Morgunblaðið - 09.12.1994, Qupperneq 60
Sjúkraliðar
fá fjárstuðn-
ing úr ýms-
um áttum
GUÐMUNDUR J. Guðmunds-
son, formaður verkamannafé-
lagsins Dagsbrúnar, afhenti
Kristínu Á. Guðmundsdóttur,
formanni Sjúkraliðafélagsins,
750 þúsund krónur í verkfalls-
sjóð í gær. Áður hafði félagið
afhent sjúkraliðum eina milljón
króna.
Sjúkraliðafélagið fékk einnig
í gær eina milljón frá Rafiðna-
sambandinu og 300 þúsund frá
Sambandi íslenskra banka-
manna. Þá barst sjúkraliðum í
gær yflrlýsing um fjárstuðning
frá HÍK, flugfreyjum, flug- >>
virkjum, múrurum og Starfs-
mannafélagi Akureyrar.
„Þörfin eykst dag frá degi
þannig að við erum ákaflega
þakklátar fyrir þennan stuðn-
ing,“ sagði Birna Ólafsdóttir,
sem tekur á móti framlögum í
verkfallssjóð sjúkraliða á skrif-
stofu Sjúkraliðafélagsins. Hún
sagði að fjölmargir einstakling-
ar hefðu stutt félagið með fjár-
framlögum undanfarna daga.
Morgunblaðið/Kristinn
KRISTÍN Guðmundsdóttir þakkar Guðmundi J. Guðmundssyni fyrir stuðninginn frá Dagsbrún.
Stærstu
brugg-
verksmiðj-
unni lokað
STÆRSTA bruggverksmiðja sem
uppvíst hefur orðið um var gerð
upptæk af fíkniefnadeild lögreglunn-
ar í Reykjavík á miðnætti í nótt.
Lögreglan lagði hald á 2.400 lítra
af gambra og 150 lítra af landa í
neytendaumbúðum í iðnaðarhúsnæði
í vesturbænum. Bruggverksmiðjan
var afar tæknivædd og meðal ann-
ars búin tveimur suðutækjum. Ann-
að var fyrir 250 lítra, hitt fyrir 300.
---» ♦ ♦--
Islandsmet
í síldveiði
HÚNARÖST RE er búin að fá
13.500 tonn af síld frá því í septem-
ber. Eftir því sem blaðið kemst
næst er hér um að ræða metafla af
síld. Fyrra met átti Eggert Gíslason
og áhöfn hans á Gísla Árna. Það
var 12.692 tonn sem fengust frá í
maí og fram í desember 1966.
■ SilfrihafsinsbreyttígulI/31
Kennarar í KÍ o g HÍ K ræða leiðir til að fylgja
eftir kröfugerð samtakanna
Tímaáætlun tilbúin
um boðun verkfalls
RÆTT hefur verið að hefja undirbúning hugsanlegra verkfallsaðgerða
kennara upp úr áramótum innan Kennarasambands íslands og Hins
íslenska kennarafélags til að fylgja eftir sameiginlegri kröfugerð sam-
takanna. Tímaáætlanir sem gerðar hafa verið miðast við að unnt verði
að taka ákvörðun um atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun fyrir miðjan
janúar. Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands íslands, segir
að ef ákveðið verði mjög fljótlega að fara út í aðgerðir verði við það
miðað að þær hefjist fyrir lok febrúar áður en Alþingi lýkur störfum.
Hann tekur þó fram að slík ákvörðun hafí ekki verið tekin.
Rannsókn um tengsi atvinnulífs og skóla
Stúdentspróf fær-
ir ekki hærri laun
ÞEIR sem eru með stúdentspróf
hafa ekki hærri laun á vinnumark-
aði en þeir, sem aðeins hafa lokið
grunnskólaprófi. Aftur á móti
gegna stúdentar gjaman flóknari
störfum en hinir sem bendir til
þess að atvinnulífið kaupi stúd-
entsprófíð engu verði.
Að sama skapi skiptir nám af
tveggja ára bóknámsbrautum
engu máli, hvorki launalega né
starfslega séð.
Þetta eru meðal annars niður-
stöður dr. Gerðar G. Óskarsdóttur,
kennslustjóra í kennslufræði við
Háskóla íslands, en hún varði í
sumar doktorsritgerð um þetta
viðfangsefni við Kalifomíuháskóla
í Berkeley.
