Morgunblaðið - 09.12.1994, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.12.1994, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1994____________________________________________________________MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Gjaldþrot Kaupfélags Svalbarðseyrar Hæstiréttur stað- festir sýknu SÍS HÆSTIRÉTTUR h'efur staðfest fyrri dóm Héraðsdóms Reykjavíkur, sem sýknar Samband íslenzkra sam- vinnufélagp af kröfu Jóns Laxdal, bónda og fyrrum stjómarmanns í Kaupfélagi Svalbarðseyrar. Jón krafðist þess að viðurkenndur yrði réttur þrotabús kaupfélagsins til 1,1% af heildareign allra sameigenda í SÍS og fjárhæð sem samsvaraði þeirri eign yrði dregin undir skipti á þrotabúi kaupfélagsins. Þrír dómarar, þeir Hrafn Braga- son, Haraldur Henrysson og Pétur Kr. Hafstein, töldu að staðfesta ætti dóm Héraðsdóms. Þeir telja að fall- ast eigi á það með Sambandinu að niðurstaða málsins ráðist af sam- þykktum SÍS og lögum um sam- vinnufélög frá 1937, sem giltu þegar Kaupfélag Svalbarðseyrar varð gjaldþrota. Ekki heimild til að krefjast slita SÍS Segir í dómsforsendum að sam- kvæmt þeim eigi kaupfélag ekki rétt á annarri greiðslu við úrgöngu úr samvinnufélagi, þar á meðal við gjaldþrot, en stofnsjóðseign sinni, sem þegar hafí verið greidd Kaupfé- lagi Svalbarðseyrar. Hefði Samband- inu verið slitið, hefði mátt krefjast hlutdeildar í hreinni eign þess, sem ekki váeri bundin í óskiptanlegum sameignarsjóðum, en engin heimild sé til að krefjast slita Sambandsins þótt kaupfélag verði gjaldþrota. Dómararnir þrír dæmdu Jón Lax- dal til að greiða SÍS 120.000 krónur í málskostnað. Sératkvæði tveggja dómara Tveir dómarar, þeir Garðar Gísla- son og Hjörtur Torfason, skiluðu sératkvæði. Þeir telja að byggja megi kröfu til hlutdeildar í eigin fé Sambandsins á stofnsjóðsinneign, eins og málið sé vaxið. Þess vegna beri að taka kröfu Jóns Laxdals til greina að meginstefnu og viðurkenna rétt þrotabús káugfélagsins til hlut- deildar í eigin fé SÍS. Jafnframt vilja þeir að SÍS verðí gert að greiða Jóni málskostnað í héraði og fyrir Hæsta- rétti. Morgunblaðið/Kristinn Háttsett bamapía HITAVEITUSTOKKURINN sem liggur í gegnum Mosfellsbæ hefur löngum verið vinsæl göngu- leið. Önnur þessara ungu barnapía var greinilega sátt við að vera hærra sett en stalla hennar. Hitt er annað mál hvernig henni hefur gengið að komast ofan af stokknum með skjólstæðing sinn. Veiðar Evrópusambandsskipa innan íslenskrar lögsögu 100 til 200 tonn veidd af 3.000 tonna kvóta SKIP frá ríkjum Evrópusambandsins hafa aðeins yeitt milli 100 og 200 tonn af þeim þijú þúsund tonna karfakvóta sem þau fengu í skiptum fyrir 30 þúsund tonna loðnukvóta sem kom í hlut íslendinga sam- kvæmt tvíhliða samkomulagi í tengslum við samninginn um Evr- ópskt efnahagssvæði. Þýski togarinn Cuxhaven reyndi fyrstur fýrir sér í sumar, og voru þá 18 ár síðan þýsk- ur togari veiddi síðast í landhelginni. Ekki er útlit fyrir að mikið meira verði veitt af kvótanum þar sem heimild til veiðanna gengur úr gildi um áramót og ekki er hægt að færa óveiddan