Morgunblaðið - 09.12.1994, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.12.1994, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1994 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Getið þér ekki bara hoppað og skoppað svona yfir eins og hr. Hannibalsson gerði þegar hann var hér í heimsókn á dögunum hr. Davíð? Nýr hugbúnaður fyrir einkasímstöðvar á markaðinn Símon skráir hver tal- ar hvenær við hvern HUGBÚNAÐARFYRIRTÆKIÐ Gátt hf. hefur sett á markað hug- búnað sem gerir fyrirtækjum kleift að fylgjast með símnotkun ein- stakra starfsmanna og einstakra deilda, skrá í hvaða númer er hringt, hvenær, hversu lengi er tal- að og hver kostnaður er við símtalið. Tölvunefnd hefur fjallað um mál- ið og tilkynnt fyrirtækinu að notkun hugbúnaðarins, sem kallast Símon, sé heimil ef öll símtæki sem viðkom- andi einkasímstöð tengjast eru greinilega merkt með upplýsingum um hvernig símtöl úr þeim séu skráð enda eigi starfsmenn fyrir- tækja, sem búnaðinn nota, aðgang að símasjálfsala eða eigi með öðrum hætti kost á að hringja án þess að símtöl séu skráð. Ragnar Guðmundsson, stjórnar- formaður Gáttar, sagði í samtali við Morgunblaðið að þegar hefðu nokkur fyrirtæki keypt búnaðinn, t.d. læknasetur og sjálfstætt starf- andi aðilar sem sameinuðust um skrifstofurekstur og notuðu forritið Tölvunefnd vinnur að reglum en gerir ekki athugasemdir til að reikna út hvað hveijum og einum beri að greiða fyrir símnotk- un. Ragnar sagði að hugbúnaðurinn hefði í upphafí verið ætlaður til að annast greiningu á símtölum hótel- gesta en í útfærslu hefði sú breyt- ing verið gerð að miða hann við þarfir fyrirtækja þannig að hann mætti tengja símstöðvum þeirra svo að hægt væri að halda nákvæmlega utan um þennan kostnaðarlið. Þannig hefðu menn einnig í höndum gögn til að bera saman við reikn- inga Pósts og síma. Ekki njósnatæki Ragnar Guðmundsson sagði að Símon væri ekki hugsaður til að auðvelda fyrirtækjum að njósna um starfsmenn og sagði að Gátt hefði þá stefnu að setja litla límmiða á hvert símtæki, sem tengt væri sím- stöð sem notaði Símon, þar sem kæmi fram hvernig skráningu væri háttað. Hann sagði að hugbúnaðurinn' kostaði 35-60 þúsund krónur, eftir stærð þeirra fyrirtækja sem nota Símon sem hefur verið þróaður fyr- ir Windows-umhverfi. Starfsmönnum sé kunnugt um skráningu í svari tölvunefndar til fyrirtæk- isins, sem lýsti eftir athugasemdum, segir að tölvunefnd vinni að gerð almennra reglna um skráningu sím- tala í einkasímstöðvum. Meðan þeirri vinnu sé ólokið sé afstaða nefndarinnar sú að notkun slíks hugbúnaðar sé heimil með fyrr- greindum fyrirvara um að starfs- mönnum sé kunnugt um skráning- una og að á vinnustöðum séu sím- sjálfsalar eða aðrir símar sem starfsmenn geti notað vilji þeir komast hjá skráningu símtals. Um 30 aðilar hafa keypt innhring'ivörn á símann PÓSTUR og sími hefur selt hátt í 30 tæki, sem kallast innhringivörn, á því rúma ári sem liðið er frá því að sala á þéim hófst. Tækið virkar þannig, að þegar hringt er í síma sem það er tengt við svarar sím- svari, sem gefur skipun um að slá inn lykiltölu. Hafí hringjandi þá tölu hringir síminn, en ekki fyrr. Hrefna Ingólfsdóttir, blaðafull- trúi Pósts og síma, sagði að tækið væri gjarnan keypt af þeim, sem ekki gætu verið með óskráð núm- er, en vildu samt sem áður eiga kost á að loka símanum fyrir öðr- um en þeim, sem hefðu fengið lyk- ilnúmerið gefið upp. „Tækið kostar 12 þúsund krónur,“ sagði Hrefna. „Það er tengt við símann, eigand- inn velur 3-4 stafa Ieyninúmer og segir því fólki númerið, sem hann vill að geti alltaf náð sambandi. Ef leyninúmerið spyrst út er hæg- ur vandinn að skipta um númer.