Morgunblaðið - 10.01.1995, Blaðsíða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Tommi og Jenni
Ferdinand
THEN A VOICE C0ME5 TO ME THAT 5AV5,
"STOP STARIN6..Y0U'RE MAKIN6 U5 NERV0U5
WwMi
* y
Smáfólk
Stundum ligg ég vakandi að næturlagi og stari Þá heyri ég rödd sem segir, „Hættu að stara ... þú
bara út í myrkrið... gerir mig taugaveiklaðan"
/0-2 7
50METIMES I LIE AWAKE AT NléHT,
ANP JUST 5TARE INTO THE DARKNES5..
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
Svartsýnn á
sjávarútveginn
Frá Sigdóri Ó. Sigmarssyni:
í BYRJUN árs er eðlilegt að
hyggja að framtíðinni. Hvernig
mun sjávarútveginum farnast
þetta árið? Því miður er ég svart-
sýnn. Ég held að afkastageta tog-
araflotans hafi þegar náð há-
marki. Ég hef ekki trú á að við
finnum ný fiskimið á heimaslóð-
um. Ég held að öll fiskimið séu
fullnýtt. Við getum að vísu horft
eitthvað til loðnu og síldar, en all-
ir vita hvernig komið er fyrir
þorskstofninum.
Ég hefí ekki trú á að togararn-
ir eigi eftir að moka upp þorski
næstu árin við Svalbarða eða í
Smugunni. Hvemig verður þá
brugðist við? Hrúgast ekki togar-
arnir á karfamiðin suð- og suð-
vestur af landinu? Og hvað endast
þau lengi? Þeir bjartsýnu togaraút-
vegsmenn sem hafa verið að kaupa
ný og ný skip til landsins undan-
farið ættu að fara að hugsa sinn
gang. Ég hefði áhyggjur, stæði
ég í þeirra sporum.
Ýmsir útgerðarmenn hafa
bjargað sér á rækjuveiðum. Það
vita allir, sem koma nálægt sjávar-
útvegi, að þegar þorskurinn
minnkar eykst rækjan. Hvað sá
veiðiskapur ber í skauti veit ég
ekki.
Sjó- og verkamenn eiga
engan málsvara
Kosningar fara í hönd á árinu.
Ég vona að þingmenn og aðrir
ráðamenn hugi vel að framtíðar-
ráðum. Ég hefí sagt það áður og
segi það enn að sjómenn og verka-
menn eiga enga málsvara á Al-
þingi, ekki heldur í Alþýðubanda-
laginu, sem er „snobbflokkur" með
Svavar Gestsson í fararbroddi,
eins og framboðslistinn í Reykja-
vík sýnir. A þeim bæ fá fylgis-
menn ekki að raða frambjóðendum
á framboðslista. Enda fær Alþýðu-
bandalagið naumast mörg atkvæði
í Reykjavík, nema kannski frá fólki
sem telur sig lista- og mennta-
menn og vill gera höfuðborgina
að hálfgerðri Litlu-París.
Og er ekki kominn tími til að
hægja á fjárfestingu í steinsteypu,
perlum, íþróttahöllum, bókhlöðum
leikhúsum og galleríum? Höfum
við efni á öllu þessu ijárfestingar-
bruðli, ekki stærri þjóð en við er-
um?
Ég, sem set þessar línur á blað,
er sjómaður, sem vonar, að fólk
hugsi sig vel um þegar það kýs í
næstu alþingiskosningum.
SIGDÓR Ó. SIGMARSSON,
Skipasundi 79, Reykjavík.
Fréttatilkynning frá
V erkfræðideild
Háskóla Islands
Frá Júlíusi Sólnes:
VEGNA ummæla Jónu Gróu Sig-
urðardóttur borgarfulltrúa á borg-
arstjómarfundi 5. janúar 1995
þess efnis að grunnrannsóknir séu
ekki stundaðar við verkfræðideild
Háskóla íslands, er rétt að eftir-
farandi komi fram:
Við verkfræðideild Háskóla ís-
lands hafa um áraraðir verið
stundaðar grunnrannsóknir í ýms-
um verkfræðigreinum. Má þar
meðal annars nefna kerfísverk-
fræði (sjálfvirkt tilkynningakerfí
fiskiskipa og upplýsingakerfi við
flugumferðarstjórn), upplýsinga-
og merkjafræði, mannvirkjagerð á
jarðskjálftasvæðum, jarðhitanýt-
ingu og hitaveitur, vatna- og
straumfræði og raforkukerfí.
Nokkrar doktorsritgerðir hafa
verið unnar á vegum deildarinnar
í tengslum við þessar rannsóknir
á undanfömum árum og má þar
nefna doktorsritgerð Páls Valdi-
marssonar, „Gerð reiknilíkana af
hitaveitukerfum", sem varin var
við deildina 31. ágúst 1993. Allar
vísindagreinar eiga sér sinn gmnn
og þær rannsóknir, sem stundaðar
em til þess að styrkja hann, eru
nefndar grunnrannsóknir.
Benda má á að verkfræðideild
Háskóla íslands hefur ein deilda
við Háskóla íslands verið tekin út
af viðurkenndum erlendum aðila.
í úttektarskýrslunni er staðfest
að þær rannsóknir sem stundaðar
em við deildina, bæði grunnrann-
sóknir og hagnýtar rannsóknir,
em fyllilega sambærilegar við það
sem tíðkast við bandaríska há-
skóla. í skýrslunni er einnig hvatt
til aukinna tengsla við atvinnufyr-
irtæki um rannsóknir. Þjóðfélag
framtíðarinnar er tæknivætt og
homsteinn þess er öflug tækni-
þekking. Verkfræðideild Háskóla
Islands mun hér eftir sem hingað
til afla þessarar nauðsynlegu
tækniþekkingar og miðla henni til
þjóðfélagsins, bæði með vel
menntuðum verkfræðingum og
með rannsóknarsamstarfi við at-
vinnufyriræki.
JÚLÍUS SÓLNES,
deildarforseti.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.