kvóta milli ára. Á síðustu loðnuvertíð tókst íslendingum ekki að ná þeim loðnukvóta sem þeir fengu fyrir karfakvótann, en hann er hluti af loðnukvóta Grænlendinga. Pjórar þjóðir skipta karfakvótan- um á milli sín og mega Þjóðveijar veiða 1.690 tonn, Bretar 1.160, Belgar 100 og Frakkar 50 tonn. Aðeins þijú þýsk skip hafa reynt karfaveiðar hér við land á þessu ári og fengið til þess leyfi sjávarútvegs- ráðuneytisins. Þetta eru ísfísktogar- amir Cuxhaven, Bremen og Europa. Fiskistofa hafði fengið tilkynningar um að þijú önnur þýsk skip myndu koma hingað til veiða og sex bresk, en þessi skip hafa ekki sýnt sig. Bremen og Europa hafa verið að veiðum fyrir suðaustan landið að undanfómu í sínum fyrstu túrum. Europa hætti veiðum á miðvikudag eftir ellefu daga úthald og hélt heim á leið með 52 tonn. Bremen var enn að veiðum í gær og hafði fengið 201. Fékk aðeins 14 tonn Engin önnur skip hafa óskað eftir leyfi til veiða innan fískveiðilögsög- unnar. Cuxhaven var að veiðum hér seinnipart sumars, og reyndi fýrir sér bæði á miðunum fyrir suðvestan og suðaustan landið. Árangurinn varð þó ekki mikill því veiðin eftir ferðina var aðeins 14 tonn. Morgunblaðið tengist upplýsinga- veitunni Intemet MORGUNBLAÐIÐ er nú komið í samband við upplýs- ingaveituna Internet. Tölvu- póstfang þess er mbl@centrum.is og ætlað fyrir tölvupóst til blaðsins. Á Veraldarvef Internets (WWW) er að finna heima- síðu Morgunblaðsins með ýmsum hagnýtum upplýs- ingum. Vistfang heimasíð- unnar er http://www.centr- um.is/mbl/ Á henni eru með- al annars leiðbeiningar til þeirra sem vilja senda grein- ar, myndir og önnur gögn til blaðsins með hjálp Inter- net. Þar er einnig skrá yfir símanúmer og tölvupóstföng nokkurra starfsmanna blaðsins. Starfsmenn blaðsins hafa nú fengið nokkra reynslu í að hagnýta sér kosti tölvu- netsins og bæði tekið við greinum frá fréttariturum í útlöndum og höfundum hér innanlands. Það er von blaðsins að þessi tækninýj- ung megi koma lesendum þess og greinahöfundum að gagni. Ágreiningur í Sjálfstæðisflokki um skiptingu vegafjár í framkvæmdaátaki Höfðatöluregla gagnrýnd af landsbyggðarmönnum Vafamál að skiptingin njóti meirihluta á Alþingi, segir Egill Jónsson sem telur halla á Vestfirði og Austfirði Hátekju- skattur áfram ÞRÍR ráðherrar hittust í gær til að ræða skattamál vegna fjárlagafrum- varpsins. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er líklegt að há- tekjuskattur verði framlengdur, en hann átti að falla úr gildi um áramót. Fjármálaráðherra hafði áformað að taka hátekjuskatt. ekki upp að nýju, en þingmenn bæði úr Alþýðu- flokki og Sjálfstæðisflokki hafa vilj- að framlengja hann. Hins vegar er rætt um það á móti af hálfu sjálf- stæðismanna að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir tvísköttun ellilífeyrisþega, eða þá að lækka eignarskatt. