Morgunblaðið - 11.10.1994, Page 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
PROFKJOR
28. og 29. október
• •
Markús Orn
í 4. sæti
Stuöningsfólk!
Verið velkomin á
skrifstofuna
Suðurlandsbraut 20.
Opið : 16.30-21.30.
Laugard. og sunnud.:
13.30- 18.00.
Símar: 882299 8c
883399
AÐSENDAR GREINAR
In memoriam
PRESSAN er látin.
Hún nærðist á óförum
annarra og voru til-
raunir til mannorðs-
sviptingar henni afar
hugleiknar og virtist
einu gilda hvort stuðst
var við sögusagnir eða
staðreyndir. Á stuttri
lífsleið varð henni tíð-
rætt um hið neikvæða
og lét hún sig í raun
fátt annað varða. Það
kom því fáum á óvart
að hún skyldi látast úr
næringarskorti.
Pressan varð fáum
harmdauði. Þeim sem
vildu minnast hennar
er bent á Sorpu, því þar hvílir hún
innan um forvera sína. Eg votta
lesendum blaðsins og föstum áskrif-
endum, sem nú eru án síns lifi-
brauðs og næringar, innilegustu
samúð mína.
Sölumennska eða
fagmennska?
Skömmu fyrir síðasta svanasöng
Pressunnar virðist sölusjónarmið
Karl J.
Steingrímsson
hafa ráðið ferðinni á
kostnað fagmennsku.
Forsíður blaðsins
skömmu fyrir andlátið
bera þess glöggt vitni
að alvarlegur sjúk-
dómur hafi heijað á
blaðið innanfrá. Það
skyldi þó aldrei vera
að blaðamenn Press-
unnar hafi látið eigin
gremju ráða skrifum
sínum, þegar þeir
stóðu frammi fyrir því
að fá laun sín ekki
greidd og látið það
bitna á umhverfi sínu,
einstaklingum og fyr-
irtækjum, m.a. með
Windows grunimámskeið
:mmM Töhm-og verkfræöiþjónustan
uskóli Halldórs Krístjanssonar
94025
Tölvuskóli Halldórs Kristja
Grensásvegi 16 • ® 68 80 90
hálfkveðnum vísum á forsíðu og
sleggjudómum.
Siðgæði blaðamanna
Að mínu mati ber blaðamönnum
að gæta hlutleysis og þess að skrif
þeirra endurspegli ekki augnabliks
hugarástand. Blað sem byggir nær
eingöngu á æsifréttamennsku verð-
ur aldrei langlíft, eins og sagan
segir okkur. Enginn kemst langt á
því að stjórnast af öfund og sá ill-
gresi í garð annarra. Það er afar
slæmt til þess að vita að sumir
blaðamenn slíti barnsskónum hjá
blaði, sem gengst upp í því hlut-
verki að sverta mannorð manna,
án þess að þeir hinir sömu geti
borið hönd fyrir höfuð sér.
JsL
W W
t Æ
W
BYKO
m *
Morgunpósturinn
- Nýtt blað?
Það er eindregin von mín að
Páll Magnússon og Gunnar Smári
Egilsson, nýráðnir ritstjórar Morg-
unpóstsins, beri gæfu til að stýra
blaði sínu sem lengst frá þeirri nið-
urrifs blaðamennsku sem öðrum
fermur einkenndi skrif Pressunnar
og forvera hennar.
Grjóti kastað úr glerhúsi
Hverjir sjá sér hag í slíkri blaða-
mennsku? Hvaða sjónarmið liggja
þar að baki? Nú er ljóst að sorp(u)
blöð hafa lagt upp laupana hvert á
fætur öðru, skuldum vafin og með
ótal mannorðsmorð á samviskunni.
Það er einkennilegt til þess að
vita að forvígismenn Pressunnar
hafa slegið upp á forsíðu æsifréttum
af kennitöluskiptum fyrirtækja og
einstaklinga en eru nú uppvísir að
því sama (fyrst Blað hf., síðan
Pressan hf.). Sömu mennirnir virð-
ast geta risið upp með hveiju nýju
blaði af þessum toga, svo sem Frið-
rik Friðriksson og hans fylgisvein-
ar. Það þarf hugsanlega ekki annað
en að búa til nýja kennitölu og all-
ar skuldir eru að baki. Því næst
þarf að hafa snör handtök við að
slá upp hálfkveðnum vísum á for-
síðu, því það þarf jú að kosta herleg-
heitin, þar til skútunni verður hugs-
anlega aftur siglt í strand.
