Morgunblaðið - 11.10.1994, Qupperneq 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Skrifstofa stuðningsmanna
Guðmundar Hallvarðssonar
er að Suðurlandsbraut 12.
Opið
virka daga kl. 14-22
og um helgar kl. 13-19.
Símar 882360 og 882361.
Velium Guðmund í 5. sætið - maður allra stétta.
ara
afmællstilboð
KitchenAid'
í tilefni 30 ára afmælis okkar og 75 ára afmælis KitchenAid
bjóðum við takmarkað magn af nýjustu heimilishrærivélinni K90
á kr. 31.400 (rétt verð kr. 36.900).
Staðgreitt kr. 29.830.
K90 véiin er framtíðarvéi með enn sterkari mótor og hápóleraðri
stálskál með handfangi.
Fjöldi aukahluta er fáanlegur, m.a. kommylla og kransakökustútur.
íslensk handbók fylgir.
Kitch« ,
Lágvær - níðsterk - endist kynsloðir
Umboðsmenn:
REYKJAVlKURSVÆDI:
Heimasmiðjan, Kringlunni
Húsasmiöjan, Skútuvogi
Rafvömr hf., Ármúla 5
H.G. Guöjónsson, Suöurveri
Rafbúðín, Álfaskeiði 31, Hafnarf.
Miðvangur, Hafnarfirði
VESTURLAND:
Rafþj. Sigurdórs, Akranesi
Kf. Borgfirðinga, Borgamesi
Blómsturvellir, Hellissandi
Versl. Hamrar, Grundarfirði
Versl. E. Stefánssonar, Búðardal
VESTFIRDIR:
Kf. Króksfjaröar, Króksf.
Skandi, Tálknafiröl
Kf. Dýrfiröinga, Þingeyri
Laufið, Bolungarvík
Húsgagnaloftiö, ísafiröi
Straumur, (safirði
Kf. Steingrímsfjarðar, Hólmavík
NORDURLAND:
Kf. Hrútfirðinga, Borðeyri
Kf. V-Húnvetninga, Hvammstanga
Kf. Húnvetninga, Blönduósi
Kf. Skagfirðinga, Sauðárkróki
KEA, Akureyri og útibú
Kf. Þingeyinga, Húsavík
Kf. Langnesinga, Þórshöfn
Versl. Sel, Skútustöðum
AUSTURLAND:
Kf. Vopnfiröinga, Vopnafiröi
Rafvirkinn, Eskifirði
Kf. Hóraösbúa, Seyöisfirði
Kf. Héraðsbúa, Egilsstöðum
Kf. Fram, Neskaupstað
Kf. Hérðasbúa, Reyöarfirði
Kf. Fáskrúðsfjaröar, Fáskrúðsfirði
Kf. A-Skaftfellinga, Djúpavogi
Kf. A-Skaftfellinga, Höfn
SUÐURLAND: /
Kf. Rangaeinga, Hvolsvelli
Kf. Rangæinga, Rauðalæk
Versl. Mosfell, Hellu
Reynistaöur, Vestmannaeyjum
Kf. Ámesinga, Selfossi
Kf. Árnesinga, Vík
SUÐURNES:
Samkaup, Keflavik
Stapafell, Keflavík
Rafborg, Grindavík
Eínar
Farestveit & Co.hf.
Borgartúni 28 S 622901 og 622900
ÍDAG
Með morgunkaffinu
Ást er...
. . . keleri úti i guös-
grœnni náttúrunni.
TM Rog. U S. PB.OK.-ill rights rmor*
(c) 1994 Los Angetes Timec Syrxkcate
ÞAÐ er ótrúlegt hversu
ftjótt þessar sagir verða
bitlausar.
HÖGNIHREKKVÍSI
VELVAKANDI
Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Prentvilla á
minningar-
steini?
iðið sem særir málvitund
hlutaðeigandi.
Jóhannes Óiafsson,
Norðurbi-ún 34,
Reykjavík.
NÝLEGA kom ég að gröf
hins óþekkta sjómanns í
Fossvogskirkjugarði.
Það vakti athygli mína
að á minningarsteinum
stendur „hins óþekta“
með einu k-i. Þetta þykir
mér amaleg villa og trúi
ekki öðru en kirkjugarðs-
yfirvöld geti leiðrétt atr-
Tapað/fundið
Hálskeðja tapaðist
GULLHÁLSKEÐJA tap-
aðist 30. september sl.,
sennilega í Árbæjar- eða
Seláshverfi. Finnandi
vinsamlega hringi í síma
73000 eða 626949.
