Morgunblaðið - 09.12.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.12.1994, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Samninganefnd ríkisins svaraði kröfugerð HÍK og KÍ á samningafundi í gær Krefjast um eða yfir 25% hækkunar Kennarasamtökin krefjast m.a. hækkunar um tvo launaflokka, breytinga á starfsheita- röðun og kennsluskyldu og endurskilgrein- ingar á vinnutíma. Samninganefnd ríkisins telur kennara fara fram á meira en 25% launahækkun, en segir að það komi ekki á óvart af hálfu opinberra starfsmanna. Morgunblaðið/Kristinn SAMEIGINLEG samninganefnd Kennarasambands íslands og Hins íslenska kennarafélags hitti samninganefnd ríkisins á öðrum fundi aðila í gær. SAMNINGANEFND ríkisins telur launakröfur Kennara- sambands íslands og Hins íslenska kennarafélags allt of háar, að sögn Þorsteins Geirssonar, for- manns nefndarinnar, en í gær var haldinn samningafundur i kjaradeil- unni þar sem samninganefnd ríkis- ins lýsti afstöðu sinni til krafna kennarafélaganna. Eiríkur Jónsson, formaður KÍ, segist ekki hafa reiknað út hvað kröfur kennara þýði miklar launa- hækkanir í prósentum en segir vel geta verið að þær svari til um 25% hækkunar. Þorsteinn telur að kröfugerð kennarafélaganna feli í sér meira en 25% kauphækkun ef allt sé talið. Meginatriðin í sameiginlegri kröfugerð kennarasamtakanna eru eftirfarandi: Öll starfsheiti í grunn- og framhaldsskólum hækki um tvo launaflokka. Laun hækki um fjóra launaflokka í áföngum tvö fýrstu starfsárin. Einnig vilja kennarar að núverandi starfsheitaröðun verði endurskoðuð, ný starfsheiti verði tekin upp og þeim raðað í launa- flokka með tilliti til reynslu, ábyrgð- ar og umfangs starfsins. Kennarar vilja að svokölluð ár- ganga- og fagstjóm í grunnskólum og deildarstjóm í framhaldsskólum verði aukin og ákvæði verði sett í kjarasamning um stundafjölda í faglegri stjórnun miðað við þær kennslustundir sem á bak við standa. Þess er einnig krafist að vinnutími kennara og skólastjóm- enda verði skilgreindur upp á nýtt m.a. vegna einsetningar gmnn- skóla, aukinar faglegrar samvinnu og endurmenntunar. „Lækkun kennsluskyldu vegna kennsluferils verði sú sama á grunn- og framhaldsskólastigi. Kennsluskylda lækki um eina kennslustund á viku eftir 10 ára kennsluferil og aðra eftir 15 ára kennsluferil," segir í kröfugerðinni. Loks er farið fram á að kjör stjóm- enda sem hverfa aftur til kennslu- starfa verði skoðuð sérstaklega. Samninganefnd ríkis- ins gerði kennurum ekki gagntilboð á fundinum í gær að sögn Þorsteins en ætlar að skoða kröfumar nánar eins og aðrar kröf- ur sem von væri á frá félögum í BSRB og BHMR. Sagði hann að kröfur kennara væm ólíkar kröfum Starfsmannafélags ríkis- stofnana (SFR) að því leyti að kenn- arar færu fram á hlutfallslegar hækkanir en í kröfugeVð SFR væri megináherslan lögð á krónutölu- hækkanir. Þorsteinn sagði að mönnum brygði ekki við að sjá þessar kröfur því það væri orðin venja hjá flestum starfsmannafélögum hjá hinu opin- bera að leggja fram mjög háar launakröfur í byijun viðræðna. Næsti fundur samninganefndanna er boðaður í næstu viku og kvaðst Þorsteinn gera ráð fyrir að mál yrðu skoðuð í tvennu lagi, ann- ars vegar fagleg mál og hins vegar kjaramál. Eiríkur