Morgunblaðið - 09.12.1994, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 09.12.1994, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ fHnrgmulrlaltií STOFNAÐ 1913 UTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. BITUR REYNSLA í BOSNÍU VESTURLÖND eru komin í hinar mestu ógöngur í mál- efnum Bosníu og ágreiningurinn um hvernig beri að taka á vandanum er farinn að hafa alvarleg áhrif á samstarf vestrænna ríkja. Þannig hefur deilan valdið klofn- ingi innan Atlantshafsbandalagsins milli þeirra ríkja, sem vilja grípa til harkalegra hernaðaraðgerða gegn Serbum og jieirra er telja slíkt of áhættusamt. A utanríkisráðherrafundi NATO í Brussel í síðustu viku tókst ekki að setja þennan ágreining niður. Ekki náðist heldur samkomulag um yfirlýsingu vegna Bosníudeilunnar á leiðtogafundi aðildarríkja RÖSE í Búda- pest. Ekki er heldur við því að búast að samstaða náist meðal leiðtoga Evrópusambandsins þegar þeir koma saman til fundar í Essen í Þýskalandi í dag og á morgun. Þrýstingurinn á vestræna stjórnmálamenn „að gera eitt- hvað“ er mikill. Lýsandi eru ummæli Helmuts Kohls Þýska- landskanslara að loknum RÖSE-fundinum: „Það sem hér er að gerast veldur mér miklum áhyggjum. í aðeins 300 kílómetra fjarlægð eru þúsundir manna að deyja úr hungri. Ég vil ekki fara heim og svara þeim sem spyrja: Hvað gerðuð þið fyrir Bihac?“ Krafan um aðgerðir er á margan hátt skiljanleg. Borgara- styijöldin í Bosníu er blóðugustu stríðsátök í Evrópu frá lokum síðari heimsstyijaldarinnar. Deilan hefur líka á köfl- um tekið á sig einstaklega hrottalega mynd með þjóðernis- hreinsunum, fjöldamorðum og fjöldanauðgunum. Yfirgang- ur Serba og hroki gagnvart umheiminum hefur að sama skapi verið með endemum. Harmleikur á sér stað í Bosníu, um það verður ekki deilt. Hins vegar verður ekki hjá því litið að áhrif Vestur- landa til að breyta þeirri staðreynd eru takmörkuð. Þar ber fyrst að nefna að Vesturlönd eru í töluverðri sjálfheldu í Bosníu. Fram að þessu hafa Sameinuðu þjóðirn- ar og Evrópusambandið fylgt þeirri stefnu að reyna að sætta hinar stríðandi fylkingar og ná samkomulagi um skiptingu landssvæða. Bein afskipti hafa beinst að mannúð- armálum og friðargæslu. Er nú svo komið að ríkisstjórnir Frakklands og Bret- lands íhuga það í alvöru að draga friðargæsluliðið til baka þar sem ekki er hægt að tryggja öryggi friðargæslulið- anna. Þá er næsta öruggt að geri Bandaríkjamenn alvöru úr því að fella vopnasölubannið á Bosníu úr gildi verði ólíft fyrir friðargæsluliðana í Bosníu. Á sama tíma berast fregnir af því að íslömsk ríki væru reiðubúin að senda herlið til Bosníu ef friðargæslulið SÞ hyrfi á brott. Slíkt gæti haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar og Ieitt til að átökin breiddust út víðar. Lærdómur sá sem Vesturlönd hljóta að draga af þessari deilu, og ættu raunar að hafa lært af óförum Bandaríkja- manna í Víetnam, er að ekki eigi að hafa afskipti af deilum af þessu tagi nema menn viti fyrirfram hver tilgangur af- skiptanna er og hvernig hægt sé að ná fram þeim markmið- um. Að auki verða menn að vera reiðubúnir að taka á sig þær fórnir, sem afskiptin kynnu að þýða. Það væri glapræði af Vesturlöndum að ætla að reyna að stilla til friðar í Bosníu með valdi. Ef ákvörðun yrði tekin um slíkt yrði henni aldrei framfylgt af núverandi friðargæsluliði. Þeir hermenn sem nú eru staddir í Bosníu voru sendir þangað til að gæta friðar