Morgunblaðið - 09.12.1994, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.12.1994, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1994 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ KE A býður út hlutabréf að söluverðmæti 112,5 millj. Nuddstofan „Fyrir þig“ KAUPFÉLAG Eyfírðinga býður út sanivinnuhlutabréf að nafnverði 50 milljónir króna á genginu 2,25 eða að söluverðmæti 112,5 milljónir króna. Stjórn félagsins veitti á aðal- fundi árið 1990 heimild til að stofna B-deild stofnsjóðs félagsins með allt að 200 milljón króna hlutafé og það sama ár voru gefín út hlutabréf að nafnvirði 50 milljónir. Nú hefur stjórnin ákveðið að nýta þessa heim- ild enn fremar og gefa út hlutabréf að nafnvirði 50 milljónir króna til viðbótar. Þríþætt markmið Markmiðið með sölu hlutabréf- anna er þríþætt; að styrkja eiginfjár- stöðu félagsins að afla áhættufjár til fjárfestingar í atvinnurekstri og að efla markað fyrir samvinnuhluta- bréf þannig að félagið geti síðar afl- að aukins áhættufjár með þessum hætti. Áætlað er að á þessu ári verði móðurfélagið rekið með 100 milljóna króna hagnaði og hagnaður ársins verði 70 milljónir króna eftir að tek- ið hefur verið tillit til afkomu sam- starfsfyrirtækja þess. Eigið fé fé- lagsins var í lok ágúst á þessu ári rúmir 2,4 milljarðar króna. Árið 1993 var tap af rekstri Kaupfélags Eyfirð- inga að upphæð 51 milljón króna og 247 milijóna króna tap þegar tekið hafði verið tillit til samstarfsfyrir- tækja. Sölu hlutabréfanna annast Kaup- þing hf. og Kaupþing Norðurlands hf. auk afgreiðsla sparisjóðanna og Búiiaðarbankans. Kaupendum gefst kostur á að fá allt að 70% af kaup- verði hlutabréfanna lánað til 11 mánaða, þó ekki hærri fjárhæð en 190 þúsund krónur í hveiju tilviki. Markmið stjómar Kaupfélag Ey- fírðinga er að hlutabréf félagsins séu eftirsóttur íjárfestingarkostur og er stefnt að því með greiðslu arðs að því tilskildu að hagnaður sé af móð- urfélaginu og með því að nýta til fullnustu heimildir á hverjum tíma til útgáfu jöfunarhlutabréfa. Fyrsta árið sem samvinnuhlutabréfin voru gefín út vargreiddur út 15% arður, engin arður var greiddur vegna ársins 1993 en gefín út 5% jöfnunarhlutabréf. NUDDSTOFAN „Fyrir þig“ var opnuð nýlega í þjónustumiðstöð aldraðra í Víðilundi 22. Þar er boð- ið upp á heildrænt slökunarnudd, svæðameðferð, höfuðnudd og kennslu í ungbarnanuddi. Stofan er öllum opin og hægt er að fá keypt gjafakort vilji menn gleðja vini og vandamenn. Það em Katrín Jónsdóttir svæðanuddari og Dýrleif Skjóldal nuddari sem eiga og reka þessa nýju nuddstofu. Punkturinn fær meira ÁÆTLAÐ er að veita 6,4 milljónir króna úr bæjarsjóði vegna rekstrar tómstundamiðstöðvarinnar Punkts- ins, en þar hefur margvísleg starf- semi fyrir atvinnulausa verið í boði. í fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir að framlag til Punktsins hækki um 4,6 milljónir króna. Heildarútgjöld til íþrótta- og æskulýðsmála eru áætluð 112,7 milljónir króna og hækka þau um rúmlega 1% milli ára. ------------- Söguritun liggur niðri Heildarútgjöld til menningarmála á næsta ári nema 79,2 milljónum króna, en það er hækkun um 3,8 milljónir, eða rúm 5% frá því sem er á yfirstandandi ári. Jakob Björnsson bæjarstjóri sagði í ræðu um fjárhagsáætlun bæjarsjóðs að áætlað væri að veija einni milljón króna til að standa staum af kostn- aði er 100 ára afmælis Davíðs Stef- ánssonar skálds frá Fagraskógi yrði minnst á komandi ári. Óskiptir styrkir til menningarmála lækka um 410 þúsund krónur og þá gerir áætlunin ekki ráð fyrir að unn- ið verði að ritun Sögu Ákureyrar á næsta ári og falla því út gjöld vegna þess liðar sem áætlað var að hefði verið tæpar 1,8 milljónir króna. ---------♦ » ♦---- Aðventukvöld AÐVENTUKVÖLD verður í Glerár- kirkju næstkomandi sunnudags- kvöld, 11. desember og hefst það kl. 20.30. Dagskráin er fjölbreytt, mik- ill söngur, Ijósaathöfn og fleira. Ræðumaður kvöldsins er Halldór Blöndal samgöngu- og landbúnað- arráðherra. Starfsmannafélag flkureyrarbæjar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.