■■i ■
Farsi
/MaÁuriyvv þróo&t þnxtt fyrirgá-flurrvar:
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
ÞESSI staða kom upp á
Norðurlandamóti grunn-
skóla í Gausdal í Noregi um
daginn. Simon Bekker-
Jensen (2.Ö32) frá Dan-
mörku var með hvítt, en
Arnar E. Gunnarsson
(2.120), Æfingaskóla Kenn-
araháskóla íslands, var með
svart og átti leik.
Sjá stöðumynd
18. - Hxb3!, 19. axb3 -
Hxf2!, 20. Hxf2 - Bc5, 21.
De5 - Rxf2, (Arnar hefur
unnið tvo menn fyrir hrók
og er ennþá með sterka sókn.
Lokin urðu:) 22. Rd4 -
Rg4, 23. Df4 - Bd6, 24.
Df3 - Rxh2, 25. Dd3 -
Rg4, 26. Hfl - Dh4, 27.
Rf3 - Bc5+ og hvítur gafst
upp. í sigursveit Æfínga-
skólans voru Arnar E. Gunn-
arsson, Bragi og Bjöm Þor-
finssynir og Davíð og Oddur
Ingimarssynir. Fararstjóri
var Ólafur H. Ólafsson.
Bragi hlaut verðlaun fyrir
bestan árangur á öðru borði,
en hann hlaut 4 'h v. af 5
mögulegum. Oddur fékk
verðlaun fyrir bestan árang-
ur á fjórða borði, með 3'/2
v. af 4.
Víkverji skrifar...
að hefur vakið athygli, að í
nýlegum verðkönnunum bæði
Morgunblaðsins og DV er Hagkaup
í hærri kantinum í verði. Aðspurður
um það, hvort fyrirtækið sé að
hækka verð í verzlunum sínum seg-
ir forstjóri Hagkaups, að ástæðan
fyrir þessurn verðmun sé sú, að
„aðrir selji beljukjöt“. Má skilja þau
orð á þann veg, að áður fyrr, þegar
Hagkaupsverzlanir voru yfirleitt
með lægsta verð, hafi þær ekki
selt jafn gott kjöt og nú? Eða aðrar
verzlanir selji lakara kjöt nú en þá?
Neytendur eru orðnir varir um
sig. Þeir taka eftir því, ef verð
hækkar í einni verzlun umfram
aðra. Það er líka bezta verðlagseft-
irlitið.
, XXX
að virðist lítil eftirspum eftir
þingsætum. Athygli hefur
vakið hversu fáir gáfu kost á sér í
prófkjöri sjálfstæðismanna í
Reykjavík. í Morgunblaðinu á laug-
ardag kemur fram, að Gunnar I.
Birgisson, oddviti sjálfstæðismanna
í bæjarstjórn Kópavogs, sem mjög
hefur verið orðaður Við þátttöku í
prófkjöri til Alþingis í Reykjanes-
kjördæmi, hefur tekið ákvörðun um
að gefa ekki kost á sér.
A þessari stundu er ekki vitað
um nýja frambjóðendur í Reykja-
neskjördæmi, sem líklegir eru til
að blanda sér í baráttu um efstu
sætin. Hvað veldur þessum litla
áhuga á þingmennsku? Launakjör?
Amstur og óþægindi? Skítkastið á
opinberum vettvangi? Kostnaður
við prófkjör?
Ef þróunin er að verða sú, að
fólk gefur ekki kost á sér til fram-
boðs til þings vegna þess, að það
vill ekki taka þátt í prófkjörum er
hætta á ferðum. Þótt augljóslega
sé erfítt fyrir flokkana að komast
út úr prófkjörum kann það þó að
verða nauðsynlegt, ef það er for-
senda þess, að hæft fólk ljái máls
á þátttöku í stjórnmálum.
xxx
Forseti íslands hefur fagnað því,
að í hvert sinn, sem hún hefur
komið í heimsókn til Washington
hefur henni verið boðið í Hvíta hús-
ið. Það er til marks um vináttu
Bandaríkjamanna í okkar garð og
þá virðingu, sem þeir sýna okkur
sem þjóð.
Meðal fjölmiðlafólks í Washing-
ton er hins vegar litið á stuttar
heimsóknir sem þessar í Hvíta hús-
ið, sem „photo opportunity", eins
og það er kallað á fagmáli þeirra
vestan hafs, þ.e. tækifæri fyrir við-
komandi þjóðhöfðingja til þess að
fá mynd af sér með Bandaríkjafor-
seta.