en ekki heyja stríð. Friði yrði heldur aldrei komið á með loftárásum einvörð- ungu. Senda yrði tugþúsundir eða jafnvel hundruð þúsunda hermanna til þess bijóta Serba á bak aftur. Mannfall yrði gífurlegt. Hvaða ríkisstjórn er reiðubúin að veija slíka ákvörðun fyrir þjóð sinni? Þær aðildarþjóðir NATO, sem helst hafa haldið uppi kröfunni um aðgerðir í Bosníu, eru Bandaríkjamenn og Þjóðveijar. Þessar þjóðir hafa til þessa ekki sent einn einasta friðargæsluliða til Bosníu. Ætla þær að senda þangað hersveitir? Varla. Önnur staðreynd sem Vesturlönd hljóta hins vegar að horfast í augu við í framhaldi af því hvernig komið er í lýðveldunum, sem áður tilheyrðu Júgóslavíu, er sú að áþekk- ar aðstæður eru víða fyrir hendi í Austur- og Mið-Evrópu. Þótt sárt sé að fylgjast með þróun mála í Bosníu er, úr því sem komið er, hætta á að frekari afskipti af deilunni myndi leiða til þess að hún magnaðist upp og að fórnarlömb- um stríðsins fjölgi ört. Sennilega er skynsamlegast að Vesturlönd einbeiti sér fyrst og fremst að hlutverki sátta- semjarans. ÍSLENDINGAR FREISTA GÆFUNNAR ÚR VINABÆ Stórstúku íslands í Skipholti þar sem spilað er bingó þrisvar í viku. Við leggjum milljarða undir íslendingar virðast ekki sjá eftir peningunum þegar þeir hafa von um að ávaxta þá marg- falt - þótt sú von sé stundum harla lítil. Gréta Ingþórsdóttir kynnti sér happdrættis- markaðinn þar sem margir eru um hituna. AF INNLEN VETTVANGI Eins dauði er annars brauð á þessum markaði eins og víðast annars staðar. Eftir því sem nýjungar hafa litið dagsins ljós hefur hlutur þeirra sem fyrir voru minnkað. Ekki er hlaupið að því að fá heild- aryfirsýn yfir veltuna á happdrættis- markaðnum. Mörg þeirra félaga og samtaka sem fá leyfi fyrir happ- drætti eru ekki einu sinni bókhalds- skyld, auk þess sem forsvarsmönnum margra félaga er það þvert um geð að gefa nákvæmar upplýsingar um umsvif sín á þessum markaði. Eftir því sem næst verður komist virðist þó óhætt að fullyrða að markaðurinn velti um þremur milljörðum króna árlega. 68 happdrættisleyfi í ár miða er allt frá því að vera innan við 10% og upp í 50%. Öll þessi félög hafa fundið fyrir verulegum sam- drætti frá því að best lét en flestir tala um að árið 1982 hafi verið metár í sölu happdrættismiða. Einn stór vinningur getur skipt sköpum Flest þessara nefndu félaga hafa verið með stór upplög og sent miða á flest eða öll heimili í landinu auk fyrirtækja. Þessu fylgir gífurlegur kostnaður, t.d. prent- og póstkostn- aður og kostnaður við gíróseðla. Hlutfall útborgaðra vinninga er yfirleitt svipað og hlutfall seldra miða. Einn stór vinningur til eða frá getur hins vegar skipt sköpum, sérstaklega þegar ekki seljast nema 10% af út- sendum miðum. Félögin hafa reynt að bregðast við þessu og draga úr áhættunni með ýmsum hætti. Sumir hafa hætt með fjöldaútsendingar happdrættismiða og farið út í lausasölu minna upplags og jafnvel snúið frá henni aftur og farið í heimsendingar. Með breyttri samsetningu vinningaskrá má einnig draga úr áhættu. 