Það skyldi þó aldrei vera að þess-
ir sömu menn óttist að spjótunum
verði beint að þeim, að þeir vilji
ráða yfir hengingarólinni, svo að
þeir lendi ekki í henni sjálfir. Hafa
þessir menn kannski eitthvað að
fela?
Beðini um
gjaldþrotaskipti
Hinn 28. júlí sl. var iögð fram
beiðni hjá Héraðsdómi Reykjaness
um gjaldþrot á Blaði hf. vegna
kröfu frá Má Péturssyni. Már er
héraðsdómari við héraðsdóm
Reykjaness og mun málið ekki enn
hafa verið tekið fyrir, þar sem dóm-
arar hjá dóminum telja sig vanhæfa
til að taka málið fyrir sökum tengsla
við gerðarbeiðanda. Ólöf Péturs-
dóttir dómstjóri þarf því að óska
eftir því við dómsmálaráðherra að
Ekki veit ég kennitölu
Pressunnar „hinumeg-
in“, segir Karl J. Stein-
grímsson. Þar nægir
líklega ekki að skipta
um kennitölur, til að
koma sér út úr klandri,
enda hygg ég, án þess
að hafa fyrir því óyggj-
andi sannanir, að þar
þurfi menn að standa
skil á gjörðum sínum.
hann skipi setudómara í málinu, til
að hægt verði að taka það fyrir.
Hvers vegna hefur þetta ekki verið
framkvæmt?
Birningur eða Barningur?
Hlutafélög sem vitað er að tengj-
ast Friðriki eru: Blað hf., Bimingur
hf., Pressan hf., Tímaritadreifing
hf. (áður Ófeigur hf.), Heimreiðin
hf., Heimsmynd hf. og Viðreisn hf.
Öll félögin eru með einn mann í
stjórn og einn til vara. Friðrik er
stjórnarmaður í öllum félögunum,
en ekki virðist vera neinn varamað-
ur nema í Birningi hf., Friðrik Krist-
jánsson, faðir Friðriks. Birningur
hf., Heimreiðin hf. og Pressan hf.
eru stofnuð af Friðriki og föður
hans. Næsta hlutfélag verður
kannski Barningur hf.
Að standa skil á
gjörðum sínum
Ekki veit ég kennitölu Pressunn-
ar „hinumegin". Þar nægir líklega
ekki að skipta um kennitölur, til
að koma sér út úr klandri, enda
hygg ég, án þess að hafa fyrir því
óyggjandi sannanir, að þar þurfi
menn að standa skil á gjörðum sín-
um.
Höfundur er verslunareigandi og
framkvæmdastjóri.
Frystikisturnar frá Elcold eru löngu landskunnar fyrir öryggi og sparneytni.
Núna bjóðum við þessar dönsku umhverfisvænu frystikistur á verði sem allir ráða við.
Skiptiborö 41000, 641919
Verslun, Breiddinni, Kópavogi:
Hólf og gólf, afgreiðsla 641919
Almenn afgreiðsla 54411, 52870
Almenn afgreiðsla 629400
Almenn afgreiösla 689400, 689403
Grænt símanúmer BYKO
Grænt númer 996410
FicaidL
í KRINGLUNNI
Söluaðilar: Ljósgjafinn, Akureyri - Núpur, Isafirði - K.H.B., Egilsstöðum - Skipavik, Stykkishólmi.
FLUGFRAKT
HAUSTFUNDUR
ÚTFLUTNINGSRÁÐS FÍS
Útflutningsráð Félags íslenskra stórkaupmanna boðar
til fundar í dag 11. október
kl. 12.00 í Skálanum, Hótel Sögu.
Fjallað verður um fraktflutninga í flugi.
Erindi á fundinum flytja:
Sigurður Björnsson, Menju hf.
Þórarinn Kjartansson, Cargolux.
Pétur J. Eiríksson, Flugleiðum.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma 888910.
Þátttökugjald með hádegisverði er kr. 2.500.-.
FUNDURINN ER ÖLLUM OPINN.
- kjarni málsins!