“ Sem dæmi um notkun tækisins nefndi Hrefna, að sumir væru í slíkum störfum að mikið væri hringt í þá heim og nauðsyrdegt væri fyrir þá að vera með númer skráð í símaskrá. Ef þeir væru t.d. ekki heima gætu aðrir heimil- ismenn tengt innhringivörnina við símann, sem þá hringdi aðeins þegar nánustu ættingjar, vinir eða samstarfsmenn hringdu og gæfu upp lykilnúmerið. Þá nefndi Hrefna tilvik, þar sem fólk hefur orðið fyrir símaónæði ókunnugra. Listnemar vilja listaháskóla Viljum kynna málið og ýta á það Kristján B. Þórðarson SAMTÖK listaskólanna á íslandi, SAIÍ, eru um þessar mundir að hleypa lífí í starfsemi sína til að halda á lofti og kynna áform um stofnun lista- háskóla, menntastofnunar sem taka mun við hlutverki Myndlistar- og handíðaskól- ans, Tónlistarskólans í Reykjavík, Leiklistarskól- ans og Listdansskóla íslans. Kristján Björn Þórðarson myndlistamemi er talsmað- ur listaskólanema, sem um þessar mundir vinna að þessu átaki. - Hvað prþað sem hvetur SALÍ til að taka listahá- skóla á dagskrá nú? „Við viljum kynna þetta mál, ýta á það og halda því í sviðsljósinu og gefa jafnframt raunsanna mynd af því um hvað málið snýst. T.d. viljum við losna við þjóðtrú eins og þá að listanem- ar eigi að vera hungraðir, horaðir, illa settir og skapa ekki nema við verstu aðstæður. Við ætlum líka að velta fyrir okkur hvaða hlut- verki slíkur skóli eigi að gegna í menningarsamfélagi." - Hvað líður stofnun listahá- skólans? „Það hefur verið rætt um að stofna listaháskóla í 20 ár. Lengi strandaði málið m.a. á húsnæðiss- korti. Fyrir nokkmm ámm var SS-húsið keypt og eins og kunnugt er var hugmyndin sú að nota hús- ið undir listaháskóla. í fyrra skilaði nefnd um listahá- skóla tillögum um að stofnað verði félag til að reka skólann sem sjálfs- eignarstofnun með íramlagi frá ríkinu, styrkveitingum og skóla- gjöldum. Bandalag íslenskra lista- manna hefur unnið að stofnun fé- lagsins og listamenn í öllum grein- um hafa sameinast um að gera stofnun skólans að sínu baráttu- máli og hafa áhrif á hvernig starf- semin verður skilgreind. Fljótlega verður væntanlega stigið stórt skref þegar alþingi fjallar um fmmvarp sem sem ríkisstjórnin hefur samþykkt og veitir mennta- málaráðherra heimild til að semja við félagið um rekstur skólans á vegum þess.“ - Er byrjað að gera breytingar á SS-húsinu vegna listaháskólans? „Nei. Kennsla í þremur deildum Myndlista- og handíðaskólans fer nú fram á jarðhæð hússins, hluti hæðarinnar er ónýttur og Listasafn íslands hefur 2-300 m2 til umráða, en safnið missti húsnæði í viðskipt- unum þegar ríkið eignaðist húsið. Það hafa hins vegar engar breytingar verið gerðar á húsinu, þetta er bráðabirgða- fyrirkomulag, með und- anþágum frá heilbrigði- seftirliti og slíkum stofnunum, að mér skilst. Eftir áramót em líkur á að málið fari að komast á hreyfingu og þá liggi fyrir fjárveitingar vegna hönnunarkostnaðar. Hins vegar sér maður að það er raunhæft að búast við því að listaháskólinn geti ekki tekið til starfa fyrr en eftir 5 ár eða svo.