Morgunblaðið - 09.12.1994, Síða 16
16 ' FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Reynsla - þekking - forysta
Veljum Drjfu Sigfúsdóttur,
forseta bœjarstjórnar Keflavíkur — Njaróvíkur —Hafna, í l.sœti !
prófkjöri Framsóknarjlokksins í Reykjaneskjördæmi 10. desember nk.
Metum þekkingu hennar og reynslu í stjórnmálum.
Stuðningsmenn.
Prófkjörsskrifstofur:
Kejlavík: Hafnargötu 45 (fyrir ofan gleraugnaverslun), símar 14025 og 14135.
Kópavogur: Hamraborg 10 (gengið inn bakatil), símar 644744 og 644734.
FRÉTTIR: EVRÓPA
Reuter
G E I S I A D I S K A_R
Verð á geisladiskum er miklu lægra hjá okkur
Flytjandi/titill Okkar verö
Bubbi M. - 3 heimar ......................1.950,-
Diddú-Töfrar..............................1.950,-
Tweety-Bit................................1.950,-
SSSól-Blóö................................1.950,-
Bong-Release..............................1.950,-
Spoon-Spoon ..............................1795,-.
Björgvin Halldórsson -Safn bestu laga <2 diskar) . .2.200,-
Transdans 3 - safndiskur .................1.795,-
Heyrðu 5 - safndiskur.....................1.795,-
Reif í sundur - Safndiskur................1.795,-
Strákarnir okkar .........................1.695,-
Jet Black Joe - Fuzz......................1.950,-
Now 29 - safndiskur (2 diskar) ...........2.850,-
Sting - The best of ......................1.695,-
Nirvana-Unplugged in N.Y..................1.695,-
INXS - The greatest hits..................1.695,-
REM-Monster...............................1.695,-
Pearl Jam - Vitalogy......................1.695,-
Almennt verö
.....2.199,-
.....2.199,-
.....2.199,-
.....2.199,-
.....2.199,-
.....1999,-
.....2.499,-
.....1.999,-
.....1.999,-
.....1.999,-
.....1.899,-
.....2.199,-
.....3.299,-
.....1.899,-
.....1.899,-
.....1.899,-
......1.899,-
.....1.899,-
Þetta er aðeins lítið dæmi um
úrvalið hjá okkur
Verslaðu fyrir jólin 1994
þar sem verðið er lægst
Kringlunni 8-12 (á móti apótekinu)
póstkröfusími 91-811666
SIEMENS
T W W W
m t rvui mvm m i ju vi.DC'1 *
• 11 kerfisinnstillingar fyrir suðuþvott
misiitan þvott, straufrítt og ull
• Vinduhraði 500 - 800 sn./mín.
• Tekur mest 4,5 kg
• Sparnaðarhnappur (1/2)
• Hagkvæmnihnappur (e)
• Skolstöðvunarhnappur
• Sérstakt ullarkerfi
• (slenskir leiðarvísar
Og verðið er ótrúlega gott.
Siemens þvottavél á aðeins
kr. 59.430 stgr.
SMITH & NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 628300
D
cc
LU
Akranes:
Rafþjónusta Sigurdórs
Borgarnes:
Glitnir
Borgarfjörður:
Rafstofan Hvítárskála
Hellissandur:
Blómsturvellir
Grundarfjörður:
' Guðni Hallgrímsson
^ Stykkishólmur:
Skipavík
^ Búðardalur:
Ásubúð
ísafjörður:
^ Póllinn
Hvammstangi:
Skjanni
^ Sauðárkrókun
Rafsjá
O Siglufjörður:
Akureyri:
Ljósgjafinn
Húsavík:
2 Öryggi
Þórshöfn:
Noröurraf
^ Neskaupstaður:
Rafalda
LU Revðarfjöröur:,
Ratvélaverkst. Árna E.
Egilsstaðir:
^ Sveinn Guömundsson
Breiðdalsvík:
Stefán N. Stefánsson
^ Höfn í Hornafirði:
Kristall
(T\ Vestmannaeyjar:
^ Tréverk
Hvolsvöllur:
O Kaupfélag Rangæiriga
Selfoss:
Árvirkinn
00 Garður-
Raftækjav. Sig. Ingvarss.
^ Keflavík:
^ Ljósboginn
Hafnarfjörður:
—^ Rafbúð Skúla,
—' Álfaskeiöi
Viljir þú endingu og gæöi
velur þú SIEMEIUS
Síðasti leiðtogafundur Delors
JACQUES Delors, forseta fram-
kvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, var klappað lof í lófa
á fundi evrópskra sósíalista í
Essen í gær. Lengst til hægri er
gestgjafinn, Rudolf Scharping
formaður þýzkra sósíaldemó-
krata, en til vinstri Felipe Goza-
les, forsætisráðherra Spánar, og
Javier Solana, spænski utanríkis-
ráðherrann. Leiðtogafundur
ESB í Essen, sem hefst í dag,
verður sá 28. og jafnframt sá
síðasti, sem Delors sækir. Fáir
menn hafa haft meiri áhrif á
samrunaþróunina í Evrópu.
