Morgunblaðið - 09.12.1994, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 09.12.1994, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1994 41 MINNINGAR konu, um átthaga mína og kunnugt umhverfi. Að kynnast góðu fólki er mikill fjársjóður. Mér finnst ég hafa auðg- ast við kynnin við Guðrúnu frá Hnjúkum, þó að þau yrðu raunar allt of stutt. Hún var góður stofn, fóstruð við hjarta landsins og skil- aði framtíðinni mörgum og traust- um niðjum. Blessuð sé minning hennar. Auðunn Bragi Sveinsson frá Refsstöðum. Mig langar að minnast með örfá- um orðum Guðrúnar Þorfinnsdótt- ur frá Hnjúkum, móður Garðars míns. Ég kynntist henni ekki fyrr en hún var komin á Hrafnistu en hún var þá hress og kát í sínu eigin herbergi með sín húsgögn og þar hafði hún' það gott, vann mikla handavinnu og las mikið. Ég hafði svo gaman að heim- sækja hana og hlusta á hana segja frá gamla tímanum þegar hún var ung og hlusta á öll kvæðin sem hún kunni. Hún var svo fróð og minnug að það var með eindæmum. Þegar hún var flutt til Reykjavík- ur fór hún smá tíma út á vinnu- markaðinn og vann í fiski með mörgum konum. Ein þeirra gerði vísu til hennar sem hljóðar svona: Húnvetningsins höfðings svip hefur frúin. Gædd er flestum gæðum sönnum sem gefin eru bestu mönnum. Afkomendur hennar og eigin- manns hennar, Björns Geirmunds- sonar, eru orðnir fjölmargir. Blessuð sé minning hennar. Elín Björnsdóttir. Lokið er langri ævigöngu elsku- legrar ömmu okkar, Guðrúnar frá Stijúgsstöðum í Langadal. Það er erfitt að finna orð til að lýsa ömmu því hún var eins og dýrlingur í okkar augum. Okkur fannst hún kunna og geta allt. Við rifjuðum upp margar minningar tengdar henni. Hún sagði svo skemmtilega frá og kunni ógrynnin öll af vísum og ljóðum sem hún kenndi okkur krökkunum og var sá viskubrunnur ótæmandi. Okkur fannst svo eðli- legt að amma kæmi og gerði handa okkur kleinur eða laufabrauð. Hún hnoðaði deigið og steikti en mamma og við krakkarnir skárum út. Það var mikil stemmning við þetta og höfum við reynt að halda í þennan sið. Það er svo margt sem okkur langar til að þakka henni fyrir og svo margt sem kemur upp í hug- ann. Það var með ólíkindum, hvað janfvel stutt stund í einrúmi með eins hjartahlýrri og skilningsríkri konu eins og ömmu, gat lagt ótrú- lega græðandi smyrsl á sárin og „dimmu í dagsljós breytt“. Það er mikill söknuður að henni, en þrátt fyrir það erum við glöð innst inni, því að amma er nú kom- in á braut eilífðarinnar, á meðal þeirra ástvina sem hún þráði að hitta á ný. Að lokum viljum við þakka ömmu fyrir dýrmætar samveru- stundir allt frá bernsku og fram á þennan dag og viljum við kveðja hana með eftirfarandi ljóði eftir Tómas Guðmundsson, sem hún hélt svo mikið upp á: Og seg þú mér, ljóð mitt, hvort er ekki ein- mitt þetta hin eina gleði, sem sálir og kvæði varðar, að mega í auðmýkt fara að dæmi fuglsins, sem flýgur í erindum guðs milli himins og jarðar? Guðrún Edda, Sigrún Jóna, Ásbjörn og Ásgeir Andrabörn. Það er aðeins eitt sem er öruggt í þessu lífi og það er að öll munum við deyja að lokum, sum ung, en önnur í hárri elli. Og oft er það svo að þó sárt sé að sjá á bak ættingj- um og vinum, er dauðinn sem hinn líknandi engill. Og níutíu og níu ár er hár