Morgunblaðið - 09.12.1994, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Nýjar bækur
• KRAPPUR lífsdans er skráð af
rithöfundinum og útvarpsmannin-
um Jónasi Jónassyni. I henni lýsir
PéturH. Ólafsson æviferli sínum
sem oft hefur verið æði stormasam-
ur og ævintýralegur. Pétur stund-
aði sjómennsku í áratugi, sigldi á
erlendum flutningaskipum í skipa-
lestum á stríðsárunum, háði baráttu
fyrir bættum kjörum sjómanna og
hefur nú á síðari árum barist fýrir
bættri aðstöðu aldraðra.
í kynningu útgefanda segir að
Jónas Jónasson hafí verið einkar
listfengur og iaginn við að fá fólk
til þess að lýsa lífi sínu í fyllstu
einlægni, jafnt gleði sem sorgum.
Útgefandi er Vaka-Helgafell.
Bókin Krappur lífsdans er 216 blað-
síður, kostar 2.980 kr.
• ÚT er komin bók þar sem er að
fínna fjölda uppskrifta að ólíkum
pastaréttum. Þetta er fyrsta ís-
lénska uppskriftabókin með pasta-
réttum. Allt hráefni í réttina er
miðað við íslenskar aðstæður. Stór-
ar litmyndir eru af hverjum rétti í
bókinni.
Ritstjórar Pastarétta eru Björg
Sigurðardóttir og Hörður Héðins-
son en þau sjá um val uppskrifta
ogmatreiðslu fyrirNýja eftirlætis-
rétti, matreiðsluklúbb Vöku-Helga-
fells. Ljósmyndir af réttunum tók
.Guðmundur Ingólfsson íímynd.
Bókin Pastaréttir kostar 1.680 kr.
skólavOroustIg 15 - SlMI 5511505
Auður Hafsteinsdóttir
leikur kvöldljóð
TÓNLIST
Hljómdiskar
NOCTURNE
Auður Hafsteinsdóttir fiðla/víólín,
Steinunn Birna Ragnarsdóttir
pianó. Japis 9417-2.
KANNSKI eru þetta nú ekki allt-
saman „kvöldijóð" (nocturne) - en
eiga þó vel við í skammdeginu, jafn-
vel á haustin „með nýkveikt tungl í
vindhvítum vötnum". Allt eru þetta
meira eða minna þekktar lagaperlur
eftir menn eins og Kreisler, Schum-
ann, Tchaikovsky, Corelli, Bach og
Hándel, svo einhvetjir séu nefndir,
í flutningi framúrskarandi hljóð-
færaleikara, Auðar Hafsteinsdóttur
og Steinunnar Birnu Ragnarsdóttur.
Auður leikur hér að sjálfsögðu á
NOCTURNE
■m 'tN.N
wmmm
.SrriNliNN f.iRNA
R,VjNAKMX> - UR
fíðluna sína, en einnig á lágfíðlu.
Um fiðluleik hennar yfirleitt þarf
ekki að hafa mörg orð, hann er í
senn fallegur og agaður og persónu-
lega er ég mjög hrifinn af tóninum,
sem á kannski sérlega vel við í gam-
alli músík (Corelli, Vivaldi, Bach...),
en höfðar þar fyrir utan mjög tii
mín í sínum tæra og „svalandi" -
næstum „hráa“ tjáningarkrafti.
Engin málamiðlun, takk, enda hefur
Auður hlotið fjölda viðurkenninga
fyrir fiðluleik sinn og komið víða
fram á alþjóðlegum vettvangi sem
einleikari og í kammermúsík, og er
án efa einn af okkar fremstu túlk-
andi listamönnum í tónlist í dag.
Steinunn Birna er einnig í hópi
fremstu píanóleikara okkar og hefur
komið fram á tónleikum víða erlend-
is og hlotið verðskuldaða viðurkenn-
ingu.
Litlu við þetta að bæta. Við höfum
hér á einum hljómdiski 20 falleg og
sígild lög í mjög góðum flutningi.
Hjóðritun (Vigfús Ingvarsson) er
fyrsta flokks. „ ,
Oddur Bjornsson
Yegleg tónlistargjöf
TÓNLIST
Hljómdiskar
J.S. Bach
Gunnar Kvaran selló, Haukur Guð-
laugsson orgel. Japis 9420-2.
VARLA er hægt að hugsa sér
fallegri gjöf tíl styrktar samtökum
um krabbameinssjúk börn en þenn-
an yndislega hljómdisk.
Ekki nóg með að tónlistin sjálf
er sýnishorn af Bach einsog hann
gerist dýrðlegastur í „blíðu og
stríðu", aðgengileg og stór (og ekki
fleiri orð um það!), heldur er sjálfur
flutningurinn með þeirri djúpu inn-
lifun og reisn, sem slíkri tónlist
hæfir.
Það vissu nú allir að Gunnar
Kvaran er einhver besti sellisti sem
við höfum eignast - og á hann þó
í harðri samkeppni. Sem túlkandi
Bachs er hann í allra fremstu röð.
Þar kemur til örugg stílkennd, mik-
ill tónn og fagur - svo ekki sé
minnst á fyrrnefnda innlifun og þá
innbyggðu reisn sem öll tónlist
Bachs býr yfír. Mætti ég líka minn-
ast á sjálft trúartraustið, auðmjúkt
og huggunarríkt og hafið yfir efa-
semdir.