sagði að kenn- arafélögin ætluðu ekki að sætta sig við að viðræður um launaliði samn- inga yrðu settar til hliðar meðan rætt væri um sérmál kennara og kennarar teldu sig ekki þurfa að bíða eftir því að aðrir hópar legðu fram sínar kröfur. „Þegar þessi tvö félög em í sameiningu búin að leggja hálft ár í að vinna kröfugerð fyrir rúmlega 5.000 kennara þá er það óeðlilegt að okkar mati að það sé ekki hægt að ræða við okkur út frá okkar forsendum," segir hann. Unnið hefur verið að undirbún- ingi fyrir hugsanlega ákvörðun um atkvæðagreiðslu um verkfall eftir áramót á vegum kennarasamtak- anna. Gera þessar áætlanir ráð fyr- ir að verkfall hæfist undir lok febr- úar. „Við emm búnir að leggja nið- ur fyrir okkur nákvæmlega hvemig aðdragandinn í því yrði og emm búnir að setja upp ákveðnar tímaá- ætlanir í því efni,“ sagði einn af forystumönnum samtakanna í sam- tali við Morgunblaðið. Mismunandi launakröfur kennara og SFR Hæstiréttur dæmir lækni og ríkissjóð til að greiða 263 þúsund til bónda í Isafjarðarsýslu Bætt fyrir frelsissviptingu og flutning á sjúkrahús HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær dóm héraðsdóms og dæmdi lækni og ríkissjóð til að greiða bónda í Isafjarðarsýslu þær 263 þúsund krónur sem maðurinn krafðist í skaða- og miskabætur vegna ólögmætrar frelsisskerð- ingar. Læknirinn lét í apríl 1988 flytja manninn nauðugan og með valdi frá heimili hans og flytja í lögreglufylgd til Reykjavíkur í því skyni að hann yrði lagður inn á geðdeild sjúkrahúss i Reykja- vík. Rannsókn í Reykjavík leiddi svo í ljós að ekkert fannst að heilsu mannsins sem gaf tilefni til meðhöndlunar. Maðurinn hafði kennt til höf- uðverks, sjóntruflana, máttleys- is og taltruflana þetta kvöld. Eftir að ráðskona, sem nýlega hafði flust til mannsins, hafði samband við nágranna hringdu þeir í lækni á Isafirði. Sá fór tveggja stunda leið í vitjun til mannsins eftir hann hafði neitað að fara með sjúkrabíl til Isa- fjarðar. Ekkert athugavert Eftir þriggja stunda fortölur, þar sem maðurinn neitaði stað- fastlega að fylgja með til Isa- fjarðar, gaf læknirinn mannin- um sprautu meðan lögregluþjón- ar héldu honum. Síðan var hann fluttur til ísafjarðar og þaðan án frekari rannsókna með flug- vél til Reykjavíkur og á Landssp- ítalann. Aður en að maðurinn var fluttur að heiman hafði hann hringt i nágranna sína, beðið þá að gæta fjár síns og mælt fyrir um fóðurgjöf. Á Landspítalanum fannst ekk- ert athugavert og engin skýring á einkennum mannsins við ítar- lega skoðun geðlæknis og taug- asérfræðings. Læknirinn, sem mælti fyrir um flutning manns- ins, hafði talið líkur á að maður- inn hefði fengið skyndilega feng- ið ákveðinn alvarlegan geðsjúk- dóm, sem leitt gæti til dauða eða varanlegrar örorku, eða þá að hann kynni að vera með heila- blæðingu. Útilokað væri að sjúk- dómsgreina manninn eða með- höndla hann fjarri læknastofu eða sjúkrahúsi. Byggðist flutn- ingur hans á sjúkrahús á bráða- nauðsyn og hefði. átt sér stoð í lagaákvæði sem víki sjálfræði manna til hliðar við slíkar að- stæður. Niðurstaða Héraðsdóms staðfest í dómi Hæstaréttar í gær er staðfest niðurstaða Héraðsdóms um að maðurinn hafi ekki verið haldinn geðsjúkdómi sem rétt- læti nauðungarvistun