Morgunblaðið - 11.10.1994, Síða 20

Morgunblaðið - 11.10.1994, Síða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Tvísýnt í Þýska- landi KANNANIR í Þýskalandi benda til þess að afar mjótt sé á mununum í baráttu stjórn- ar og stjórnarandstöðu en þingkosningar verða í landinu á sunnudag. Tímaritið Focus birti í gær könnun sem gaf Kristilegum demókrötum og stuðningsflokki þeirra í Bæj- aralandi, Kristilega sósíalsam- bandinu, ásamt Fijálsum dem- ókrötum 47,5% en andstæð- ingunum, þ.e. arftökum kommúnistaflokksins gamla, græningjum og jafnaðarmönn- um samanlagt 48%. Mainz kaupir ufsa EKKERT norskt fískvinnslu- fyrirtæki hefur keypt jafn mik- ið af ufsa í sumar og þýska verksmiðjuskipið Mainz. Skip- ið hefur verið á vakki í grennd við Hammerfest í sumar og keypt af nótabátum, alls um 8.000 tonn. Talsmaður sölu- sambands sjómanna benti á að mjög fá innlend fyrirtæki hefðu áhuga á ufsa og ein- hvers staðar yrðu sjómenn að geta losnað við aflann en ufsa- kvótinn á árinu er 46.000 tonn við Norður-Noreg. Berlusconi hyggst sitja SILVIO Ber- lusconi, for- sætisráð- herra Ítalíu, ætlar ekki að segja af sér embætti jafn- vel þótt Beriusconi kannað verði formlega hvort hann sé sekur um spillingu. Hann segist vera saklaus af öllu slíku og hafa umboð kjósenda til að stjórna. Þýfi var ekki Rembrandt OLÍUMÁLVERKIÐ „Maður með skegg" sem stolið var úr safninu Rembrandthuis í Amsterdam á sunnudag var ekki eftir meistarann sjálfan, Rembrandt van Rijn, að sögn forstjóra safnsins. Hann segir sérfræðinga nú vera sann- færða um að það hafi verið málað af óþekktum lærisveini Rembrandts. Tansaníu- aðstoð nýttist illa EMBÆTTISMENN í Hollandi segja í nýrri skýrslu að þróun- araðstoð við Tansaníu árin 1980-1992, sem nam um 4.000 milíjónum dollara, hafi nýst illa og sama sé að segja um aðstoð annarra landa við Afríkurikið. Fullyrt er að megnið af þeim fyrírtækjum sem féngið hafi aðstoð séu iila rekin og mistekist hafi að skjóta stoðum undir innlendan verksmiðjuiðnað. Sagt er að til sveita hafí stjórnvöld ekki séð um að fólk fengi nóg af hreinu vatni og í menntakerf- inu sé vanhæft fólk. Uppstokkun í austurrískum stjórnmálum eftír þingkosningar Frelsisflokkur Haiders ótvíræður sigurveg'ari Vín. Reuter. FRELSISFLOKKUR Jörgs Haiders, FPÖ, er ótvíræður sigurvegari aust- urrísku kosninganna um helgina, líkt og búist hafði verið við. Hlaut flokk- urinn 22,6% atkvæða, sem er sex prósentustigum meira en í kosningunum árið 1990. Stjórnarflokkarnir tveir, Jafnaðarmannaflokkurinn (SPÖ) og Þjóðarflokkurinn (VPÖ) misstu mikið fylgi en halda þó þingmeirihluta sínum. Hann minnkar hins vegar úr 138 atkvæðum í 118. Þar með hefur stjórnin ekki lengur stuðning 2/3 þingmanna og þarf að leita samstarfs við einhvem stjómarandstöðuflokk í öllum málum er snerta stjómarskrána. Reuter LÖGREGLUMENN leita að vísbendingum í brunarústum húss skammt frá Montreal í Kanada þar sem lík fimm Iiðsmanna sértrúarsafnaðarins Reglu sólmusterins fundust. Frelsisflokkurinn er yst til hægri í austurrískum stjómmálum og hefur hamrað á því í kosningabaráttunni að aukna glæpatíðni megi rekja til hins mikla fjölda innflytjenda í land- inu. Er talið að þessi málflutningur hafi gert að verkum að