Morgunblaðið - 09.12.1994, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
þ/}Ð VO&O E&l |
774 HNNOTABLem
Grettir
pAí>sm és ekio
GERt FYR1R.
LISTAVBRK )
ÞÖRFA SIWN I
\TÍMA,SKIfTF/i/
HNOPA
MUOEA
moe>A
SWTTU
KVRie
Tommi og Jenni
Ljóska
Jæja þá, ég las
bókina fyrir þig,
hvað geri ég nú?
Nú skrifar þú
ritgerðina.
Ég vona að
þú kunnir að
meta allt
þetta.
Ég skal senda
þér jólakort.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
FRÁ umræddum maraþondansi.
Unglingar
styrkja
alnæmissjúka
Maraþondans í Kolaportinu
Frá Jóhanni Guðmundssyni:
FRÉTT SEM var í Morgunblaðinu
1. des. vakti athygli mína og vakti
upp minningar frá þeim tíma, þegar
ég var unglingur og sendisveinn hjá
Geir í Ási, en verslunin var á Lauga-
vegi 160.
Mér kom í hug þegar fjárhópar
voru reknir á fæti austan úr sveitum,
og að lokum niður Laugaveginn til
slátrunar hjá Sláturfélaginu við
Skúlagötu. Það var gaman að sjá
falleg lömb og kindur oft fleiri hundr-
uð streyma eins og fljót áfram, sam-
an blandaðist hundgá, jarm, hróp og
köll rekstrarmanná, en gleðin var
blönduð samúð með þessum fjárhóp
sem gekk á vegi dauðans og lá í
valnum innan skamms.
Þessi minning kom í hug mér þeg-
ar ég las frétt í Morgunblaðinu. Sagt
er frá að hópur 6-700 unglinga hafi
farið í hópgöngu frá Hallgrímskirkju
niður í Kolaport.
(Áhorfandi sagði mér að þetta
hefðu verið fallegir, ærslafullir, kátir
krakkar og unglingar, sem létu vel
til sín heyra, þeir streymdu áfram,
eins og fljót niður Laugaveg að
Kolaporti, innsk. JG.)
Maraþondans hófst kl. 18 og stóð
til kl. 6 næsta morgun. Krakkarnir
tóku sér gjarnan eitthvað annað fyr-
ir hendur í hléum, t.d. var leikinn
körfubolti, setið við að pijóna smokk,
málaðar myndir og fleira.
Ut komust ungmennin hins vegar
ekki því allar dyr voru lokaðar fram
á morgun.
í sjónvarpi komu myndir frá
Kolaportinu af stækkuðum myndum
kynfæra og nöktu fólki í faðmlögum.
Unglingarnir voru flestir á aldr-
inum 13-15 ára og tilgangurinn var
sá að styrkja alnæmissjúka.
Benóný Ægisson, framkvæmda-
stjóri átaks íþrótta- og tómstunda-
ráðs Reykjavíkur og Alnæmissam-
takanna, segir að safnað hafi verið
áheitum fyrir alnæmissamtökin und-
anfarnar vikur.
Samkvæmt frásögn Benónýs hafa
krakkarnir fengið fræðslu um sjúk-
dóminn og þeir tekið fræðslunni vel.
„Þeir eru á þeim aldri að þeim
þykir allt sem tengist ást og kynlífi
nýtt og forvitnilegt og eru því mjög
móttækilegir til að meðtaka fræðslu
um alnæmi.
Fræðslan er auðvitað mjög nauð-
synleg á þessum tímum, sem við lif-
um,“ segir Benóný.
Hann sagði að krökkunum hefði
fundist spennandi að fá að vaka heila
nótt og stemmningin í Kolaportinu
hefði verið mjög góð.
Hvað hefði okkur þótt ef frétt
hefði borist utan úr heimi um að
6-700 krakkar 13-15 ára hefðu
verið lokuð inni heila nótt til þess
að dansa og m.a. pijóna smokk?
Kunningi minn sagði þegar þetta
barst í tal: „Af hveiju dönsuðu með-
limir Alnæmissamtakanna ekki sjálf-
ir þessa nótt?“
Voru aðstæður fullnægjandi?
Ég hef ekkert á móti Alnæmis-
samtökunum, en í þessu tilviki þegar
þau verða til þess að leiða böm og
unglinga íslensku þjóðarinnar inn í
þær kringumstæður, sem hér hafa
verið raktar, þá er nóg komið, og
ég spyr: „Eru yfirvöld borgarinnar
sátt við það sem hér hefur verið
gert á vegum íþrótta- og tómstund-
aráðs? Var hreinlætisaðstaða, loft-
ræsting, brunavamir og læknishjálp
í samræmi við þennan fjölda bama?
Hvað era foreldrar barnanna að
hugsa? Telja þeir að böm þeirra hafi
þessa nótt meðtekið inn í unga sál
sína þá fræðslu, sem þau þörfnuðust?
Hvað finnst uppeldisráðgjöfum,
sálfræðingum, félagsráðgjöfum,
skólastjórum og kennurum?
Skoðun mína læt ég í ljós vegna
frétta af þessum atburðum, sem les-
andi Morgunblaðsins og fréttaáhorf-
andi sjónvarpsins.
Ég er enginn sérfræðingur á þessu
sviði, en lífsreynslan mín segir mér
að uppskera þessar nætur muni snú-
ast upp í andhverfu sína.
I 119. Davíðs sálmi segir í 9 v.:
„Með hveiju getur ungur maður
haldið vegi sínum hreinum? Með því
að gefa gaum að orði þínu.“
JÓHANN GUÐMUNDSSON,
Látraströnd 8, Seltjarnarnesi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.