það var meðal annars komið
inn á ábyrgð bæjarfulltrúa á þessu
námskeiði, þeir verða að fylgjast
vel með og í raun er ekkert sem
þeim er óviðkomandi. Það má því
segja að þetta hafi skerpt skilning-
inn á því hvert hlutverk manns er
í bæjarstjórninni."
Morgunblaðið/Rúnar Þór
TVEIR fyrrverandi sveitarstjórar á Fáskrúðsfirði sem nú eiga
fyrirtækið Rekstur og ráðgjöf sjá um námskeið fyrir sveitar-
sljórnarmenn sem lialdin verða víða um land, en fyrir helgi
voru eyfirskir sveitarstjórnarmenn á slíku námskeiði.
Sendum einnig miða hve
á land sem er!
HAPPDRÆTTI
HJARTAVERNDAR
1. VINNINGUR sssst
Pajero Super Wagon jeppi, sjálfskiptur, V.6. árg. 1995
A
MITSUBISHI
MOTORS
HJARTAVERND ÚRVALÚTSÝN
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Hugsa um
spægipyls-
una eins og
barn í vöggu
ÓSKAR Erlendsson kjötiðnaðar-
maður hjá Kjötiðnaðarstöð KEA
varð í öðru sæti í alþjóðlegri
meistarakeppni í kjötiðn sem hald-
in var í Herning í Danmörku ný-
lega, að keppni lokinni voru þeir
tveir efstir og jafnir að stigum,
hann og Dani nokkur sem Óskar
laut síðan í lægra haldi fyrir eftir
nánari yfirlegu dómara. Óskar
hlýtur nafnmótina landsmeistari í
kjötiðn eftir þessa keppni.
Hann sagði íslenska liðið hafa
staðið sig afar vel í keppninni, en
alls var sendur 41 réttur frá ís-
landi og hlutu þeir 35 verðlaun, 8
gull, 17 silfur og 10 brons. Óskar
hefur tvívegis tekið þátt í þessari
keppni og gekk hinum einnig
ágætlega í fyrra sinnið. „Eg
renndi þá blint í sjóinn, en sendi
m.a. pylsu, Pedersensalami og
fékk gull fyrir. Ég nefndi þessa
pylsu eftir dönskum svínahirði
sem bjó hér á Akureyri en þarna
úti í keppninni voru menn að tala
um þessa pylsu og allir þekktu
Pedersen - ýmist sem kaupmann-
inn á horninu eða einhvern ann-
an,“ sagði Óskar.
Spægipylsa hans fékk gullverð-
laun í nýafstaðinni keppni. „Það
kom mér ekki á óvart," sagði Ósk-
ar og bætti við að sú íslenska
gæfi rómaðri danskri spægipylsu
ekkert eftir. „Það er mikil þekk-
ing til staðar á þessu sviði hér og
við erum með á Akureyri besta
spægipylsuskáp á landinu, full-
kominn að allri gerð og smíðaður
hér í bænum. Það þarf að hugsa
um spægipylsuna eins og barn í
vöggu til hún verði eins og best
verður á kosið,“ sagði Óskar.
Þá má nefna að Öskar fékk
gullverðlaun fyrir lundabringur
og silfur fyrir lundasultu, lax og
graflax í villibráðarflokki og þá
fékk hann silfurverðlaun fyrir
hangilægi og hangiframpart.
„Upphaflega átti þetta að vera
vetrarstarf, ég fékk vinnu hér
einn vetur meðan ég var að bíða
eftir að komast að hjá Prentverki
Odds Björnssonar en þar ætlaði
ég að læra að verða setjari. Nú
eru liðin 25 ár og mér finnst enn
jafngaman í vinnunni og hér ætla
ég að vera áfram meðan ég verð
ekki rekinn," sagði hann.
Geisladrif
llljóilkorí
frá kr. 17.900,-
*BGÐEIND-
Austurströnd 12. Sími 612061. Fax 612081
---------— ___________/