196 milljónir standa eftir Dómsmálaráðuneytið gefur út leyfi fyrir happdrættum en sérstök lög gilda um flokkahappdrættin og sér- stakar reglugerðir um t.d. íslenska getspá. Fyrstu ellefu mánuði þessa árs voru gefín út 68 leyfí til nokkru færri aðila. Sé miðaverð allra margfald- að með upplagi kemur í ljós að heildarverðmæti mið- anna nemur 1.165 milljónum króna. Sú tala gefur þó ekki rétta mynd af raunveruleikanum. I samtölum við forsvarsmenn nokkurra þeirra félaga og samtaka sem gangast fyrir stærstu happdrættunum; Slysavarnafélags ís- lands, Krabbameinsfélagsins, Sjálfs- bjargar, Hjartaverndar, Styrktarfé- lags lamaðra og fatlaðra, Styrktarfé- lags vangefmna, Hándknattleikssam- bandsins og Bandalags íslenskra skáta, kemur fram að hlutfall seldra Hlutfall vinninga í happdrættum er ákaflega misjafnt. Hjá flestum fé- lagasamtökum er hlutfallið 16-17% en fer þó allt upp í tæplega 70%. Sé gert ráð fyrir 20% meðalsöluhlutfalli í þessum happdrættum má áætla að miðar séu seldir fyrir rúmar 233 millj. kr. Þó má fastlega reikna með að félög og samtök sem standa fyrir happdrættum þar sem upplag er lítið og sölusvæði takmarkað selji mun fleiri miða hlut- fallslega. Að þessum forsendum gefn- um má áætla að eftir standi tæplega 196 milljónir króna. Þá hefur ekki verið tekið tillit til kostnaðar. HHÍ langstærst Flokkahappdrættin þrjú velta rúm- lega 1,5 milljörðum króna á ári. Hlut- ur Happdrættis Háskóla íslands er þar langstærstur. HHÍ er einnig með Hæst vinn- ingshlutfall í Gullnámunni skafmiðahappdrættið Happaþrennu og Gullnámuna, happdrættisvélar. Útreiknað vinningshlutfall HHÍ er 70%. Árið 1992 greiddi HHÍ 809 millj. kr. út í vinningum og 797 millj. árið 1993. Heildarveltan var 1.164 millj. kr. 1992 og 1.144 millj. 1993. HHÍ seldi happaþrennur fyrir 234 millj. kr. 1992 og fyrir 204 milljónir 1993. Vinningshlutfall er 50%. Seint á síðasta ári hófst rekstur Gullnámunnar. í henni afgreiða við- skiptavinir sig sjálfir og velta gjarnan sömu krónunum í gegnum vélarnar oftar en einu sinni þegar þeir taka þátt. Vinningshlutfall er um 89%. Það sem eftir situr stendur undir greiðslu „potta“, rekstrarkostnaði og ágóða. Á þeim nokkru dögum sem Gullnáman var starfrækt á síðasta ári var heildar- velta 18 milljónir og greiddir voru út vinningar að upphæð 5 millj. Þessum tölum ber þó að taka með fyrirvara þar sem um svo skamman tíma var að ræða. íslenskir_ söfnunarkassar, fyrirtæki í eigu RKÍ, Landsbjargar, SÁÁ og SVFÍ, hefur verið starfrækt frá síð- ustu áramótum. Að sögn forsvars- manna þess er ekki hægt að gefa upplýsingar um peningahlið rekstr- arins vegna þess að það hefur ekki verið rekið í heilt ár. Rekstur HHÍ árið 1992, þ.e. flokka- happdrættis, Happaþrennu og Happó, sem velti 90 milljónum, kostaði árið 279 millj. kr. Tekjuafgangur það ár nam 238 millj. Kostnaður við flokka- happdrætti, Happaþrennu og Gull- námuna árið 1993 nam 216 millj. og var tekjuafgangur 246 millj. HHÍ greiðir 20% af ágóða til ríkis- ins vegna einkaréttar þess til að reka peningahappdrætti. Afgangurinn rennur til uppbyggingar HI. Tekjuafgangur 40 milljónir Tekjuafgangur DAS hefur aukist verulega á milli ára síðustu ár. Rekstr- arár happdrættisins er frá --------- 1. maj til 30. apríl. Fyrir rekstrárárið 93/94 Iiggja ekki fyrir endanlegar tölur en áætlað er að tekjuaf- gangurinn verði um 40 Allirai magna máls millj. kr. Rekstrarárið á undan var hann tæpar 29 millj. og þar á undan rúmar 17. Upphæð útgreiddra vinninga hjá DAS var 109,1 milljón 93/93 og 109 milljónir króna 93/94. Heildarvelta var 182,1 milljón 92/93 og 187,5 milljónir króna 93/94. Vinningshlut- fallið hefur farið úr 60% í 58% síð- ustu tvö ár. Rekstrarkostnaður nam 31,8 milljónum króna 92/93 en er óuppgerður fyrir síðasta rekstrarár.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.