margir hefð- bundnir kjósendur jafnaðarmanna úr röðum verkamanna, hafi kosið flokk Haiders í þetta skipti. Orðrómur hefur verið uppi um að ekki sé útilokað að flokkurinn taki upp samstarf við ÖVP um stjómar- myndun og vísað hefur verið til Ítalíu í því sambandi, þar sem hefðbundnir hægriflokkar og flokkar yst til hægri hafa tekið upp sam- starf. Þegar úrslitin lágu fyrir sagðist Haider hins vegar ekki sækjast eftir stjómarþátttöku að sinni en lýsti því jafnframt yfir að hann hygðist vinna að því á þessu kjör- tímabili að efla flokk sinn enn frekar, þannig að hann gæti tekið við völdum í Austurríki árið 1998. Hann sagðist ekki hafa áhuga á samstarfi við ÓVP og að það nægði honum að sinni að hafa vald til að veita stjóminni áminningu við og við. Leiðarahöfundur Die Presse taldi þó ástæðu til að benda Haider á að það væri „löng leið“ frá 23 prósent- um yfir í kanslarahöllina. Afhroð stjórnarflokkanna Flokkarnir SPÖ og VPÖ hafa að mestu farið með völdin í landinu frá stríðslokum og em niðurstöður kosn- inganna mikið áfall fyrir þá. Hefur hvorugur flokkurinn hlotið minna fylgi í kosningum frá árinu 1945. SPÓ hlaut 35,2% atkvæða sem er 7,6% minna en í kosningunum 1990. ÖVP hlaut 27,7% atkvæða sem er 4,4% minna fylgi en síðast. Franz Vranitzky, kanslari og leið- togi SPÖ, og Erhard Busek, leiðtogi VPÖ, hafa þegar hafið stjómarmynd- unarviðræður, en því hefur verið lýst yfir að stjómarsamstarfið verði að byggjast á nýjum forsendum. Reuter Dularfull fjöldamorð á félögum sértrúarsafnaðar Morðin sögð skipulögð á leynifundi í Genf Genf. Daily Telegraph. Reuter. SVISSNESKA lögreglan freistar þess að hafa hendur í hári 68 ára gamals Svisslendings, Camille Pilet, sem talinn er tengjast dularfullum morðum á 48 félögum sérstrúar- safnaðarins „Reglu sólmusterisins" í síðustu viku. Er Pilet sagður vera „íjármálastjóri" safnaðarins ogeinn þriggja höfuðpaura hans, ásamt Kanadamanninum Joseph di Mambro og belgíska hómópatanum Luc Jouret. Pilet er lýst sem lágvöxnu glæsi- menni. Hann sást í fylgd með di Mambro og Jouret fimm dögum fyrir morðin í Granges-sur-Salvan og Cheiry í Sviss. Ðvöldust þeir þrír lengi kvölds ásamt nokkrum öðrum á hótelherbergi í Genf og gerði Pilet upp reikninginn með krítarkorti sínu. Svissneskir fjöl- miðlar hafa leitt getum að því, að á þessum fundi hafi verið lagt á ráðin um aftökumar í búðum safn- aðarins í Cheiry og Granges-sur- Salvan. Pilet er 68 ára fyrrum sölu- stjóri þekktrar svissneskrar. úra- verksmiðju. Hann sást oft í fylgd di Mambro og Jouret, að sögn vitna sem gefíð hafa sig fram. Skömmu fyrir morðin keypti hann eitt hús- anna sem kveikt var í við Granges. Söfnuðurinn tal- inn skálkaskjól fyrir alþjóðleg vopnaviðskipti Tvö skyldmenni Josephs di Mam- bros í Kanada töldu sig bera kennsl á lík hans af mynd sem tekin var í líkhúsinu í Lausanne og hefur svissneska lögreglan nú staðfest það. Talið er að di Mambro, sem stendur á sjötugu, hafí verið heilinn á bak við alþjóðlega fjármálastarf- semi safnaðarins. Samkvæmt fregnum fjölmiðla í Kanada er talið að „Regla sólmusterisins" hafi verið skálkaskjól fyrir peningaþvott og alþjóðleg vopnaviðskipti. Gefín hef- ur verið út handtökutilskipun á hendur Jouret fyrir morð