Morgunblaðið - 09.12.1994, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 09.12.1994, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ +Fanney Gunn- laugsdóttir var fædd I Hafnarfirði 7. september 1914. Hún lést á Borgar- spítalanum 1. des- ember siðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jónína Jóns- dóttir, f. 7. mars 1888, d. 25. apríl 1968, og Gunnlaug- ur Jóhannesson, fyrrum vitavörður á Glettinganesi, f. 3. mai 1884 í Fögrukinn á Jök- uldal, d. 22. desember 1964. Fanney ólst upp frá átta ára aldri í Kotvogi í Höfnum hjá Hildi Thorarensen. Hinn 11. nóvember 1933 gift- ist Fanney eftirlifandi eigin- manni sinum, Arna Eliassyni, ELSKU fjölskylda og vinir. Mig langar svo að minnast í örfá- um orðum hennar ömmu minnar þar sem ég get ekki verið með ykkur í dag. Þegar mamma hringdi til mín um daginn og sagði mér að amma væri það veik að talið væri að hún lægi fyrir dauðanum, gat ég ekki trúað því. Hún amma mín sem allt- af var svo ígulhress, fór í sund, keyrði eins og herforingi þar til fyrir stuttu og hafði alltaf eitthvað fyrir stafni, amma sem ég kvaddi í haust með orðunum „sjáumst hressar um jólin“. Það er skrýtið að vera í útlöndum þegar svona fréttir berast og erfítt að trúa þeim. Fjarlægðin veldur því að fréttimar verða óraunverulegar þar sem þú getur ekki verið á staðnum og hug- hreyst og deilt sorginni með þínum nánustu. A síðustu dögum hef ég hugsað mikið um ömmu mína og það hafa rifjast upp fyrir mér margir viðburðir úr æskunni og líf- inu þar sem amma kom við sögu, stundir sem ég hafði ekki hugsað um lengi. Skiptunum í gamla daga þegar við systkinin gengum með mömmu í heimsókn, „vestur eftir“ á Hæðarenda, þar sem húsið þeirra afa og ömmu og náttúran á nesinu í kring var full af dularfullum og spennandi ævintýrum og við feng- um mjólk að drekka og kökur með, skiptin sem ég fékk að sofa á svefn- bekknum í stofunni. Upp fyrir mér rifjast hlutir eins og þegar amma kom heim til okkar til þess að vera hjá okkur ef pabbi og mamma voru veik eða í fríi, þegar amma sat hjá mér þegar ég var veik og við spiluð- um á spil eða hlustuðum á plötuna með Vilhjálmi Vilhálmssyni aftur og aftur til að stytta okkur eða öllu heldur mér stundir, alls kyns atburðir frá æskunni rifjast nú upp fyrir mér. En mest af öllu verður mér hugs- að til síðustu ára þegar ég hef feng- ið að kynnast ömmu minni nánar sem persónu og sem vinkonu. Bæj- arferðunum um helgar sem voru farnar í Kolaportið, á kaffihús, list- sýningar eða í Eden til að skoða plöntur og borða ís og fara svo í kaffí í Furugerði á eftir. Það var einmitt einn slíkur eftirmiðdagur í Furugerði sem ég mun alltaf muna. Við vorum þar saman komnar nokkrar konur á öllum aldri úr fjöl- skyldunni og var mikið fjör og margt spjallað að venju. Amma reiddi fram ýmist góð- gæti eins og hennar var von og vísa og þar á meðal var ísterta mikil sem við vorum búnar að gæða okkur á. Amma féllst loksins á að smakka ístertuna sem hún hafði annars lítinn áhuga á og eft- ir smástund fer hún að tala um hversu seig tertan sé. Við vorum sko ekki á því að samþykkja það en amma hélt fast við sitt, tertan væri bara ólseig. Það kemur svo ekki í ljós fyrr en um korteri seinna, f. 12. 