“ - Breytist listmenntun á Islandi eitthvað við það að listaháskóli verður stofnaður eða er þetta bara nýr rammi utan um starfsemi nú- verandi skóla? „Það fer eftir hvernig starfsemi listaháskólans verður skilgreind. Með umræðunni um listaháskóla er verið að tala um að endurskipu- leggja listnám í landinu frá grunni og grunnforsendur skólans breyt- ast. í dag hefur Tónlistarskólinn á að skipa kennara- og hljóðfæra- deildum og þar em nemendur frá fyrstu stigum hljóðfæraleiks. Þeir ►KRISTJÁN Bjöm Þórðarson er 25 ára gamall nemandi á loka- ári í fjöltæknideild Myndlista- og handíðarskóla íslands. Hann er formaður nemendafélags skólans og vinnur nú ásamt öðr- um aðstandendum S ALÍ, sam- taka listaskóla á Islandi, að und- irbúningi Samglöggs listaskól- anna 94 sem haldið verður fyrir listnema og gesti þeirra í dag kl. 18 í tilvonandi húsakynnum Listaháskóla íslands í SS-húsinu við Laugarnes til þess m.a. að minna á fyrirheit um stofnun listaháskóla. fæm auðvitað ekki í listaháskól- ann; þar væri fyrst og fremst um að ræða einleikaradeildir og hugs- anlega kennaradeildir þar sem miðað væri við að nemendur hefðu lokið 6.-7. stigi í hljóðfæraleik. Tónlistarskólinn gæti þá áfram sinnt gmnnnámi í hljóðfæraleik. MHÍ mundi hugsanlega sinna ein- hverri undirstöðumenntun en Leik- listarskólinn yrði væntanlega lagð- ur niður. Hugmyndin er að úr listahá- skóla útskrifist menn með ein- hveija gráðu, viðurkennda mennt- un, eins og tíðkast erlendis. Nú er Tónlistarskólinn best settur að þessu leyti. Mér skilst að einleik- arapróf þaðan sé metið til jafns við einleikarapróf frá erlendum tónlistarháskólum. Nemendur ann- arra listaskóla hafa ekkert slíkt í höndunum þegar þeir ljúka prófi. Það er algjörlega í höndum skóla erlendis hvort þeir meta menntun- ina gilda undirstöðu undir fram- haldsnám. Margir skólar erlendis hafa ekki viðurkennt próf frá t.d. MHÍ en aðrir hafa ýmist látið það veita aðgang að framhaldsnámi eða krafist þess að menn ljúki síð- asta ári í BA- eða BFA- námi áður en þeir kom- ast í framhaldsnám. Það sem mun breyt- ast frá því sem nú er við listaháskóla verður til dæmis kennsluskylda kennara. Listaskólarnir á íslandi eru nú skil- greindir sem framhaldsskólar, lúta framhaldsskólalögunum og kenn- ararnir eru bundnir af þeim. Það hefur m.a. leitt til þess að sérhæf- ing kennara og menntun nýtist ekki sem skyldi í þágu listmennt- unar í landinu. Sumt af því sem boðið er upp á t.d. í MHÍ er hrein- lega ekki nógu gott. Það ætti líka að skapast ráðrúm til rannsóknarstarfa, sem er ekki eru stunduð í dag. Jafnframt verð- ur væntanlega gerð endurmennt- unarkrafa til skólans; að hann sinni starfandi listamönnum um endur- menntun og þjónustu og komi sér upp betra gagnasafni. Að öðru leyti má lýsa breyting- unni þannig að námið verði aka- demískara og gerð meiri krafa til nemenda um sjálfstæð vinnubrögð. Útskrifist úr iistaháskóla með gráðu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.