Morgunblaðið - 09.12.1994, Síða 22
22 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
SIEMENS
/?]014GJAFA
Það er gaman að gefa vandaða gjöf
-þú getur alltaf treyst á Siemens gœði.
wr
m
Matvinnsluvél
Matvinnsluvél sem fékk hæstu
einkunn í þýska neytendablaðinu
Test. Handa öllum mathákum.
Verð kr. 13.900.-
Símtæki í miklu úrvali.
Þýsk völundarsmíð.
Ýmsar stærðir og gerðir.
Verð frá kr. 5.600,-
Brauðrist með hitahlíf,
uppsmellanlegri smábrauðagrind
og útdraganlegri mylsnuskúffú.
Verð kr. 4.300,-
Handryksuga í vegghöldu.
Þráðlaus og þægiieg.
Helsti óvinur smákusksins.
Verð kr. 3.750.-
Djúpsteikíngarpottur
Djúpsteikingarpottur fyrir
mest 2,3 1. Fyrir hvers kyns mat.
Franskar á færibandi!
Verð kr. 10.900.-
Blástursofn
Blástursofn - góðvinur
í vetrarkuldum.
Tvær hitastillingar, 1000 og 2000 W.
Verð kr. 4.800.-
Umboðsmenn okkar á landsbyggðinni eru:
Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs • Borgarnes: Glitnir • Borgarfjörður. Rafstofan Hvítárskála • Hellissandur:
Blómsturvellir - Grundarfjörður: Guðni Hallgrímsson ■ Stykkishólmur Skipavík - Búðardalur: Ásubúð
Isafjörður. Póllinn ■ Hvammstangi: Skjanni Sauðárkrókun Rafsjá Siglufjörðun Torgiö • Akureyri:
Ljósgjafinn ■ Húsavík: öryggi • Þórshöfn: Norðurraf • Neskaupstaður: Rafalda Reyðarfjöröur:
Rafvélaverkst. Árna E. • Egilsstaðir Sveinn Guðmundsson • Breiðdalsvik: Stefán N. Stefánsson ■ Höfn í
Hornafirði: Kristall • Vestmannaeyjar. Tréverk • Hvolsvöllur Kaupfélag Rangaeinga • Selfoss: Árvirkinn
Garðun Raftækjav. Sig. ingvarss. - Keflavík: Ljósboginn • Hafnarfjörður Rafbúð Skúla, Álfaskeiði
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • Sími 628300
LISTIR
Dekurdrengur á
dreifbýlisbomsum
UT ER komin barnabókin Dekur-
drengur á dreifbýlisbomsum eftir
Hildi Einarsdóttur.
Sagan fjallar um ellefu ára
Reykjavíkurstrák, dálítinn prakkara,
sem fer í sveit. Þar upplifir hann á
margan hátt framandi heim þar sem
samband manna, dýra
og náttúruvætta er náið.
í fyrstu fellur honum
ekki við sveitalífið, en
áður en yfir lýkur er
hann kominn á bólakaf
í hin ólíklegustu verk-
efni sem reyna á þolrif-
in.
Þetta er fyrsta bók
Hildar. Sjálf á hún tvo
stráka sem hún segist
svona í aðra röndina
hafa verið að skrifa fyr-
ir.
„Ég hafði verið lengi
í blaðamennsku þegar
ég ákvað að gerast
heimavinnandi. En það
var erfítt að slíta sig frá
tölvunni. Þegar færi
gafst setti ég niður nokkrar hug-
myndir sem ég vann úr síðar,“ segir
Hildur.
„Ástæðan fyrir því að ég, sem er
fædd og uppalin í borg, vel sveitina
sem sögusvið er sú, að mig langar
til að veita innsýn inn í þennan heim
þar sem náttúruöflin eru í meiri ná-
lægð við manninn.
Við bjuggum í torfkofum fram á
þessa öld og vorum í nánu sambandi
við drauga og huldufólk og þetta
samband eigum við að rækta. Þótt
veraldlegir hlutir séu ágætir til síns
brúks þá eru þeir leiðinlegir einir og
sér.
Þegar ég var í sveit voru þessar
verur nánast hluti af daglegu lífi.
Ég man eftir bónda á næsta bæ við
mig sem draugur fylgdi og reyndi
hann að gera manninum ýmsar skrá-
veifur. Ég man að ég beið alltaf
spennt eftir því að eitthvað gerðist
þegar bóndinn kom í heimsókn. í
borginni erum við fjarri
þessum hugmynda-
heimi og börnin geta
ekki upplifað hann í
sínu rétta umhverfi.
