Morgunblaðið - 09.12.1994, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
*
Engin verðbólga á Islandi en um 3% að meðaltali í ríkjum ESB
Verðbólga
hvergi lægri
en á Islandi
VÍSITALA framfærslukostnaðar
hefur hækkað um 0,5% síðastliðna
tólf mánuði og mælist nú hvergi
lægri í OECD-ríkjunum. í desember
reyndist vísitalan vera 170,8 stig
og hækkaði um 0,1% frá því í nóv-
ember. Vísitala vöru og þjónustu
mældist þá 174,8 stig og lækkaði
um 0,1% frá því í nóvember en
undanfama tólf mánuði hefur vísi-
talan hækkað um 0,1%.
Grænmeti og ávextir lækkuðu
um 6,2% sem olli 0,15% vísitölu-
lækkun. Verð á bensíni hækkaði
um 2,6% sem hafði í för með sér
0,10% hækkun vísitölunnar. Þá
hækkaði viðhald húsnæðis um 1,7%
sem olli 0,08% vísitöluhækkun.
Hækkun á íslenskum bókum um
16% olli 0,04% hækkun vísitölu
framfærslukostnaðar.
Undanfama þijá mánuði hefur
vísitala framfærslukostnaðar lækk-
að um 0,1% sem jafngildir 0,5%
verðhjöðnun á ári. Sambærileg
þriggja mánaða breyting á vísitölu
vöm og þjónustu svarar til 1,6%
verðhjöðnunar á ári.
Verðbólgan í ríkjum Evrópusam-
bandsins var 3,0% að meðaltali á
tímabilinu október 1993 til október
1994, 1,6% í Frakklandi, 2,0% í
Danmörku, 2,1% í Lúxemborg og
2,1% í Belgíu. Verðbólgan á íslandi
mældist engin á sama tímabili og
var hvergi lægri í OECD-ríkjum.
Verðbólga í nokkrum ríkjum
Hækkun neysiuverðsvísitölu frá október 1993 til október 1994
Grikkland
Portúgal
Spánn
Austurríki
Meðaltal ESB-landa
V-Þýskaland
Holland
Bandaríkin
Sviþjóð
Bretland
Belgía
Lúxemborg
Danmörk
Finnland
Noregur
Frakkland
Japan
14,5%
14,4%
3,1%
13,0%
| 2,8%
12,6%
12,4%
j 2,4%
I 2,1%
j 2,1%
|2,0%
11,8%
|1,7%
11,6%
ESB-lönd
\m
m Sviss
§| 0,2% Kanada
10,0% ísland
Heimild: Hagstofa Isiands og Eurostat news
I Japan, Italíu, Danmörku og Frakklandi er um bráðabirgðatölur að ræða.
I Kanada er um septembergildi og í Irlandi er um ágústgildi að ræða.
Greiðslukort
VISA fjöl-
greiðslurtil
6 mánaða
VISA hefur ákveðið að bjóða korthöf-
um sínum að skipta greiðslum til
allt að 6 mánaða eða lengur í stað
3 áður. Þá verður boðið upp á rað-
greiðslur vegna stærri viðskipta til
24 mánaða í stað 18 áður.
VISA hefur nú um 3 ára skeið
boðið upp á skiptingu greiðslna, eða
svokallaðar íjölgreiðslur, fyrir kort-
hafa sem óska eftir að jafna greiðslu-
byrði sína. Að undanfömu hefur ver-
ið óskað greiðsluskiptingar fyrir um
8% úttekta, eða sem svarar 200 millj-
ónum króna á mánuði. Korthafi þarf
að óska eftir greiðsluskiptingu
tímanlega fyrir eindaga og semja um
hana við viðskiptabanka sinn.
Raðgreiðslum VISA fylgir nú sér-
stök innkaupatrygging, sem er nýj-
ung, að sögn fyrirtækisins. Þá er
ábyrgðartími búnaðar og tækja
framlengdur um 1 ár miðað við það
sem framleiðandi veitir. Velta í rað-
greiðsluviðskiptum VISA nemur um
250 milljónum á mánuði, en heildar-
afborgunarviðskipti VISA, að með-
töldum svokölluðum boðgreiðslum,
nema 600 milljónum á mánuði.