Túlkun Gunnars á tveimur fyrstu
sellósvítunum er að mínu mati ein-
staklega „kórrétt", ekki síst hvað
viðkemur hraðavali, „fraseringum"
og áherslum. Og hef ég þó í huga
menn einsog Casals, Foumier, Tort-
elier, Starker og Bengston. En það
er reyndar ekki nóg. Enginn getur
leikið slíka tónlist nema hann hafi
þann persónuleika - það andlega
„format" - sem tónskáld á borð
við Bach og Beethoven (sem eru
víst fá - ef nokkur) krefjast.
Haukur Guðlaugsson leikur með
Gunnari í nokkmm vel þekktum (og
eftir því fallegum) verkum eftir
Bach, svo sem í Aríu úr hljómsveit-
arsvítu nr. 3, Kom, dauðans blær
og Slá þú á hjartans hörpustrengi
o.fl., útsett fýrir orgel og selló.
Haukur er auðvitað rétti maður á
réttum stað í verkum sem þessum
- og í „andlegri" tónlist yfirleitt,
ekki síst ef hún er eftir Bach. Hve-
nær fær maður Sálmforleikina með
honum?
0g hvenær fær maður allar
Bach-svítumar með Gunnari Kvar-
an á hljómdiska (2)?
Ég bíð.
Hljóðritun (fór fram í Fella- og
Hólakirkju) er mjög góð - enda
varla við öðm að búast þegar Vig-
fús Ingvarsson og Hreinn Valdi-
marsson eiga í hlut.
Þeir sem vilja styrkja samtök um
krabbameinssjúk böm og aðrir unn-
endur fagurrar tónlistar fá hér
tækifæri að eignast hljómdisk sem
er perla, bæði hvað varðar tónlist
og flutning.
Oddur Björnsson
'estlendingar dr. Lúðvíks Kristjánssonar koma þessi árin
út öðru sinni. Nú er annað bindið komið út, en það ber heitið
„ Jón Sigurðsson og Vestlendingar". Um eíni þess sagði
dr. Bjöm Þorsteinsson sagnfræðiprófessor:
„ Ritið Vestlendingar verður til þess að stækka Jón Sigurðsson
enn að mun. - Á Vesturlandi hefst íslensk sjálfstæðisbarátta
og þar átti Jón Sigurðsson ömggast fylgi og um þá sveit fjallar Lúðvík Kristjánsson.
Rit hans er stórmerkt framlag til rannsókna á mikilvægu atriði þjóðarsögunnar. Með riti smu hefiir
Lúðvík fært sjálfstæðisbaráttu 19. aldar nær okkur nútímamönnum.
SKUGGSJÁ
BÓKABÚD OLIVERS STEINS SF.
- Slík rit þarf að semja úr öðmm hémðum landsins,
fyrirmyndin er fengin, svo hægara er að feta slóðina."
Guðbrand-
ur Ægir
- sýnirá
Mokka
ÞRIÐJUDAGINN 6. desember
opnaði Guðbrandur Ægir sína
fyrstu einkasýningu á Mokka
við Skólavörðustíg. Sýningin
fjallar á einfaldan hátt um
jólahald íslendinga fyrr og nú
og ber yfírskriftina Hátíð ljóss
og skugga, segir í kynningu.
Sýningin stendur út jólamán-
uðinn.
Guðbrandur Ægir stundaði
fyrst myndlistarnám við
Myndlistarskólann í Reykja-
vík. Hann útskrifaðist úr
skúlptúrdeild Myndlista- og
handíðaskóla íslands sl. vor
eftir fjögurra ára nám þar.
Guðbrandur Ægir er fæddur
á Sauðárkróki 1963.
Síðustu sýn-
ingar í Kaffi-
leikhúsinu
fyrir jól
SÍÐASTA sýning á Sápu eftir
Auði Haralds verður 17. des-
ember og á Eitthvað ósagt
eftir Tenessee Williams 10. og
16._ desember.
í fréttatilkynningu segir:
„Góð aðsókn hefur verið að
þessum sýningum og í heild
hafa komið hátt á annað þús-
und manns í Kaffiléikhúsið frá
því það var opnað 7. október sl.
Hlaðvarpinn er þekktur fyr-
ir sérstaka jólastemmningu og
þó svo starfsemin hafi breyst
er jólastemmningin í þessum
rúmlega aldargömlu húsum
enn mikil.“
I Kaffileikhúsinu er nú boð-
ið upp á ýmiskonar jólagóð-
gæti, glögg og piparkökur og
jólasælgæti.
Tónleikar í
Alafossverk-
smiðjunni
LAUFEY Sigurðardóttir fiðlu-
leikari og Richard Talkovsky
sellóleikari halda tónleika í
gömlu Álafossverksmiðjunni í
Mosfellsbæ, í vinnustofu Tolla,
laugardaginn 10. desember kl.
Í6.
Á efnisskránni eru verk eft-
ir Giordani, H. Villa Lobos og
Ravel og verk eftir Þorkel Sig-
urbjörnsson, sem þarna er flutt
í fýrsta sinn hérlendis.
Þetta er í fyrsta sinn sem
tónleikar eru haldnir á þessum
stað. Miðar eru seldir við inn-
ganginn.
Halldór sýnir
í Galleríi
Birgis
HALLDÓR Ásgeirsson mynd-
listarmaður opnar sýningu í
Galleríi Birgis Andréssonar
laugardaginn 10. desember kl.
16. Sýningu sína kallar Hall-
dór „Hraun - Um - Rennur“
og í kynningu segir: „Um er
að ræða samspil hrauns sem
brætt er á staðnum og gler-
flaskna er innihalda litróf
vatnslita."
Sýningin er opin alla
fimmtudaga milli kl. 14 og 18
og stendur út janúar. Þess má
geta í Ieiðinni að nú stendur
yfir sýningin „Hraungögn"
með verkum Halldórs í hús-
gagnadeild Pennans við Hall-
armúla í Reykjavík.