Morgunblaðið - 09.12.1994, Qupperneq 24
24 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Fyrir jólin
Mikið úrval af
i síðum kjólum
15% stgr.afsl. A
BffiH
Kt rUKN TO
.. .með geisladrifi
oghátölurum! I
Við bjoðum einnig fjölbreytt urval CD-ROM-
geisladiska allt frá barnaleikjum til orðabóka
og allt þar á milli. Svo geturðu einnig spilað
venjulega hljómgeisladiska með drifinu.
Sýning 12. til 17. desember.
LITTLE MOnSTER
ATSCHOOL
THETOftfófSE
Apple-umboðið hf.
Skipholti 21, sími: (91) 62 48 00
LISTIR
»•
TOLUSETTAR
BERNSKU-
MINNINGAR
Þórarinn Eldjárn
svipuðu reki og maður sjálfur eiga
sameiginlegt." Hann segir að margar
minningamar sem hann færi í bókina
séu frá sjötta áratugnum og stijálist
svo smátt og smátt og upprifjunin
nái til ársins 1960, þegar hann er
tæplega tvitugur.
Mörg minningarbrotin eru sótt í
heim bóka, tímarita og útvarps. Þá
minnist höfundur mannanafna, tísku-
vara og vörumerkja, eins og: „Ég
man apaskinnsjakka“,_„Ég man lýsól-
lykt“, „Ég man íslendingaþætti
Tímans" og „Ég man
Lárus Salómonsson."
Vissulega eru þessar
endurminningar mis at-
hyglisverðar, sumar
rifja eitthvað upp fyrir
lesandanum, aðrar
skemmta honum og svo
eru þær sem gefa ekki
neitt. Maður staldrar
gjaman lengst við per-
sónuleg atvik sem hentu
höfundinn - og eins og
oft gerist við lestur texta
eftir Þórarin á maður
auðvelt með að brosa:
„Ég man hvað það var
erfítt að spila með lúðrasveitinni fyrir
framan sjúkrahúsið á Akranesi eftir
að hafa ælt alla leiðina með Akra-
borginni." Ekki þarf að lesa lengi til
að fínna fyndnar minningar eins og:
„Ég man í átta ára bekk að einhver
sagði við mig: „Ertu ekki bytjaður
að greiða þér?“, en kvikindisskapur
bamaáranna er þarna líka: „Ég man
Camp Knox og fúkkalyktina af krökk-
unum þaðan í skólanum."
Það má líta á Ég man sem nýtt
framlag til bemskuminninganna svo-
nefndu, sem sumir kölluðu „stráka-
sögur“ í niðrandi tón, og voru áber-
andi fyrir nokkrum árum. Það voru
sögur sem komu með nýtt líf í ís-
lenska skáldsagnagerð, þar sem höf-
undamir voru gjaman að skrifa um
bemskuheima og æskuupplifanir í
goðsagnalegri mynd. Þórarinn fer allt
aðra leið með sínar minningar, býr
þeim ekki sögulegan búning heldur
býður lesandanum þær hráar til lestr-
ar: 480 tölusettar minningar á tæpum
90 síðum. En það athyglisverðasta
er að margar þessar minningar verða
þó að einhverskonar sögum við lestur-
inn; verða að einhveiju leyti manns
eigin upplifanir og maður sér þær
fyrir sér sem svipmyndir.
Þórarinn segist fullkomna sam-
svörunina við bók Perecs með því að
staðnæmast við 480 atriði og útbúa
nafna- og atriðaskrá. Hann segist
síðan vona að hugmyndin kveiki í
lesendum, og að „þeim dugi ekki
minna en heilt eigið kver undir það
sem kvikna kann“. Ekki veit ég hvort
lestur bókarinnar geti hrundið af stað
einhverskonar keðjubréfí; að einn lesi
og skrái síðan sínar eigin minningar,
fái þær öðrum til lestrar og þannig
koll af kolli. Vissulega er hugmyndin
skemmtileg og öllum hollt að leyfa
huganum að grafa eftir rykföllnum
minningum, fyllast eftirsjá yfír sum-
um og skemmta sér yfír öðrum.
Ómögulegt er þó að segja hvort út-
koman hjá öðrum yrði jafn fjölbreyti-
leg og lifandi og hjá Þórami, því þótt
hann fái grunnhugmyndina að láni
hefur hann náð að setja saman
skemmtilega og persónulega smábók
sem er laus við tilgerð.
Ég man er fallega frágengin í
prenti og bandi en eitthvað við kápu-
hönnunina minnir á glósubók eða
jafnvel draumráðningabók; kápan
hefði mátt vera hlýlegri og persónu-
legri. En að hafa nafna- og atriða-
skrá í bókarlok er góð hugmynd, því
það er skemmtilega tilgangslaust að
geta gripið inn í þetta óvenjulega
bernskuminningasafn eins og um
merkan sagnfræðilegan fróðleik sé
að ræða, að fletta til dæmis upp á
orðinu „Sunbeam“, sjá að það er núm-
er 228 og fínna: „Ég man Sunbeam
hrærivélar".