Áhugaleysi í atvinnulífi
Gerður kemst einnig að þeirri
niðurstöðu að lítil sem engin tengsl
séu á milli þeirra, sem skipuleggja
skólastarf og þeirra aðila í at-
vinnulífinu sem hafa með höndum
starfsmannaráðningar. Algjört
áhugaleysi ríkir hjá aðilum at-
vinnulífsins gagnvart hugmyndum
um aukna menntun, atvinnulífinu
til handa, enda viðkvæðið gjarnan
það að frekari menntun sé bæði
óþörf og óæskileg.
■ Daglegt líf/2-3C
Eiríkur sagði að tónninn í kenn-
urum hefði breyst mikið frá því
fyrir einu og hálfu ári þegar meiri-
hluti félaga í KÍ felldi í atkvæða-
greiðslu að boða til verkfalls. Að-
spurður sagði hann að rætt hefði
verið við félagsmenn um hvernig
ætti að fylgja kröfugerð samtak-
anna eftir og sagði að verkfall
væri eina löglega leiðin sem kenn-
arar ættu kost á. Eiríkur sagði að
menn hefðu skoðað almanakið eftir
áramót til að athuga hvernig hent-
aði best að standa að atkvæða-
greiðslu um verkfall ef kennarar
neyddust til að fara þá leið. Þá
þyrfti hún að fara fram mjög fljót-
lega upp úr áramótum.
„Þing fer heim í lok febrúar og
ef til þess kemur að menn færu út
í þessar aðgerðir mjög fljótlega, þá
myndi það örugglega gerast fyrir
þinglok," sagði Eiríkur.
4-6 vikna fyrirvari
Annar forystumaður kennara-
samtakanna sagði í samtali við
Morgunblaðið að menn væru búnir
að setja niður ákveðnar tímaáætl-
anir um aðdraganda hugsanlegra
verkfallsaðgerða. Reiknað væri með
að tæki 4-6 vikur að undirbúa að-
gerðir frá því að ákvörðun um at-
kvæðagreiðslu yrði tekin þar til
verkfall gæti hafist. Dreifa þyrfti
kjörgögnum og safna þeim saman
og svo þyrfti að boða verkfallið með
15 sólarhringa fyrirvara.
Kröfugerð kennara/4
Útlit fyrir 250
milljóna hagnað
hjá Járnblendinu
gerðu ráð fyrir upp undir 400
milljóna kr. hagnaði i ár. Jón
Sigurðsson framkvæmdastjóri
segir að verri útkoma en útlit
var fyrir í upphafi stafi af verð-
lækkun, þróun Bandaríkjadals,
dýrari hráefnum og kostnaði við
ofn sem bilaði í vor. Nú stefndi
í 250 milljóna kr. hagnað á ár-
inu. „Þetta er um 10% af veltu
og er ekki hægt annað en vera
ánægður með það,“ segir Jón.
—
Happdrættismarkaðurinn
ÚTLIT er fyrir að í ár verði 250
milljóna kr. hagnaður af rekstri
íslenska járnblendifélagsins hf.
á Grundartanga. Er það nokkru
minni hagnaður en áætlað var
og munar þar um 130-150 millj-
ónum en útkoman er þó 100
milljónum kr. betri en á síðasta
ári er tæplega 150 milljóna
króna gróði varð af rekstri verk-
smiðjunnar.
Áætlanir Jámblendifélagsins
Þriggja milljarða kr.
velta á ári hveiju
ÍSLENDINGAR eyða um þremur milljörðum í happdrætti, lottó,
happdrættisvélar, söfnunarkassa, bingó og þess háttar á ári. Af
þessum þremur milljörðum fá þeir sem detta í lukkupottinn rúma
tvo milljarða til baka aftur í ýmiss konar vinninga.
Risamir á markaðnum eru Happ-
drætti Háskóla íslands og íslensk
getspá. Þau vetta hvort fyrir sig langt
yfir milljarði króna á ári.
Hlutur líknarfélaga minnkar
Með nýjungum eins og sjónvarps-
leikjum og skafmiðum hefur hlutur
ýmissa félagasamtaka og líknarfé-
laga, sem hafa að miklu leyti fjár-
magnað starfsemi sína með árlegum
eða hálfsárslegum happdrættum,
minnkað til muna síðustu ár.
■ Við leggjum miIIjarða/30