Valdsvið ESA í Norma-málinu ekki skýrt
ESB styrkir
skipasmíðar
eitt ár í viðbót
VALDSVIÐ Eftirlitsstofnunar
EFTA (ESA) til að úrskurða um
kæru Norma hf. í Garðabæ vegna
fyrirhugaðs ríkisstyrks til kaupa á
flotkví til Akureyrar er ekki skýrt.
í gildi er tímabundin tilskipun Evr-
ópusambandsins, sem leyfir styrki
til skipasmíða og gert er ráð fyrir
að hún verði framlengd um ár um
næstu áramót. Á meðan tilskipunin
gildir, eru aðildarríki samningsins
um Evrópskt efnahagssvæði sam-
mála um að þegar um skipasmíðar
er að ræða muni þau ekki beita
ákvæðum 61. greinar samningsins
um að ríkisaðstoð, sem raskar sam-
keppni, sé ósamrýmanleg fram-
kvæmd samningsins. Stefnt er að
því að fella tilskipunina inn í EES-
samninginn, verði hún framlengd
um áramótin.
Að sögn Guðlaugs Stefánssonar,
hagfræðings í þeirri deild ESA, sem
fer með mál er tengjast ríkisstyrkj-
um og einokun, er tilskipun Evrópu-
sambandsins óvenjuleg bæði að efni
og formi, þar sem hún leyfir beina
rekstrarstyrki til skipasmíðastöðva.
Hún gengur því þvert á grundvall-
arreglur ESB og EES um sam-
keppnismál.
. Guðlaugur segir að af þessum
sökum sé álitaefni hvort ESA hafi
umboð til að fjalla um kæru Norma
hf. og það sé enn til umfjöllunar
hjá stofnuninni.
Framlengd ítrekað
Evrópusambandið ákvað í árs-
byrjun að framlengja um ár svokall-
aða sjöundu tilskipun um skipa-
smíðar, sem átti að renna út í árs-
lok 1993. Yfírstandandi ár átti að
vera það seinasta, sem sambandið
styrkir skipasmiðar og hefur það
skorað á önnur ríki að draga úr
ríkisstyrkjum. Vegna atvinnu-
ástands er hins vegar búizt við að
tilskipunin verði framlengd, og hef-
ur framkvæmdastjórn ESB lagt það
til við ráðherraráðið.
I júlí síðastliðnum náðist sam-
komulag á vettvangi Efnahags- og
framfarastofnunarinnar (OECD),
þar sem ESB og ýmis helztu skipa-
smíðalönd heims, svo sem Kórea,
Japan og Bandaríkin skuldbinda sig
til að hætta styrkjum til skipa-
smíða. Samkomulagið hefur ekki
enn hlotið pólitíska staðfestingu,
en fari svo gengur það í gildi í árs-
byijun 1996. í því ljósi leggur fram-
kvæmdastjórn ESB til að sjöunda
tilskipunin um skipasmíðar gildi út
næsta ár. Eftir það má búast við
að ríkisstyrkir til skipasmíða falli
niður.
Essenfundurinn í
skuggaáfalla
• FUNDUR leiðtoga ESB í Essen
átti að vera hápunktur formennsku
Þjóðverja í ráðherraráðinu. Mörg
evrópsk blöð létu hins vegar í gær
í ljós þá skoðun að fundurinn gæti
snúist upp í andhverfu þess sökum
þeirra áfalla, sem sambandið hefur
orðið fyrir á undanförnum mánuð-
um. Ber þar hæst höfnun Norð-
manna á ESB-aðild og hagsmunaá-
rekstra milli ríkja í norður- og suð-
urhluta Evrópu. Þá er talið líklegt
að Bosníudeilan muni varpa skugga
á fundinn.
• THE Times segir Þjóðveija ætla
að reyna að sannfæra Breta um það
í Essen að rétt sé að veita ríkjum í
Austur-Evrópu aðild að ESB eins
fljótt og hægt er. Wall Street Jo-
urnal bendir hins vegar á að deilur
um aðild þessara ríkja hafi valdið
mikilli streitu í sambandi Frakka og
Þjóðveija innan ESB.
• ÞORSTEINN Pálsson sjávarút-
vegsráðherra átti viðræður við tvo
framkvæmdastjórnarmenn Evrópu-
sambandsins í Brussel á miðvikudag.
Við Sir Leon Brittan ræddi hann um
breytingar á tollamálum vegna inn-
göngu þriggja EFTA-ríkja í ESB um
áramót. Einnig ræddi hann við Erkki
Liikanen, nýskipaðan framkvæmda-
stjórnarmann frá Finnlandi, og var
sá fundur einkum ætlaður til að
stuðla að góðu sambandi við hina
nýju norrænu fulltrúa í fram-
kvæmdastjórninni. Þorsteinn hitti
jafnframt sendiherra Noregs í
Brussel, en búizt er við samfloti við
Norðmenn um ýmis samningamál
við Evrópusambandið á næstu vik-
um.