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði í gærkvöldi að ráðherrarnir hefðu farið yfir málið og stefnt væri að niðurstöðu um helgina. Af þeim hugmyndum, sem eru I uppi varðandi tekjuhlið fjárlaganna, má nefna hækkun á persónuafslætti ! og að haldið verði áfram að undirbúa ! upptöku fjármagnstekjuskatts. Stefnt er að því að önnur umræða um íjárlagafrumvarpið verði á þriðju- dag. í dag er búist við að fram komi á Alþingi frumvarp um ráðstafanir í efnahagsmálum í tengslum við fjár- lagafrumvarpið, sem hafi í fór með sér um 1.700 milljóna spamað. EGILL Jónsson þingmaður Sjálf- stæðisflokksins á Austurlandi seg- ir vafamál að áætlun um skiptingu sérstaks framkvæmdafjár til vega- mála á næsta ári njóti meirihluta á Alþingi, því hún þýði að framlag til Austfjarða og Vestfjarða skerð- ist miðað við fyrri framkvæmdaá- ætlun. Áformað er að fram- kvæmdafénu verði skipt milli kjör- dæma eftir fólksfjölda og því fari um 60% framlagsins til fram- kvæmda á höfuðborgarsvæðinu. Davíð Oddsson forsætisráðherra segist hins vegar telja að þokkaleg sátt náist um málið. Gera á sérstakt framkvæmda- átak í vegamálum á næstu fímm árum fyrir 3.500 milljónir alls, þar af um 1.250 milljónir á næsta ári, og var bensíngjald hækkað í síð- ustu viku til að standa straum af þessu að hluta. Jafnframt er gert ráð fyrir að fella niður á næsta ári 450 milljóna króna framlag sem þá átti að veita vegna fram- kvæmdaátaks í vegamálum á árunum 1992-1995 og skiptast átti milli kjördæma samkvæmt hefðbundum reglum um vegafé. Athugasemdir í þingflokki Egill Jónsson segir að þessi skerðing komi misjafnt niður á kjördæmin, og sér sýnist í fljótu bragði að ef nýja framkvæmda- fénu verði síðan deilt út eftir höfðatölu dugi það ekki til að bæta upp skerðinguna í Aust- ijarða- og Vestfjarðakjördæmi. „Það sjá allir að þannig vinnu- brögð geta ekki gengið fram,“ sagði Egill. Mál þetta var rætt í þingflokki Sjálfstæðisflokksins á miðvikudag í tengslum við drög að nýrri vega- áætlun, og gerðu þeir Matthías Bjarnason og Einar K. Guðfínns- son, þingmenn Vestfjarða, auk Egils, athugasemdir við málið, m.a. vegna þess að það hefði ekki verið kynnt formlega í þingflokkn- um. Þokkaleg sátt Davíð Oddsson sagði að eðlilega hefðu orðið umræður og komið fram athugasemdir við þetta mál á þingflokksfundinum en þótt fundið hefði verið að höfðatölu- reglunni teldi hann samt að þokka- leg sátt yrði um hana á endanum. „Meginatriðið er að aðeins litl- um hluta þess íjármagns, sem ætlað er til vegagerðar, verður úthlutað eftir höfðatölu; meirihlut- anum verður áfram skipt þannig að það verður höfuðborgarsvæð- inu mjög í óhag. Þetta er þó auðvit- að ákveðin stefnubreyting að láta höfuðborgarsvæðið njóta umferð- ar og aksturs og taka ríkt tiltit til þess mikla vanda sem hér er, með sama hætti og ég held að Reykja- víkurþingmenn hafi verið mjög sáttir við að setja 4 milljarða í jarðgöng á Vestfjörðum því þar er mjög brýnt að tengja saman byggðir," sagði Davíð. Egill Jónsson sagði að ekki væri deilt um nauðsyn vegafram- kvæmda í Reykjavík. Hins vegar væri hægt að veita sérstaka fjár- veitingu til þeirra framkvæmda án þess að skekkja myndina að öðru leyti varðandi vegagerðar- framkvæmdir í landinu með því að halla á tvö kjördæmi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.