Skipt hefur verið um
sljóm Gunnarstinds
SKIPT hefur verið um alla stjórn
Gunnarstinds hf., sem er stærsti at-
vinnuveitandinn á Breiðdalsvík og
Stöðvarfirði. Tveir af fímm stjómar-
mönnum, þar á meðal formaður
stjórnarinnar, Einar Kristinn Jónsson
úr Reykjavík, eru tilnefndir af Þróun-
arsjóði sjávarútvegsins.
Þegar ósk um hluthafafund í
Gunnarstindi barst frá Útvegsfélagi
samvinnumanna ákvað Þróunarsjóð-
ur að nýta sér atkvæðamátt sinn,
að sögn Hinriks Greipssonar, fram-
kvæmdastjóra sjóðsins. Hann sagði
að það væri nú stefna sjóðsins að
nýta sér afl atkvæða sinna til að
hafa áhrif á rekstur fyrirtækja, líkt
og gert hefði verið í Odda á Patreks-
fírði og nú í Gunnarstindi.
Þróunarsjóður er stærsti einstaki
hluthafínn í Gunnarstindi, með 32,1%
hlut, sem hann tók við af Hlutafjár-
sjóði Byggðastofnunar. Aðrir
stærstu hluthafamir eru Stöðvar-
hreppur og Útvegsfélag samvinnu-
manna.
Hinrik sagði að Þróunarsjóður
sjálfur hefði engar áætlanir um að
bæta rekstur Gunnarstinds, en hefði
tilnefnt sína menn í stjórn fyrirtækis-
ins til að reyna að leita leiða til úr-
bóta.
Tap en betri afkoma
Rekstur Gunnarstinds hefur geng-
ið betur á þessu ári en í fyrra. Lítils-
háttar tap er af rekstri fyrirtækisins
að loknum fyrstu 8 mánuðum þessa
árs, eða um 400.000 kr. en búast
má við að það verði eitthvað meira
í árslok, að sögn Hinriks.
Tap var af rekstri Gunnarstinds
upp á 135 milljónir króna árið 1993
og bókfært eigið fé var neikvætt í
árslok um 182 milljónir. Hjá fyrir-
tækinu vinna um 180 manns, en það
varð til við sameiningu Hraðfrysti-
húss Stöðvarhrepps hf. og Hrað-
frystihúss Breiðdælinga hf. árið
1991. Gunnarstindur rekur frystihús
á báðum stöðunum, auk þess að
gera, út tvo togara með 3.300 þorsk-
-ígildum.
Núverandi stjóm Gunnarstinds
skipa, auk Einars Kristins: Jón Þórð-
arson, forstöðumaður sjávarútvegs-
deildar Akureyrar, Árni Benedikts-
son, Reykjavík, Albert Geirsson,
sveitarstjóri á Stöðvarfírði og Rúnar
Björgvinsson, sveitarstjóri á Breið-
dalsvík.
Aukin skarpskyggni
Engin gleraugu
Nýr snyrtispegill sem léttir lífið
Laugavegi 80, sími 611330
Endurvinnsla áls
stóraukin íEvrópu
Brilssel. Reuter.
ÁFORM em uppi um stóraukna end-
urvmnslu áls í Evrópu í samræmi við
lagasetningu ESB að sögn Alexand-
ers Wirtz, framkvæmdastjóra fyrir-
tækis í Frankfurt sem endurvinnur
áldósir.
Talsvert svigrúm er til aukningar,
þar sem endurvinnsluhlutfallið í Evr-
ópu er 33-35%, talsvert lægra en í
Bandaríkjunum.
Wirtz vill ekkert láta hafa eftir
sér um áhrif hækkaðs álverðs á þessu
ári, en áreiðanlegar heimildir herma
að framleiðendur og notendur eigi í
samningum um hvemig bera skuli
kostnað af um 80% verðhækkun.
Coke hyggst nota stáldósir
Coca-Cola hefur skýrt frá því að
fyrirtækið hyggist nota ódýrara stál
í stað áls í dósir sínar í nokkmm
Evrópulöndum. Tilkynningin hefur
komið af stað vangaveltum um hvort
önnur sváladrykkjafyrirtæki muni
fafa að dæmi Coke.
Álsamband Evrópu í Brussel,
EAA, kveðst ekkert vita um slíka
breytingu.
Nýr staður, stærri
verslun, betra
úrval
Hvergi meira úrval
af íslenskri myndlist
OPIÐ UM HELGAR
Laugavegi 118d,
gengið inn frá Rauðarárstíg,
sími 10400
Tryggvi Ólafsson
Siguröur Haukur Lúövígsson
Sossa, Margrét Soffía IJjörnsdóttir