Það er helst að þau
kynnist honum í gegn-
um bækur.
Annað sem sveitin
hefur í ríkara mæli en
borgin og gefur þessu
lífi meiri fjölbreytni eru
dýrin.
Krakkar sem hafa
verið í sveit hafa oft
bundist dýrunum nán-
um böndum. En það er
mjög gefandi að um-
gangast dýr og gerir
börnum gott tilfinn-
ingalega. Ég er ekki
með þessu að segja að sveitalífið sé
eitthvað betra eða merkilegra en líf-
ið í borginni en það er öðruvísi. Ég
hef haldið sambandi við sveitina í
gegnum hestamennskuna og verð að
segja að ég vildi ekki vera án hennar.
Bókin um dekurdrenginn er þó
ekki bara sveitarómantík heldur
kemst hann þar í kast við hinn harða
heim fullorðinna á milli þess sem
hann upplifir ýmis ævintýri með
krökkunum í sveitinni. Hann tekur
sjálfan sig ekki of hátíðlega, hefur
sterka réttlætiskennd og lærir að
vera ekki dómharður.
Bókina tileinka ég strákunum mín-
um, þeim Darra og Andra“.
Hildur
Einarsdóttir
íslandsbanki býöur ókeypis
myndatöku vegna debetkorta
dagana 9.-16. desember
Frá og meö 1. janúar
1995 ábyrgist íslands-
banki aöeins þá tékka
þar sem debetkorti hefur '^mmmmmmmmmmmmmmm
veriö framvísaö og tékkaábyrgöarnúmer skráö á
tékkann.
íslandsbanki hvetur því alla tékkareikningseigendur
sína til aö sœkja um debetkort í nœsta útibúi
bankans. Mun ódýrara er aö taka út af tékka-
reikningum meö debetkorti en tékka.
Debetkortafœrslur í hraöbönkum eru ókeypis.
Notaöu tcekifaerib og sœktu um debetkort núna á
meöan þér býöst ókeypis myndataka. Þetta tilboö
stendur aöeins til 16. desember.
Ókeypis myndataka fer
fram í eftirtöldum útibú
um íslandsbanka á
höfuöborgarsvœöinu:
Lcekjargötu 12............. kl. 14:00- 16:00
Eiöistorgi 17.............. kl. 11:00- 14:00
Bankastrœti 5.............. kl. 14:00- 16:00
Laugavegi 105.............. kl. 10:00- 14:00
Háaleitisbraut 58.......... kl. 13:00- 16:00
Suöurlandsbraut 30.......... kl. 13:00- 16:00
Dalbraut 3................. kl. 13:00 - 16:00
Stórhöföa 17............... kl. 09:15 - 13:00
Kringlunni 7................ kl. 13:00- 16:00
Þarabakka 3................. kl. 09:15 - 16:00
Strandgötu 1................ kl. 13:00 - 16:00
Einnig er boöiö uppá ókeypis myndatöku í útibúum
utan höfuöborgarsvceöisins.
Vinsamlega haföu samband viö
viökomandi útibú.
ISLAN DSBAN Kl
Nýjar plötur
• UT er komin gospeltónlist á
geislaplötu og snældu sem ber nafn-
ið Miriam. Það er söngkonan Mir-
iam Ós/carsdóítirásamtfjölda
landsþekktra hljóðfæraleikara sem
flytja 12 lög. Meðal hljóðfæraleik-
ara má nefna Gunnlaug Briem,
Jóhann Ásmundsson, Friðrik Karls-
son, Kristin Svavarsson, Óskar Ein-
arsson, Jóhann Hjörleifsson og Pál
Pálson. Við sögu koma 25 manna
kór og hópur bakraddasöngvara
auk margra blásara. Útsetningar
annaðist Óskar Einarsson og upp-
töku og hljóðblöndun Tómas Tóm-
asson.
Þetta er frumraun Miriam á plötu
en söngur hefur engu að síður ver-
ið hluti af starfi hennar sem foringi
í Hjálpræðishernum, þar af átta ár
i Panama. Útgáfan er í tilefni af
100 ára afmæli Hjálpræðishersins
á íslandi á næsta ári. Allur ágóði
rennur til hjálparstarfs hans.
HUSQVARNA
Husky Lock
460 D
Nýjja overlock línan
Fyrir hina kröfuhör&u
Verft
43.300- kr. stgr.
VÖLUSTEINNhf
Foxafen 14, Sími 889505
Umboðsmenn um allt land.