á sjúkra- húsi og ekki verði fallist á að hann hafi verið of rænulítill til að mark mætti taka á mótmæl- um hans. Vistun hans á sjúkra- húsi hafi ekki verið lögmæt þótt álit Læknaráðs hafi staðfest að ótti læknisins um blæðingu í heila eða aðra vefræna geðtrufl- un gæti hafa átt rétt á sér, auk þess sem örðugt hafi verið að fylgjast með heilsu mannsins Skaðabótaskylda Þrátt fyrir þetta hafi læknir- inn ekki gætt alls sem átti við, áður en ákvörðun um valdbeit- ingu og flutning til Reykjavikur var tekin. Sjúkrasaga mannsins var ekki könnuð, ekki leitað sam- ráðs við aðra lækna er þekktu til mannsins og læknirinn hafi ekki ráðfært sig frekar við ná- granna mannsins og hjúkrunar- fræðing héraðsins. Því beri læknirinn og ríkissjóður skaða- bótaskyldu vegna þeirrar frelsis- sviptingar sem maðurinn varð fyrir. Krafa mannsins um 200 þús- und króna miskabætur og 63 þúsund króna bætur vegna út- lagðs kostnaðar var tekin til greina og einnig var læknirinn og ríkið dæmt til að greiða allan málskostnað. Dagsbrún fer ekki út í skyndiverkföll Tillögu breytt um stuðning við sjúkraliða GUÐMUNDUR J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar, breytti tillögu sem samþykkt var á félagsfundi Dagsbrúnar sl. þriðjudagskvöld um stuðning við verkfall sjúkraliða. I upphaflegri tillögu var ekkert minnst á skyndiverkföll, en í tillögu sem dreift var til fjölmiðla var talað um að veita stjórn heimild til að boða til skyndiverkfalla. Gylfí Páll Hersir, sem vakti máls á frekari stuðningi við sjúkraliða á félagsfundi Dags- brúnar, sagðist harma hvernig hald- ið hefði verið á þessu máli. Gylfi Páll sagðist ekki hafa flutt neina tillögu á fundinum. „í lok fundarins hvatti ég til þess að fund- urinn ályktaði til stuðnings verk- falli sjúkraliða vegna þess að ég taldi að ef verkfallið yrði brotið á bak aftur væri það mjög alvarlegt mál fyrir komandi átök upp úr ára- mótum. Ég hvatti sömuleiðis til að haldnir yrðu fundir til stuðnings þessu verkfalli.11 Ekki talað um skyndiverkföll Gylfi sagði að í lok fundarins hefði fundarstjóri, Halldór Björnsson, varaformaður Dagsbrúnar, borið upp tillögu sem byggst hefði á því sem komið hefði fram í ræðu sinni. Tillagan hljóðaði þannig: „Félags- fundur í verkamannafélaginu Dags- brún, haldinn 6. desember 1994, lýsir fyllsta stuðningi við baráttu sjúkraliða fyrir bættum kjörum sín- um og sendir þeim baráttukveðju.“ Tillaga sú sem send var Qölmiðl- um var eftirfarandi: „Tillaga Gylfa Páls Hersis, Félagsfundur Dags- brúnar haldinn 6.12. 1994, skorar á verkalýðsfélög að styðja sjúkraliða í baráttu þeirra og krefst þess að stjórnvöld semji við sjúkral- íða þegar í stað. Jafnframt heimilar fundurinn stjórn félagsins að boða til aðgerða, sjúkraliðum til stuðn- ings, hvort sem er með opnum fund- um eða skyndiverkföllum, eða öðr- um þeim aðgerðum er þurfa þykir.“ Ekki ánægður með orðalagið Guðmundur J. sagðist ekki hafa yenð ánægður með orðalagið í til- lögu Gylfa Páls og því lagað það. Guðmundur J. sagði að ekki yrði gripið til neinna aðgerða til stuðn- mgs sjúkraliðum að sinni, en félagið myndi áfram ræða leiðir til að styðja sjúkraliða í baráttu fyrir bættum kjörum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.