10. 1904 í Helgárseli í Garðs- árdal í Eyjafirði. Þau eignuðust sjö börn. Þau eru: Hild- ur, sem lést nokk- urra vikna gömul; Elías Hilmar, kvæntur Steinvöru Sigurðardóttur; Gunnlaugur Orn, kvæntur Sólveigu Helgadóttur; Guð- rún Esther, gift Jóni H. Baldvins- syni; Ólafur Jón, kvæntur Þórunni Berndsen; Ómar Þór, kvæntur Margréti Pétursdóttur; Svan- hildur Ágústa, gift Jóni Bald- vini Halldórssyni. Barnabörnin eru 12 og barnabarnabörnin þrjú. Utför Fanneyjar fer fram frá Fossvogskirkju í dag. þegar við vorum farnar að tala um allt aðra hluti, af hveiju sneiðin hennar ömmu var svona seig þegar einn af yngri meðlimum fjölskyld- unnar fór að spyijast fyrir um hvað hefði orðið af tyggigúmmíinu sínu. Það veit sá sem allt veit að við höfum sjaldan hlegið svo dátt sam- an, tárin láku niður kinnar og sum- ir fengu hiksta og sú sem mest hló var hún amma sem ekki kippti sér upp við svona uppákomur. Hún amma gaf mér fyrir nokkr- um árum fallega postulínsdúkku sem hún hafði saumað kjól á og skreytt og lét þau orð fylgja að nú hefði ég eitthvað til að minnast hennar með þegar hún færi frá okkur. Dúkkan er falleg og í miklu uppáhaldi hjá mér og mun alltaf minna mig á ömmu og fallegu handverkin hennar en það sem lifir sterkast í minningunni eru stundir eins og þær sem ég sagði frá áðan og ég þakka Guði fyrir að hafa fengið að njóta samveru með ömmu minni svona lengi. Elsku afí minn, Guð styrki þig í sorginni. I fyrra þegar þið amma áttuð 60 ára brúðkaupsafmæli, skrifaði ég ykkur bréf þar sem með fylgdi ljóð eftir Jónas Hallgrímsson sem við Þór höfum mikið dálæti á og ég ætla að skrifa hér aftur, þar sem mér finnst það ekki síður eiga við núna í dag. Háa skilur hnetti himingeimur, blað skilur bakka og egg, en anda, sem unnast, fær aidregi eilifð að skilið. (Jónas Hallgrímsson) Við erum hjá ykkur í huganum. Guðný og Þór, Rómarborg. Það var liðið að hausti. Gest bar að garði á Laugarvatni. Hann bað heimamann um aðstoð við að flytja konu til Þingvalla. Þar var kominn hreppstjórinn á Brekku í Biskups- tungum og með honum ung kona sem var sýnilega að verða léttari. Hún var meira að segja gengin fram yfir en það skipti engu fyrir yfirvöldin. Þessari konu skyldi komið burt af Suðurlandi, svo þar fæddist ekki barn sem „hreppur- inn“ þyrfti að ala upp. Anna Jónína var fátækt og saklaust fórnarlamb síns tíma, líklega síðasta mann- eskja sem þurfti að þjást vegna ill- ræmdra laga um heimilisfesti. Þeg- ar upplýst var að hún gekk með barn, var lögum samkvæmt ákveð- ið að senda hana úr Hvolhreppi í Biskupstungur, þar sem hún hafði alist upp. Hreppstjórinn þar sá hins vegar undankomuleið því hann hafði vitneskju um að Anna Jónína hefði fæðst í Hafnarhreppi á Suður- nesjum. Því bæri að taka við henni þar og hreppnum að sjá fyrir barn- inu. Þar með hófst margra daga ferðalag frá einum hrepp til annars á Suðurlandi með konuna, sem MINNINGAR komin var fast að falli. Hver hrepp- stjórinn af öðrum hraðaði sér við að koma henni af sér og áfram áleiðis til Þingvalla og síðan yfír til Reykjavíkur. Ekki