Morgunblaðið - 09.12.1994, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 09.12.1994, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fjögurra manna fj'ölskylda heimilislaus eftir að íbúðarhús á Vatnsendaflöt brann Réð ekk- ert við eldinn REYKUR steig upp frá húsinu og eldtungur teygðu sig út um glugga á suðausturhlið þegar Þórir Jónsson kom heim að Lynghóli við Elliðavatn með fjölskyldu sína, eiginkonuna Jónu Guðnadóttur, börnin tvö Karolínu Stefaníu 2 ára og Þóri Reyni 16 ára og fjölskylduhund- inn. Þrátt fyrir tilraunir hús- bóndans til að slökkva eldinn brann nánast allt sem brunnið gat og fjölskyldan missti heim- ili sitt og innbú. Þórir vinnur hálfan daginn og hafði verið heima með Karol- ínu um daginn. „Við fórum svo um fjögurleytið niður í bæ til að ná í konuna mína og strák- inn. Á eftir fórum við í bakarí og höfum líklega verið tæpan klukkutíma í burtu þegar við komum aftur heim. Reykurinn steig upp af húsinu og eldtung- urnar loguðu út um suðaustur- gluggan héma. Strákurinn hljóp strax niður í næsta bústað í síma og ég tók garðslönguna til að reyna að slökkva eldinn. Mér varð þó fljótlega ljóst að ég réð ekkert við eldinn,“ sagði Þórir. INNBÚ ÓTRYGGT Hann sagði að slökkviliðið hefði komið um tuttugu mínút- um seinna til að slökkva eldinn. En húsið, sem var úr timbri, og innanstokksmunir urðu eldinum fljótt að bráð. Þórir segist ekki hafa verið með innbústrygg- ingu. Fjölskyldan hafði búið í húsinu samfleytt í um það bil ár. Þórir sagðist ekki vita um eldsupptök. Hins vegar tók hann fram að lifað hefði í kola- kyntum ofni en slíkt ætti að vera í lagi í stillu og ekkert hefði verið að veðri. Þá hefði meiri eldur virst vera í því horni þar sem myndbandstæki hefði verið. Hvort annað þessa hefði haft einhver áhrif vissi hann ekki. Fyrsti slökkviliðsbílinn kom 10 mínútum eftir að hringt var á hjálp og tókst að slökkva eld- inn á um klukkustund. Ragnar Sólonsson, aðalvarðstjóri slökkviliðsins, sagði að þrír slökkvibílar hefðu verið séndir á staðinn, samtals með 6 tonn af vatni. Til öryggis hefði verið kallaður til fjórði bílinn frá ÞÓRIR Jónsson og fjölskylda hans misstu aleiguna í brunanum. Reykjavíkurflugvelli með 5 tonn til viðbótar. Aukavakt slökkviliðsmanna var kölluð til aðstoðar við slökkviliðsstarfið. TIMBURHÚS Ragnar sagði að eldur hefði logað út um tvo til þijá suður- glugga þegar slökkviliðið hefði komið að húsinu. Vel hefði log- að í húsinu enda væri það úr timbri með bárujárnsklæddu þaki. Engu að síður sagði hann að slökkviliðstörf hefðu gengið vel fyrir sig og lauk þeim uppúr kl. 18. Rannsóknarlögreglan kannar eldsupptök. Hæstiréttur ógildir sameiningu Stykkishólms og Helgafellss veitar Kosning ógilt vegna gagn- særra kjörseðla íbúar sveitarfélaganna þurfa á næstunni að ganga að kjörborðinu í fjórða skiptið á einu ári ÆSTIRÉTTUR kvað í gær upp þann dóm að at- kvæðaseðlar sem notaðir voru við kosningu um sameiningu Stykkishólmsbæjar og Helgafells- sveitar á Snæfellsnesi 16. apríl sl. hafi verið of gagnsæir og því eigi atkvæðagreiðslan að vera ógild þar sem þessi brestur sé í eðli sínu til þess fallinn að hafa áhrif á úrslit kosningar. Sesselja Arnadóttir, lögfræð- ingur í félagsmálaráðuneyti, sagði í samtali við Morgunblaðið ljóst að boða þyrfti til nýrra kosninga um sameininguna vegna dóms Hæstaréttar en að ráðuneytið mundi ekki tjá sig um áhrif dóms- ins að öðru leyti fyrr en í dag. Auk kosninganna 16. apríl hafa þegar farið fram tvennar kosning- ar til sveitarstjóma í Stykkishólmi og Helgafellssveit á þessu ári. Skylda að kæra í dómi Hæstaréttar segir að það hafi verið skylda kjörstjórnar- manna að kæra atkvæðagreiðsl- una hafi þeir talið að framkvæmd hennar væri ekki að lögum. Að