Morgunblaðið - 11.10.1994, Blaðsíða 53
í
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1994 53
UNGLINGAR
„Tecno“-hátíðin
„Energy ’94“
Helgina 12. til 14. ágúst
síðastliðinn tóku u.þ.b.
40.000 ungmenni þátt
í einni háværustu og
skrautlegustu hátíð sumarsins.
Bar hátíðin titilinn „Energy ’94“
og var hún haldin í annarri af
stærstu borgum Sviss, Zúrich. Til-
gangurinn var að dansa í takt við
„tecno“ eða raftónlist sem hefur
aldrei verið vinsælli en nú. Einn
af hápunktum helgarinnar var
stærðar skrúðganga þar sem 13
margvíslega skreyttir vörubílar
óku um göturnar hlaðnir plötu-
snúðum, hátölurum, mögnurum
og dönsurum. í kring um bílana
dansaði svo fjöldinn allur af fólki
í um 7 km langri fylkingu sem
liðaðist um göturnar. Það voru
ekki einungis Svisslendingar sem
tóku þátt í hátíðinni
heldur var þama einn-
ig fólk frá öðrum Evr-
ópulöndum, s.s.
Þýskalandi, Frakk-
landi og Ítalíu og einn-
ig mátti sjá íjöldann
allan af Englending-
um og að minnsta
kosti einn íslending
(undirritaða).
Flestir byrjuðu að
skemmta sér á föstu-
dagseftirmiðdegi og
voru svo að allan laug-
ardaginn og langt
fram á sunnudag. Eft-
ir gönguna dreifðist
fjöldinn á nokkur stór
diskótek þar sem raftónlistin
glumdi í eyrum furðuklæddra
Si(ja
Kristjánsdóttir
Ljósmynd/Silja Kristjánsdóttir
FRÁ „Energy ’94“.
Hvar eru þau og hvað eru þau að gera?
Borðtennis mest
spilað í Kína
Arni Rafn Gunnarsson er
að verða 14 ára og hef-
ur stundað borðtennis
með íþróttafélagi fatl-
aðra í fimm ár og segir
hér á eftir aðeins frá því.
Borðtennis er leikur milli
tveggja einstaklinga sem felst í
því að slá lítilli kúlu á milli sín á
þar til gerðu borði. Borðtennis er
spilað út um allt en sennilega
mest í Kína. Ég fór að spila borð-
tennis eftir að ég fékk fréttabréf
frá íþróttafélaginu mínu. Ég kíkti
FRJALSAR HENDUR
Hanskinn er sendur í félagsmiðstöðina Vitann í Hafnarfirði.
dansara, þar til þeim
var hent út þegar
mánudagurinn tók að
líta dagsins ljós.
Hátíðin fór í flesta
staði vel fram og fast
á hæla göngunnar
mátti. sjá sérútbúna
bíla og götusópara
hreinsa dósir og ann-
að drasi sem göngu-
menn skildu eftir sig.
Engin teljandi slys
urðu á fólki, en á
sunnudeginum var
mikið um einstaklinga
sem hnigu niður ör-
magna af þreytu eftir
72 klst. vöku. Reynd-
ar var mikið um drykkju ólöglegra
svaladrykkja sem notaðir voru til
þess að halda sér vakandi. Þessir
drykkir innihalda um 80 sinnum
meira magn af koffíni en venjulegt
kók og auk þess eru í þeim örv-
andi lyf.
Hátíð eins og þessi hefur einu
sinni áður verið haldin í Zúrich,
en það var árið 1992. Þá mættu
um 2.000 ungmenni, en vegna
þess hve mikill sóðaskapur var
eftir dansarana ætlaði borgarráð
ekki að leyfa samkomuna að þessu
sinni. En eftir vel heppnaða og
skemmtilega „Energy ’94“ huga
menn nú að því að gera þetta að
árlegum viðburði.
Silja Kristjánsdóttir
ASKORUN
Áskorunin á milli gi-unnskóla
hefur legið niðri í sumar en
fer nú aftur á stað og byrjar
á Höfn í Homafirði. Við skor-
um á nemendafélag grunn-
skólans á HÖfn að skrifa um
„SMUGUVEIÐAR”.
Hef hug á því að
verða flugmaður
Nafn: Sigrún Runólfsdóttir
Heima: Kópavogi Aldur: 13
ára Skóli: Hjallaskóli Hver
myndir þú vilja vera ef þú
værir ekki þú? Keisarinn í
Kína Hvemig er að vera
unglingur í dag? Það er fínt,
vegna þess að skólinn er ágæt-
ur og félagslífíð gott.
Sumir segja að það
sé erfitt að vera ungl-
ingur en mér finnst
það ekki. Samt fer í
mig þegar fullorðna
fólkið segir t.d „þú
ert orðin svo stór að
þú átt að geta gert
þetta" en segir svo
rétt á eftir „þú ert
ekki orðin nógu stór
til að gera þetta“.
Hvað er unglingavandamál?
Ég held að unglingarnir skapi
sér vandamálin sjálfír. Sérstak-
lega þeir sem nenna ekki að
læra og eru bara að skemmta
sér, drekka og reykja, en hinir
sem ekki gera það eiga held
ég ekki við nein vandamál að
stríða. Getur skólinn verið
betri en hann er? Ætli hann
gæti það ekki, en ég man ekki
eftir neinu sem mér finnst að
UN JL
INGU
það þyrfti að breyta. Hverju
myndir þú vilja breyta í þjóð-
félaginu? Það mættu vera
fleiri og fjölbreytilegri störf
fyrir unglinga, eitthvað annað
en unglingavinnan. Hvað er
það skemmtilegasta sem þú
gerir? Mér finnst skemmtileg-
ast að vera með vin-
um mínum, svo
finnst mér rosalega
skemmtilegt að sofa
og borða nammi og
svo finnst mér líka
skemmtilegt að
dansa. Hvað er það
leiðinlegasta sem
þú gerir? Vakna
klukkan sjö á
morgnana til að fara
í skólann. Hvað ætl-
ar þú að verða þegar þú
verður stór? Mig langar helst
til að verða flugmaður. Hvað
viltu ráðleggja þeim sem
umgangast unglinga? Að
vera nærgætnir og gefa sér
tíma fyrir unglingana. Hvern-
ig er fyrirmyndarunglingur?
Eg held að það sé bara ég.
Hver er munurinn á hesti og
hól? Munurinn er sá að hóll
er grænn og hestur er brúnn.
á æfingu og komst að því að þetta
væri einmitt eitthvað fyrir mig.
Ég æfi núna þrisvar í viku og
keppi á flestum mótum sem mér
standa til boða. Borðtennis er líka
mikið stundað í félagsmiðstöðinni
hérna, Árseli, og þar gríp ég
stundum í spaðann. í skólanum
myndast líka oft langar biðraðir
til að komast í borðin í frímínút-
um. Ég á líka önnur áhugamál,
ég spila fótbolta og hjóla mikið,
svo það er alltaf nóg að gera hja
mér, sagði Árni Rafn að lokum.