vildu yfírvöld- in í Reykjavík eiga á hættu að barnið fæddist þar og drifu konuna áfram suður í Hafnarfjörð. En þá varð ekki lengra komist. Um nótt- ina fæddist stúlkubarn. Til er skráð frásögn um þennan hreppaflutning þar sem honum er lýst með mikilli iðrun. Lögunum um heimilisfesti hafí hins vegar orðið að hlýða en þau blessunarlega verið afnumin skömmu síðar. Þessi litla stúlka sem var í heim- inn borin í Hafnarfirði í september- byijun árið 1914 var elskuleg tengdamóðir mín, Fanney Gunn- laugsdóttir. Þótt Hafnfirðingar af miskunnsemi leyfðu móðurinni að dvelja um nótt og hætta á að fá barnið til framfærslu, varð ekkert úr því. Ferðinni var haldið áfram á Suðumes. Þau urðu æskustöðvar Fanneyjar. Hún var alin upp hjá Katli bónda í Kotvogi í Höfnum og Hildi konu hans. í hópi uppeldis- systkina sinna í Kotvogi sprakk út þetta litla blóm sem allir hrepp- stjórar á Suðurlandi höfðu óttast og ekki viljað taka við. En stúlkan litla varð engum byrði á langri ævi. Þvert á móti óþijótandi upp- spretta hjálpsemi, líknar, gleði og skemmtunar, svo nægt hefði öllum hreppum á Suðurlandi. _ Leiðir Fanneyjar og Áma Elías- sonar frá Helgárseli í Eyjafirði lágu saman í Höfnum þegar hann var þar sjómaður á vertíð. Með honum syrgjum við nú ástvin og félaga. Mestan hluta úr sínum búskap voru þau á Seltjamarnesi, þar sem stór systkinahópur komst á legg, sex börn. Fyrsta barnið lést aðeins nokkurra vikna. Um tíma gættu þau vitans í Gróttu og leiðbeindu sjófarendum en ævistarf þeirra beggja var þó að verka sjávarafla. Fanne'y þótti glæsileg ung stúlka. Þeirri fegurð og tign hélt hún í ellinni þannig að umtalað var. Hún var drottning í ríki sínu en stýrði því af lítillæti. Það lék allt í höndunum á henni. Um það vitnar handverkið, pijónað, saumað eða málað. Það var ekki hennar háttur að mála tilveruna dökkum litum, þótt lífíð væri ekki alltaf dans á rósum. Sársauki í eigin lík- ama hét með hennar orðaforða „móðursýki". „Leti“ hét það að þurfa að hægja á ferðinni þegar árin færðust yfir. Hún sætti sig ekki við að ellinni þyrfti að fylgja deyfð og drungi. Það væri þvert á móti ástæða til að njóta hennar. Mér verður ógleymanlegt hvemig Fanney fór stundum eins og storm- sveipur um Furugerði 1, þar sem þau Ámi hafa búið undanfarin ár. Hvemig hún hreif gamla fólkið þar með sér og fékk það til að gleyma ellinni og lyfta sér upp. Yfír kaffí- bolla, á þorrablóti frammi á gangi eða yfir sherry-staupi inni í stofu. Hún var þá drottning með ósýni- lega glitrandi kórónu, krýnd af vin- um sínum. Hún er farin og skarðið er stórt. Það er engin „amma í Furugerði“. Allir hreppstjórar himnaríkis hljóta núna að keppast um að fá hana til sín. Jón Baldvin Halldórsson. Elsku amma okkar. Þegar þú fórst frá okkur var þetta allt eins og vondur draumur. Maður fékk sting fyrir brjóstið af söknuði og mann langaði til að springa úr sorg. Minningarnar sem ég hef átt um þig em nú geymdar í hjarta mínu og verða þar um eilífð. Þegar mað- ur missir ástvin er eins og eitthvað mikilvægt sé tekið frá manni og maður myndi gera allt til þess að fá það aftur. En svona er gangur lífsins og svona verður hann alltaf. Elsku amma okkar. Ég mun alltaf muna þig, fyrirmynd mína. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V.Briem) Elva Benediktsdóttir. + Guðrún Jónína Þorfinnsdóttir fæddist á Kagaðar- hóli á Ásum í Aust- ur-Húnavatnssýslu 9. nóvember 1895. Hún lést á Hrafn- istu 1. desember síðastliðinn, 99 ára að aldri. Foreldrar hennar voru Kristín Sveinsdóttir og Þorfinnur Hallsson. Vegna veikinda móður hennar var hún tekin í fóstur af Helgu Jónsdóttur og Jóni Konráð Stefánssyni og ólst hún upp hjá þeim á Strjúgs- stöðum í Langadal í Austur- Húnavatnssýslu. Alsystir henn- ar var Kristín og hálfsystkini samfeðra þau Gísli, Magnús og Margrét, en þau eru öll látin. Hinn 24. júlí 1918 giftist Guðrún Birni Geirmundssyni frá Hóli Hjaltastaðarþinghá, f. 25. maí MEÐ örfáum orðum langar mig að minnast tengdamóður minnar, Guðrúnar Þorfínnsdóttur. Þótt orð- in séu fátækleg er sjóður minning- anna ríkulegur. Ég minnist þess hve gott var að sækja hana heim í sveitina á sumrin. Ég man bæinn hennar uppi í slakkanum. Ég man hve lágreistur hann var og smár en ég man líka að þar var ævinlega rúm fyrir alla. Ég man hvað hún elskaði blómin sín. Ég man hvernig hún af alúð og natni gróðursetti tré og hlúði að blómum. Þegar ég lít til baka stendur fallegi garðurinn hennar mér ljóslifandi fyrir hug- skotssjónum. í minningunni kalla ég fram mynd af henni þar sem hún gengur stolt um garðinn sinn og sýnir mér ótrúlega margar teg- undir blóma. Ég minnist þess með hlýju er hún bar fram yndislegt kaffiborð í garðinum sínum. Eg minnist glaðværðar hennar sem aldrei brást. Ég minnist þess hvað við áttum margt sameiginlegt. Ég minnist sameiginlegs áhuga okkar á ljóðum og ljóðagerð. Ég minnist þess hvað það var einstaklega gam- an að tala við hana. Ég man næma kímnigáfu hennar og hvað hlátur hennar var smitarídi. Ég man hvað hún var músikölsk og hvað hún lék listilega vel á orgelið sitt sem henni þótti svo vænt um. Ég man hvað hún var söngelsk og gleymi því seint hvað hún hafði enn mikið yndi afysöng komin hátt á tíðræðis- aldur. Ég vil þakka góðri tengda- móður ánægjulegar samverustund- ir og allt það góða sem hún gaf mér og hefur skilið eftir á langri leið. Guð blessi minningu Guðrúnar Þorfínnsdóttur. Guðrún V. Gísladóttir. Falls er von af fornu tré. Það sannast oft. Þegar aldurinn er orð- inn næstum heil öld, er þess að vænta að svefninn langi sé skammt undan. Þá er lífsstarfið fyrir löngu að baki og ævikvöldið orðið býsna langt. Að kveldi fullveldisdagsins 1. desember slokknaði lífsloginn hennar Guðrúnar frá Hnjúkum á sjúkradeild Hrafnistu í Reykjavík. í þessari stofnun hafði hún dvalist frá því um 1970, síðustu árin á sjúkradeildinni. Ég heimsótti Guðrúnu nokkrum sinnum á þennan stað og 1984 tók ég við hana viðtal, sem hvergi hef- ur birst, enda ekki til þess ætlast. Nú styðst ég við viðtal þetta, er ég skrifa minningargrein um hana. Guðrún Jónína Þorfínnsdóttir var reidd níu daga gömul yfir ísi- lagða Blöndu að Stijúgsstöðum í Langadal, naut hún þar góðrar umönnunar. í viðtalinu við hana rifjaðist margt upp frá þessum stað, sem ég var kunnugur frá 1891, d. 