lokinni kosningu um samein- ingu sveitarfélaganna tveggja þann 16. apríl sl. kærðu kjör- stjórnarmenn hana til sýslumanns- ins í Stykkishólmi. Úrskurðar- nefnd felldi kosninguna úr gildi, en Samstarfsnefnd um samein- ingu Stykkishólmsbæjar og Helga- fellssveitar kærði úrskurðinn til félagsmálaráðuneytisins. Ráðu- neytið komst að þeirri niðurstöðu, að kosningin væri gild. Hólmfríður J. Hauksdóttir, hreppstjóri Helgafellssveitar og fyrrum fulltrúi í kjörstjóm, höfð- aði þá ein mál á hendur félags- málaráðherra, samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna tveggja og bæjarstjórn Stykkis- hólmsbæjar. Aðrir kjörstjómar- menn höfðust ekki frekar að eftir úrskurð ráðherra. Vikið úr kjörstjórn Vegna málshöfðunarinnar ákvað hreppsnefnd Helgafells- sveitar að víkja Hólmfríði J. Hauksdóttur úr kjörstjóminni þar sem hún væri vanhæf vegna máls- höfðunarinnar. Aðrir kjörstjórnar- menn sögðu þá einnig af sér. Dómur í Héraðsdómi Vestur- lands féll 6. október sl. á þá leið sem Hæstiréttur staðfesti í gær en málið hefur sætt flýtimeðferð í dómskerfinu. í sumar voru sveitarstjórnar- kosningar, sem fylgdu á eftir kosningunum um sameininguna, ógiltar, þar sem of skammur tími hafi liðið frá Jdví að sameining var ákveðin þar til sveitarstjórnar- kosningarnar fóru fram. Kosið var á ný til sveitarstjómar 1. október. í dómi Hæstaréttar, sem Hrafn Bragason, Guðrún Erlendsdóttir, Haraldur Henrysson, Hjörtur Torfason og Pétur Kr. Hafstein kváðu upp, segir að Hólmfríður hafi sem kjósanda í sveitarfélaginu haft rétt til að halda kæru sinni til laga fyrir dómstólum þótt aðrir kjörstjórnarmenn hafi kosið að gera það ekki. Grundvallarákvæði laga um kosningar I dómi Hæstaréttar segir að ekki verði talið að orðalag á kjör- seðli hafi verið til þess fallið að hafa áhrif á úrslit kosninganna eða verið andstætt lögum en Hólmfríður hafði gert athugasemd við það, ásamt þykkt papprírsins sem kjörseðlarnir voru prentaðir á. Skrift sást í gegnum kjörseðlana þótt þeir væru brotnir saman og segir Hæstiréttur að kjörseðillinn tryggi því ekki að kosningin hafí verið leynileg en það sé meðal grundvallarákvæða í íslenskum lögum um opinberar kosningar. „Brestur í þessu efni er í eðli sínu til þess fallinn að hafa áhrif á úrslit kosningar," segir í dómi Hæstaréttar. Samkvæmt því var atkvæða- greiðslan 16. apríl dæmd ógild og ríkissjóður dæmdur til að greiða allan málskostnað, þar með talin málsvamarlaun Haralds Blöndal hrl., lögmanns Hólmfríðar J. Hauksdóttur. Fyrir hönd ríkisins og sveitarfé- laganna fluttu málið Guðrún Mar- grét Árnadóttir hrl. og Jón Steinar Gunnlaugsson hrl. Formannafundur * landssambanda ASI Undirbúa áherslur gagnvart ríkisstjórn FORMENN landssambanda Alþýðu- sambandsins komu saman í gær til að stilla saman strengi varðandi sam- eiginleg mál aðildarfélaganna í hugs- anlegum viðræðum við stjómvöld vegna komandi kjarasamninga. Ekki liggur endanlega fyrir hver verða áhersluatriði verkalýðshreyf- ingarinnar gagnvart stjórnvöldum en boðaður hefur verið annar fundur um miðja næstu viku. Skv. upplýsingum Morgunblaðsins eru m.a. til skoðunar atriði sem tengjast breytingum á lánskjaravísi- tölu, aðgerðum í húsnæðismálum, bæði að því er snýr að greiðsluerfið- leikum heimilanna og breytingum á húsbréfakerfinu og félagslega hús- næðiskerfinu. Þá hefur verið rætt um breytt skattleysismörk og persónuafslátt, aukið skatteftirlit, afnám tvísköttun- ar lífeyris, fjármagnstekjuskatt, framlengingu hátekjuskatts, afnám 16 vikna biðtíma í Atvinnuleysis- tryggingasjóði, jöfnun orkukostnað- ar vegna húshitunar, jöfnun kostnað- ar vegna heitbrigðiskerfis og aðgerð- ir til að draga úr atvinnuleysi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.