Einar Falur Ingólfsson
BÓKMENNTIR
M i n n i n g a r
ÉG MAN
eftír Þórarin Eldjám. Forlagið 1994.
Prentun Oddi -104 síður.
UNDIRTITILL Ég man, nýrrar
minningarbókar Þórarins Eldjáms, er
480 glefsur úrgamalli nútíð. Og bók-
in er einmitt sett saman úr örstuttum,
tölusettum minningum
höfundarins sem flestar
rúmast í einni setningu
og hefjast allar á orðun-
um „ég man“. Þessi
minningarbrot eru ekki
í neinni skipulagðri röð,
þau birtast bara fyrir
augum lesandans, eitt
af öðru. Númer 89 er
þannig: „Ég man að bíl-
freyjumar í Norðurleið-
arútunni hentu ælupok-
unum út um gluggann";
90: „Ég man hvað físk-
salinn á Víðimel var aljt-
af reiður“; og 91: „Ég
man hvað mér gekk alltaf illa að selja
merki."
Þórarinn þakkar franska rithöfund-
inum Georges Perec fyrir bókina Je
me souviens, sem út kom 1978, og
útskýrir í eftirmála að þaðan komi
bæði hugmyndin og titillinn. „Aðferð-
in er einföld...: Maður rifjar upp næst-
um gleymt smælki, fánýtt og ómerki-
legt, sem allir eða a.m.k. margir á
fóstudag, laugardag
og sunnudag.
opið fos. 10-18:30
lau. 10-18 sun. 13-17
Fjöldi
annarra
tilboða
Laugavegi 54 - Sími 25201
Rússneski
sirkusinn í
bíósal MÍR
SÍÐASTA kvikmyndasýning-
in fyrir jól í bíósal MÍR,
Vatnsstíg 10, verður sýnd nk.
sunnudag, 11. desember, kl.
16. Þá verður sýnd kvikmynd-
in j,Sirkus“ (Parad alle).
I fréttatilkynningu segir:
„í myndinni eru sýnd mörg
atriði úr sirkussýningum í
Rússlandi og koma þar flestir
frægustu skemmtikraftar
landsins á síðustu árum við
sögu. Þulur og leiðsögumaður
um sirkusinn er í kvikmynd-
inni hinn frægi trúður Nikul-
in. Þarna má sjá loftfimleika-
menn, sirkusdýrs, sjónhverf-
ingamenn, trúðana Karandasj
og Popov o.s.frv., auk þess
sem atriðum með leikbrúður
er skotið inn í myndina. Skýr-
ingar eru á rússensku og
óþýddar á annað tungumál,
en það ætti ekki að koma að
sök því að sirkus er fyrst og
fremst fyrir augað“.
Aðgangur að bíósal MÍR
er ókeypis og öllum heimill
meðan húsrúm leyfir.
„Leitin að
jólastjörn-
unni“ í Nor-
ræna húsinu
NORSKA ævintýramyndin
„Reisen til julestjemen" verð-
ur sýnd í Norræna húsinu á
sunnudag 11. desember og
hefst sýningin kl. 13 eða
klukkutíma fyrr en auglýst
er í prentaðri dagskrá.
Myndin er gerð eftir leikriti
Sverres Brandt og er sögu-
þráðurinn á þessa leið: „A
jólanótt er Gullintoppa prins-
essa lokkuð út í skóg að leita
að jólastjörnunni af frænda
sínum, sem er grimmur og
undirförull greifi. Árin líða og
ekkert spyrst til prinsessunar.
Drottningin og kóngurinn eru
búin að missa alla von um að
finna dóttur sína að nýju þar
til einn góðan veðurdag kem-
ur lausnin."
Myndin er ætluð börnum
jafnt sem fullorðnum og er
hún með norsku tali. Sýningin
tekur um eina og hálfa
klukkustund.
Allir eru velkomnir og að-
gangur ókeypis.
Málverk í
Götugrillinu
KRISTBERGUR Pétursson
myndlistarmaður opnar sýn-
ingu á verkum sínum á veit-
ingastaðnum Götugrillinu,
Ameríkumaður í París,
laugardaginn 10. desember
kl. 14. Götugrillið er til húsa
í Borgarkringlunni, Kringl-
unni 4-6.
Kristbergur hefur haldið
nokkrar einkasýningar og
tekið þátt í ýmsum samsýn-
ingum heima og erlendis, síð-
ast í Kína. Á þessari sýningu
verða til sýnis málverk, unnin
á þessu ári.
Ný verk
Gallerí Ríkey
SÝND verða ný verk á laugar-
dag og sunnudag frá kl. 13-18
í Gallerí Ríkey, Hverfisgötu
59.