Morgunblaðið - 09.12.1994, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 09.12.1994, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1994 9 ________________FRÉTTIR________________ Meirihluti stjórnar Veitustofnana vísar gagnrýni sjálf- stæðismanna á styrkveitingu til Háskólans á bug Ber vott um vissan kala Franskir svarttr dömukjólar TKSS Opið virka daga kl. 9-18, laugardag Neðst við kl. 10—18. Dunhaga, sunnudag sími 622230 kl. 13-17 í garð Háskólans ALFREÐ Þorsteinsson, formaður stjórnar Veitustofnana Reykjavík- urborgar, telur að afstaða sjálf- stæðismanna vegna styrkveitingar Hitaveitu Reykjavíkur til að stofna tímabundna prófessors- eða dós- entsstöðu við Háskóla íslands sé byggð á misskilningi. Þessi styrk- veiting sé aðeins lítill hluti þeirra fjármuna sem Hitaveita Reykjavík- ur noti til rannsókna árlega. „Þetta er litlu meira en Hitaveitan greiðir Háskólanum árlega hvort sem er. Afstaða sjálfstæðismanna er út í hött og ber vott um vissan kala í garð Háskólans," sagði Alfreð. Eins og fram kom í Morgunblað- inu í gær samþykkti stjóm Veitu- stofnana að veita styrk til að stofna tímabundna stöðu prófessors eða dósents við vélaverkfræðiskor verk- fræðideildar Háskóla íslands. Starfsmanninum er ætlað að stunda grunnrannsóknir á sviði hitaveitu- rannsókna í vélaverkfræði en kennsluskylda takmarkasi við handleiðslu og leiðbeiningar nem- enda í rannsóknartengdu fram- haldsnámi. Auk þess er 'gert ráð fyrir að prófessorinn verði ráðgjafí Hitaveitu Reykjavíkur á sérsviði sínu sem gæti numið allt að Vs af dagvinnu. Fulltrúar sjálfstæðismanna greiddu atkvæði gegn þessari til- lögu og segja ákvörðunina illskiljan- lega í ljósi fullyrðinga R-listans um fjárhagsstöðu borgarinnar og stofn- ana hennar og nauðsýn þess að leggja nýjan skatt á Reykvíkinga. Hliðstætt verkefni á vegum Járnblendiverksmiðjunnar „Sjálfstæðismenn fullyrða að allt rannsóknarfé Hitaveitunnar fari í þetta eina verkefni,“ sagði Alfreð Þorsteinsson. „Þetta er á algjörum misskilningi byggt og sýnir það að fulltrúar sjálfstæðisflokksins í stjórn Veitustofnana hafa ekki unn- ið heimavinnuna sína. í fyrirliggj- andi drögum að fjárhagsáætlun Hitaveitu Reykjavíkur fyrir næsta ár er gert ráð fyrir 37,4 miHjónum til rannsókna. Sú upphæð sem veitt verður til Háskólans er minna en tíundi hluti þessarar upphæðar. Ég hélt að borgarfulltrúar sjálf- stæðisflokksins vissu af hliðstæðu verkefni á vegum Háskóla íslands og Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga sem hefur verið í gangi sl. fjögur ár. Verksmiðjan greiðir laun Þorsteins Sigfússonar sem reyndar er bróðir Árna Sigfús- sonar, oddvita sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Reynslan af störfum hans og samvinna Háskólans og Járnblendiverksmiðjunnar er afar góð og jákvæð. Ég undrast afstöðu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík varðandi þá samþykkt sem gerð var í stjóm Veitustofnana og finnst hún fjandsamleg Háskól- anum.“ Frumvarp lagt fram um jöfnun verðlags Símtöl kosti jafnmik- ið óháð veg’aleng’dum JOLASFNDINGIN KOMIN Glæsilegt úrval Dömu- og herrasloppar - velúrgallar - gjafavörur Sendum í póstkröfu Gullbrá, Nóatúni 17, sími 624217. snyrtivöruverslun, ítölsku skyrturnar komnar, 4 litir Opið laugardag frá 10-18 Skokkar og blússur, drengjabuxur og vesti komin aftur. Mikiö úrval af nýjum kjólum, stæröir upp í 8. Skokkar kr. 2.495,- Blússur kr. 1.995, Drengjabuxur kr. 1.895, Vesti kr. 1.595,- Sendum í póstkröfu. Barnakot Framtíðarmarkaðnum, Faxafeni lO.sími 985-34491. ÞRÍR þingmenn Alþýðubandalags hafa lagt fram frumvarp á Alþingi um jöfnun verðlags sem hefur það að markmiði að lífskjör þjóðarinnar verði sem jöfnust, óháð búsetu. Frumvarpið, sem flutt er af Ragnari Amalds og fleirum, er eins- konar bandormur, þar sem lagðar eru til breytingar á ýmsum lögum. Þannig verði lögum um starfrækslu póst- og símamála breytt þannig að landið verði eitt gjaldsvæði og öll símtöl innanlands verðlögð á sama hátt, óháð vegalengdum. í greinargerð segir, að mishá gjöld eftir svæðisnúmerum séu leifar frá liðnum tíma, þegar símaþjónusta var handvirk. Þá er lagt til að lögum um Lands- virkjun verði breytt og raforka verði boðin í heildsölu á sama verði til dreifíveitna um allt Iand. Þannig verði orkukostnaður jafnaður. Loks er lagt til að ákvæði verði bætt í samkeppnislög um að Sam- keppnisstofnun skuli stuðla að því að heildsölufyrirtæki bjóði smásölu- verslunum vörur á sama verði um allt land og undirboð á einum stað verði ekki fjármögnuð með hærra verði annarstaðar. Herkostnaður Segir í greinargerð, að sterkur grunur leiki á að landsbyggðin hafi verið látin borga herkostnaðinn af verðstríði stórmarkaða í Reykjavík, þótt fagna beri að sú samkeppni hafí leitt til lægra vöruverðs þar. BOGNER VANDAÐAR JÓLAGJAFIR BOGNER kvenfatnaður er fallegur, einfaldur og þægilegur og í senn látlaus og glæsilegur. Fatnaðurinn frá BOGNER hæfir ungum konum á öllum aldri. I B O G N E R sérverslun v/Óðinstorg, sími 25177 Fólk er alltaf að vinna f Gullnámunni: 61 milljón Vikuna 1. til 7. desember voru samtals 61.406.906 kr. greiddar út í happdrættisvélum um allt land. Þetta voru bæði veglegir Silfurpottar og fjöldinn allur af öðrum vinningum. Silfurpottar í vikunni: Dags. Staöur: Upphæð kr.: I.des. Háspenna, Laugavegi........ 78.123 1. des. Háspenna, Laugavegi....... 66.924 l.des. Café Royal, Hafnarfiröi.... 103.706 3. des. Mónakó...................... 248.126 4. des. Háspenna, Laugavegi....... 219.195 5. des. Ölver........................ 68.194 5. des. Mónakó...................... 148.015 5. des. Háspenna, Laugavegi....... 64.746 6. des. Háspenna, Laugavegi....... 59.582 7. des. Mónakó...................... 261.495 , Staða Gullpottsins 8. desember, kl. 13:00 var 4.319.310 krónur. Silfurpottarnir byrja alltaf 150.000 kr. og Gullpottarnir f 2.000.000 kr. og hækka síðan jafnt og þétt þar til þeir detta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.