og íkveikju en hann er taiinn háfa líf safnaðarmannanna 48 í Sviss í síð- ustu viku og líf fímm manna í Kanada á samviskunni. Nýjar vísbendingar komu fram á sunnudag sem benda til þess að flestir safnaðarmanna hafí ekki dáið sjálfviljugir, heldur verið skotnir, barðir eða jafnvel brenndir til bana. Rannsókn á fimm líkum sem fundust í brunarústum húss í eigu di Mambros og Jourets í Mor- in Height, skammt frá Montreal í Kanada, hefur leitt í ljós að viðkom- andi hafí verið drepnir mörgum dögum áður en húsið brann. Hafði þeim m.a. verið byrlað eitur. Grunur leikur á að di Mambro og Jouret hafi komið sér úr landi og er þeirra leitað m.a. í Frakk- landi og Ástralíu. Þangað höfðu þeir ferðast nokkrum sinnum á síð- ustu árum. Dvaldist di Mambro á Gullströndinni svonefndri í Queens- land frá því haustið 1993 og fram á sl. vor en frá Ástralíu fóru þeir Jouret með sömu flugvél 10. apríl sl. til Evrópu. Svissneskt blað hefur birt „kveðjubréf" frá safnaðar- manni þar sem segir að 6. janúar sl. klukkan fjögur að morgni, hafí „liðsmenn í Sydney horfíð úr þess- ari jarðvist." Rannsakað er hvað hæft sé í því. Þá þótti það flækja rannsóknina á morðmálunum að vegabréf di Mambro og eignkonu hans bárust franska innanríkisráðuneytinu í pósti fyrir helgi. Var bréfíð stílað á Charles Pasqua. innanríkisráð- herra. JÖRG Haider, formaður Frelsisflokksins, t.h., fagnar úrslitum kosninganna ásamt Walter Meischberger, framkvæmdastjóra flokksins. Nóbelsverðlaun í læknisfræði Veitt fyr- ir frumu- rannsóknir Stokkliólmi. Reuter. TVEIR bandarískir vísindamenn, sem bætt hafa miklu við þekkingu manna á því hvemig frumur manns- líkamans geta varist eða ýtt undir sjúkdóma, hljóta Nóbelsverðlaunin í læknisfræði í ár. Alfred Gilman og Martin Rodbell hljóta verðlaunin fyr- ir uppgötvun sína á g-próteini, nokk- urs konar lífrænum umferðarljósum, sem stýrir líkamanum en getur vald- ið sjúkdómum ef það brotnar niður. Þá styttist í það að tilkynnt verði um friðarverðlaunahafa Nóbels í ár, en það verður gert á föstudag. Gilman og Rodbell munu deila með sér sem svarar 65 milljónum ísl. kr. í desember er verðlaunin verða af- hent. Verðlaunin í læknisfræði eru fyrstu Nóbelsverðlaunin sem tilkynnt er um í ár. Rodbell er 68 ára og starfar við Bandarísku umhverfis- og heilbrigð- isstofnunina í Norður-Karólínu. Á 7. og 8. áratugnum sýndi hann fram á hvernig boð bærust á milli fruma. Gilman, 53 ára prófessor í lyfjafræði við Texas-háskólann, kannaði á grundvelli rannsókna Rodbells hvaða áhrif boðtruflanir í frumum hefðu á líkamann. Rannsóknir Gilmanns á 8. og 9. áratugnum leiddu í ljós g- prótein í heilbrigðum frumum. Sé það fært yfír í sýktar eða gallaðar frum- ur, bætir það starfsemi þeirra. Arafat, Rabin og Peres Israelar og Palestínumenn eru taldir líklegastir til að hreppa friðar- verðlaun Nóbels í ár, þ.e. Yasser Arafat, leiðtogi Frelsishreyfíngar Palestínumanna, Yitzhak Rabin fór- sætisráðherra og Shimon Peres, ut- anríkisráðherra Israels. Eiie Wiesel, friðarverðlaunahafi frá 1986, gat sér þess til í gær, að Nóbelsstofnunin ætti í erfiðleikum með að ákveða hvort Rabin eða Peres ætti að deila verðlaununum með Arafat.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.