7. febrúar 1965. Börn þeirra eru sjö: Jón Konráð, kvæntur Guðrúnu Gísladóttur; Geir Austmann, kvæntur Arnheiði Guð- mundsdóttur; Garð- ar, kona hans var Sigríður Guð- mundsdóttir, þau slitu samvistir, sam- býliskona hans er Elín Björnsdóttir; Helga Svana, gift Vagni Kristjáns- syni; Ari Björgvin, kvæntur Hildigaard Björnsson; Ingólfur Guðni, kvæntur Ingi- björgu Jónsdóttur; Hjördís Heiða, var gift Andra Jónssyni, þau slitu samvistir. Björn og Guðrún bjuggu lengst af á Hnjúkum við Blönduós, þar til þau fluttu til Reykjavíkur. Útför Guðrúnar fer fram frá Foss- vogskirkju í dag. æskuárum, því að leið mín lá býsna oft um garð á þessum bæ, er ég gekk frá Refsstöðum í Laxárdal um Stijúgsskarð heiman og heim. Guðrúnu var minnisstætt, er skriða mikil féll úr gilinu fyrir ofan bæinn á túnið á Stijúgsstöðum seinni hluta vetrar 1918 og stórskemmdi það. Var mikil mildi, að ekki skyldi manntjón af hljótast. Skriðuna tókst bærilega að hreinsa, en hún náði alla leið fram í Blöndu. Mér fannst athyglisvert að hlýða á Guð- rúnu segja frá þetta löngu liðnum atburði eins og gerst hefði fyrir skömmu. Hún mundi einnig eftir því, er líkkista manns eins, er lést á Refsstöðum í Laxárdal veturinn 1907, var flutt á hesti í mikilli ófærð niður Stijúgsskarðið, til greftrunar á Holtastöðum. Minni Guðrúnar var lengi traust, en er viðtalið við hana var tekið, var hún tæplega níræð að aldri. Mannsefnið hennar Guðrúnar, Björn E. Geirmundsson frá Hóli, átti jörð og búfénað austur á Hér- aði og hugðist til búsetu þar, er þessi hávaxni og myndarlegi maður kynnist Guðrúnu. Ekki var útlit Guðrúnar síðra. Því að hún þótti forkunnar fögur, og iðulega kölluð fagra Gunna. Þau hófu búskap á Stijúgsstöðum og bjuggu þar um tvö ár. Þá fluttu þau að Bollastöð- um í Blöndudal. Var viðstaðan þar einungis fjögur ár. Þau komu þang- að árið eftir að Pétur bóndi Péturs- son frá Valadal (1862-1919) and- aðist. Þá kenndi Unnur dóttur Pét- urs við Kvennaskólann á Blöndu- ósi. Frá Bollastöðum fluttust þau hjón að Mjóadal í Laxárdal, þar keyptu þau bújörðina með öllum bústofni. Bömin fæddust hvert af öðru. Árið 1934 fluttu þau síðan að Hnjúkum við Blönduós, sem varð dvalarstaður þeirra um þijá ára- tugi, þar til haldið var til Reykjavík- ur, er heilsa Björns tók að gefa sig. Nærri má geta, að þessir tíðu búferlaflutningar hafí reynt á þau hjón, en þau voru samhent og hvað er í raun og veru erfítt, þegar tvær manneskjur leggja einhuga fram sameinaða krafta sína til að leysa verkefnið? Mér fannst Guðrún segja vel frá, þetta öldruð orðin^ er fundum okk- ar bar saman. Eg spurði hana, hvort hún hefði lagt leið sína upp á Laxárdal, er hún átti heima á Stijúgsstöðum. Jú, það hafði hún gert. Hún mundi vel eftir víðlendum beijabrekkunum á Refsstöðum, en þar er óvenju gott beijaland. í Langadal fer hins vegar fremur lítið fyrir þeim jarðargróða. Og að hugsa sér að muna næstum níræð eftir því, hversu mikið var af kræki- berjum á grundinni við Kárahlíð. Já, það var gaman fyrir mig að eiga orðastað við þessa vel mæltu FANNEYS. GUNNLA UGSDÓTTIR GUÐRÚN ÞORFINNSDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.