Morgunblaðið - 09.12.1994, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 09.12.1994, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ 50 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1994 ^ó/qgjafir af/tœrlei/i/ og/J/á&l Boðskapur Maríu til mannkyns er máttug bók, sem felur í sér viðvörun til fólksins á jörðinni. ^ Marfa vill að fólk fái vitneskju um þær breytingar sem "jörðin á eftir að verða fyrir á næstu tíu ámm. Hún varar við breytingum í verðurfari, miklu hvassviðri, jarðskálftum og eldgosum. En megin boðskapurinn felst í því hvernig við getum opnað hjörtu okkar fyrir Guði og lifað lífinu fullkomlega meðvituð um veru okkar og tilgang á jörðinni fyrir endurkomuna í heim andans eftir dauða líkamans. „Einhver fallegasti kærleiksboðskapur sem ég hef lesið“ Úlfur Ragnarsson í viðtali á Aðalstöðinni. Pantanir og dreifing: Sala og dreifing, GSM, sími 989-23334. mmmmm Víkin V1K1N6A nnrmi • VISKA NORPUR5INS lakoH'i fyrstu íslensku spáspilin hafa rttítið fádæma vinsælda síðan þau vonj gefin út ásíðasta ári og sannað gildi sitt: 0 Vönduð aðferð til sjálfsskoðunar og þroska. • Veitir andlega leiðsögn og persónulega ráðgjöf. • Gefur innsýn í þá orku, sem fylgir nýjum verkefnum, • Ómissandi fyrir alla, sem stunda sjálfsrækt. • Efla tengsl í samskiptum og skilning á öðrum. 4 nýjar hugleiðslusnældur frá Guðrúnu Bergmann. Endurforritun frumanna - hjálpar þér að breyta neikvæðri forritun frumanna til heilbrigðis og jákvæðni. Slökun - beinist ekki einungis að slökun vöðvanna og ytra borðs líkamans, heldur einnig innyflanna, hugans og tilfinninganna. Efling orkustöðvanna - tengir þig við þinn innri kraft og hjálpar þér að efla hann og styrkja. Tré Iffsins - inniheldur fjórar 15 mínútna hugleiðslur sem auðvelda daglega iðkun. Jákvæðar staðfestingar á litlum kortum. Kærieikskonin eru ætluð þér til hjálpar við að staðfesta þær breytingar sem þú vilt að verði á eigin Irfi. Þau eru 44 talsins en talan 4 táknar stöðugleika og framþróun og samtalan 8 táknar innri kraft og velgengni, sem vonandi fylgja þér á þroskabrautinni. LEIÐARLJ*S hf. - útgáfa Pantanir í síma 581-1380 og í bréfsíma 581-1385. I DAG Með morgunkaffinu ÞAÐ er alveg eðli- legt að vera svolítíð kvíðinn fyrir fyrsta stefnumótíð. . . . og sjónvarpið á að vera þarna . . . Áster . 12-13 að láta hana annast fjármál heimilisins. TM Reg. U.S. Pat Off. — afl rights reserved (c) 1994 Los Angeíes Times Syndicate Farsi VELVAKANDI Svarar í sima 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Verðmunur milli verslana MIG langar að vekja athygli á verðmun á fatnaði á milli verslana í Reykjavík. Ég er utan af landi og brá mér til Reykjavíkur til ýmissa erinda. Þetta var um helgi þannig að ég leit við í Kolaportinu. Þar fann ég m.a. lítið drengjavesti og kostaði það 1.490 krónur. Mér fannst það fulldýrt fyrir ekki stærri flík svo ég ákvað að athuga á fleiri stöðum. Hagkaup varð fyrir valinu og þar kostnaði nákvæmlega eins vesti 989 krónur. Einhver hafði sagt mér frá lítilli verslun uppi í Breiðholti sem heitir Allt og þangað fór ég og fann enn samskonar vesti, en þar kostaði það 890 krónur. Er ekki eitthvað bog- ið við svona verðlagn- ingu? Hreiðar Stefánsson Vestmannaeyjum. Saltí matvælum ANNA hringdi og taldi athugavert hversu mik- ið salt er sett í unnin matvæli hér á landi. Hún nefndi sem dæmi hangikjöt og bjúgu, þótt víðar væri líklega pottur brotinn. Heilbrigðiseft- irlit ríkisins ætti að fylgjast betur rrieð unn- um matvælum og tak- marka notkun salts í þeim. Tapað/Fundið Gleraugu töpuðust KVENGLERAUGU í gráleitri fínlegri plast- umgjörð töpuðust á Landsfundi framsókn- artnanna 27. nóvember sl. í