aldur, einkum þegar þrek- ið er löngu búið. Hún amma mín Guðrún Þorfinnsdóttir lést á Hrafn- istu hinn 1. desember síðastliðinn, en þar hafði hún dvalist í mörg undanfarin ár, í mjög góðri umönn- un þess góða fólks sem þar vinnur. Ég sem barn varð þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að dveljast í sum- ar- og páskafríum mínum í sveit- inni hjá ömmu og afa sem var Björn Geirmundsson, en á þeim árum og seinustu búskaparár sín bjuggu þau að Hnjúkum, skammt frá Blöndu- ósi. Ekki bjuggu þau neinu stór- býli hvað húsakost og skepnufjölda snerti, en hjörtun voru stór og umhyggja fyrir litlum borgarstrák sem hvergi undi sér betur en hjá afa og ömmu í sveitinni þar sem bæði var ró og friður. Það er margt sem kemur upp í hugann við fráfall þessarar mætu konu, til dæmis minningarnar úr stóra tijágarðinum á Hnjúkum og vinnan sem í hann var lögð og ljóm- ann í augum ömmu þegar vel tókst til með ræktun blóma og græð- linga. Mér er sérstaklega minnis- stætt eitt páskafríið sem ég dvald- ist á Hnjúkum, en daginn eftir að ég kom þangað skall á blindhríð, og má segja að alla páskana hafi verið glórulaust veður, þannig að ekki var hægt að dveljast utandyra í tíu daga. Við amma spiluðum spil sem heitir Marías, nánast frá morgni til kvölds, líklega þó með hæfilegum matarhléum, og þá var nú kátt í höllinni, því keppni var hörð, þótt seinna meir hafi læðst að mér sá grunur að þessi heiðurs- kona hafi leyft mér að vinna spil til að viðhalda spennunni, svo að litli snáðinn yrði ekki tapsár og upp kæmi leiði yfir að þurfa að hanga innandyra svo lengi. Þannig var amma og allar mínar minningar á sama veg, gleði og hlýlegt viðmót sama á hveiju gekk. Ég vil að lokum þakka afa og ömmu fyrir allt sem þau gerðu fyr- ir mig. Megi þau hvfla í friði. Stefán Vagnsson. Góð úlpa erhlýjólagjqf Mikið úrval af úlpum með og án hettu. Stærðir 34-50 Póstsendum \i#HI/I5IÐ Laugavegi 21, s. 25580 MATVINNSLUVÉLAR I Ein gób og önnur betri i yh \b ,^\f \ 6 \ a 9 e *r 0 u n / n n / Fjölhæf viS bakstur og matargerð. Rífur, þeytir, hnoðar - hrærir 600 gr af deigi. 0,8 lítra skól og 320 W mótor. Einn hraði og impúlstakki. Mjög hagstætt verð. 11.569 ofb. ver& Hrærir, hakkar, rífur, þeytir og margt fleira. 1,25 lítra skól. Impúlstakki og stiglaus hraði. BRÆÐURNIR Lágmúla 8. Sími 38820 Jólatilboð á hreinlætistækjum OPIÐ TIL KL. 16 LAUGARDAG SALERNÍ. Við bjóðum þér vönduð salerni af ýmsum gerð- um ásamt ýmsum áhöld- um á baðherbergið. Sér- lega hagstætt verð. Verð frá kr. 9.760 m/setu. STÁLVASKAR. Vandaðir stálvaskar í ýmsum stærðum og gerðum. Verðdæmi: 2ja hólfa frá kr. 3.735. 1 'A hólf Verð frá kr. 11.785. BLÖNDUN ARTÆKI. Ótrúlegt úrval af blöndunar- tækjum. Stílhrein og falleg. Eldhústæki frá kr. 2.536. Sturtutæki frá kr. 2.040. Hitast. sturtutæki frá kr. 5.217. STURTUKLEFAR, Sturtukiefar sem ganga hvar sem er. Af öllum stærðum og gerðum. Heill klefi m/blt., 80 cm, frá kr. 25.908. Sturtuhorn, 80 cm, frá kr. 9.042. Ofangreint er aðeins lítill hluti úrvalsins. Lítið inn - Vandið valið VATNSVIRKINN HF. ÁRMÚLI 21 - PÓSTHÓLF 8620 - 128 REYKJAVÍK SÍMAR: VERSLUN 686455. SKRIFSTOFA 685966 Eitt blab fyrir alla! - kjarni málsins!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.