Súlnasal Hótels Sögu. Skilvís fínnandi vinsamlega hringi í síma 42163 eftir kl. 18. Gæludýr Týndur köttur BRÖNDÓTT læða, skjaldbökulituð, tapað- ist frá Fannafold í Graf- arvogi sl. laugardag. Viti einhver um hana er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 675007. ÞAÐ dugar stundum að leika næstbesta leiknum. Staðan kom upp á unglinga- meistaramóti Islands fyrir 20 ára og yngri um daginn. Bjöm Þorfinnsson (1.870), 15 ára, hafði hvítt og átti leik, en Bergsteinn Einars- son (1.915) 13 ára, var með svart. Lok skákarinnar urðu 34. Hxh7+ . — Kxh7, 35. Dxh5+ - Kg7, 36. Bxg6! - Rxa5, 37. Dh7+ - Kf8, 38. Dh6+ - Dg7, 39. Dxf4+ og svartur gafst upp. Það væri ekkert nema gott um þessi lok að segja ef hvítur hefði ekki átt mát í tveimur leikjum á stöðumyndinni: 34. Dxh5+! og hvort sem svartur leikur 34. — gxh5 eða 34. — Kxh5 kemur 35. Hxh7 mát. Víkveiji skrifar... Athyglisvert var að lesa fréttir Morgunblaðsins af ársþingi Knattspymusambands íslands á Akranesi um helgina. Ljóst er að gífurlega mikið starf er unnið inn- an sambandsins undir stjóm Egg- erts Magnússonart formanns. Það segir sína sögu um umfang starf- seminnar, að velta sambandsins var 141 milljón á síðasta starfsári. Það er rétt ákvörðun sambands- ins að bregðast af festu við fækk- un áhorfenda að leikjum 1. deildar karla í knattspymu. Áhorfendum fækkaði umtalsvert á síðasta sumri. Sjónvarpsútsendingar frá heimsmeistarakeppninnni í knatt- spyrnu höfðu mikið að segja en Víkverji telur helstu ástæðuna þá að knattspyrnan var einfaldlega leiðinleg í sumar. KSÍ ætlar innan skamms að skipa markaðsnefnd til að skoða þessi mál og koma með tillögur. Nefndin þarf að ræða við öll 1. deildarfélögin áður en hún skilar áliti, því þau bera mikla ábyrgð á því hvernig komið er. xxx Sú tilaga Akurnesinga á þinginu að koma upp knattspyrnum- injasafni á Akranesi er snjöll. Knattspyrna hefur verið iðkuð hér á landi í nærri heila öld og löngu kominn tími til að safna á einn stað merkum munum sem tengjast þessari vinsælu íþrótt og skrá sögu íþróttarinnar og þeirra einstakl- inga, sem skarað hafa framúr. Knattspymusafn á hvergi betur heima en einmitt á Akranesi. Reyndar er Akranes svo frægur knattspymubær að koma mætti upp merku safni um hann einan og sér. XXX Víkveiji saknaði þess í fréttum af þingi KSÍ að hvergi var minnst á landsliðsmálin. Staðan þar er mjög alvarleg að mati Vík- veija. Það er ekki einungis að landslið okkar hafi verið að fá hvern skellinn eftir annan, heldur hafa unglingalandsliðin átt erfitt uppdráttar. Það er aðeins kven- fólkið sem hefur haldið upp merk- inu. Víkverji telur að landsliðsmál- in þúrfí að ræða á sérstökum opn- um fundi á vegum KSÍ. Fróðlegt verður að sjá hvernig Samkeppnisstofnun úrskurðar í kæramáli Áðalstöðvarinnar gegn Ríkisútvarpinu vegna afsláttar- boða á auglýsingum. Víkveiji ætlar ekki að setjast í dómarasæti í þessu tiltekna máli. Hins vegar vill Vík- veiji árétta það sem hann hefur áður sagt að auglýsingadeild RUV hefur einatt farið óvenjulegar og oft ógeðfelldar leiðir í auglýsingum sínum, sem m.a. hafa miðað að því að gera lítið úr keppinautunum. Nýlega auglýsti RUV að 85% út- varpshlustenda hlustuðu á tiltek- inn fréttatíma. Þetta hljómar sem geysihá tala, en hve margir skyldu vita hve lítill hluti þjóðarinnar hlustar að staðaldri á útvarp? xxx Ellefu-fréttir Sjónvarpsins hafa batnað til muna síðustu mán- uðina, enda greinilega meira í þær lagt en áður. En Víkveiji skilur ekki hvers vegna þær eru felldar niður á dögum eins og 1. desem- ber. Fullveldisdagurinn er ekki lengur frídagur annarra en kenn- ara og skólabama.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.